Morgunblaðið - 18.05.1988, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
Nokkrir meðlimir hljómsveitar Rauða hersins í Sovétríkjunum færðu Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, tvær breiðskífur og myndbandsspólu þegar þeir heimsóttu ráðherrann í Dow-
ning-stræti í gær. Thatcher fór á tónleika hljómsveitarinnar, sem nú er á ferð um Bretland.
Paraguay:
Páfi gagnrýnir
stjórn landsins
Asuncion. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi annar kom
á mánudag til Paraguay í ferð
sinni um ríki rómönsku Ameríku.
í mótttöku fyrir Alfred Stroessn-
er, hershöfðingja og forseta, og
sendifulltrúa erlendra ríkja
flutti páfi ávarp um mannrétt-
indamál og pólitiskt siðferði.
Einnig tók hann einarðlega undir
gagnrýni biskupa í Paraguay á
stjórn landsins.
Stroessner varði sig og stjóm
sína af hörku að lokinni ræðu páfa.
Hann sagði að friður ríkti í Paragu-
ay og alls staðar sæust merki fram-
fara. Landið væri laust við hryðju-
verkastarfsemi, hungur og fíkni-
efnavandamál. „Við búum við lýð-
ræði í Paraguay og höldum reglu-
lega kosningar þar sem engin brögð
eru í tafli," sagði hershöfðinginn.
í ræðu sinni hvatti páfinn Stro-
essner til að stuðla að sáttum hinna
ýmsu þjóðfélagshópa og auka þátt-
töku landsmanna í stjóm mála
sinna. Undanfarin ár hefur herfor-
inginn hafnað áskomn kirkjunnar
um þjóðarsátt og sagt að kirkjan
ætti að halda sig við trúmál. „Kirkj-
an verður ekki einangmð innan
veggja guðshúsanna," sagði páfi
hins vegar. Fyrir mótttökuna átti
hann 25 mínútna einkafund með
Stroessner og er sagt að viðræður
þeirra hafi verið opinskáar og vin-
samlegar.
Skömmu eftir komu páfa til
Paraguay í fyrradag handtók lög-
regla bandarískan prest, tvo
bændaleiðtoga og verkalýðsforinga.
Atvikið átti sér stað er mennimir
yfírgáfu kirkju þar sem 150 menn
em í mótmælasvelti. Mótmæli
þeirra beinast gegn stefnu stjómar
Stroessners.
Reuter
Hljómsveit Rauða hersins heimsækir Thatcher
Breska stjórnin;
Reuter
Stöðugur ágreining-
ur um gengismál
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Jóhannes Páll páfi ræddi í gær við katólska presta og nunnur í
Asuncion, höfuðborg Paraguay, og var myndin tekin við það tæki-
færi.
MARGARET Thatcher forsætis-
ráðherra hefur ekki enn jafnað
ágreining sinn við Nigel Lawson
fjármálaráðherra um stefnuna í
gengismálum og aðild að evrópska
myntkerfinu. Hefur óvissa um nið-
urstöðu þess máls áhrif á stöðu
pundsins. Á vegum bresku stjóm-
arinnar er nú verið að kanna
breytingar á almannatrygginga-
kerfi, sem miða að þvf að þeir
einstaklingar fái skattafrádrátt
er standa straum af kostnaði við
einkaheilbrigðisþjónustu.
Thatcher hélt aðalræðuna á árs-
þingi skoskra íhaldsmanna síðastliðið
Aðstoðarmaður Stalíns
skipulagði fjöldaaftökur
segir í grein í vikuritinu Ogonjok
Moskvu, Reuter.
AÐSTOÐARMAÐUR Jósefs
Stalíns, Andrej Zhdanov, skipu-
lagði fjöldamorð á „óvinum þjóð-
arinnar" i stjórnartið Stalins,
sem líkja má við ódæðisverk
nasista í seinni heimsstyijöld-
inni, segir i grein sem birtist i
sovéska vikuritinu Ogonjok fyrr
í þessum mánuði.
Vikuritið Ogonjok segir að
fiöldamorð hafi verið framin í Úfa,
höfuðborg Bashkír, undir stjóm
Zhdanovs. Hann var talinn líklegur
eftirmaður Stalin um tíma á fjórða
áratugnum. Ogonjok vitnar í
skýrslu rithöfundar frá Úfa sem
rannsakað hefur atburði sem áttu
sér stað í stjómartíð Stalíns. „Af-
tökumar fóm fram í námum og
hellum í útjarðri borgarinnar," er
haft eftir rithöfundinum, Tsjanov,
í greininni. Eftir hreinsanimar í
Úfa skipulagði Zhdanov fjöldaaf-
tökur í Kazan, Orenburg og fleiri
borgum. „Hinir látnu vora grafnir
að næturlagi í §öldagröfum,“ segir
Tsjanov. í Kazan og Orenburg var
sömu aðferðum beitt eftir að
Zhdanov hafði fjaríægt æðstu leið-
toga kommúnistaflokksins í borg-
unum.
Greinin í Ogonjok er ein af mörg-
um sem birst hafá í tímaritum og
blöðum í Sovétríkjunum að undan-
fömu þar sem greint er frá opin-
beram skýrslum og frásögnum
sjónarvotta, sem haldið hefur verið
leyndum í áratugi til að hylma yfir
ógnarverkin sem framin vora á
Stalíns-tímanum. Míkhaíl Gor-
batsjov leiðtogi Sovétríkjanna hef-
ur fordæmt það sem hann hefur
kallað glæpi Stalíns og hefur kraf-
ist þess að „auðu síðumar" í sögu
Sovétríkjanna verði fylltar með
sönnum frásögnum um aðgerðir
Stalíns og fylginauta hans.
