Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 41

Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 41
YDDA F15.1/SÍA A K MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 í Gojjamhéraði í Eþíópíu deyr fjöldi barna og fullorðinna á hverju ári úr sjúkdómum sem sóttmengað neysluvatn veldur. Því þótt þar sé nú víðast hvar nægilegt vatn, fyrir menn og búpening - og sums staðar jafnvel fyrir litlar áveitur, þarf meira til. Uppspretturnar eru flestar alls óvarðar, búpeningur gengur í vatnsbólin og í rigningum mengar jarðvegurinn vatnið. Ef neysluvatnið á að vera skaðlaust er nauðsynlegt að vernda vatnsbólin. Einfaldar úrbætur Tiltölulega auðvelt og ódýrt er að byggja yfir uppspretturnar þannig að neysluvatnið haldist hreint og ómengað. Kostnaður við verndun hvers vatnsbóls er aðeins um 75.000 krónur. Hvert vatnsból nýtist a.m.k. íbiium eins þorps sem oftast eru á bilinu 1500-3000 manns. Oft eru þó fleiri en eitt þorp um vatnsbólið. í ár verjum við öllu söfnunarfé Hjálparsjóðsins til varanlegrar lausnar á þessum vanda íbúanna í Gojjam. í fyrsta áfanganum ætlum við að tryggja a.m.k. hálfri milljón manna aðgang að hreinu neysluvatni. Þessa dagana sendum við öllum heimilum landsins gíróseðla með von um stuðning. Og til að enn fleiri geti lagt sitt af mörkum mun Fimleikasam- band íslands selja fyrir okkur drykkjarvatn í dósum. Allt andvirði dósanna rennur í söfnunina. Hjálpumst öll að, gefum eftir efnum og ástæð- um. Þá náum við takmarkinu auðveldlega - eins og að drekka vatn. Hreint vatn er varanleg h'" HREINT VATN HANDA EÞÍÓPÍU HJÁLPARSJÓÐUR RAUÐA KROSS ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.