Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
Forsetaframboð:
Stuðningsmenn Sigrúnar
afhenda undirskriftalista
STUÐNINGSMENN Sigrúnar
Þorsteinsdóttur, sem hyggur á
framboð til embættis forseta ís-
lands, afhentu i gærmorgun i
dómsmálaráðuneytinu undirskrif-
talista með nöfnum 1895 lgósenda
úr öllum kjördæmum landsins.
Áshildur JÓnsdóttir og Helga
Gísladóttir afhentu Ólafi Walter Stef-
ánssyni skrifstofustjóra í dómsmála-
ráðuneytinu undirskriftalistana
ásamt öðrum nauðsynlegum kjör-
gögnum vegna framboðsins.
I fréttatilkynningu sem stuðnings-
menn Sigrúnar hafa sent frá sér
segir m.a. „Þetta framboð er ekki
milli persóna heldur mismunandi
hugmynda um forsetaembættið. Við
viljum að embættið verði mun virk-
ara og virkilegt lýðræðistæki."
Stuðningsmenn Sigrúnar segjast
einnig vilja fara eftir hugsjónum
þeirra sem bjuggu til stjómarskrá
Islands og fylgja ákvæðum hennar
um forsetaembættið. Hafa virkt
embætti sem vemdi réttindi einstakl-
ingsins og tiyggi að stjómvöld geti
ekki ráðist á kjör almennings. í til-
kynningunni segir:„Forseti getur
haft afgerandi áhrif á afkomu fólks
með því að beita neitunarvaldi sínu
við lagasetningar og þannig skotið
ákvarðanatöku til þjóðarinnar. Við
viljum að fólkið í landinu endur-
heimti í gegnum embætti forseta það
vald sem fámennið hefur hrifsað til
sín. Við viljum að forseti sé rödd
friðar og mannréttinda á alþjóðavett-
vangi. Við viljum að forseti sé skýr
fyrirmynd hvað varðar aðhald í ríkis-
rekstri. Við viljum að forseti sameini
þjóðina og gefi henni skýra stefnu
sem er nauðsynleg til að halda sjálf-
stæði hennar og séreinkennum."
Gjaldeyrisskýrslan afhent í dag
SKYRSLA Seðlabankans um
gjaldeyriskaup síðustu dagana
áður en gjaldeyrisdeildum bank-
anna var lokað og gengi íslensku
krónunnar fellt verður afhent i
viðskiptaráðuneytinu í dag, sam-
kvæmt upplýsingum Tryggva
Axelssonar deildarstjóra í ráðu-
neytinu.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra, staðgengill Jóns Sig-
urðssonar viðskiptaráðherra, óskaði
eftir skýrslunni. Búist var við
skýrslunni í viðskiptaráðuneytinu í
gær en afhending hennar frestað-
ist. Tryggvi segir að skýrslan verði
trúnaðarmál.
VEÐURHORFUR í DAG, 20. maí 1988
YFIRLIT I GÆR: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1027 mb hæð og
önnur álíka mikil um 1200 km suöur í hafi. 1010 mb lægð á Græn-
landshafi þokast norðaustur. Á morgun fer að hlýna norðanlands
og austan.
SPÁ: Á morgun er gert ráð fyrir sunnan- og suðaustanátt á landinu,
víðast kalda. Rigning eða suld verður víða á Suður- og Vestur-
landi, en úrkomulítið fyrir norðan og austan. Hiti 7—15°.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG og HVÍTASUNNUDAG: Suðlægar áttir
og fremur hlýtt. Rigning eða súld allvíða á Suöur- og Vesturlandi.
Urkomulítið, en skýjað á Norður- og Austurlandi.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind-
* stefnu og fjaðrirnar
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
Létlskýjað / / / / / / / Rigning
/ / /
ffSb Hálfskýjað * / *
A *- f * / * Slydda
/ * /
* * *
ÍS Alskýjað * * * * Snjókoma * * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skurir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
<30 Mistur
Skafrenningur
[~^ Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hKI voður Akureyrj +1 léttskýjað Reykjavfk 8 skýjað
Bargen 8 skýjað
Helsinki 15 léttskýjað
Jan Mayen +2 snjókoma
Kaupmannah. 14 léttskýjað
Narssarssuaq 1 slydda
Nuuk vantar
Osló 13 skýjað
Stokkhólmur 14 léttskýjað
Þórshöfn 4 alskýjað
Algarve 20 mistur
Amsterdam 12 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 20 mistur
Chicago 11 heiðskirt
Feneyjar 21 þokumóða
Frankfurt 15 skýjað
Glasgow 11 skýjað
Hamborg 15 hálfskýjað
Las Palmas 22 léttskýjað
London 12 skúr
Los Angeles 15 heiðskfrt
Lúxemborg 13 skúr
Madríd 17 skýjað
Malaga 26 skýjað
Mallorca 23 rykmistur
Montreal 13 alskýjað
New York 13 súld
Parfs 14 skýjað
Róm 17 rigning
San Diego 16 léttskýjað
Winnlpeg 11 alskýjað
Morgunblaðið/Bj ami
Áshildur Jonsdóttir og Helga Gisladóttir afhenda Ólafi W. Stefáns-
syni, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu, undirskriftalista með
nöfnum 1895 stuðningsmanna Sigrúnar Þorsteinsdóttur.