Greinin í Ogonjok, sem skrifuð
er af Júrí Karjakín, er hin fyrsta
sem fjallar er um aðgerðir
Zhdanovs, sem enn heldur titli
sínum sem „sannur þjónn þjóðar-
innar og kommúnistaflokksins" á
opinberam vettvangi. Kaijakín seg-
ir í grein sinni að Zhdanov sem þá
var leiðtogi kommúnistaflokksins í
Leníngrad, hafi verið fluttur til Úfa
árið 1937 eftir að leiðtogi fíokksins
í Bashkír hafði farið þess á leit við
Stalin að hann gripi til aðgerða
vegna aukins andófs í héraðinu.
Eftir að Zhdanov kom til Úfa
kallaði hann þegar saman fund
fíokksleiðtoga og las upp fyrir þá
samþykkt sem gefin haJfði verið út
í Moskvu þar sem fyrirskipuð var
uppsögn Bykíns fíokksleiðtoga og
aðstoðarmanns hans. Báðir vora
þessir menn teknir höndum á
staðnum og færðir á brott til af-
tökustaðar, að sögn Kaijakíns.
„Eiginkona Bykíns sem var bams-
hafandi var einnig tekin af lífi,“
segir Kaijakín og vitnar þar til
skýrslu Tsjanovs um rannsóknir
hans á atburðunum í Úfa.
í skýrslu Tsjanovs segir að í kjöl-
far aftöku Bykíns og annara yfír-
manna flokksins hafi fylgt „gegnd-
arlausar handtökur og aftökur."
Einn þeirra sem tók þátt í aðgerð-
unum státaði af því að hafa flett
ofan af 26 „óvinum fólksins" eins
og fómarlömbin voru nefnd, segir
Tsjanov.
Zhdanov sem var aðalmaðurinn
í hreinsunum Stalíns fyrir seinni
heimsstyijöldina lést árið 1948.
Notfærði Stalín sér dauða hans til
að losa sig við menn í Leníngrad
sem hann taldi óæskilega. Ásakaði
hann þá fyrir að hafa eitrað fyrir
Zhdanov. Byggingar og götur í
Lenfngrad bera enn nafn Zhdanovs
en, að sögn Kaijakíns er mikil
hreyfing í þátt átt að gera hann
útlægan fyrir þau voðaverk sem
hann framdi.
föstudagskvöld. Þar vísaði hún á bug
öllum tillögum um sérstakt þjóðþing
Skota og varði af hörku gerðir stjóm-
ar sinnar. Á laugardag var hún við-
stödd úrslitaleik skosku bikarkeppn-
innar á Hampden Park í Glasgow.
Það var í fyrsta skipti, sem breskur
forsætisráðherra er viðstaddur úr-
slitaleik í þeirri keppni. í leikslok
afhenti hún fyrirliða Celtic bikarinn
eftir frækilegan sigur liðsins.
Stöðugur ágreiningur Thatcher og
Nigels Lawsons fjármálaráðherra um
stefnuna í gengismálum og aðild að
evrópska myntkerfinu veldur áhyggj-
um. Forsætisráðherrann hefur ævin-
lega lagst gegn aðild að myntkerfínu
og trúir því, að engin ástæða sé til
að koma í veg fyrir hátt gengi punds-
ins. Fjármálaráðherrann er hins veg-
ar á öndverðri skoðun. Þessi ágrein-
ingur hefur valdið veralegri hækkun
pundsins. Ýmsir valdamenn innan
lhaldsflokksins hafa látið í ljós þá
skoðun, að ráðherramir verði að
koma sér saman, áður en frekari
skaði hljótist af.
Margaret Thatcher stjómar ráð-
herranefnd, sem er að endurskoða
heilbrigðiskerfið. John Redwood,
fyrrverandi náinn ráðgjafi hennar og
núverandi þingmaður, gaf út skýrslu
síðastliðinn laugardag, sem hann
lagði fyrir nefndina. Þar leggur hann
til, að skattafrádrætti verði beitt til
að hvetja einstaklinga til að leggja
fé í einkaheilsugæslu. Svipað fyrir-
komulag gildir um lffeyrisgreiðslur
og hefur gefist vel.
Að sögn The Sunday Times síðast-
liðinn sunnudag vinnur heilbrigðis-
ráðuneytið að rannsókn á, hvort
æskilegt sé að framkvæma svipaða
tillögu og Redwood leggur fram. Þar
segir einnig, að fjármálaráðuneytið
leggist nú ekki gegn þessum hug-
myndum eins og jafnan áður.
Redwood telur að að með þessu
fyrirkomulagi megi Qórfalda framlög
einstaklinga til heilbrigðismála frá
því sem nú er. Opinber heilsugæsla
kosti nú 5,6% af þjóðarframleiðslu,
en einkaheilsugæsla 0,6%. Hann tel-
ur, að auka megi hlutfall éinkageir-
ans í 2,5% af þjóðarframleiðslu.
Reuter
11 slasast í umferðaróhappi
11 manns slösuðust er vörabifreið ók á sporvagn í San Francisco í Banda-
ríkjunum í gær. Miklar skemmdir urðu á sporvagninum og sýnir myndin
björgunarmenn að störfum við að losa einn farþeganna úr flakinu. Að
sögn lögregluyfírvalda í San Francisco era fimm farþeganna alvarlega
slasaðir.