Morgunblaðið - 18.05.1988, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988
KNATTSPYRNA / ÓLYMPÍULANDSLIÐIÐ
Friðrik kemur í leikina
gegn Portugal og Ítalíu
FRIÐRIK Friðriksson, lands-
liðsmarkvörður í knattspyrnu,
sem leikur með danska 3.
deildarliðinu B1909, leikur
með íslenska ólympíulandslið-
inu gegn Portugal og Ítalíu.
GuðmundurTorfason, sem
hefur verið meiddur á ökkla,
kemur einnig í leikina, eða svo
framarlega að ekkert óvœnt
komiuppá.
Islenska liðið mætir Portugal á
þriðjudaginn kemur á Laugar-
dalsvellinum og síðan verður glímt
við ítalska liðið á sama stað, sunnu-
daginn 29. maí. Friðrik gat ekki
leikið með liðinu gegn Hollandi og
A-Þýskalandi á dögunum, vegna
meiðsla.
Friðrik og félagar hans hjá B 1909
náðu að leggja B 1901 að velli,
3:2, á mánudagskvöldið. í leiknum
fékk Friðrik dæmda á sig víta-
spymu.
Þjálfari Winterslag hefur lagt mikla
pressu á Guðmund, um að hann
leiki með félaginu þýðingarmikinn
leik gegn Lokeren um næstu helgi.
Winterslag er enn á hættusvæði í
belgísku 1. deildarkeppninni, ásamt
Beveren, Lokeren og Gent. „Ég
mun ekki leika nema ég sé orðinn
góður,“ sagði Guðmundur.
Sigi Held, landsliðsþjálfari íslands,
kemur til Reykjavíkur á morgun.
Frlðrik FHðHksson
Quðmundur Torfason
1.DEILD
Daníel og
Hilmar í
leikbann
Aganefnd KSÍ kom saman í
gær í fyrsta skipti á keppn-
istímabilinu. Nefndin tók fyrir
mál Hilmars Sighvatssonar, Val
og Daníels Einarssonar,
Keflavík. Þeir voru báðir úr-
skurðaðir í eins leiks keppnis-
bann.
Hilmar fyrir að hafa verið rekinn
af leikvelli í leik Vals og Fram
í meistarakeppni KSÍ og Daníel
fyrir að hafa fengið að sjá rauða
spjaldið í leik Keflvfkinga gegn
Völsungum.
Daníel getur ekki leikið með
Keflavík gegn KA 1. júní á
Akureyri og Hilmar getur ekki
leikið með Valsmönnum gegn
Skagamönnum á Akranesi 2.
júní.
Lárus Guðmundsson sést hér
kominn á ný í búning Víkings.
faénrn
FOLK
■ LÁRUS Guðmundsson,
landsliðsmarkvörður úr Vikingi, er
kominn heim og byijaður að æfa á
fullum krafti með Víkingum. Hann
mun leika sinn fyrsta leik með
Víkingum gegn KA á
gervigrasvellinum í Laugardal á
laugardaginn.
■ VÍKINGAR leika sinn fyrsta
heimaleik á grasveliinum í Traðarl-
andi gegn Leiftri miðvikudaginn
8. júní.
■ SIGURÐUR Einarsson rit-
stjóri Skíðablaðsins var kjörinn
formaður Skíðasambands íslands
á ársþingi SKÍ sem haldið var um
síðustu helgi. Hreggviður Jóns-
son, sem verið hefur formaður und-
anfarin ár, gaf ekki kost á sér til
endurkjörs. Trausti Ríkharðsson
gaf ekki kost á sér og var Walter
Hjartarson kjörinn f hans stað. Á
þinginu kom fram að stefnt er að
því að halda þijú alþjóðleg FlS-mót
hér á landi næsta vetur, á Akur-
eyri, ísafirði og í Reykjavík.
Sfjóm SKÍ ætlar að tryggja að lág-
marksfjöldi erlendra keppenda
mæti á þau.
■ GUÐMUNDUR Baldursson,
sem lék með Hibemians á Möltu
í vetur og f fyrra með UBK, hefur
ákveðið að leika með Val í sumar.
- ^Hann gekk frá félagaskiptum í gær
og verður löglegur 13. júní.
■ MAGNUS Öm Guðmunds-
son varð sigurvegari í yngri flokki
pilta á Landsbankahlaupinu i
Reykjavík um helgina. Rangt var
farið með nafn sigurvegarans í
blaðinu í gær í úrslitadálkinum en
viðtal var við Magnús við hliðina.
- Beðist er velvirðingar á þessu.
DOMARAMAL / GUÐMUNDUR HARALDSSON
Áherslu
atriði
Morgunblaðið/Kristján G. Arngrímsson
Guðmundur Haraldsson, dómari 1. deildar 1987. Guðmundur sést hér
með Morgunblaðsbikarinn, sem hann fékk fyrir að verða stigahæsti dómar-
inn í einkunargjöf blaðsins 1987.
í ÞESSUM fyrsta pistli, œtla
ég að rœða um þœr breyting-
ar, og þau áhersluatriði sem
fyrir okkur dómara voru lögð
á ráðstefnu, sem haldin var
fyrir landsdómara nú nýlega.
