Morgunblaðið - 18.05.1988, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
59
Slj órnmálamenn:
Eru þeir vandamálið?
Til Velvakanda.
Við lestur Reykjavíkurbréfs
sunnudaginn 17. apríl fór maður
að velta fyrir sér ýmsum hlutum.
Þar er meðal annars spurt hvort
stjómmálamennimir séu vandamál-
ið. Þar segir „Þeir líta fyrst og
fremst á sig sem gæslumenn hags-
muna einstakra kjördæma eða
byggðarlaga og einbeita kröftum
sínum að því að tryggja stundar-
hagsmuni en ekki framtíðarhags-
muni þjóðarinnar."
Mér er spum. Hvaða kjördæmi
virðist eitt hafa þingmenn miðað
við hvert fólkið flykkist? Ég veit
ekki hvað flokkast undir stundar-
hagsmuni og hvað framtíðarhags-
muni. Kannski búseta út um landið
sé stundarhagsmunir og tóm vit-
leysa hjá þeim sem þar búa að vera
að kvarta yfir orkuverði, vömverði
og fleiru, þessu eigi að sópa undir
teppi svo framtíðarhagsmunir þjóð-
arinnar fái strax notið sín og við
flytjum öll á suð-vestur homið til
þess að þjónusta hvort annað. Það
myndi leysa mörg vandamál fyrir
háttvirtan fjármálaráðherra.
Það mætti leggja niður allt sem
nú flokkast undir þjónustu við
landsbyggðina, vegagerðina, skipa-
útgerðina og allt hitt sem verið er
að reka fyrir þessa dreifbýlissleða
sem enn þijóskast við að skaffa
miklu færri aura f kassann en þeir
taka til baka í gegnum fyrir-
greiðslupólitíkusa, sem næstum all-
ir eiga heima í Reykjavík þó svo
að þeir séu kosnir á þing af okkur
dreifbýlisfólkinu. Stundum mætti
halda að fólk vildi ekki fækka íbúum
í kjördæminu með því að kjósa
heimamann á þing, heldur er litið
á það sem sjálfsagðan hlut að velja
Reykvíkinga (þá sem þar búa þó
þeir séu fæddir annars staðar) til
þess að sjá um hagsmunaapparatið
fyrir sig.
Ef framtíðarhagsmunimir taka
við þá sparast ýmislegt t.d. bifreiða-
umboðin þyrftu þá ekki alltaf að
vera að senda bíla með varahluti
fyrir fólkið úti um land sem þarf
að greiða að minnsta kosti 120
krónur á hvem pakka fyrir akstur.
Ég varð alveg hissa um daginn
er ég var í Reykjavík og var stadd-
ur úti á flugvelli er eitt af stærri
umboðunum hér á landi var að losa
sig við pakka. Þá átti ég von á að
maðurinn væri með mesta lagi tvo
pakka samkvæmt verðlaginu en að
sjá áttatíu og þijá pakka fara yfir
borðið var nú full mikið. 83 sinnum
120 kr., það þætti dýr keyrsla á
sendiferðabíl fyrir ekki lengri túr í
Reykjavík.
Nú, Flugleiðir gætu lagt niður
innanlandsflugið sem hefur verið
þá lifandi að drepa í mörg ár, enda
kostar aðeins helmingurinn af því
að fljúga til Evrópu, ef maður slys-
aðist nú austur á land og ekki einu
sinni gisting né morgunverður í
þijá daga innifalið í því verði eins
og hinu. Já, þama er lausnin fund-
in, hægt að fara að borga niður
erlendu lánin sem öll em tekin í
einhveija ævintýramennsku úti á
landi t.d. Hetjólf og alla hina von-
lausu togara og frystihús sem rekin
em á hveiju kmmmaskuði hringinn
í kring um landið.
Við seljum strandferðaskipin og
allt hitt nema tvo veghefla sem við
þurfum á Þingvallahringinn, sem
við höfum ekki haft manndóm í að
malbika. Ef við seljum allt draslið
kæmust við upp að hlið Vestur-
Þjóðveija ef allt gengur vel. Höf-
undur Reykjavíkurbréfs telur að
minnsta kosti óhjákvæmilegt annað
en að taka á vandanum með því:
I) Að greiða fyrir aðgang að fiski-
miðum. II) Fækka frystihúsum. III)
Gera ákveðnar ráðstafanir í land-
búnaði vegna umframframleiðslu.
IV) Fækka einingum í landsbyggð-
arverslun. V) Hrista ærlega upp í
ríkisbankakerfinu. VT) Stöðva sóun
og eyðslu í skjóli gerviröksemda.
Athugasemdir mínar: I) Hveijum
skal greiða? Verslunarráði kannski?
