Morgunblaðið - 20.05.1988, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
Könnun á við-
horf i almennings:
Ofdrykkja
talin sjálf-
skaparvíti
MEIRIHLUTI íslendinga virðist
telja að ofdrykkja sé ekki sjúk-
dómur heldur sjálfskaparviti.
Fólk með áfengisvandamál, eink-
um þeir sem leitað hafa með-
ferðar, eru í meirihluta þeirra
sem telja ofneyslu áfengis sjúk-
dóm, sem viðkomandi ræður engu
um. Þessar voru niðurstöður
könnunar sem Geðdeild Land-
spítalans gerði á viðhorfi almenn-
ings árið 1984. Hildigunnur Ólafs-
dóttir skýrir frá þeim í nýjasta
tölublaði Læknablaðsins.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
flokkar drykkjusýki sem geðsjúk-
dóm. AA-samtökin og Samtök
áhugamanna um áfengisvandamálið
ganga út frá því að um sjúkdóm sé
að ræða en þó ekki geðsjúkdóm.
Meðferðarstofnanir SAA taka við
92% allra sem leita aðstoðar vegna
ofdrykkju hérlendis. Árið 1985 höfðu
3,6% íslendinga eða 6400 manns
farið í meðferð að minnsta kosti einu
sinni.
í könnun sem gerð var árið 1984
á drykkjuvenjum íslendinga var
meðal annars spurt hver Qögurra
staðhæfinga lýsti drykkjusýki best.
Tæpur þriðjungur taldi að um væri
að ræða „sjúkdóm sem fólk ræður
miklu um hvort það fær eða ekki“.
Aðeins færri, eða 28%, töldu að það
væri „ekki raunverulegur sjúkdómur
heldur sjálfskaparvíti". Um 12%
sögðu að þetta væri „sjúkdómur sem
fólk ræður litlu um hvort það fær
eða ekki“ og 9% að sjúkdómurinn
gerði engin boð á undan sér og fólk
réði engu um hvort það fengi hann.
Fimmtungur aðspurðra kvaðst ekki
vita svarið og 16% svöruðu ekki.
Hópurinn sem tók ekki afstöðu
er stærstur en þeir sem telja
drykkjusýki sjálfskaparviti eða sjúk-
dóm sem menn fá um ráðið eru í
meirhluta svarenda. Marktækur
munur er á viðhorfí karla og kvenna.
Fleiri karlmenn álíta að drykiq'usýki
sé ekki sjúkdómur en konumar eru
í meirihluta á hinum vængnum. Þá
virðist langskólagengið fólk eiga
auðveldast með að gera upp hug
sinn og taka flestir þá afstöðu að
fólk ráði miklu um hvort það ánetj-
ist áfengi.
Hildigunnur dregur þá ályktun af
niðurstöðum könnunarinnar að SÁÁ
hafí ekki tekist að breyta hefð-
bundinni skoðun á drykkjusýki. Fólk
vilji almennt láta meðhöndla of-
drykkjumenn á stofnunum en líti
ekki á þá sem sjúklinga. Hinsvegar
fínnist þeim sem leita meðferðar
nokkur bót í því að þjást af skil-
greindum sjúkdómi.
Landsspítalinn:
Eldur í
þvottahúsi
Snarráð starfsmaður
forðaði stórbruna
ELDUR kom upp í þaki þvotta-
húss Landsspftalans á sjöunda
tfmanum á miðvikudagskvöld.
Þegar slökkvilið kom á staðinn
hafði starfsmaður í þvottahúsinu
heft útbreiðslu eldsins. Til þess
notaði hann vatnsslöngu sem var
til staðar í húsinu. Að sögn varð-
stjóra slökkviliðsius kom snarræði
hans í veg fyrir, að stórtjón hlyt-
ist af eldinum.
Tilkynning um eldinn barst
slökkviliðinu kl. 18:30. Eldurinn kom
upp við viftu f þakinu og er talið að
hann hafí orsakast af bilun í raf-
búnaði. Eldurinn læsti sig í klæðn-
mgu í þakinu og þurfti að rjúfa hana
til að ráða niðurlögum hans. Siökkvi-
tarf tók rúmlega hálfa klukkustund.
Þessi mynd var tekin í gær við aðalhllið álversins f Straumsvfk, en Morgunblaðið hefur ftrekað óskað eftir því undanfaraa daga að fá
að heimsækja álverið og lýsa þvf, sem þar gerist við þær aðstæður sem þar hafa ríkt. Þessum beiðnum hefur verið hafnað.
Blaðafulltrúi Alusuisse:
„ÍSAL hornsteinn í fram-
leiðslustefnu Alusuisse“
Ekki komið til tals að hætta starf seminni á íslandi
Zilrich, frá önnu Bjaraadóttur, fréttaritara Morgunbladsins.
STJÓRNENDUR Alusuisse í
ZUrich vonuðu f gær að samn-
ingar við starfmenn ÍSALs
næðust og það kæmi ekki til
þess að straumur yrði tekinn
af álkerum. „Undirbúnings-
starf fyrir yfirvofandi verkfall
hefur þegar haft neikvæð áhrif
á framleiðslu verksmiðjunnar,"
sagði Hanspeter Held, blaða-
fulltrúi álsviðs. „Það hefur
þurft að minnka álmagnið f
kerunum og hraða störfum f
steypuskála. Gæði og álsins
hafa minnkað við það og verðið
lækkað. Skaðinn verður enn
meiri ef straumurinn verður
tekinn af. Það mun kosta verk-
smiðjuna að minnsta kosti
hráálsins eru einnig mikilvæg.
