Morgunblaðið - 20.05.1988, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
Söngtónleikar
' í Fríkirkjunni
TÓNLEIKAR verða í Fríkirkj-
unni laugardaginn fyrir hvíta-
sunnu, hinn 21. maí nk., kl.
14.30.
Þrír söngvarar flytja ljóðalög
og óperuaríur eftir Mozart, Beet-
hoven, Schumann og Puccini.
Ragnhildur Theódórsdóttir,
sópran, flytur lagaflokkinn „Frau-
enliebe und Leben“ eftir Robert
Schumann. Kristján Elís Jónsson,
barýton, syngur lagaflokkinn „An
die feme Geliebte" eftir Ludwig
van Beethoven og María Guð-
mundsdóttir, sópran, syngur
óperuaríur eftir Mozart og Puc-
cini. Söngvaramir hafa sótt
söngtíma hjá Ágústu Ágústsdótt-
ur, sópransöngkonu, í vetur.
Píanóleikarar eru Guðbjörg
Siguijónsdóttir og Gunnar Bjöms-
(FréttatUkynning)
María Guðmundsdóttir, Guðbjörg Siguijónsdóttir, Kristján EUs Jóns-
son og Gunnar Björnsson. A myndina vantar Ragnhildi Theódórs-
dóttur.
1 i; t» « i'
, n u u u u . R«Miír (gyg
B H n K H
, Morgunblaðið/BAR
Nemendur Tjamarskóla, 75 ungUngar úr sjöunda, áttunda og níunda bekk, tína rusl í nágrenni skólans.
Tiltekt á Tj arnar bakkanum
NEMENDUR Tjarnarskóla í
Reykjavík tóku sig til nú á sólrík-
um vordögum og týndu rusl í
kring um skólann sinn og á
Tjamarbakkanum. Þessi tiltekt
er þáttur í þeim hluta námsins
sem kallast umhverfisfrœðsla og
miðar að því að kenna börnunum
góða og snyrtilega umgengni við
umhverfi sitt.
Að sögn Maríu Sólveigar Héðins-
dóttur, skólastjóra Tjarnarskóla,
hefur tiltekt sem þessi verið fastur
liður í skólastarfinu allt frá stofnun
skólans fyrir þremur árum. Nem-
endur hafa auk þess gert könnun
í miðbænum á því hveijir hendi
rusli á götur borgarinnar. Þar sagði
María að hefði komið í ljós að full-
orðið fólk væri engu betra en ungl-
ingamir.
„Staðsetning skólans á Tjamar-
bakkanum leiðir líka enn betur í
ljós hversu slæm umgengni fólks
er í miðbænuum og þurfa nemendur
'iðulega að tína sígarettustubba af
stétt skólans þó þetta sé reyklaus
skóli. Nemendur ganga annars
mjög vel um innanhúss og virðist
svo sem umhverfisfræðslan beri
nokkum árangur", sagði María
Sólveig.
Karlakórínn Heimir.
60 ara starfsafmæli karla-
kórsins Heimis í Skagafirði
Varmahlíð.
KARLAKÓRINN Heimir í
Skagafirði hefur starfað sam-
fellt í 60 ár og er þessara tíma-
móta minnst með ýmsu móti.
Óslitið starf þennan tíma er
nokkuð merkilegt fyrirbrigði
út af fyrir sig þar sem allt félgs-
starf á nú frekar erfitt upp-
dráttar hin seinni ár þegar fjöl-
miðlunin sem við njótum er eins
mikil og raun ber vitni. í dag
hefur kórinn að telja yfir 50
söngmenn og starfsemin aldrei
verið blómlegri. Félagarnir víla
ekki fyrir sér að aka um 100
km leið tvisvar í viku til þess
að geta stundað æfingar.
Heimir var stofnaður í Húsey
og var upphafsmaður að stofnun
hans Benedikt Sigurðsson á Fjalli.
