Morgunblaðið - 20.05.1988, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
sem miður fer. Það verður líka að
segjast eins og er, að það er ekki
hlaupið að því, að standa í rekstri
af þessu tagi héðan frá Islandi.
Stundum fannst okkur, að við þyrft-
um að hlaupa 110 m á meðan keppi-
nautamir hlupu aðeins 100.
í byijun síðasta árs stóð NESCO
Manufacturing frammi fyrir gífur-
legum reksturs- og fjárhagsvanda.
Var þá annað hvort að gefast upp,
nánast skilyrðislaust, leggja upp
laupana og láta allt fara í rúst, eða
að reyna að koma við skipulegum
vömum og undanhaldi og bjarga
því sem bjargað varð. Var síðari
kosturinn valinn. Voru fyrst tvö ný
fyrirtæki stofnuð um innanlands-
reksturinn, sem kominn var í
strand; NESCO-Laugavegur hf.
sem annast skyldi innflutning,
heildsölu og smásölu á Laugavegi
10 og NESCO-Kringlan hf. sem
taka skyldi við smásöluverkefnum
í Kringlunni, sem NESCO Manufac-
turing réði ekki við. Vom þessi fyr-
irtæki stofnuð í sameign með
nokkrum elztu og beztu starfs-
mönnum NESCO Manufacturing,
en með því að greina þessa rekst-
ursþætti frá NESCO Manufactur-
ing vandræðahítinni, sem orðin var,
fá inn nýtt ij'ármagn og persónuleg-
ar ábyrgðir aðila, reyndist unnt að
tryggja nauðsynlega bankafýrir-
greiðslu og brautargengi þessara
nýju fyrirtækja. Lengst af var þó
meiningin að bjarga NESCO
Manufacturing og framhalda er-
lenda rekstrinum í því félagi, en
þegar myndbandstækjaverkefni
fyrir alla V-Evrópu, sem við höfðum
unnið að í heilt ár og gefið hefði
af sér stórfelldar tekjur, strandaði
seint á árinu 1987, vegna refsiað-
gerða, sem Evrópubandalagið
ákvað að beita þá verktakaverk-
smiðju, sem framleiða átti fyrir
okkur tækin, og, þegar fjármagns-
kostnaður fór síhækkandi og komst
á ógnvekjandi stig hér að nýju, kom
þar í desember að við sáum ekki
fram úr málum lengur. Var þá
NESCO-Xenon iðnfyrirtæki > hf.
stofnað, líka með lykilstarfsmönn-
um og fyrir tilstyrk dansks banka,
til að taka við leifum hins erlenda
rekstursþáttar NESCO Manufac-
turing og hasla sér nýjan völl á
alþjóða vettvangi. Fórum við sjálf
með NESCO Manufacturing í
skiptameðferð þann 6. janúar sl.
2. Nafngiftir
Fyrirtækið gekk alltaf undir
nafninu NESCO Manufacturing hf.
þó að það hafi upphaflega verið
skráð undir íslenzka nafninu
NESCO framleiðslufélag hf. Það
verður því að teljast sjálfsagt ná-
kvæmnisatriði og skylda frétta-
manna, að þeir fjalli um málið á
grundvelli þeirrar nafngiftar (NES-
CO Manufacturing).
Eins og fram kom hér að fram-
an, er um fjögur önnur NESCO-
fyrirtæki að ræða, auk NESCO Int-
emational hf. sem fékkst við hefð-
bundinn innflutning og heildsölu á
Norðurlöndum á árunum 1975—
1979, en hefur ekki verið með starf-
semi síðan. Fyrirsagnir eins og
„Tap vegna gjaldþrots NESCO 200
milljónir", „Gjaldþrot NESCO: Rift-
unar krafíst“, „Gjaldþrot NESCO:
Kröfur upp á hálfan milljarð",
„Skiptafundur í NESCO“ o.s.frv.
verða því að teljast ónákvæmar og
óvandaðar og til þess eins fallnar,
að villa um fyrir fólki og varpa
rýrð einkum á nýju NESCO-fyrir-
tækin þijú. Það er þó óverðskuldað,
því þeim hefur öllum gengið vel að
hasla sér völl — þrátt fyrir margvís-
legar truflanir og andbyr — og
ganga þau vel og standa traustum
framtíðarfótum.
