Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 51

Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988 51 Minning: Ólöf Bessadóttir frá Siglufirði ég annað viðmót gagnvart mér, en hún sýndi sínum eigin bömum. All- ur hennar áhugi snérist um fjöl- skylduna. Var hún óþreytandi að finna út, hvemig hún gæti best létt undir með bömum sínum og hjálpað þeim á alla lund. Svo þegar hennar böm fluttust að heiman og fjöl- skyldumar stækkuðu, snerist þessi hugsun um bamabömin. Hændust þau fljótt að heimili afa og ömmu, enda ávallt hugsað um að gleðja þau eitthvað er þau komu þar. Er því víst, að víða ríkir sár söknuður hjá þeim, því nú er ekki lengur von á óvæntum glaðningi frá ömmu. Ævidagar Unu voru ekki sam- felldur dans á rósum. Með jafnstóra fjölskyldu og Una og Eiríkur eign- uðust, þurftu bæði að leggja hart að sér. Er það augljóst mál, að hún kappkostaði umfram allt að gleðja aðra. Það vom henni nægjanleg laun fyrir fómfúst og óeigingjamt starf, að sjá aðra gleðjast yfir þvl sem hún hafði á sig lagt. Má um hana segja, að henni fannst sælla að gefa en þiggja. Mörg seinustu æviárin var heilsa Unu ákaflega tæp. Vora það lungun sem gerðu henni hvað erfiðast fyrir undir það síðasta. Kenndi hún þar að vonum reykingum mest um. Vildi hún því leggja sitt af mörkum tii vamar gegn þeim. Akvað hún þá er hún lá núna síðast á Vífilstöðum að koma fram í sjónvarpsþætti sem Stöð 2 lét gera og sýndi skaðsemi þeirra. Taldi hún það skyldu að benda öðram á það, sem hún — því miður — tók ekki nógu alvarlega meðan tími var til. Þrátt fyrir misjafnt heilsufar síðustu ár sá Una alfarið um heim- ili þeirra Eiríks eins og hún gerði ævinlega allt þar til hún lagðist á Vífilsstaðaspítala í mars sl. Með þessum orðum kveð ég Unu Eyjólfsdóttur og þakka henni af alhug allt, sem hún gerði fyrir mig. Eiríki og öllum öðram ættingjum og vinum, sem nú harma góða konu, sendi ég mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Gummi Hún Una mín er dáin. Ég minn- ist hennar fyrst, þegar ég lítil stelpa var í sveit hjá ömmu og afa, Kristínu Gróu Guðmundsdóttur og Sigfúsi Sigfúss á Stóra-Hvalsá í Hrútafirði. Hún tók alltaf svo vel á móti mér, þegar ég var að koma norður. Ég sat svo oft og rabbaði við hana á meðan hún var í inni- verkunum. Þegar Dengsi bróðir minn var hjá Unu og Eiríki hélt ég nærri því til hjá þeim. Og hvað það var gaman í fermingarveislunum * og afmælum hjá þeim. Þá spilaði hún á harmonikku og söng og trall- aði, en stundum lét hún strákana spila og þá var dansað eftir gangin- um á Hvalsá. Það var alveg sama hvenær maður hitti hana, alltaf var hún Una mín svo hress og kát. Þegar þau fluttu suður hitti ég þau oftar. Ekkert breyttist Una við að flytja úr sveitinni. Hún tók alltaf vel á móti öllum, eins og maður væri konungborinn. Nú fór að bera á veikindum hjá mér, en alltaf styrkti Una mig. Hún skildi svo vel hvemig mér leið, því hún sjálf var sjúk. Það brást heldur ekki að mér leið alltaf svo vel eftir að Una og Eiríkur höfðu heimsótt mig, eða við heimsótt þau. Þegar mér svo datt í hug að læra hárgreiðslu, þá var stuðningur hennar mér svo mikils virði. Hún vissi sem var að eftir margra ára hlé frá skóla er erfitt að byrja aftur. En hún efaðist ekki eitt andartak um getu mína og hæfni og dró ekki dul á það. Enda efldist líka sjálfstraustið hjá mér í hvert skipti sem ég hitti hana eða talaði við hana í síma. Svona var hún Una alla tíð, hvatti til dáða allt og alla. Nú er ég sama sem búin að læra, en elsku Una mín er horfin á braut. En ef það er hægt er ég viss um að hún fylgist úr fjar- lægð með okkur öllum sem kveðjum hana í dag. Elsku Eiríkur frændi minn, ég vil biðja góðan Guð að styðja og styrkja þig, bömin ykkar, tengda- böm, barnaböm og alla sem sakna, syrgja og kveðja Unu Eyjólfsdóttur. Stina Fædd 4. ágúst 1900 Dáin 10. mai 1988 