Morgunblaðið - 20.05.1988, Qupperneq 1
96 SIÐUR B/C
113. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
Prentsmiðja Morgimblaðsins
Bandaríkín:
Hafin smíði á
hreyfanlegu
eldflaugakerfí
Washington. Reuter.
Bandarikjamenn stigu i gær
fyrsta skrefið i átt til smíði
hreyfanlegs kjarnorkuvopna-
kerfis á landi. Var þá samið við
tvö fyrirtæki um gerð stjóm-
búnaðar og skotpalla fyrir MX-
eldflaugarnar en þær geta borið
10 kjarnaodda. Verður unnt að
aka skotpöllunum eftir jára-
brautarteinum og flytja hvert á
land sem er á hættutímum.
Bandaríkjamenn ráða ekki yfír
kjamorkuvopnakerfí á landi, sem
unnt er að færa og forða frá árás
á stríðstímum, en Sovétmenn hafa
komið upp tveimur slíkum kerfum,
öðru fyrir SS-24-eldflaugar með tíu
kjamaoddum og hinu fyrir SS-25-
eldflaugar, sem em búnar einum
kjamaoddi. Bandaríkjastjóm ráð-
gerir að láta smíða 25 hreyfanlega
skotpalla og verði tvær MX-eld-
flaugar á hveijum. Þeim er hægt
að skjóta 9.600 km.
Á Bandaríkjaþingi er ekki ein-
hugur um þetta mál. Vilja ýmsir
þingmenn fremur koma upp hreyf-
anlegu kerfi Midgetman-eldflauga
en þær em með einn kjamaodd og
yrði komið fyrir á skotpöllum, sem
aka má eftir vegum líkt og er með
SS-25-eldflaugamar sovésku. Þrátt
fyrir ákvörðun Bandaríkjastjómar
frá í gær er ekki alveg ljóst hvort
kerfíð verður endanlega fyrir val-
inu.
Danmörk:
Fær Schliiter stgórn-
armyndunarumboðið?
Kaupmannahöfn. Reuter.
TILRAUNIR Niels Helvegs Pet-
ersens, formanns Radikale
Venstre, til að mynda ríkisstjóra
i Danmörku, meirihlutastjórn á
breiðum grundvelli, ganga illa
og er búist við, að hann afhendi
Margréti Danadrottningu um-
boðið í dag.
Niels Helveg fékk umboðið á
þriðjudag eftir að Svend Jakobsen,
forseti þjóðþingsins, hafði gefíst
upp við milligönguna og kvaðst þá
ætla að reyna að mynda stjóm
þriggja flokka, radikala, jafnaðar-
manna og annars borgaraflokks,
Venstre eða íhaldsflokksins. í gær
sagði hann hins vegar, að tilkall
jafnaðarmanna jafnt sem borgara-
flokkanna til forsætisráðherraemb-
ættisins kæmi í veg fyrir skynsam-
lega lausn.
Búist er við, að Poul Schluter
forsætisráðherra fái nú að spreyta
sig en eftir sem áður em radikalar
með sín 10 þingsæti það litla lóð,
sem ræður því hvor metaskálin
sígur, sú vinstri eða sú hægri.
Lokka-
fagurt
fljóð
Þegar hún Diane
Witt, sem býr í
Worcester í
Massachusetts í
Bandaríkjunum,
slær frá sér hár-
inu safnast það
saman í væna
hrúgu á gólfinu.
Lokkamir henn-
ar em nefnilega
þeir lengstu í
heimi, nokkuð á
fjórða metra eins
og skilmerkilega
er skráð í Guin-
ness-metabók-
ina. Bob, eigin-
maður Diane,
hjálpar henni
jafnan við hadd-
blikið eða hár-
þvottinn og síðan
tekur það §órar
klukkustundir að
setja hárið upp
aftur.
Reuter
Reuter
Liggja 15.000 menn í valnum?
Ifyrstu sovésku hermennimir em nú famir frá
Afganistan og hefur þeim verið fagnað vel við
heimkomuna eins og sjá má þessari mynd. Finnst
fólki sem það hafí heimt ungu mennina úr helju
og ekki að ófyrirsynju því að starfsmaður Novostí-
fréttastofunnar sovésku gaf í skyn i gær, að allt
að 15.000 sovéskir hermenn hefðu borið beinin í
Afganistan frá því í desember árið 1979. Er þá
ótalinn allur sá fjöldi, sem hefur særst og örkuml-
ast.
Azerbajdzhan:
100.000 nianns mót-
mæla á götum Bakú
Moskvu, Reuter.
