Morgunblaðið - 20.05.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
31
Lánasjóður íslenzkra námsmanna:
35% af sumartekjum koma
til lækkunar á hámarksláni
Morgiinblaðinu hefur borizt
fréttatilkynning frá Lánasjóði
íslenzkra námsmanna um að
stjóm sjóðsins hafi endurskoðað
úthlutunarreglur sjóðsins fyrir
skóiaárið 1988—89 og mennta-
málaráðherra staðfest þær.
í fréttatilkynningunni segir:
„Meginbreyting frá fyrri reglum
varðar tekjumeðferð:
Eins og áður er gert ráð fyrir
að námsmaður sé í leyfi í 3 mánuði
og afli tekna á þeim tíma sér til
framfærslu. 35% af tekjum umfram
framfærslu í leyfi koma nú til lækk-
unar á hámarksláni í stað 50% áður.
Sá sem naut ekki aðstoðar sjóðs-
ins á síðasta ári telst í leyfi 3 síðustu
mánuði áður en nám hefst á skóla-
árinu. Hann getur fengið tekjur,
sem staðfest er að hann hafi aflað
á tímabilinu 1. janúar og þar til
leyfi hefst, felldar niður.
Öll fjárhagsaðstoð til greiðslu
kostnaðar vegna framfærslu á
námstíma tekur mið af kostnaðar-
tölum frá 1.6.88—31.5.89 vegna
grunnframfærslu á íslandi, sem
sjóðurinn ákveður. Sú fjárhæð er
kr. 30.585 fyrir hvem mánucvfrá
1. júní til 31. ágúst 1988. Lán reiícn-
ast sem ákveðið hlutfall af grunn-
framfærslu miðað við tekjur og fjöl-
skylduhagi umsækjandans.
Dæmi um mánaðarframfærslu mið-
að við fjölskylduhagi:
Einstaklinguríleiguhúsnæði 30.585
Einstaklinguríforeldrahúsum 21.410
Námsmaður í hjónabandi með 1 bam 38.231
Námsmaðuríhjónabandimeð2böm 45.878
Námsmaðuríhjónabandimeð3böm 53.524
Einstætt foreldri með 1 bam 45.878 150.000 254.879 33.740 250.000 680.948 77.579
Einstætt foreldri með 2 böm 61.170 200.000 237.379 36.448 300.000 663.448 80.287
Einstætt foreldri með 3 böm 76.463 250.000 219.879 39.156
Dæmi um upphæð láns 300.000 202.379 41.865 Einstætt foreldri með 1 bam:
miðað við tekjur: 100.000 412.898 42.741
Einhleypur í leiguhúsnæði: Hjón með 1 bam, bæði í námi: 150.000 408.569 46.667
Ráðstfé. 100.000 688.163 65.680 200.000 391.069 49.255
Tekjur Lán mán. 150.000 688.163 68.847 250.000 373.569 51.964
100.000 271.142 30.928 200.000 688.163 74.013 300.000 356.069 54.672
Rflásstjórmn neitaði viðræðum
- segir í fréttatilkynningu Alþýðusambands íslands
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Alþýðusambandi íslands:
„Vegna ummæla Þorsteins Páls-
sonar í fjölmiðlum um ástæður
fundaslita í gær er óhjákvæmilegt
að taka eftirfarandi fram:
1. Það var Þorsteinn Pálsson, en
hann talaði nánast einn fyrir hönd
samráðherra sinna, sem hafnaði
viðræðum um allt annað en kaup-
liði samninga. Hann staðfesti hins
vegar að kaupliðirnir væru ekki
orsök vandans, heldur væri ástæð-
umar að finna á öðrum sviðum.
Hann aftók þó með öllu að ríkis-
stjómin ræddi þau mál við verka-
lýðshreyfinguna.
2. Þorsteinn vildi ræða um rauð
strik í samningum. Hann viður-
kenndi jafnframt að hliðarráðstaf-
anir í kjölfar gengisfellingar mundu
ráða úrslitum um verðlagsþróunina
og stöðuna gagnvart rauðu strikun-
um og umræða um þau efni væri
því ekki tímabær meðan þær að-
gerðir hafa ekki verið ákveðnar.
3. Þorsteinn vildi ræða um ófrá-
gengna samninga. Fulltrúar þeirra
landssambanda sem nú standa í
samningaviðræðum tjáðu Þorsteini
að viðmiðun þeirra viðræðna væru
þær hækkanir sem almennt hefði
orðið á vinnumarkaði. Þorsteinn
viðurkenndi að þó tekið væri mið
af þegar gerðum samningum væri
ein prósenta fyrir alla ekki ófrávíkj-
anlega rétt viðmiðun. Hann gat til
dæmis ekki gefíð einhlítt svar við
því hvort meta ætti það sem kaup-
hækkun ef taxtar hækkuðu í átt
að greiddu kaupi án þess að greidda
'kaupið hækkaði við það. Hann sagði
ríkisstjómina ekki vilja taka að sér
samningagerð við hina ýmsu aðila
sem nú eiga ósamið.
Af framansögðu. er ljóst að það
var ekki ASÍ sem neitaði viðræðum.
Það var ríkisstjómin. Hún vill ekki
ræða óráðsíu efnahagstífsins. Hún
hefur engar forsendur fram að færa
sem gera umræður um rauð strik
möguleg og hún veit ekki í einstök-
um atriðum til hvers hún ætlast
gagnvart þeim samningum sem
ólokið er. Því verður ekki annað séð
en ríkisstjómin sé ASÍ sammála um
það að best fari á að samningagerð
verði haldið áfram þar sem hún fer
nú fram og að um rauð strik verði
rætt samkvæmt ákvæðum kjara-
samninga þegar þar að kemur.
Hnútukast hans í garð ASÍ af
þessu tilefni virðist því í litlu sam-
ræmi við það sem fram kom á fund-
um_ ríkisstjómarinnar og fulltrúa
ASÍ. Tilhæfulausar ásakanir Þor-
steins um að ASÍ vilji ekki veija
kaupmátt eru lítilmannleg tilraun
til þess að ýta frá sér umræðu um
þau raunverulegu vandamál sem
að steðja."
<3 LÆS / L.EG S R/\RI !=ÖT
A GÖÐU VERÐI
(Ath. verslun okkar í Glæsibæ hefur verið breytt - verið velkomin)
Bonaparte
. Austurstræti 22
Blue Coral Super Wax er
sannkallað ofurbón.
Bónið er borið á og síðan
þurrkað yfir með hreinum klút.
Ekkert nudd, ekkert puö, tekur
enga stund.
Samt er árangurinn jafnvel
betri en með venjulegu puðbóni.
. SVONA GERUM VIÐ