í dag er til grafar borin Ólöf Bessadóttir, dóttir hjónanna Bessa Þorleifssonar skipstjóra og Ingi- bjargar Stefánsdóttur frá Lamba- nesi, Reykjum í Fljótum, bæði síðar á Siglufírði, þar sem móðuramma mín og naftia fæddist. Ég veit að amma vildi engar lofræður, hún sagði alltaf, þegar ég dey vill ég bara sálmasöng. En þar sem ég á svo sterkar minningar um þessa grönnu, tignu konu langar mig að skrifa nokkrar línur. Það var aðeins girðing sem skildi að garða foreldra minna og afa og ömmu fyrstu 8 ár æfi minnar, og man ég vart eftir öðra en að vera að hoppa yfir girðinguna til þeirra. Þegar ég kom í eitt skipti þá 6 ára sagði amma, Ólöf, ég er búin að láta innrita þig í skóla. Þú kemur til mín og ég sé um að láta þig læra að lesa. Amma var metnaðar- full kona, hafði óþijótandi þolin- mæði, sér í lagi við böm, þessir lestrartímar okkar saman era mér ógleymanlegir. Ég flutti 8 ára frá Siglufírði, burt frá ömmu og afa, sem vora svo mikilvæg í lífi mínu, en fékk að koma til þeirra strax næsta vor, og var hjá þeim 5 ógleymanleg sumur. Afí minn, Símon Márasson, lést fyrir tæpum 3 áram, hann var yndislegur mað- ur. Amma lagði mikla rækt við garðinn sinn. Mér fannst hann allt- af fallegasti garðurinn í öllum heim- inum, enda lá mikil vinna að baki honum. Hún var mjög trúuð kona, kenndi mér morgunbænir sem við fóram með saman á hveijum morgni, á sunnudagskvöldum hlust- uðum við á hugvekju það var fastur liður hjá okkur. Við öll sín störf sönglaði hún sálma sem ég kann enn þann dag í dag. Það fór enginn varhluta í bænum hennar, hún bað fyrir öllum sem minna máttu sín. Á hveiju hausti sendi hún mig með peninga í umslagi sem hún hafði safnað og lét renna í söfnuði fyrir þá sem áttu bágt. Auðvitað mátti enginn vita af því. Amma var mik- ið snyrtimenni, lærði ég fljótt að allt átti að vera í röð og reglu inn- an dyra sem utan. Gaman er að minnast ferfættu vina hennar, allt upp í 5 villikettir biðu við dymar hjá henni og eltu hana svo í hala- rófu kringum húsið og ofan í kjall- ara til að fá matinn sinn. Amma var ekki eins og flestar konur á hennar aldri að hafa gaman af hannyrðum, heldur safnaði hún fal- legum steinum, skeljum og kuðung- um, úr því bjó hún til allskonar fallegar skreytingar. Hjá afa og ömmu var hvorki sími né sjónvarp, vora kvöldin oft nota- leg, mikið spilað og sagðar sögur frá gömlum tímum. Amma sagði oft „viltu vera hænan mín“ þá var hún að biðja mig að tína það stærsta upp úr teppinu, og eða þegar hún sendi mig í búðir, ef hlutimir vora nokkrir sem kaupa átti sagði hún: „Búðu til lag við það sem þú átt að kaupa, þá manst þú það.“ Svona aðferðir tileinkaði amma sér, allt var svo auðvelt og þægilegt, alltaf beðið-með góðu. Amma var glettin og geðgóð kona og síðast en ekki síst sanngjöm. Undir það síðasta var amma orð- in þreytt og var því hvfldin kærkom- in henni. Við systkinin kveðjum ömmu, minningin um hana er sem björt stjama í lífí okkar. Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber. Guð í alheims geimi, guð í sjálfum þér. Ólöf Bjamadóttir í dag er kvödd í hinsta sinn, frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, amma mín, Ólöf Bessadóttir frá Siglufírði. Er ég sest niður með penna og blað, þá rifjast upp margar bjartar minningar. Virðing og þakklæti er mér efst í huga við fráfall hennar. Þegar ég minnist áranna norður á Siglufirði, þá verður nafn ömmu og afa ætíð efst í huga mínum. Ung að áram kynntist amma Júlíusi Jóhannssyni, giftu þau sig þann 20. október 1918. Ekki varð þeirra samvera löng, því Júlíus drakknaði í aftakaveðri 3. septem- ber 1923, þegar hann var í sand- flutningum á Siglufirði. Þau eign- uðust saman eina dóttur, Katrínu, sem er móðir mín. Seinna kynntist amma ungum manni sem átti eftir að verða henn- ar lífsföranautur og eiginmaður, Símon Márasson frá Haganesvík, mikill