UM EITT hundrað þúsund manns gengu á miðvikudag um götur í
miðborg Bakú, höfuðborgar Azerbajdzhans, og vildu með því mót-
mæla brennu á húsi í eigu Azerbajdzhana i Ararat-héraði í Armeníu.
í kjölfar brennunnar, sem átti sér stað á miðvikudag i fyrri viku,
flýðu um 1.000 Azerbajdzhanar þaðan yfir til Azerbajdzhan. Kom
þetta fram í viðtali Reuter-fréttastofunnar við talsmann utanríkis-
ráðuneytis Azerbajdzhans í gær.
undanfömu, og lýst yfír megnri
óánægju með fimmtán ára þrælk-
unardóm yfír azerbajdzhönskum
unglingi, sem fundinn var sekur um
morð í Súmgajt. Unglingurinn er
hinn fyrsti í hópi 80 manna, sem
ákærðir voru eftir óeirðimar í
Súmgajt.
Mikil þjóðemisólga hefur verið
við rætur Kákasus á þessu ári og
Músa Mamedov, yfírmaður upp-
lýsingadeildar utanríkisráðuneytis
Ázerbajdzhan, sagði í símtali við
fréttamann Reuters frá Bakú, að
yfirgangur Armena hefði valdið
mótmælunum. „Mótmælendumir
æsktu þess af miðstjóm armenska
kommúnistaflokksins, að hún tæki
mál þetta til athugunar."
Ararat-hérað er skammt suður
af Jérevan, höfuðborg Armeníu, og
liggja suðurlandamæri héraðsins að
Tyrklandi og íran.
Að sögn Mamedovs lagði hópur
Armena eld að húsi azerbajdzh-
anskrar fjölskyldu og sigldu átök
milli Azerbajdzhana og Armena í
kjölfarið. Kvað hann nokkum fjölda
manns hafa særst í eijunum, en
enginn hefði þó látið lífíð.
I febrúar sló síðast í brýnu með
þjóðunum, en þá féllu rúmlega 30
Armenar í borginni Súmgajt í Az-
erbajdzhan þegar hópar Azer-
bajdzhana geng^u berserksgang í
hverfum Armena, eltu þá uppi,
lemstraðu og drápu.
Mamedov sagði að mótmælend-
umir, sem söfnuðust saman á
Leníntorgi í Bakú, hefðu ennfremur
mótmælt hástöfum atvinnuofsókn-
um, sem Azerbajdzhanar í héraðinu
Nagomo-Karabakh hefðu sætt að
deila Armenar og Azerbajdzhanar
hart um landamæri Sovétlýðveld-
anna, sem verið hafa umdeild allt
frá borgarastyijöldinni, sem sigldi
í kjölfar valdaráns bolsévikka árið
1917. Hafa armenskir íbúar Nag-
omo-Karabakh, sem era í yfírgnæf-
andi meirihluta, krafíst þess að
héraðið verði innlimað í Armeníu á
ný.
Azerbajdzhanar fengu Nagomo-
Karabakh að launum árið 1918 eft-
ir að þeir buðu út her til aðstoðar
Rauða hemum við innrás í Armeníu
og Georgíu, sem lýst höfðu yfír
sjálfstæði.
Noregur:
Gleyminn á gimsteinana
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara
JO Benkow, forseti norska
Stórþingsins, viðurkenndi í
gær, að hann hefði haft með
sér þrjá demanta frá ísrael án
þess að greiða af þeim toll við
komuna til Noregs. Segist hann
einfaldlega hafa gleymt því.
Benkow, sem er gyðingur, kom
frá ísrael um fyrri helgi og var
kona hans með í för, Annelise
Höegh, en hún er þingmaður fyr-
ir Hægriflokkinn. í ísrael keypti
Benkow þijá demanta, sem hann
gaf konu sinni í afmælisgjöf, og
Morgnnblaðsins.
sýndi hún samferðafólkinu stein-
ana. Segir Benkow það vera til
marks um, að þau hafí ekkert
ætlað að fela.
Þegar kom á flugvöllinn í Ósló
fóra þau hjónin rakleiðis í gegnum
heldrimannahliðið en þar era eng-
ir tollverðir. Benkow segist leiður
vegna þessa athugunarleysis og
kveðst vona, að fólk trúi útskýr-
ingum sínum. Hann hefur nú
greitt tollinn, 16.150 kr. ísl., en
steinamir kostuðu tæpar 80.000
kr. í Israel.