3. Stærðargráða krafna
í fyrrahaust töldust skuldir
NESCO Manufacturing vera um
250—300 milljónir króna, og upp-
lýsti ég fréttamenn hreinskilnislega
um það, þegar félagið var sett í
skiptameðferð. Það er nú, hins veg-
ar, blásið upp, að kröfur hafí reynzt
allt að helmingi hærri. Hér gætir
misskilnings. „Krafa" undirritaðs í
búið að fjárhæð um 124 milljónir
króna er t.a.m. að hluta til ágrein-
ingur um hlutaíjáraukningu, en þó
'að mestu leyti „tæknileg krafa“
Óli Anton Bieltvedt
„Var þá annað hvort að
gefast upp, nánast skil-
yrðislaust, leggja upp
laupana og láta allt fara
í rúst, eða að reyna að
koma við skipulegum
vörnum og undanhaldi
og bjarga því sem
bjargað varð.“
vegna veðheimilda, sem undirritað-
ur veitti NESCO Manufacturing í
einkafjármunum sínum. Veðtrygg-
ingar þessar eru í höndum gamla
Útvegsbankans og Búnaðarbank-
ans og munu lækka skuldir NESCO
Manufacturing við þessa banka,
þegar á þær verður gengið. Þeir
hafa þó gert ýtrustu kröfur í búið
og ekki dregið þessar veðtryggingar
frá. Svo er um fleiri mál. Ymislegt
er því tvítalið í kröfugerð á hendur
búinu, annað er ágreiningsmál en
ekki almenn skuldakrafa, auk þess,
sem ýmsar kröfur eru þandar yfír
eðlileg og hæfileg mörk. Að öllu
athuguðu stendur því það, sem ég
upplýsti í upphafi. Almennar
skuldakröfur voru um 250—300
milljónir króna, en hafa hækkað
vegna vaxtaálags um einhveija
milljóna-tugi síðustu mánuðina fyr-
ir gjaldþrotið. Þetta þýðir þó alls
ekki, að tap vegna gjaldþrots
NESCO Manufacturing hlaupi á
þeim fjárhæðum, því veð í einka-
fjármunum mínum, fjölskyldu
minnar og félaga míns, lager veð-
settur gamla Utvegsbankanum og
aðrir fjármunir vega með veruleg-
um þunga á móti.
4. Tap gamla Útvegsbank-
ans (Ríkissjóðs)
Almennt hefur því verið haldið
fram í fjölmiðlum, að tap gamla
Útvegsbankans vegna gjaldþrots
NESCO Manufacturing nemi um
eða yfír 200 milljónum króna. Þetta
er rangt. Ýtrustu kröfur bankans í
búið nema um 209 milljónum króna,
en til frádrags koma veð á eignum
og einkafjármunum okkar eigenda
NESCO Manufacturing svo og
verðgildi lagers, sem veðsettur er
bankanum. Er því nær að ætla, að
endanlegt tap bankans verði um
100—120 milljónir króna. Rétt er
að skoða og meta tölur í því talna-
umhverfi og samhengi, sem þær
standa í. Til samanburðar skal því
nefnt, að velta NESCO Manufac-
turing 1986 var um 6—700 milljón-
ir króna, eða nær milljarður á nú-
virði. Nemur endanlegt tap bankans
þannig um 10—15% af ársveltu fyr-
irtækisins síðasta heila og eðlilega
rekstursárið. Þess má einnig geta,
að gamli Útvegsbankinn hafði
ríflegar teiqur af fjármálaþjónustu
við NESCO Manufacturing í alla
vega 7 ár.
