Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
Sljórn Granda hf.:
Samþykkt að selja
Ragnari bílinn
STJÓRN Granda hf. samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær beiðni
stjórnarformanns félagsins, Ragnars Júlíussonar, um að fá að kaupa
Saab-bifreið fyrirtækisins, sem honum var fengin til afnota. Stjórn
in gerir Ragnari að greiða kostnaðarverð bifreiðarinnar, 1.445.580
krónur, fyrir lok júní. Ragnar vék af fundi meðan málið var á dag-
skrá.
Bréf Ragnars til stjómarinnar
var svohljóðandi: „Vegna breyttra
forsendna óska ég hér með eftir
að fá að leysa til mín á kostnaðar-
verði bifreið þá sem ég hef haft til
afnota frá fyrirtækinu. Mér þykir
mjög miður ef umræða, sem blásin
hefur verið upp í fjölmiðlum, hefur
skaðað álit fyrirtækisins út á við.“
Brynjólfur Bjamason, fram-
kvæmdastjóri Granda hf., segist
telja að bílamál stjómarformanns-
ins hafi skaðað fyrirtækið. „Ef ég
sem framkvæmdastjóri hef, á þess-
um tveimur árum frá því að fyrir-
tækið var stofnað, unnið mér traust
starfsfólksins, þá gæti það hafa
rýmað," sagði Brynjólfur. „Tíminn
verður að leiða það í ljós hvort tekst
að byggja það traust upp aftur."
Brjmjólfur sagði að pólitísk um-
ræða um málefni Granda í borgar-
stjóm Reykjavíkur hefði einnig
skaðað fyrirtækið. „Sem hlutafélag,
en ekki borgarfyrirtæki, höfum við
verið að reyna að vinna okkur út
úr pólitískum umræðum í borgar-
stjóm og beðið um vinnufrið," sagði
Brynjólfur. „Pólitískt þras í borgar-
stjóm hefur fært okkur marga
mánuði til baka."
Málefni Granda komu til umræðu
á borgarstjómarfundi í gærkvöldi.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, boðaði þar
að minnihlutinn myndi leggja fram
fyrirspum um bflakaupin á borgar-
ráðsfundi næstkomandi þriðjudag,
meðal annars um þátt borgarstjóra
í málinu. Sigrún sagði að minnihlut-
inn vildi fá skýrt fram hvenær kaup-
in hafi verið samþykkt og hvort
borgarstjóri hafi ekki talið neina
ástæðu til að fetta fingur út í þau,
en hann hafi sagst hafa vitað af
kaupunum þegar í desember síðast-
liðnum. Þá vilja minnihlutafulltrúar
fá ijósrit úr fundagerðabókum
Granda til þess að fá fullar skýring-
ar á málinu. Lögðu þeir á það þunga
áherslu að málið yrði upplýst að
fullu vegna mikillar hlutafjáreignar
Reykvíkinga í fyrirtækinu. '
Trabant valt við árekstur
Morgunblaðið/Sverrir
TRABANT- bifreið hvolfdi við árekstur á Skeið-
arvogi um kl. 15 í gær. Okumaðurinn, sem var
einn i bifreiðinni, slasaðist nokkuð. Hann mun
meðal annars hafa meiðst töluvert á hendi.
Fiskeldismenn vilja fyrirgreiðslu
til að nýta offramleiðsluseiðin
Starfshópur fimm ráðuneyta hefur málið til umfjöllunar
FISKELDISMENN hafa óskað eftir fyrirgreiðslu stjórnvalda til að
geta hrundið í framkvæmd áformum sinum um mikla stækkun mat-
fiskeldisstöðvanna og aukna hafbeit, þannig að þeir geti tekið til
eldis þær 4,7 milljónir gönguseiða sem nú er ekki tryggur markað-
ur fyrir. Landbúnaðarráðherra kynnti hugmyndir þeirra i ríkisstjórn-
inni í gær og þær eru einnig til umfjöilunar í starfshópi frá 5 ráðu-
neytum sem nýlega var skipaður i málið.
Nýjustu áætlanir gera ráð fyrir
að gönguseiðaframleiðsla fslensku
seiðastöðvanna verði 11,5 milljónir
seiða í ár. Þar af hefur 5,3 milljón-
um seiða verið ráðstafað innan-
lands. Möguleikar eru taldir til út-
fiutnings einhverra seiða til Noregs
Olíuverðshækk-
unin stendur
- segir lögfræðingur Verðlagsstofnunar
„VIÐ álítum, að svona mjög þröng sérlög, sem varða bara reiknings-
skil gagnvart sjómönnum um aflahlut þeirra, geti ekki tekið valdið
af Verðlagsráði til þess að framkvæma verðlagsákvarðanir," sagði
Gísli ísleifsson lögfræðingur Verðlagsstofnunar. Hann var inntur álits
á þeirri staðhæfingu Kristjáns Ragnarssonar framkvæmdastjóra LÍÚ,
að ekki mætti hækka olluverð til fiskiskipa nema um mánaðamót.