Álverksmiðjur Alusuisse fram-
leiða hágæðaál. „Við álítum ÍSAL
homstein í framieiðslustefnu okk-
ar,“ sagi Held. „Stöðugt framboð
þaðan er því mjög mikilvægt."
Held sagði að það væri .ótíma-
bært að gefa út stórorðar yfírlýs-
ingar um ástandið í ÍSAL að svo
komnu máli. „Hér er fylgst náið
með samningaviðræðunum en
ÍSAL er sjálfstætt fyrirtæki og
stjómendur þess sjá um rekstur
þess.“ Hann sagði að verkfallið
væri litið alvarlegum augum, en
ekki hefði komið til tals að Alusu-
isse hætti starfsemi á íslandi.
„Verkfallshótunin hefur þegar
skaðað rekstur ÍSALs og það mun
taka sinn tíma að ná aftur upp
fullri framleiðslu, hvort sem verk-
fallið skellur á eða ekki," sagði
hann.
Landsvirkjun:
Missir 22% tekna stöðvist
framleiðsla í álverinu
10.000 tonn í framleiðslu. Það
er stór hluti af 88.000 tonna
ársframleiðslu."
Alusuisse hefur skorið hrááls-
framleiðslu sína verulega niður á
undanfömum ámm. Mikilvægi
ÍSALs hefur aukist við það. Verk-
smiðjan framleiðir nú tæpan Qórð-
ung af heildar hráálsframleiðslu
svissneska móðurfyrirtækisins, en
hún er um 360.000 tonn. Gæði
HALLDOR Jónatansson for-
stjóri Landsvirkjunar segir að
komi til framleiðslustöðvunar i
álverinu við Straumsvík muni
tekjutap Landsvirkjunar vegna
minnkaðrar raforkusölu nema
um 2,8 miiyónum króna á dag.
ÍSAL er þriðji stærsti viðskipta-
vinur Landsvirkjunar, á eftir
RARIK og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, og nema telgur
af viðskiptunum við álverið
22% af heildartekjum Lands-
virkjunar.
Halldór Jónatansson sagði að
álverið hefði þegar dregið úr ra-
forkunotkun um 12% miðað við
það sem eðlilegt telst, úr um 3.950
mHz stundum á dag í um 3.540
mHz stundir á dag. Samkvæmt
rammasamningi íslenska álfé-
lagsins og Landsvirkjunar eru
vinnudeilur taldar til óviðráðan-
legra orsaka rekstrarstöðvunar
og er ÍSAL ekki skuldbundið til
að greiða raforkukostnað meðan
framleiðslan stöðvast af þeim sök-
um. Halldór sagði að framleiðslu-
stöðvun í álverinu muni engin
áhrif hafa á rekstur og starfsemi
Landsvirkjunar nema það dragist
verulega á langinn.
lÍHIHKíg
j'jt i
Slökkviliðsmenn glima við eldinn i þaki hússins. MorgunbiaðiS/Svemr
Atvinnumálafulltrúi
ráðinn í Dalasýslu
Búðardal. 9/
SVAVAR Garðarsson frá
Hríshóli í Reykhólahreppi, sem
búið hefur í Búðardal frá 1976,
hefur verið ráðinn atvinnumála-
fulltrúi Dalasýslu. Verkefnis-
stjórar eru tveir, tilnefndir af
atvinnumálanefnd Dalasýslu,
þeir Kristján Gíslason skólastjóri
á Laugum, tilnefndur sem sveit-
arstjómarmaður, og Sæmundur
Kristjánsson framkvæmdastjóri
Fóðuriðjunnar i Ólafsdal, til-
nefndur úr atvinnumálanefnd.
Tengiliður við Byggðastofnun er
Sigurður Guðmundsson for-
stöðumaður þróunarsviðs.
Atvinnumálanefnd Dalasýslu var
komið á fót á árinu 1986 en þá
voru fyrir atvinnumálanefndir í
hreppum. Atvinnumálanefnd Lax-
árdalshrepps gekkst fyrir ráðstefnu
'og þar kom fram tillaga um stofnun
nefndar fyrir sýsluna. Þá var óskað
eftir því við Byggðastofnun að hún
kostaði starfsmann til allt að
tveggja ára sem ynni að atvinnu-
og byggðamálum í sýslunni.
Atvinnumálafulltrúi Dalasýslu
hefur aðsetur í stjómsýsluhúsinu í
Búðardal. Starfssvið hans er meðal
annars að aðstoða fólk sem hefur
hugmyndir um arðbæran atvinnu-
rekstur eða annað það sem bætt
gæti afkomu íbúa héraðsins, safna
saman upplýsingum og öðm sem
að gagni kemur við mat á hvort
hugmyndir séu álitlegar til fram-
kvæmda. Komi til þess mun hann
hjálpa fólki við að grisja þann fmm-
skóg stofnana sem á vegi þess verð-
ur á framkvæmdastiginu. Honum
hafa borist um 30 beiðnir um
margvíslega athugun mála.
- Kristjana