5. Riftunarmál
Því hefur verið haldið fram, að
til stæði að „slíta" hinum þremur
nýju NESCO-fyrirtækjum:
NESCO-Laugavegi hf., NESCO-
Kringlunni hf. og NESCO-Xenon
Iðnfyrirtæki hf. eða „rifta stofn-
samningum" þeirra, eins og það
Greinargerð vegna gjald-
þrots og skiptameðferðar
NESCO Manufacturing hf.
eftír Óla Anton
Bieltvedt
Eins og eðlilegt má teljast, hafa
fjölmiðlar fjallað allnokkuð um mál
þetta að undanfömu. En þar sem
málið er óvenju margþætt og flók-
ið, hefur það vafízt nokkuð fyrir
fréttamönnum og hefur þeim geng-
ið misvel að átta sig á hinum ýmsu
þáttum þess og eðli þeirra, sam-
tengingu og samspili þessara þátta
og koma málum á framfæri á rétt-
an og skilmerkilegan hátt. A þetta
ekki sízt við um þá riftunarumfjöll-
un, sem orðið hefur á síðustu vik-
um, og ekki verður við annað líkt
en hvínandi moldviðri. Frá þessu
eru, reyndar, ágætar undantekn-
ingar, engu að síður er nauðsynlegt
að rekja málavexti nokkuð:
1; Forsaga
NESCO Manufacturing hf. var
stofnað um áramótin 1979/1980.
Fékkst það fyrst og eitt íslenzkra
fyrirtækja við alþjóðlega fram-
leiðslu- og sölustarfsemi á sviði
heimilisrafeindatækja. Náði fyrir-
tækið á ýmsan hátt verulegum ár-
angri. Var markaðshlutdeild þess
t.a.m. um 10% á Norðurlöndum
1984, hvað varðar myndbandstæki
og ferðalitsjónvarpstæki. Og á ár-
unum 1986—1987 færði NESCO
Manufacturing út kvíamar í sölu-
starfsemi sinni og náði 3—4% mark-
aðshlutdeild í V-Evrópu á sviði
geislaspilara. Fyrirtækið hafði ýms
öflug iðnfyrirtæki í Japan á bak við
sig, til vöruþróunar og framleiðslu,
og náði það viðskiptasamningum
við ýmsa sterka dreifíngaraðila og
nokkrar helztu verzlanakeðjur og
-samsteypur V-Evrópu. Af hag-
kvæmnisástæðum yfírtók NESCO
Manufacturing jafnframt innan-
landsreksturinn um áramótin
1982/83, en hann hafði verið í
höndum NESCO hf. frá stofnun
þess fyrirtækis (1968). Það sem
fyrst og fremst varð NESCO
Manufacturing að falli, var, annars
vegar mikil gengiskollsteypa
1985—1986 — þar sem bandaríski
dollarinn hrundi og japanska yenið
fór upp úr öllu valdi — og stórfellt
gengistap, sem af þessu leiddi, en
NESCO Manufacturing fjármagn-
aði framleiðslu sína og birgðahald
að mestu í japönskum yenum, og,
hins vegar, að gamli Útvegsbankinn
sagði fyrirtækinu upp viðskiptum
um svipað leyti, vegna þrengri stöðu
bankans í kjölfar nýrra bankalaga,
sem tóku gildi um áramótin
1985/1986, og áfalla vegna Haf-
skips-málsins. Til viðbótar kom það,
auðvitað, að okkur, eigendum og
stjómendum NESCO Manufactur-
ing, varð ýmislegt á í messunni, en
lengst af fórum við ótroðnar slóðir
í starfsemi Nesco Manufacturing,
þar sem menn læra einkum af því,
Opið laugardaga
■AUSTURSTRÆTI U • S 12345-
BAUMLER
NÝ SENDING
1,- 9*3*9
HERRADEILD