Morgunblaðið - 20.05.1988, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
1
Siglufförður - 70 ára kaupstaðarafmæli -170 ára verzlunarafmæli:
BARATTA FYRIR
BÆJARRÉTTENDUM
Kafli úrbókinni Siglufjörður
eftir Ingólf Kristjánsson, rithöfund
Siglufjörður var löggiltur verzlunarstaður 20.
mai 1818. A100 ár verzlunarafmæli Siglufjarðar,
20. mai 1918, fær staðurinn síðan
kaupstaðarréttindi. Arið 1888, fyrir hundrað
árum, hóf séra Bjarni Þorsteinsson, tónskáld,
prestsstarf í Siglufirði. Hann fór fyrir
Siglfirðingum í flestum framfaramálum þeirra í
hálfa öld og leiddi sjálfstæðisbaráttu þeirra fyrir
kaupstaðarréttindum.
Það verður þrefalt stórafmæli í Siglufírði 1988:1) 170 ára verzl-
unarafmæli, 2) 70 ára kaupstaðarafmæli, 3) 100 ár eru liðin frá
því að séra Bjami Þorsteinsson, fyrsti heiðursborgari
Siglufjarðar, hóf prestsstarf í Siglufírði.
Bæjarstjóm Siglufjarðar efnir til hátíðarfundar á afmælisdag-
inn, fostudaginn 20. mai, í nýjum fundarsal bæjarstjómar klukkan
17 síðdegis. Hátíðardagskrá verður í Siglufjarðarkirkju klukkan
20,30 samadag. Hátíðarræðu flytur Siguijón Sæmundsson, fyrr-
verandi bæjarstjóri. Sverrir Páll Erlendsson, menntaskólakennari,
flytir frumsamið efni tengt Siglufírði. Fjölmörg önnur atriði prýða
dagskrána. Leikfélag Siglufjarðar frumsýnir Galdrakarlinn í Oz
eftir L. Frank Baum í Nyja bíói. Nemendur grunnskólans standa
fyrir nemendasýningu í skólahúsinu við Hlíðarveg.
í tengslum við kaupstaðarafmælið verður guðsþjónusta í Siglu-
fjarðarkirju á hvítasunnudag klukkan tvö miðdegis. Bæjarfulltrúar
lesa ritningarorð. Stefán Friðbjamarson, fyrrverandi bæjarstjóri,
predikar. Síðar um daginn verður guðsþjónusta í sjónvaiysútsend-
ingu. Þar predikar sóknarpresturinn, séra Vigfús Þór Amason.
Sérstök afmælisvika verður haldin í tilefni af þessu þrefalda
afmæli í ágústmánuði næstkomandi.
Á 50 ára kaupstaðarafmæli Siglufjarðar, 1968, gaf Siglufjarðar-
kaupstaður og Sögufélag Siglufjarðar út bókina Siglufjörður, eft-
ir Ingólf Kristjánsson, rithöfund, sem hefur að geyma sögu byggð-
arlagsins. í bókinni eru einnig þættir úr sögu Siglufjarðar eftir
Kristin Halldórsson, kaupmann. Forlagið Myllu-Kobbi hefur ný-
sett á markað endurútgáfu þessarar bókar. I nýju útgáfunni em
viðbótarkaflar eftir þá Guðmund Ragnarsson og Benedikt Sigurðs-
son meðal annars um síðustu tuttugu árin í sögu Siglufjarðar. í
hinni nýju útgafu eru og um 150 myndir sem ekki
vóm í fmmútgáfu.
Hér fer á eftir kafli úr bókinni Siglufjörður, eftir Ingólf Kristj-
ánsson rithöfund. Kaflinn ber yfirskriftina
„Barátta fyrir bæjarréttindum“:
íðasta og stærsta
málefnið, sem
hreppsnefnd
Hvanneyrarhrepps
hafði afskipti af og
leiddi fram til sig-
urs, var það að fá
setta löggjöf um
bæjarstjóm og kaupstaðarréttindi
fyrir Siglufjörð, en með því batt hún
jafnframt enda á tilveru sína, því
að í stað hreppsnefndarinnar tók
þá við bæjarstjóm.
Þó að heimsstyrjöldin hefði
þrengt kosti Siglfírðinga á margvís-
legan hátt, eins og lýst hefur verið,
— jafnvel svo að þeir þurftu í fyrsta
sinn að leita til landsstjómarinnar
um atvinnubótafé, vegna þess að
færri erlend og innlend síldveiðiskip
komu þangað en venjulega, — já,
eins fyrir þetta, var bjartsýni þeirra
og framfarahugur óslævður, og ein-
mitt þá tóku þeir að bera fram kröf-
una um sjálfsijóm sinna mála, hófu
baráttu fyrir kaupstaðarréttindum
Siglufírði til handa.
