Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ1988
Olympíuleikarnir:
Suður-Kórea hefur ekkert
að óttast af okkar hálfu
- sagði sérlegur sendiherra Norður-
Kóreu, sem staddur er hér á landi
HÉR Á landi er nú staddur sérlegur sendiherra Norður-Kóreu, Chon
Yong Jin og átti hann óformlegar viðræður við Steingrím Hermanns-
son utanríkisráðherra síðastliðinn þriðjudag. Á blaðamannafundi, sem
sendiherrann boðaði til, var hann meðal annars spurður um Ólympíu-
leikana, sem haldnir verða í Seoul f Suður-Kóreu I haust. Hafa Suður-
Kóreubúar af þvf nokkrar áhyggjur, að útsendarar kommúnistastjórn-
arinnar f Norður-Kóreu kunni þá að grfpa til hryðjuverka, en fáleikar
eru með Kóreuríkjunum tveimur. Sagði sendiherrann Suður-Kóreu-
menn ekkert hafa að óttast f þeim efnum, enda Norður-Kórea friðsemd-
arríki. Vfsaði hann á bug öllum ásökunum um að Norður-Kórea hefði
staðið að baki hryðjuverkum.
Á fundinum, sem haldinn var í
Hótel Sögu, varð blaðamönnum
tíðrætt um þær ásakanir, sem fram
hafa komið á hendur Norður-Kóreu-
mönnum um aðild þeirra að hryðju-
verkum gegn Suður-Kóreu. í máli
Chon Yong Jin, sem dóttir hans túlk-
aði, kom fram sú skoðun, að vald-
hafar í Suður- Kóreu hefðu sjálfir
staðið að baki þeim hryðjuverkum,
sem Norður-Kóreumönnum hafa ver-
ið kennd. Sagði hann tilgang Suður-
Kóreustjómar vera þann að þjappa
þjóðinni saman gegn Norður-Kóreu
og bæla þær raddir, sem hvettu til
endursameiningar ríiq'anna.
Færðar voru í tal þær breytingar,
sem átt hafa sér stað í Sovétríkjunum
og Kína að undanfömu og sendiherr-
ann spurður hvort slíkt væri á döf-
inni í Norður-Kóreu. Sagði Chon að
stióm sinni litist ekkert á slíkar
HITACHI
VANDAÐIR ÖRBYLGJUOFNAR
Á GÓÐU VERÐI
Pantið tíman■
lega fyrir
% sumarfríið
Listinn ókeypis.
B.MAGNÚSSONHF.
HÓLSHRAUNI 2 - SÍMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI
breytingar — í efnahagslegu tilliti
væri áhersla á það lögð að Norður-
Kórea væri sjálfri sér næg, en ut-
anríkisviðskipti aukaatriði. Hins veg-
ar benti hann á að mikið væri flutt
út af hráefnum og rakti helstu út-
flutningstölur ýtarlega því til stuðn-
ings.
Hvað „glasnost" — breytingar í
átt til opnari umræðu — áhrærði,
sagði sendiherrann enga þörf á slíku,
tjáningarfrelsi hefði ávallt verið í
hávegum haft í heimalandi sínu.
Blaðamenn drógu það í efa og bentu
á skýrslur Amnesty Intemational,
Freedom House og Mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna um hið
gagnstæða og önnur mannréttinda-
brot í Norður-Kóreu. Svaraði sendi-
herrann því til að vissulega væri
ekki hvað sem væri prenthæft, en í
Norður-Kóreu fengist allt birt „svo
ffamarlega sem það væri í samræmi
við vilja alþýðunnar."
Blaðamaður spurði Chon Yong Jin
hvort persónudýrkun á Kim II Sung,
einræðisherra landsins, litaði ekki
mjög allt þjóðlíf í Norður-Kóreu.
Sendiherrann sagði það rétt, enda
ættu Norður-Kóreubúar leiðtoganum
óendanlega mikið að þakka. Hann
hefði varpað oki japanska heimsveld-
isins af landinu og komið „hinu mikil-
fenglega alþýðulýðveldi" á legg.