Áður en Heimir var stofnaður, var
lítill kór starfandi í framhéraðinu,
var sá nefndur Bændakórinn. I
fyrstu æfði kórinn við frumstæðar
aðstæður, á sveitabæjum þar sem
voru orgel. En áhugi var mikill a
þessum félagsskap og blómgaðist
hann og dafnaði og hefur fyrir
löngu skapað sér menningarlegan
sess í félagslífí Skagfirðinga.
Kórinn hefur farið víða um
landið og haldið tónleika og jafnan
fengið hinar bestu viðtökur og
gefnar hafa verið út tvær hljóm-
plötur sem fyrir löngu eru upp-
seldar. Þá fór kórinn í tónleika-
ferð til Noregs árið 1980.
Það hefur verið lán fýrir starf-
semi kórsins allt í gegn að hinir
hæfustu menn haa jafnan valist
til að stjórna. Að öllum öðrum
ólöstuðum skai nefna þá Jón
Bjömsson, Áma Ingimundarson
og Tékkann Jiri Hlavacek. Núver-
andi söngstjóri er Stefán Gíslason
tónlistarkennari í Varmahlíð.
Eins og fyrr segir þá verður
60 ára starfsafmælisins minnst
með ýmsum hætti. Haldnir hafa
verið nokkrir tónleikar nú fyrr á
þessu vori. Veglegt afmælishóf
var haldið í Miðgarði 23. apríl sl.
og stóð hátíðadagskráin yfir í
rúmar 5 klst.
Framundan era tónleikar á
M-hátíð sem hófst í gær, fimmtu-
dag á Sauðárkróki og lýkur á
morgun laugardag. Mun kórinn
koma þar fram ásamt með Sin-
fóníuhljómsveit Islands. Verða
þeir tónleikar í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki fímmtudagskvöldið
19. apríl.
Þá fer kórinn í söngferð til ísra-
el í júní nk. og mun koma fram
á listahátíð og halda tónleika í
a.m.k. fjóram borgum. Einnig er
fyrirhugaður konsert í Kairó í
þessari sömu ferð.
Að lokum skal þess getið að
fyrirhugað er að gefa út síðar á
þessu ári hljómplötu með söng
kórsins. Verður það trúlega safn-
plata með öllum söngstjóram
seinni ára, en það er ófrágengið
enn.
Þórsmerkursvæðið:
Bannað að tjalda
um hvítasunnuna
Morgunblaðinu hefur boríst
eftirfarandi fréttatilkynning
frá Skógrækt ríkisins og lög-
reglunni í Rangárvallasýslu:
„Þórsmerkursvæðið er lokað
um hvítasunnuna fyrir tjöldun
vegna lélegs ástands gróðurs.
Þeir sem hug hafa á dvöl þar
verða að framvísa skriflegu leyfí
um gistingu í skála. Svæðið verð-
ur opið eftir 1. júní.
Skátamót í Krýsuvík
Vormót Hraunbúa hið 48. verður
haldið í Krýsuvík um hvítasunn-
una. Mótinu verður skipt í skáta-
búðir og fjölskyldubúðir og hefst
það kl. 22.30 á föstudagskvöld
og lýkur kl. 14.00 á mánudag.
Á dagskrá mótsins verða ýmsar
uppákomur og leikir, s.s. íþrótta-
keppni í tíu nýjum greinum, Skotta
og Móri verða á svæðinu, varðeldar
verða á kvöldin og næturleikir, ald-
arleikir þar sem skipt verður í fjór-
ar aldir, fornöld, víkingaöld, tækni-
öld og „geim“öld og þrautir leystar
og leikir leiknir eftir því sem við á.
Mótið í ár er í nýjum búning í
orðsins fyllstu merkingu því fram-
kvæmd mótsins er með nýju sniði
og nýr búningur hefur verið tekinn
í notkun innan íslensku skátahreyf-
ingarinnar.
(Fréttatilkynning)
Frá skátamóti i Krýsuvik 1986.
- P.D.