Hækkun oUuverðsins var til umræðu á ný hjá verðlagsráði í gær og
var henni ekki brevtt.
en óvíst er með hve mikið. Búist
er við að þau mál skýrist um næstu
mánaðarmót en fiskeldismenn gera
nú ráð fyrir að geta selt 1,5 milljón
seiði þangað sem er mun minna en
þeir hafa áður reiknað með. Mögu-
leikar á flutningi til Noregs tak-
markar útflutningsmagnið. Efþetta
gengur eftir er offramleiðslan um
4,7 milljónir seiða og leggja fískeld-
ismenn til að uppbyggingu fískeldis
á íslandi verði flýtt til að stöðvam-
ar geti nýtt sér þessi seiði. Verð-
mæti þeirra skiptir hundruðum
milljóna og ef ekki tekst að selja
þessi seiði innanlands eða utan má
telja fullvíst að fjöldi nýrra og full-
kominna seiðastöðva verði gjald-
þrota, samkvæmt upplýsingum for-
svarsmanna Landssambands fisk-
eldis- og hafbeitarstöðva. Þeir héldu
blaðamannafund í gær til að kynna
hugmyndir sínar.
Áætlaður stofnkostnaður við að
stækka strandeldis- og sjókvía-
stöðvar þannig að þær geti tekið
við 5 milljón seiðum í eldi í stað
3,3 sem nú er áætlað er um 900
milljónir kr. Þá telja þeir mögulegt
að auka sleppingu í hafbeit úr 2
miiljónum gönguseiða í 5 milljónir,
ef ákvörðun um það verður tekin
strax. Eldi þessara 5 milljón seiða
sem talað er um að bæta í ’eldið
gæfi af sér 11 þúsund tonn af laxi
á næstu þremur árum. Rekstrar-
kostnaður við eldi 10 milljón göngu-
seiða er áætlaður 2,1 milljarður kr.
Fiskeldismennimir hafa lagt til
að fjárfestingalánasjóðunum verði
gert kleift að lána til uppbyggingar-
innar og að Ríkisábyrgðasjóður veiti
ábyrgðir vegna afurðalána ásamt
því að hlutfall þeirra verði hækkað.
Einnig er' lagt til að söluskattur
verði felldur niður af raforku til
sjó- og vatnsdælingar og söluskatt-
ur verði endurgreiddur til fiskeldis-
fyrirtækja lfld og hjá öðrum út-
flutningsatvinnugreinum.
Benda þeir á að framleiðsla úr
offramleiðsluseiðunum myndi
skapa 1750—2000 ársverk í landinu
og að áætlað útflutningsverðmæti
fiskeldisafurða með þessari viðbót;
væri 3 milljarðar króna sem svarar
til 75 þúsund tonna þorskafla upp'
úr sjó.
Verðlagsráð:
Tillaga um 30% regluna felld
ÁSMUNDUR Stefánsson forseti
ASÍ lagði fram tillögu á fundi
Verðlagsráðs í gær. I tillögunni
var gert ráð fyrir að koma í veg
fyrir hækkun álagningar, farm-
gjalda og birgða í kjölfar gengis-
fellingarínnar. Tillagan gerði
ráð fyrir að tekin yrði á ný upp
svokölluð 30% regla um þessi
atriði.
„Ég óskaði eftir því að afgreiðslu
á tillögu Ásmundar yrði frestað, en
það var fellt fyrir mér,“ sagði
Sveinn Bjömsson formaður Verð-
lagsráðs í samtali við Morgunblaðið
í gær. Þá voru greidd atkvæði um
tillögu Ásmundar og var hún einnig
felld.
„Það er talað þama um gasolíu-
verð til fiskiskipa sem' er ekki til.
Það er bara einn hluti af gasolíu-
verði, sem er líka til húsahitunar og
Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar:
5,5% vextir
af orlofsfé
Reykjavíkurborg og Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar ■
hafa undirrítað samning við
Sparísjóð Reykjavíkur og ná-
grennis um ávöxtun orlofsfjár
starfsmanna. Náðist samkomulag
um 5,5% vexti, sem bundnir eru
Iánskjaravísitölu.