Forystu í kaupstaðarréttindamál-
inu heima í héraði hafði frá upp-
hafí oddviti hreppsnefndarinnar,
séra Bjami Þorsteinsson, en hann
var jafnframt sýslunefndarmaður
fyrir hreppinn og átti því hægast
um vik að reifa málið innan sýslu-
nefndar Eyjafjarðarsýslu. Þar
mætti hann þó í fyrstu harðri mót-
spymu í þessu máli, ekki hvað sízt
af hendi sýslumanns, sem að sjálf-
sögðu taldi sig þurfa að gæta hags-
muna sýslufélagsins í heild, en aug-
ljóst var, að sýslusjóðurinn hlaut
mikils að missa við það, að Hvann-
eyrarhreppur, og þar með Siglu-
fjörður, yrði limaður frá sýslunni.
Þar við bættist, að aldagömul, hefð-
bundin og söguleg tengsl voru milli
Sigluflarðar og Eyjafjarðarsýslu,
og þess vegna var það sumum nokk-
urt tilfínningamál, að þessi tengsl
væru rofin.
En þrátt fyrir öll slík rök og til-
fínningamál, létu Siglfírðingar eng-
an bilbug á sér fínna í skilnaðarmál-
inu, eftir að oddviti þeirra og hér-
aðshöfðingi hafði tekið upp baráttu
fyrir kaupstaðarréttindunum. í
þessu máli stóð bæði hreppsnefndin
og allur almenningur sem einn
maður að baki séra Bjama Þor-
steinssyni. Þetta kom meðal annars
fram í fundarsamþykkt vorið 1917,
þar sem rætt var ítarlega um
„frumvarp til laga um bæjarstjóm
á Siglufirði", sem hreppsnefndin
hafði samið. Hinn 4. júní þetta vor
héldu þingmenn kjördæmisins, þeir
Stefán Stefánsson frá Fagraskógi
og Einar Amason á Eyrarlandi,
þingmálafund á Siglufirði, og var
þess þá óskað, að þeir bæru frum-
varpið fram á Alþingi um sumarið,
og í samræmi við það var svofelld
ályktun samþykkt einróma:
„Fundurinn óskar þess, að þing-
menn kjördæmisins beiti sér fyHr
því á næsta þingi, að Siglufjarðar-
kauptún fái kaupstaðarréttindi, á
sama hátt og Hafnarfjörður hefur
þegar fengið. Sérstaklega leggur
fundurinn áherzlu á, að hér verði
skipaður lögreglustjóri með dóms-
valdi.“
Um sumarið, þegar þing kom
saman, var svo frumvarpið flutt af
þeim Stefáni Stefánssyni og Einari
Ámasyni, og var Stefán fyrri flutn-
ingsmaður þess, og mælti hann fyr-
ir því á þessa leið á fundi í neðri
deild 2. ágúst:
„Fmmvarp þetta er flutt eftir ósk
Siglfirðinga, og er samið af þeim
með hliðsjón af lögunum um bæjar-
stjóm í Hafnarfírði. En af hálfu
okkar flutningsmanna er það flutt
með það fyrir augum, að hér sé
þarft mál og sanngjamt, og með
því að kynna sér greinargerðina við
frumvarpið hygg ég, að það sé
nokkum veginn ljóst, að þetta sé
eðlileg krafa og hin affarasælasta
fyrir Siglufíörð.
Ég þarf varla að fara að lýsa
afstöðu Siglufjarðar til Akureyrar,
þar sem sýslumaðurinn hefur aðset-
ur. Leiðin milli Sigluflarðar og Ak-
ureyrar mun vera sem næst 8—10
mflur, og yfír haf að sækja nokkum
hluta leiðarinnar, en á landi yfír
fjöll eða heiðar að fara. Ferðir til
sýslumanns em því mjög erfíðar.
En til hans þarf auðvitað oft að
leita. íbúar kaupstaðarins em nú
yfír 800 að tölu; og þar að auki
sækja þangað bæði útlendir og inn-
lendir menn, svo að hundruðum og
jafnvel þúsundum skiptir, á hveiju
sumri. Verzlun og veiðiskapur era
þar aðalatvinnuvegir, reknir af
miklu kappi og atfylgi, og er því
ekki óeðlilegt, þótt þráfaldlega komi
fyrir, að mönnum beri sitthvað á
milli. En þá er það öllum sjáanlegt,
hvert óhagræði af því getur leitt,
að langt er til sýslumanns, svo að
það þurfí að taka langan tíma að
ná til hans.
íbúum Siglufjarðarkauptúns
fjölgar árlega, og þarf enginn að
ímynda sér, að það sé nein augna-
bliksbóla, sem hjaðnar áður en var-
ir. íbúatalan hefur einmitt aukizt
stöðugt nú um mörg ár og allra
mest hin síðustu, um 100 árlega.
1910 var hún rúmlega 400 manns,