Morgunblaðið - 20.05.1988, Page 11
MOKGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
11
Ljósmynd/Björgvin Pálsson
Hrefna og félagar hennar bera sama bækur sínar um framhaldsnám í einu atriða myndarinnar.
Fræðsluvarpið:
Háskólinn frumsýnir
fræðslumynd um námsval
Morgunblaðið/Sverrir
Tveir af námsráðgjöfum Háskólans, Ásta K. Ragnarsdóttir og Ragna
Ólafsdóttir.
HÁSKÓLI íslands hefur gert sjónvarpsmynd um námsval sem sýnd
verður almenningi i Fræðsluvarpinu á laugardag. Myndin, sem nefn-
ist „Hvað vil ég?“ getur meðal annars nýst þeim fjölda nemenda sem
útskrifast í vor og þurfa að taka ákvörðun um framhaldsnám. Námsr-
áðgjöf Háskólans stóð að gerð myndarinnar. „Það er þekkja allir
áætlanagerð og markaðssetningu í fyrirtækjum en ráðgjöf varðandi
persónulegar ákvarðanir situr á hakamun. Flestir gera sér grein
fyrir að leita þurfi réttra upplýsinga en leiðbeiningar um úrvinnslu
þeirra hefur oftast orðið útundan,“ sagði Ásta K. Ragnarsdóttir
námsráðgjafi Háskólans í samtali um myndina.
Um eitt þúsund manns leita
námsrágjafar í Háskólanum á
hverju ári. Helmingur hópsins biður
um hjálp við námsval en aðrir leita
leiðbeininga um námstækni og per-
sónulegrar ráðgjafar. Þá er algengt
að nemendur úr framhaldsskólun-
um notfæri sér aðstoð námsráðgjaf-
ar Háskólans að sögn Ástu.
Undanfarin ár hefur brottfall
þeirra sem hefja nám í Háskóla
Islands verið um 45%. Ekki er vitað
hversu stór hluti þessa hóps skráir
sig en sest ekki á skólabekk eða
flytur sig á milli deilda. En eftir
stendur að tæpur helmingur nema
er ekki fyllilega ánægður með þá
námsbraut sem þeir velja sér í upp-
hafi. Nýleg könnun leiddi í ljós að
mikill meirihluti háskólanema velur
sér námsbraut á síðustu stundu, eða
nokkrum mánuðum fyrir innritun.
Fræðslumyndin er byggð á kyrr-
myndum af stúlku sem leitar að-
stoðar námsráðgjafa og fleira fólks
þegar hún er að velja sér náms-
braut. Hún hefur áhuga á listum
og viðskiptanámi en veitist erfítt
að gera upp á milli þessara ólíku
greina. Þulartexti fylgir ljósmynd-
unum auk leikinna atriða sem
byggð eru á samtölum stúlkunnar
við jafnaldra sína og leiðbeinendur.
Ljósmyndimar tók Björgvin Pálsson
en Guðmundur Ragnar Guðmunds-
son hjá kvikmyndagerðinni Sýn sá
um samsetningu. Hljóðið var unnið
í Stúdíó Glaðheimum.
Bankamenn
semja
SAMKOMULAG hefur tekist um
endurskoðun launaliðs kjara-
samnings Sambands banka-
manna og viðsemjenda þeirra í
samræmi við endurskoðunará-
kvæði þar um. Formannafundur
Sambandsins hefur þegar sam-
þykkt breytinguna, en samning-
ur bankamanna gildir til næst-
komandi áramóta.
Samkomulagið felur í sér 8,15%
hækkun 1. júní, 2,5% áfangahækk-
unu 1. september og 1,5% áfanga-
hækkun 1. desember. Þá hækkaði
viðmiðunargrunnur orlofsútreikn-
ings um tvo launaflokka.
Þá tókst samkomulag hjá ríkis-
sáttasemjara á miðvikudag um laun
við löndun á Fáskrúðsfirði, en vegna
kjaradeilunnar hefur ekki verið
landað þar undanfarið.
