Morgunblaðið - 18.05.1988, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
Pétur Agúst
Arnason
Fæddur 17. ágúst 1901
Dáinn 7. maí 1988
í dag verður Pétur Ágúst Áma-
son kvaddur hinstu kveðju frá
Laugameskirkju, en hann andaðist
hinn 7. maí sl. á öldrunarlækrtinga-
deild Landspítalans í Hátúni 1 lOb.
Pétur, tengdafaðir minn, var
óvenju traustur og mikill mann-
kostamaður og er mér ljúft að minn-
ast hans með nokkmm orðum og
ri§a upp okkar góðu kynni.
Pétur ólst upp við Stýrimanna-
stíginn í Reykjavík. Faðir hans var
Ámi Hannesson skútuskipstjóri og
einn af fyrstu togaraskipstjórum
okkar íslendinga, sonur Hannesar
Hanssonar landpósts. Móðir Péturs
var Sigríður Pétursdóttir ættuð af
Álftanesi. Ámi lét byggja húsið að
Stýrimannastíg 8 og stendur það
enn. Þar bjuggu þau Sigríður á
uppvaxtarárum Péturs. Hann gekk
í Landakotsskólann og hlaut þar
góða undirstöðumenntun sem hann
bjó að alla tíð. Á sýningu sem hald-
in var á sl. ári í tilefni af 90 ára
afmæli skólans var m.a. sýnishom
af skólavinnu Péturs.
Ámi lést úr spönsku veikinni
1918 og stóð Sigríður þá ein uppi
með tvö böm, Pétur og systur hans
Sigríði, sem látin er fyrir nokkrum
ámm. Pétur varð þá að leggja frek-
ari námsáætlanir á hilluna og taka
að sér að vinna fyrir heimilinu.
Hann var dugnaðarforkur til allra
verka enda var hann óvenju vel að
manni. Mjög kært var alla tíð með
Pétri og Sigríði systur hans.
Framan af ævinni stundaði Pétur
sjómennsku aðallega á togurum.
Þetta var á ámnum fyrir vökulögin
og völdust hinir vöskustu menn til
- Minning
starfa á togumnum, enda setið um
hvert pláss þótt vinnan væri erfið.
Árið 1940 giftist Pétur eftirlif-
andi konu sinni, Helgu Jónsdóttir
frá Tungufelii í Hmnamanna-
hreppi. Þau hófu búskap á Urð-
arstíg 16A en lengst af bjuggu þau
á Silfurteigi 3. Þau eignuðust tvær
dætur. Svandísi kennara á Akra-
nesi, sem gift er þeim sem þessar
lfnur ritar og Sigríði kennara í
Laugamesskólanum í Reykjavík, en
hún starfar einnig við Greiningar-
og ráðgjafastöð ríkisins. Hjónaband
þeirra Péturs og Helgu var ástríkt
og farsælt. Óvenju gestkvæmt var
hjá þeim, enda öllum gestum tekið
með sérstakri gestrisni og gaman
var jafnan að koma á heimili þeirra.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HELGIÁRNASON,
Lyngbrekku 13,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. maí kl.
15.00.
Sveinbjörg Jónsdóttir,
Reynir Helgason, Björg Gfsladóttir,
Jón Helgason, Stefanfa Björnsdóttir,
Sveinbjörg Jónsdóttlr, Stefán Helgi Jónsson,
Berglind Reynisdóttir, Rannvelg Jónsdóttir.
t
Við þökkum innilega öllum er sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát móður okkar,
HALLDÓRU WALDORFF
frá Neskaupstað.
Margrát Lára Bouranel,
Þórður Waldorff,
Skúll Waldorff
og fjölskyldur.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðar-
för móður okkar, tengdamóður og ömmu,
BRÍETAR ÓLAFSDÓTTUR,
Hólmgarði 21.
Guöbjörg Lilja Guðmundsdóttlr, Krlstján Sigfússon,
Margrót Erla Guðmundsdóttir, Ólafur Egllsson,
Guðrún Hanna Guðmundsdóttir, Árni Magnússon,
Jóhann Ingi Guömundsson,
Sigmundur Birglr Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda vinsemd og viröingu viö andlát og
útför systur okkar,
HALLFRlÐAR ÞORVARÐARDÓTTUR,
Stóragerði 12,
Reykjavfk.
Systkinin frá Bakka,
Kjalamosl.
Pétur var mikill íþróttamaður
fyrr á árum. Hann var einn af stofn-
endum sunddeildar KR þegar hún
var stofnuð árið 1923. Lagði hann
vesturbæjarliðinu jafnan liðsstyrk
og það löngu eftir að hann var flutt-
ur í austurbæinn. Hann átti marga
afreksminjapeninga frá þessum
tíma bæði frá Islandssundi, alls-
heijarmótum, fijálsíþróttamótum
og stakkasundi.