drengskr.parmaður. Gengu þau í hjónaband 28. júlí 1928. Með eljusemi og þrotlausum dugnaði komu þau sér upp mjmdarlegu heimili á Hlíðarvegi 23, afi starfaði mestan hluta ævi sinnar hjá Sfldar- verksmiðjum ríkisins Siglufirði, og þá lengst af sem kyndari. Vann hann sitt starf af stakri trú- mennsku, var traustur og ábyggi- legur, þannig var afí alla tíð. Þau eignuðust tvær dætur, Júlíönu og Ingibjörgu. Afi lést 22. október 1985, rúmlega 83 ára gamall. Sam- band þeirra ömmu og afa var ætíð mjög gott, bára þau virðingu hvort fyrir öðra og gagnkvæm væntum- þykja einkenndi líf þeirra beggja. Heimili þeirra bar vott um smekk- vísi og snyrtimennsku þeirra hjóna. Blómagarðurinn við húsvegginn sem amma ræktaði og hlúði að, vitnaði best um þær hendur sem um gróðurinn fóra. Amma var hreinskilin, heiðarleg og réttsýn, þoldi illa hverskyns yfír- gang og yfirdrepsskap. Hún gat verið hvöss þegar því var að skipta og þess þurfti með, kom hún jafnan til dyranna eins og hún var klædd. Já, það var alltaf gott að koma til afa og ömmu í heimsókn, þar var ekki í kot vísað. En það vora oft ekki bara heimsóknir, því æði oft dvöldum við systkinin hjá þeim í lengri eða skemmri tíma, vegna veikinda móður okkar á tímabili. Amma var einstaklega góð við alla þá sem minna máttu sín, og rétti ófáum hjálparhönd þegar þess þurfti með. Á jólum sameinaðist fjölskyldan ævinlega heima hjá afa og ömmu, era minningar mínar um jólin hjá þeim í huga mínum sem perlur. Afi og amma fluttu suður árið 1979, áður hafði amma orðið fyrir því óláni að lærbrotna, náði hún sér aldrei fyllilega eftir það. Síðustu æviárin dvöldu þau í skjóli dætra sinna, og þar leið þeim vel. Alla tíð bar amma virðipgu fyrir orði Guðs, og trúði hún á mátt bænarinnar. Amma dvaldi síðustu 15 mánuðina í Hátúni lOb, á öldranardeild. Hennar dagsverki er lokið hér á jörð, eftir lifir minning um góða konu, megi hún hvíla í friði. Valgeir Matthíasson t Maðurinn minn, t ÓLAFUR GUÐMUNDSSON VILHJÁLMUR GUÐMUNDSSON frá Litluhlfð frá Stóra-Nýjabæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 19. maí kl. Krfsuvfk, 10.30 árdegis. er látinn. Vandamenn. Ragnheiður Sigurðardóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR, Hvassaleltl 51, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 16. maí. Sigurjón Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Halldór Guðmundsson, Ólafur Helgi Guðmundsson. Aðalheiður Guðmundsdóttir, t Eiginkona mín, ANNA EINARSDÓTTIR, lóst í Hrafnistu, Hafnarfirði 1. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Eirfkur Björnsson. + Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, VALBORGAR E. ÞÓRARINSDÓTTUR húsfreyju, Melum, Kjalarnesi, verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 18. maíkl. 13.30. Indriðl Einarsson, Ólafur Kr. Ólafsson, Guðrún Gfsladóttlr, Sigurrós Kr. Indriðadóttir, örnólfur Fr. Björgvinsson, Einar Indriðason, Vilborg Guðmundsdóttir, Guðmundur Oddgeir Indriðason, Þurfður Birna Halidórsdóttir, Guðni A. Indriðason og barnabörn. t Jarðarför ÁSTU HANNESDÓTTUR, áðurtil heimilis á Freyjugötu 5, Reykjavfk, fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 20. maí kl. 10.30. Aðstandendur. t Systir okkar, mágkona og frænka, MARGRÉT EINARSDÓTTIR, Skólavörðustfg 35, verður jarösungin frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hennar, láti Hallgrímskirkju njóta þess. Guðrún Einarsdóttir, Sigrfður Einarsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Helgi Einarsson, Kristfn Friðriksdóttir og aðrir aöstandendur. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, EIRfKUR BJÖRGVIN LÁRUSSON, Hvassaleiti 6, verðurjarðsunginnfrá Bústaðakirkju fimmtudaginn 19. maíkl. 16.30. Gfsli Eirfksson, Hilmar Eirfksson, Kristfn Gfsladóttir, Dýrleif Frímannsdóttir, Guðlaug Gfsladóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.