„Við höfum gengið með þessa
hugmynd í maganum lengi að gera
fræðslumynd um námsval sem nýst
gæti framhaldsskólanemum. Það
eru ýmis tæknilega atriði sem öllum
er hollt að læra til að geta byggt
ákvarðanir sínar á hlutlægu mati,“
sagði Ásta. „Fæstum er tamt að
setiast niður og skilgreina eigin
persónu. Það er ekki hlutverk
námsráðgjafa að segja við þá sem
til þeirra leita hvaða leið þeir eigi
að velja. En það eru ákveðin skref
sem hægt er að grundvalla ákvörð-
un á, aðferðir til að draga fram í
dagsljósið forsendumar og komast
að ígrundaðri niðurstöðu," sagði
Ásta.
Ásta sagði að Háskólinn biði
myndina fram en það yrði síðan
ákvörðun framhaldsskólamanna
hvemig hún skyldi notuð. „Með
þessari mynd vill Háskólinn koma
til móts við þarfír framhaldskól-
anna. Hún er hugsuð sem stoðefni
fyrir þá sem leiðbeina nemendum
við námsval í tengslum við umræð-
ur og frekari ráðgjöf," sagði Ásta
K. Ragnarsdóttir.
- * 1 'J a
\ i | “
w
Ljósmyn<j/Björgvin Pálsson
Hrefna Tynes leikur nemanda í fræðslumynd námsráðgjafar Háskól-
ans.
FEGURÐARDROTTIMIIMG
ISLANDSl 988
verður krýnd í
Islandi 23. maí nk.
Kynnar verða:
Að vanda verður mikið um dýrðir:
Matseðill:
FORRÉTTUR:
Villíbráðasúpa með
sherrystaupi
AÐALRÉTTUR:
Heilsteikt nautapiparsteík
m/koniakssteiktum sveppum
EFTIRRÉTTUR:
Ferskur ananas með ávöxtum
Bergþór Pálsson og Sigrún Waage
Magnea Magnúsdóttir - 4. sæti í
Miss Europe keppninni og Sigríður
Guðlaugsdóttir - 3. sæti í Miss
Wonderland krýna nýja fegurðar-
drottningu íslands 1988
★ Þátttakendur koma fram í pelsum,
baðfötum og samkvæmiskjólum
★ Dans, saminn af Ástrósu Gunnars-
dóttur, við verk Gunnars Þórðar-
sonar „Tilbrigði við fegurð“
★ Einar Júliusson syngur
★ Dansflokkur Auðar Haralds sýnir
Karnivaldansa
★ Módel '79 sýna fatnað frá Tísku-
húsi Markus
★ ÐE LÓNLÍ BLÚ BOJS leika fyrir
dansi fram eftir nóttu.
Heiðursgestir kvöldsins:
Richard Birtchenell frá Top Shop í London, Davíð Oddsson
borgarstjóri og Krish Naidoo frkvstj. ungfrú frlands keppninnar
Miðaverð er kr. 4.500.-
Miða- og borðapantanir í Hótel íslandi í síma 687111.
Landsbyggðarfólk
athugið!
[ tilefni keppninnar hefur Ferðaskrifstofa
Reykjavíkur ákveðið að efna til hvítasunnu-
helgarferðartil Reykjavíkur.
Innifalið: flug, gisting í 2 nætur (2ja manna herb.) að-
göngumiði og aksturfrá hótelinu á skemmtunina.
FRAAKUREYRIKR. 11.975
FRÁEGILSSTÖÐUMKR. 13.745
FRÁ ÍSAFIRÐIKR. 11.630
FRÁ VESTMANN AEYJUM KR. 10.130
iiöTijb IgEMÖ V\lELL/\
STÖDTVÓ
Kari K. Karisson og Co
5NYKTI
blómouol
W Siglun
S 36770 86340
FLUGLEIDIR i
&ull & &ilfitr u/t
NINARICCI
P A R I S
IIRDASKRIFSTOIA
REYKJAVÍKUR tkáá
r< l
aritu
ORLANE