Eftirminnilegust var Pétri samt
þátttaka hans í Nýárssundinu, en
sú keppni fór fram á nýársdag í
sjónum fyrir vestan Granda. Synt
var þaðan sem nú er hús Jóns Lofts-
sonar hf. og að höfninni. Þátttaka
í þessu sundi var ekki heiglum hent
enda oft kalsalegt að synda í sjónum
í skammdeginu á kaldasta tíma
ársins. Oft voru helstu keppinautar
hans, Erlingur Pálsson síðar yfir-
lögregluþjónn og bræður hans, en
Pétur lærði einmitt sund hjá Páli
föður þeirra bræðra. Gaman var að
heyra Pétur segja frá þessum tíma.
Eftir að Pétur hætti sjómennsku
starfaði hann í landi lengst af hjá
Eimskipafélagi íslands við uppskip-
un. Áhugi hans á sundíþróttinni
hélst fram á síðustu ár enda var
hann fastagestur i sundlaugunum
í Laugardalnum og taldi hann sund-
iðkun einhveija bestu heilsubót sem
gæfist. Þar var hann langt á undan
sinni samtíð, var það löngu áður
en hin svokaílaða heilsu- og trimm-
alda reis á Vesturlöndum.
Mér er Pétur minnisstæðastur
fyrir það hvað hann var mikill og
góður heimilisfaðir. Hann þekkti
fátækt fyrirstríðsáranna og eyðslu-
þjóðfélag okkar daga. Hann var af
þeirri kynslóð sem meta ráðdeild
og nægjusemi og mundi tímana
tvenna. Hann forðaðist að taka fé
að láni og öiyggi heimilisins setti
hann ofar öðru, enda er það ástrík-
ur faðir sem nú er kvaddur.
Síðustu árin dvaldi Pétur á öldr-
unarlækningadeild Landspftalans í
Hátúni 10B. Þar var annast vel um
hann og var hann jafnan kátur og
hress þegar ég leit til hans. Fyrir
hönd ættingja Péturs flyt ég starfs-
fólki þar kveðjur og þakkir fyrir
góða umönnun.
Við andlát Péturs er genginn ljúf-
ur og góður maður, ástkær heimilis-
faðir sem margir syrgja.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Ég votta aðstandendum samúð
mína um leið og ég þakka tengda-
föður mínum samfylgdina og bið
Guð um að blessa minningu hans.
Magnús Oddsson
Minning:
ValborgE. Þórarins-
dóttir, Melum
Fædd 22. maf 1919 *
Dáin 6. maí 1988
Þegar ég leystur verð þrautunum frá,
þegar ég sólfagra landinu á
lifí og verð mínum lausnara hjá,
það verður dásamleg dýrð handa mér.
Kón Dásöm það er dýrð handa mér,
dýrð handa mér, dýrð handa mér,
er ég skal fá Jesú auglit að sjá,
það verður dýrð, verður dýrð handa mér.
Og þegar Hann, er mig elskar svo heitt
indælan stað mér á himni hefur veitt,
svo að hans ásjónu ég augum fæ leitt,
það verður dásamleg dýrð handa mér.
Kór
Astvini sé ég sem unni ég hér,
árstraumar fagnaðar berast að mér,
blessaður öeisari brosið frá mér,
það verður dásamleg dýrð handa mér.
(Þýð: Séra Lárus Halldórsson.)
Okkur finnst svo tómlegt að
amma er farin frá okkur, en það
gleður okkur að vita, að nú er hún
laus við þjáningar og neyð og kom-
in heim til Guðs, þar sem er enginn
sjúkdómur, engin tár, engin sorg,
aðeins svo mikil dýrð að það hefur
ekki eyra heyrt né auga séð, né í
nokkurs manns huga komið slík
dýrð sem á okkur mun opinberast,
þetta stendur í Guðs orði og postul-
inn skrifar í Rómveijabréfinu 8.
kap. 18. vers, ég lít svo á að ekki
séu þjáningar þessa tíma neitt í
samanburði við þá dýrð sem á oss
mun opinberast.
Amma okkar, Valborg Þórarins-
dóttir, fæddist á Rauðstöðum við
Amarfjörð 22. maí 1919. Foreldrar
hennar voru Guðmundína Sigurrós
Guðmundsdóttir frá Sauðeyjum á
Breiðafirði, fædd 11. desember
1878, dáin 12. mars 1979, og Þór-
arinn Kristján Ólafsson frá Múla í
Gufudalssveit, fæddur 25. júlí 1885
og dáinn ll. aprfl 1959.