Morgunblaðið spurði Chon að lok-
um álits á breytingum í lýðræðisátt
í Suður-Kóreu, en þar fóru fyrir
skömmu fram þingkosningar þar
sem flokkur Roh Tae Woo missti
þingmeirihluta. Chon sagði að Suð-
ur-Kórea gerðist æ fasískari. Kvað
hann Roh Tae Woo vera fasista,
margfaldan morðingja og handbendi
CLA, sem hefði að auki stuðlað að
hryðjuverkum.
Reuter
Símasjálfsali til sölu!
Fyrirtækið Southwestern Bell Telephone í Bretlandi hefur nú
hafið sölu á símasjálfsölum til einkanota. Síminn kostar um það
bil sextán þúsund íslenskar krónur og tekur hann við 10, 20 og
50 pensa smámynt. Er þetta í fyrsta skipti sem breskum símnot-
endum býðst að kaupa sinn eigin símasjálfsala.
Suður-Kóreumenn flýta klukkunni:
Tímabreytingin er landráð
- segja Norður-Kóreumenn
Tokyo, Reuter.
NORBUR-Kóreumenn sögðu í
gær að sú ákvörðun Suður-
Kóreumanna að flýta klukkunni
um eina klukkustund i sumar
væri landráð og svívirða.
„Þetta eru landráð sem aðeins
fleðulegum föðurlandssvikurum
eins og Roh Tae-woo, forseta Suð-
ur-Kóreu, er trúandi til, en hann
leggur sig niður við svívirðuna til
að þóknast bandarískum húsbænd-
um sínum," segir í frétt sem opin-
bera fréttastofan í Norður-Kóreu
útvarpaði í gær.
í fréttinni segir ennfremur að
suður-kóresk stjómvöld hafi ákveð-
ið að flýta klukkunni á tímabilinu
frá 8. maí til 9. október til að auka
auglýsingatekjumar af beinum út-
sendingum bandarískra sjónvarps-
stöðva frá ólympíuleikunum. „Þessi
tímabreyting, gerð til að þóknast
bandaríska húsbóndanum og til að
græða nokkra dollara, sýnir að klíka
forsetans er ekkert annað en hópur
svívirðilegra þjóðníðinga," segir
ennfremur í fréttinni.
Líbýa:
Kaddafí slakar á klónni
Observer
KLUKKAN er 2.30 að nóttu. í rústum heimilis Kaddafis, lítt áber-
andi þriggja hæða húsi inni i Bab al Aziziyeh-herbúðunum miklu
við þjóðveginn að flugvelli TripoU, skoða fulltrúar á alþjóðaráð-
stefnu um hryðjuverk eyðilegginguna sem varð i loftárás banda-
rískra flugvéla fyrir réttum tveimur árum. Fundur stendur yfir
utan dyra, og æskufólk kyrjar lofgjörð um byltingarleiðtoga sinn.
En Kaddafi getur verið ánægður
með fleira en að hafa tekizt að sitja
sem fastast þrátt fyrir hemaðar-
og efnahagsþvinganir Banda-
ríkjanna. Meiriháttar pólitískar og
efnahagslegar umbætur, sem
kynntar voru í marz, hafa gjör-
breytt ástandinu í landinu.
Erfiðleikar Líbýu að undanfömu
stafa að verulegu leyti af hruninu
á heimsmarkaðsverði olíu. Tekjur
ríkisins af olíusölu minnkuðu úr
22,6 milljörðum dollara (um 880
milljörðum kr.) árið 1980 f aðeins
4,5 milljarða dollara (um 175 millj-
arða kr.) í fyrra. Dregið hefur ver-
ið verulega úr ríkisútgjöldum og
innflutningi, og svo til allar fram-
kvæmdir hafa verið stöðvaðar.
Kaupmenn bannaðir
Áhrif verðhrunsins á olíu urðu
enn meiri vegna þess að f byijun
þessa áratugs var kaupmönnum
bannað að reka verzlanir. Var því
þá lýst yfír að kaupmenn væru
afætur og einskisnýt snílq'udýr sem
arðrændu alþýðu landsins. Komið
var upp keðju nýrra og glæstra
„alþýðu-stórmarkaða" sem reknir
voru undir ströngu verðlagseftir-
liti. Frá fyrsta degi báru þessir risa-
markaðir glögg merki þess, að
skrifflnnar eru lítt til þess fallnir
að veita viðunandi þjónustu. Við-
skiptavinir gátu aðeins með höpp-
um og glöppum fengið þann vam-
ing sem þeir vildu. Almenningur
hóf þá að stunda viðskipti á svört-
um markaði, þar sem allt fékkst
en kostaði líka sitt.