Aráðstefnunni var góður
gestur, Ken Ridden frá Eng-
landi, en hann sér um dómaramál
fyrir enska knattspymusamband-
ið, og er einnig í dómaranefnd
UEFA (Knattspymusambands
Evrópu).
Lagt var áherslu á eftirfarandi:
1. Að bættur skal upp í hvor-
um hálfleik, allur sá tími, sem fer
forgörðum vegna leikmanna-
skipta, flutning slasaðra leik,-
manna af velli, vísvitandi leiktafa
eða annarra orsaka og ákveður
dómari hver sá trhi skuli vera.
2. Dómari skal fullvissa sig
um að sjúkrabörur séu til staðar.
Leikur hefs't ekki fyrr en þessu
atriði er fullnægt.
3. Leikmanni sem hefur ver-
ið vísað af leikvelli er ekki heim-
ilt að taka sæti á bekk varamanna.
4. Ef leikmaður slasast á
leikvelli og þarf umönnunar við
skal dómari gefa merki um að fá
sjúkrabömr strax inn á völlinn svo
hægt sé að huga að meiðslum
hins slasaða utan vallar og stytta
með því leiktafír. Liðstjóra og
lækni er heimilt að koma á leik-
völl til að sinna slösuðum. Einnig
þjálfara ef öðrum er ekki til að
dreyfa. Þjálfari hefur þó ekki leyfí
til þess að koma á leikvöll í slíkum
tilvikum, nema til að sinna hinum
slasaða. Slasist markvörður á
meðan á leik stendur má hlynna
að honum innan vallar sé ástæða
til að ætla að markvörðurinn geti
haldið leik áfram eftir aðhlynn-
ingu.
5. Teíji leikmaður fram-
kvæmd aukaspymu með því að
spyma knettinum burt eða taka
knöttinn með höndum og beri
hann burt skal dómari áminna
leikmann.
6. Rík áhersla er lögð á að
rangstaða skal ekki dæmd á leik-
mann, þó hann sé rangstæður, ef
hann hefur engin áhrif á leikinn.
7. Aftaníspörk em alltof al-
geng í knattspymu í dag. Þetta
geta dómarar stoppað og verða
að stoppa. Dugi ekki áminning
skal vísa viðkomandi leikmanni
af leikvelli. Sé um gróft ásetnings-
brot að ræða skal vísa viðkom-
andi af leikvelli umsvifalaust. Að
öðra leiti skulu dómarar taka hart
á grófum leik og hika ekki við
að áminna eða vísa leikmanni af
leikvelli sem brýtur þannig af sér,
hér er átt við raddalegan og
hrottalegan leik, sem tengist því
að sparka eða slá.
Ég ætla að láta tvær spumingar
fylgja með, sem vora lagðar fyrir
Englendinginn Ken Ridden.
Knattspymuáhugamenn muna
öragglega eftir atviki sem skeði
á Akureyri síðast liðið sumar, er
leikmanni KA var vikið af lei-
kvelli, fyrir að grípa boltann sem
aftasti vamarmaður. Spurningin
sem Ken Ridden fékk að svara
var þessi:
Gerði dómari rétt með að vísa
leikmanninum af velli?
Ridden sagði að bæði Englending-
ar og íslendingar hefðu fyrirskip-
að sínum dómuram að vísa af leik-
velli fyrir svona brot, en alþjóða
knattspymusambandið (FIFA)
óskaði eftir því að þjóðimar færa
eftir FIFA-lögunum, og gæfu
gult spjald fyrir svona brot, en
rautt við endurtekningu (sami
leikmaður). En vegna fyrirmæla
frá íslensku hæfnisnefndinni,
hefði dómarinn gert rétt í um-
ræddu atviki. í dag væri þetta
hins vegar breytt, vegna óska
FIFA. Hann sagði að sýna ætti
leikmanni rautt spjald fyrir grófan
og hrottalegan leik, en umrætt
atvik flokkaðist ekki undir það í
dag.
Hin spumingin var um fram-
kvæmd vítaspymu. Þegar leik-
maður sem á að taka vítaspymu,
hleypur að boltanum, hlaupa
margir leikmenn úr báðum liðun-
um inn í vítateiginn, áður en
spyman er tekin, og oft mjög
nálægt vítaskyttunni. Hagnaður
þess leikmanns sem er fremstur
er mjög mikill, ef ekki er skorað
mark, og hann fær boltann. Því
er spurt: hvað á dómarinn að
gera? Að sjálfsögðu á að endur-
taka spymuna, og skiptir þá engu
máli hvort mark hefur verið skor-
að eða ekki. En hann bætti við:
„ég hef aldrei séð vítaspymu end-
urtekna vegna þessa, og efast um
að sjá það nokkum tíma, því mið-
ur.“ Og þá er bara að sjá hvort
eitthvað skeður á nýbyrjuðu ís-
landsmóti varðandi þetta atriði.
Með dómarakveðju,
Guðmundur Haraldsson.