Valborg ólst upp hjá foreldrum
sínum í systkinahópi og með þeim
flyst hún að Naustabrekku á
Rauðasandi 1935 og að heiman fer
hún til Patreksfjarðar 1938. 1946
bregða foreldrar hennar búi og
flytja til Patreksfjarðar.
Valborg giftist eiginmanni
sfnum, Ólafi Kr. Jóhannessyni frá
Hvammeyri við Tálknafjörð, þar
sem þau stofnuðu heimili sitt, en
Ólafur var háseti á togaranum
Verði frá Patreksfirði. Hún var
bamshafandi er Ólafur drukknaði
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúö og vinar-
hug við andlát og jarðarför
KARLS GUNNARSSONAR
fyrrverandi bónda Hoftelgi, Jökuldal,
Eyjabakka 30, Reykjavfk.
Guðrún Stefánsdóttlr,
Björg Karlsdóttir,
Ragnheiður Karlsdóttir,
Stefán Karlsson,
Gunnar Karlsson,
Guðlaug Bergþóra Karlsdóttlr,
tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð viö andlát
og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARÍU SÓLVEIGAR MAJASDÓTTUR,
Gyðufelll 8.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki á Öldrunardeild Borgar-
spítalans fyrir frábæra hjúkrun og umhyggju.
Sólvelg Jónsdóttir,
Helgi Jónsson,
Torfi Jónsson,
Ingvar Jónsson,
Kristbjörg Jónsdóttir,
Þórdís Hansen,
Krlstfn Magnúsdóttir,
bamabörn og barnabarnabörn.
þegar togarínn fórst 29. janúar
1950. Þegar þessi hörmulega fregn
barst til Patreksfjarðar fór móðir
hennar, Sigurrós, þá á sjötugsaldri,
gangandi í vondri færð til Tálkna-
fjarðar, svo hún gæti sjálf sagt
dóttur sinni þessi þungbæru tíðindi
og veitt henni styrk í sorginni. Sig-
urrós langamma var höfðingskona,
dugmikil og vitur, hún fékk kraft
frá Guði til að hjálpa oft á neyðar-
stundum. Hún var mikið skáldmælt
og stórvel gefin, við látum hér fylgja
með eitt smávers eftir hana:
Vertu hjá mér drottinn og vaktu yfír mér,
veit mér að mega treysta einum þér.
Gættu mín á veginum gleði og kífs,
gef mér þína sælu við endir þessa lífs.
Sigurrós langamma okkar var
styrk og þróttmikil til hinstu stund-
ar, hún lifði rúm 100 ár. Guð blessi
minningu hennar. Valborg amma
flytur sama ár, 1950 með litla son-
inn sinn, Ólaf Kr. Ólafsson, til Pat-
reksfjarðar, á heimili bróður síns
og mágkonu og er þar næstu árin.
Að nokkrum tíma liðnum fer hún
til Reykjavíkur og þaðan fer hún
með soninn sinn ráðskona til Ind-
riða Ejnarssonar á Melum á Kjalar-
nesi. Árið 1956 giftust þau og eign-
uðust saman íjogur böm. Þau eru
Sigurrós Kristín, gift Ömólfi Frið-
rik Björgvinssyni, Einar, sambýlis-
kona Vilborg Guðmundsdóttir, Guð-
mundur Oddgeir, sambýliskona
Þuríður Bima Halldórsdóttir,
yngstur er Guðni Ársæll og sonur
hennar af fyrra hjónabandi sem þau
ólu upp, Ólafur Kr. Ólafsson, giftur
Guðrúnu Helgu Gísladóttur.
Að Melum var alltaf jafn gott
að koma, þar vorum við alltaf vel-
komin hjá elsku ömmu og afa sem
allt vildu fyrir okkur gera. Við
þökkum þeim allan kærleika þeirra.
Valborg amma var glæsileg rausn-
arkona, dugmikil og góð, hún vildi
leysa hvers manns vanda og var
alltaf reiðubúin að hjálpa er með
þurfti. Við erum þakklát elsku
ömmu fyrir alla umhyggju, bænir
og allar gjafimar sem hún sendi
okkur bæði á jólum og afmælum.
Guð blessi minningu hennar.
Björgvin, Valur Indríði
og Anna María.
Blóma- Og
0 skreytingaþjónusta w
™ hvertsemtilefniðer.
GLÆSIBLÓMIÐ
GLÆSIBÆ,
Álfheimum 74. sími 84200