II) Það þarf ekki ef framtíðar-
hagsmunir ná fram því Grandi hf.
og nokkur önnur frystihús verða
eftir. III) Engar áhyggjur héma,
bændumir flytja bara inn eggin,
kjötið, mjólkina og allt hitt. IV)
Landsbyggðarverslun er þá þegar
úr sögunni. V) Bankamir tapa þá
ekki á útibúum sínum út um land
svo þeir þrauka kannski ef ekki
fleiri landsbyggðarfyrirtæki eins og
Hafskip, Nesco manufakt fara á
hausinn. VI) Nú fyrirgreiðslu-
pólitíkusum er gert erfitt um vik
með gæluverkefnum svo sem Heij-
ólfí og fleiru ef enginn býr úti á
landi.
Nú ef þetta dugar ekki má að
skammlausu fækka þingmönnum
sem nemur dreifbýliströllunum og
sleppa þar með að byggja yfir þá.
Við getum lagt niður ríkisstjómina
— Davíð, Magnús_ og félagar taka
það bara að sér. Ég sé ekki annað
en að því fyrr sem þjóðin sér þetta
með framtíðarhagsmunina, þá sé
henni borgið.
Jóhann Jónsson
Þessir hringdu ..
Fjölgið hraðahindrunum
Kona hringdi:
„Ég er sammála þeim sem
skrifað hafa í Velvakanda að
undanfömu og sagt að réttur
gangandi fólks sé lítill T umferð-
inni. Ég tel að hraðahindranir eða
ljós við gangbrautir séu eina
lausnin á þessu. Hraðahindrunum
ætti að koma upp sem víðast því
þær draga úr hraðanum í um-
ferðinni í íbúðahverfum og auka
öryggðið."
Heitt vatn í lækinn
Sveinn Sveinsson hringdi:
mÉg er sammála manninum
sem skrifaði til Velvakanda fyrir
nokkm og hvatti til þess að aftur
yrði hleypt heitu vatni í lækinn í
Öskjuhlíð. Ég baðaði mig iðulega
í Nauthólsvík fyrir rúmlega hálfri
öld en það er ekki hægt lengur
vegna þess að skólp frá Reykjavík
og Kópavogi fellur í Skeijafjörð-
inn. Það þyrfti að lengja
skolpleiðslurnar þannig að skolpið
lendi ekki í Skeijafírðinum. Svo
er það annað. Ég var ánægður
með Davíð Oddsson borgarstjóra
þangað til hann tók af skarið og
hóf að byggja ráðhúsið en eftir
það fínnst mér hann orðinn ein-
ræðisherra."
Kettlingar gefins
Fimm kettlingar fást gefíns.
Upplýsingar í síma 31116.
Blár plastpoki
Blár plastpoki með veski, minn-
isbók o. fl. tapaðist í grennd við
Þjóðleikhúsið fyrir skömmu.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 40458. Fundar-
laun.
Vertu nú snar/snör í snúningum!
Þú getur orðið þér úti um GORI viðar-
vörn á hálfvirði!!! á Krókhálsi 7.
JÁ - 50% afsláttur á nokkrum litum,
en magnið er takmarkað.
GORI $
88
SAMBANDIÐ
BYGGINGAVÖRUR
KRÓKHÁLSI 7 SÍMI 8 20 33
GORI
44
STÚDENTA-
STJARNAN
14 karata
gull
hálsmen
eða
prjónn
Verð kr.
2400.-
Jón Sigmundsson,
skartgripaverslun, Laugavegi 5, sími 13383.
/
GOLDEN CUP sundfatnaður á börn og fullorðna.
Margargerðirog litirog verð við allra hæfi.
Veldu GOLDENCUP sundföt, það
gerði landslið ÍSLANDS ísundi.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavik: Sparta, Laugavegi49, Frisport, Laugavegi 6, ÚtiUf,
Glæsibae, íþróttabúðin, Borgartúni 20, Mikligarður, Hummel-
búðin, Ármúla 40, Hólasport, Hólagarði, Sportbær, Hraunbæ
102, Kaupstaður, Versl. Fólk, Nýjabæ.
Akrasport, Akranesi, Borgarsport, Borgarnesi, Versl. Þóra,
Ólafsvík, Sporthlaðan, ísafirði, Versl. Einars Guðfs., Bol-
ungavik, Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga, Tindastóll,
Sauðárkróki, Rafbær, Siglufirði, Sportvik, Dalvík, Sporthúsið, s
Akureyri, Bókav. Þórarins Stefánss., Húsavik, Hákon Sófus-
son, Eskifirði, KASK, Höfn, Sportbær, Selfossi, Sportbúð
Óskars, Keflavík, Hverasport, Hveragerði.
Sundaborg 1,124 Reykjavík,
sími: (91) 688085.