„Frá og með nýju orlofsári 1. maí
síðastliðinn hófst samvinna okkar við
sparisjóðinn um ávöxtun á oriofsfé,"
sagði Haraldur Hannesson formaður
starfsmannafélags Reykjavíkurborg-
ar. Orlofsfé er greitt af yfírvinnu og
vaktaálagi og verður lagt mánaðar-
lega inn á reikning hvers starfs-
manns. Á fjögurra mánaða fresti
verður sent út reikningsyfirlit.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
hann megi endurskoða ef þess er
óskað með mánaðar fyrirvara og
honum er hægt að segja upp með
árs fyrirvara.
fleira," sagði Gísli. Hann sagði að
þetta ákvæði sem Kristján vitnar til
eigi að vera til einföldunar við upp-
gjör til sjómanna, en virki þó ekki
þannig í raun. „Ef verðið hækkar
um miðjan mánuðinn þá njóta sjó-
menn góðs af, því þá var verðið lægra
um síðustu mánaðamót. Ef verðið
lækkar í mánuðinum, þá nýtur út-
gerðin góðs af, því þá gerir hún upp
við sjómennina nniðað við hærra verð
sem var um mánaðamótin. Þannig
jafnast þetta sitt á hvað. Enda var
ekki deilt við Kristján um það og
sjómenn eru alveg sáttir við þetta.
Ef Verðlagsráð ætti að vera bundið
miðað við hvenær reikningsskil væru
hjá hinum og þessum aðilum á*ein-
hveijum tímabilum og kannski einu
sinni á ári eða eitthvað svoleiðis, þá
væri verðlagsráð orðið óstarfhæft.
Ég vil taka það fram að einn verð-
lagsráðsmaður vildi leita álits Laga-
stofnunar Háskólans. Það fékk ekki
beinlínis hljómgrunn, að þyrfti alltaf
að leita út fyrir ráðið. Ég er lögfræð-
ingur stofnunarinnar og það er lög-
fræðingur tilnefndur af Hæstarétti í
ráðinu og hann var alveg inni á þess-
ari skoðun. Þess vegna var Verðlags-
stofnun falið að gera álitsgerð um
þetta og kalla þá til aðra óháða lög-
fræðinga ef verkast vildi. Við vildum
þó ekki viðurkenna að við værum
neitt háðir sjómönnum eða olíufélög-
um. Við horfum bara kalt á þetta
út frá lagalegu sjónarmiði," sagði
Gísli ísleifsson.
Sauðárkrókur:
M-hátíðin er veruleg
upplyfting fyrir okkur
- segir Snorri Björn Sigurðsson, bæjarstjóri
Sauðárkróki. Frá Urði Gunnarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
BIRGIR ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, setti í gær M-
hátíðina í safnahúsinu á Sauðárkróki og opnaði við sama tækifærí
sýningu á verkum Ásgríms Jónssonar, listmálara, en verkin eru í
eigu Listasafns íslands. Hátíðin er nú haldin á vegum menntamála-
ráðuneytisins í þriðja sinn, að þessu sinni í samvinnu við bæjarstjóm
Sauðárkróks. Áður hafa verið haldnar menningarhátíðir með svip-
uðu sniði á ísafirði og Akureyri. M-hátíðin stendur fram á laugar-
og er fjölbreytt dagskrá í boði þá daga sem hún stendur.
ávarpi menntamálaráðherra Bærinn er fagurlega skreyttur í
kom fram, að tilgangur M-hátíðar tilefni hátíðarinnar og er aðalgata
sé að efla íslenska menningu og
tungu og vekja athygli á þeim
menningararfi sem byggðalögin
hafa að geyma, en M stendur fyrir
mál, menningu og menntun. Á eftir
menntamálaráðherra talaði Snorri
Bjöm Sigurðsson, bæjarstjóri, og
Lúðrasveit Tónlistarskóla Sauðár-
króks )ék nokkur lög. Þá héldu Sin-
fóníuhljómsveit íslands og karla-
kórinn Heimir tónleika í íþróttahús-
inu fyrir fullum sal áhorfenda.
bæjarins og Nafímar fyrir ofan
hann prýddar fánum. Hafði einn
gestur á orði að Sauðárkrókur
minnti helst á Moskvuborg á 1.
maí. Snorri Bjöm Sigurðsson, bæj-
arsljóri, sagðist í samtali við blaða-
mann vonast til að Skagfírðingar
nytu þess sem boðið væri upp á þá
þijá daga sem hátíðin stendur.
„Framtak menntamálaráðherra er
lofsvert og veruleg upplyfting fyrir
'okkur, því það er ekki á hveijum
degi sem við fáum eins góða gesti
og nú. Hátíðin flytur okkur vonandi
hluta af því besta í íslenskri menn-
ingu og dregur einnig fram hvað
fólk hér er að fást við,“ sagði
Snorri. Hann sagði engan vafa leika
á að Skagfirðingar hefðu ætíð verið
skemmtanafíknari en aðrir lands-
menn, það sýndu best ýmsar
skemmtanir og aðrir viðburðir í
bæjarlífinu. M-hátíðin væri til dæm-
is einungis viðbót við hina árlegu
sæluviku Skagfírðinga.
Menntamálaráðheira dvelst á
Sauðárkróki hátíðardagana og mun
meðal annars vera viðstaddur opn-
un sýningar á ýmsum minjum, sem
Andrés Valberg hefur safnað. Þá
mun ráðherra flytja ávarp á hátíð-
ardagskrá á morgun, laugardag,
er hátíðinni lýkur.