Byggingarfélag tví-
seldi sömu húsin
Gerðir voru málamyndakaupsamn-
ingar við aðila er tengdust bygging-
arf élaginu og þeim komið í verð
SAMKVÆMT upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér hefur
byggingarverktaki hér i borg orðið uppvís að því að hafa tvíselt
einbýlis- og raðhús í Árbæ á byggingarstigi og aflað framkvæmdafj-
ár með þeim hætti. Gerðir voru málamyndakaupsamningar við aðila
er tengdust byggingarfélaginu og þessum samningum komið í verð
hjá Fjárfestingafélaginu. Skyndileg veikindi eins starfsmanns Fjár-
festingafélagsins urðu þess valdandi að tafir urðu á þinglýsingu
kaupsamninganna og notaði byggingaraðilinn það tækifæri til að
selja sömu eignirnar afur.
Morgunblaðið sneri sér til Gunn-
ars Helga Hálfdánarsonar, fram-
kvæmdastjóra Fjárfestingafélags-
ins og staðfesti hann þessar upplýs-
ingar. Að sögn Gunnar er forsaga
málsins er sú að Byggingafélagið
Þverás, og fyrirrennari þess,
byggðu einbýlishús í Árbæ til end-
ursölu. Framkvæmdimar voru að
hluta fjármagnaðar með sölu á
kaupsamningum þeim sem bygg-
ingarfélagið gerði við kaupendur
að húsunum og keypti Fjárfestinga-
félagið þessa samninga, líkt og
hver önnur verðbréf.
Gunnar segir að byggingarfélag-
ið hafí hins vegar orðið fyrir því
áfalli að fjármálastjóri þess dró sér
umtalsvert fé og fyrirtækið lenti í
erfíðleikum af þeim sökum. Á sama
tíma hafí skyndileg veikindi eins
starfsmanns Fjárfestingafélagsins
orðið til þess að dregist hefði að
þinglýsa kaupsamningum sem fé-
lagið hafði keypt og aðilar innan
Byggingarfélagsins orðið þessa
áskynja, þvi að á daginn hefði kom-
ið að í nokkrum tilfellum seldi bygg-
ingafélagið sum sömu einbýlishúsin
aftur með nýjum kaupsamningi.
í þeim tilfellum væri ljóst að eldri
kaupsamningurinn var málamynda-
gjömingur, því að uppvíst væri að
þeir sem gerðu þessa kaupsamn-
inga væru tengdir forsvarsmönnum
byggingarfélagsins.
Strax og upp komst um þetta
athæfí kærði Fjárfestingafélagið
það til Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Egilsstaðir:
Að sögfn Gunnars Helga Hálfdanar-
sonar var hins vegar að athuguðu
máli ákveðið að draga kæm þessa
til baka. Þá var orðið ljóst að um
vemlegar vanefndir var að ræða
af hálfu byggingarfélagsins gagn-
vart mörgum kaupendum húsanna
og því hætta á riftun margra sam-
aninganna. Sá kostur var því talinn
betri að Fjárfestingafélagið yfír-
tæki hluta eigua Þveráss og m.a.
eitt einbýlishúsanna og gerði því
kleift að standa við ákvæði kaup-
samninganna, svo að kaupendur
húsanna hefðu ekki tjón af.
Gunnar Helgi segir, að með þess-
ari lausn muni Fjárfestingafélagið
í mesta lagi tapa 5-6 milljónum
króna á þessum viðskiptum. Höfuð-
máli skipti að kaupendur húsanna
verði ekki fyrir tjóni meðan fjár-
málafyrirtæki á borð við banka og
Fjárfestingafélagið yrðu jafnan að
gera ráð fyrir áföllum í starfsemi
sinni og tryggi sig fyrir slíku með
viðhlítandi hætti. Hið Jjárhagslega
tjón sem Fjárfestingafélagið hafí
þama orðið fyrir hafí því ekki nein
áhrif að daglega starfsemi félagsins
og snertu viðskiptamenn þess ekki
á neinn hátt.
Rannsóknarlögreglan staðfesti í
samtali við Morgunblaðið í gær að
þessi kæra hefði verið dregin til
baka en eðli málsins samkvæmt
hefði það verið sent ríkissaksóknara
til ákvörðunar um hvort frekari
aðgerða væri talin þörf gagnvart
byggingarfélaginu.
Nýjar aðferðir
við frönskukennslu
Engar kennslubækur notaðar
VIÐ Menntaskólann á Egilsstöð-
um er starfandi svissneskur
frönskukennari að nafni Jean
Marc. Hann hefur óvenjulegar
kennsluaðferðir, notar engar
kennslubækur og tveim vikum
eftir að nám hefst útvegar hann
nemendum pennavini í Sviss, að
eigin sögn til að sýna þeim strax
fram á tilgang námsins.
Jean Marc sagði, í samtali við
blaðið, að nemendumir væm mjög
áhugasamir og eftir sex mánaða
nám sömdu þeir bækling á frönsku,
sem þeir sendu skólum bæði í Sviss
'og FYakklandi. í bæklingnum em
ritsmíðar nemenda og úrdráttur úr
ýmsum íslenskum' þjóðsögum og
sögnum. Þar má meðal annars finna
þátt um landvættir íslands, Skúla-
skeið og þætti um tröll og álfa.
Jean Marc sagði þau einnig komin
í samband við útvarpsstöð í París,
sem eingöngu flytur efni fyrir ung-
linga og em allir starfsmennimir á
aldrinum 13 — 20 ára. Jean sagði
það draum sinn að næsta vetur
gætu nemendur ME sent þessari
stöð efni og fengið því útvarpað.
Jean Marc sagðist einnig hafa
kynnt aðferðir sínar á þingi
frönskukennara nýlega og hefðu
þær vakið mikla athygli.