Allt leiddi þetta til mikillar óán-
gægju. Við hana bættust svo að-
farir Byltingarráða Líbýu. Þau voru
skipuð á áttunda áratugnum, og
var aðeins ætlað að kynna hugsjón-
Kaddafi, einræðisherra í Líbýu,
er heldur að slaka á klónni.
Hann hefur til dæmis leyft
kaupmönnum að starfa á ný
landsmönnum til mikils léttis.
ir byltingarinnar. Raunin varð önn-
ur og þessi ráð eða nefndir töldu
sig hafnar yflr lög og rétt. Ráðin
kváðu upp „dórna" að eigin geð-
þótta og kyntu undir ótta og öiygg-
isleysi.
Örþrifaráð
í byijun marz áttaði Kaddafi sig
loks á þvf, að við svo búið mátti
ekki standa og greip til örþrifar-
áða. Kaupmenn voru hvattir til að
opna verzlanir sínar á ný. Flestir
pólitískir fangar voru látnir lausir,
og öllum útlendingum f líbýskum
fangelsum voru gefiiar upp sakir.
Landsmönnum var tryggt frelsi til
að ferðast til útlanda, og líbýski
leiðtoginn reif sjálfur í tætlur list-
ann með nöfnum þeirra sem áður
voru í ferðabanni. Byltingarráðin
voru svipt heimild til handtöku og
.fangelsana. Og Kaddafl lýsti þvf
yflr að Líbýa væri nú „land frelsis-
ins“.
Áhrif þessara umbóta í fijáls-
ræðisátt urðu gífurleg. Um alla
Trípólíborg opnuðu verzlanir dyr
sínar á ný, og viðskiptavinir fylltu
á ný gangstéttimar í verzlunar-
hverfunum. Framleiðsla hófst á ný
í smiðjum og vinnustofum, sem nú
höfðu tryggingu fyrir að koma af-
urðum sínum á markað. Dregið
hefur úr stöðugum vöruskorti eftir
að rekstur löglegra einkaverzlana
er hafinn á ný, og svarti markaður-
inn blómstrar ekki lengur. Og borg-
in er iðandi af lífi.
Áhrifa pólitískra umbóta er einn-
ig farið að gæta. Ættingjar fyrrum
fanga segja, að þeir sem látnir
hafa verið lausir séu á engan hátt
vaktaðir eða ofsóttir. Sumir hafa
farið utan og snúið heim á ný af-
skiptalaust. Byltingarráðin, sem
áður voru mjög áberandi, láta nú
lítið fara fyrir sér.
Vaknaðiraf svefni
Mest sláandi breytinguna er
sennilega að flnna í framkomu al-
mennings. Áður voru menn niður-
dregnir og þrúgaðir. Nú eru þeir
upplitsdjarfari og brosmildari. Það
er rétt eins og þeir hafi vaknað upp
af löngum svefni.
Þótt Kaddafi eigi sannarlega sök
á fyrra ástandi, virðast landsmenn,
yflr sig ánægðir með umbætumar,
reiðubúnir til að fyrirgefa honum
fyrri misgjörðir. Margir hafa
harma að hefna, en spjótin beinast
aðallega að einstaklingum i Bylt-
ingarráðunum sem vitað er að
fförndu verstu óhæfuverkin. „Til
að fullnægja réttlætinu bæri að
draga þá fyrir dómstóla," sagði
ættingi manns sem nýlega var lát-
inn laus eftir að hafa setið fjögur
ár í fangelsi fyrir upplognar sakir.
Líbýuleiðtoginn er þekktur fyrir
fljótfæmi, og margir landsmenn
taka umbótunum með varfæmi,
vilja bíða og sjá hvort þetta aukna
fijálsræði fær að haldast.