Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
3S
Fj ölmiðlakönnun Félags vísindastofnunar:
Vaxandi gengi Stjöni-
unnar og Stöðvar 2
FJÖLMIÐLAKÖNNUN sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands
framkvæmdi dagana 14. og 15. maí sýnir vaxandi gengi Stjörnunnar
og Stöðvar 2, frá því i marsmánuði. Þá fór fram sams kónar könn-
un. Allar ríkisreknu stöðvarnar, Rás 1, Rás 2 og Sjónvarpið koma
lakar frá þessari könnun heldur en í mars. Þó eru hádegis- og kvöld-
fréttir RUV enn það útvarpsefni, sem langmest er hlustað á, sam-
kvæmt könnuninni. Alls voru i úrtakinu 924 manns á aldrinum 9 til
80 ára. Þar af svöruðu 691, eða 74,8%. Spurt var um hvern dagskrár-
lið, hvort fólk hefði hlustað eða horft á hann. Markmið könnunarinn-
ar var að mæla hlustun á alla dagskrárliði í útvarpi föstudaginn 13.
maí og notkun sjónvarps frá og með miðvikudegi 11. maí til föstu-
dagsins 13.
Af útvarpsstöðvum hefur Stjam-
an jafnasta hlustun yfir daginn.
Hún nýtur 9% - 13% hlustunar frá
kl 8.00 til kl 19.00 þennan dag. Á
sama tímabili sveiflast hlustun á
Rás 2 frá 6% upp í 10% á hádegis-
fréttatíma. Rás 1 nær mestri hlust-
un á hádegisfréttir, 26%, en fellur
niður í 2% til 8% utan hádegis fram
að kvöldfréttum, sem njóta 23%
hlustunar. Bylgjan hefur 3% til 7%
hlustun á þessum tíma.
Af hlustendum Stjömunnar em
flestir í aldurshópnum 15 til 24
ára. Hlustendur Bylgjunnar em
flestir úr báðum aldurshópum, 15
til 24 ára og 25 til 45 ára. Hlustend-
ur Rásar 2 em dreifðir nokkuð jafnt
á aldurshópana. Áberandi er, að
elsta fólkið, yfir 60 ára aldri, híust-
ar einkum á Rás 1. Úr yngsta hópn-
um, 9 til 14 ára, hlusta flestir á
Stjömuna og Bylgjuna.
Könnunin var unnin fyrir Hljóð-
varp hf, íslenska sjónvarpsfélagið,
íslenska útvarpsfélagið, Ríkisút-
verpið og Samband íslenskra aug-
lýsingastofa. Umsjón og fram-
kvæmd önnuðust Elías Héðinsson,
Stefán Ólafsson og Þóra Ásgeirs-
dóttir.
Söluverðið dug-
ar ekki fyrir fóðri
SÖLUVERÐ refaskinna er áætlað 1.500 krónur að meðaltali á næsta
sölutímabili samkvæmt spá Sambands íslenskra loðdýraræktenda.
Miðað við útkomu síðustu uppboða er söluverðið ekki of Lágt reiknað
því meðalverðið var rúmar 1.330 krónur á nýlegu uppboði í Kaup-
mannahöfn. SÍL áætlar framleiðslukostnaðinn hins vegar meira en
tvöfalt meiri, eða 3.125 krónur, eins og fram hefur komið. Sam-
kvæmt því er útlit fyrir 1.625 króna tap af hveiju framleiddu refa-
skinni.
Hlutfall þeirra sem stilla einhvern tima á hverja stöð
Föstudagur
Rás 1 Rás 2 Bylgjan Stjarnan
maí 88 mars 88 mal 88 mars 88 mai 88 mars 88 mai 88 mars 88
40% 41% 17% 23% 23% 24% 35% 29%
28% 19% 20% 29% 24%
Samanburðarsv.
Landið allt
41% 43%
25%
Sjónvarp,
samanburðarsvæði
RÚV
Landið alit
Stöð 2
RÚV
Stöð 2
Miðvikud. Fimmtud. 63% 58% 61% 56% 60% 49% Miðvikud. Fimmtud. 67% 62% 65% 47% 50% 42%
Föstud. 60% 65% 51% 47% Föstud. 63% 69% 43% 40%
Laugard. 70% 52% Laugard. 71% 44%
Með samanburðarsvæði er átt við það svæði þar sem allar stöðvar nást.
Þegar búið er að draga sölukostn-
að og sjóðagjöld frá söluverðinu,
sem SÍL áætlar 135 krónur á skinn,
og kostnað við skinnaverkun 420
kr., vantar rúmar 250 krónur upp
á að hægt sé að greiða fóðurkostn-
aðinn, sem áætlaður er 1.200 kr. á
skinn. Og eftir er svo allur annar
kostnaður. Vextir af afurðalánum
eru áætlaðir 120 krónur og annar
kostnaður 60 krónur, og breytilegur
kostnaður alls 1.935 krónur. Ef
söluverðið verður 1.500 krónur
vantar því 435 krónur upp á að
bóndinn fái fastan kostnað við fram-
leiðslu hvers skinns borinn uppi í
söluverðinu.
Til viðbótar föstum kostnaði áætl-
ar SÍL að vextir séu 200 krónur á
hvert framleitt skinn, fymingar 390
krónur og launakostnaður 600 krón-
ur. Framleiðslukostnaður við hvert
skinn er því 3.125 krónur og 1.625
króna tap af hverju skinni.
Vísitala
byggingar-
kostnaðar
HAGSTOFAN hefur reikn-
að visitölu byggingar-
kostnaðar eftir verðlagi
um miðjan maímánuð 1988
og reyndist hún vera 111,9
stig, eða 1,0% hærri en i
apríl. Þessi vísitala gildir
fyrir júni 1988.
í frétt frá Hagstofu íslands
segir að síðastliðna tólf mán-
uði hefur vísitala byggingar-
kostnaðar hækkað um 14,1%
og síðustu þrjá mánuði um
4,3%, sem samsvarar 18,3%
árshækkun.
Af hækkun vísitölunnar frá
apríl til maí stafa um 0,2%
hækkun á verði innihurða, um
0,1% af hækkun á gatnagerð-
argjaldi og um 0,7% stafa af
hækkun á verði ýmissa vöru-
og þjónustuliða. Áhrif gengis-
breytingarinnar 16. þessa
mánaðar eru komin fram í
vísitölunni að því marki, sem
þeirra var farið að gæta í vöru-
verði er upplýsingasöfnun
lauk að kvöldi 17. maí, segir
í frétt Hagstofunnar.
Langhærð skínn á und-
anhaldi í tískuheiminum
Skipulagsstjórn ríkisins:
Byggingarlcyfi ráð-
hússins standi óhaggað
MEIRIHLUTI skipulagsstjórnar
ríkisins hefur komist að þeirri
niðurstöðu, að byggingarleyfi
fyrir ráðhúsið við Tjömina skuli
standa óhaggað. Hefur félags-
málaráðherra verið send sam-
þykkt meirihlutans en ráðherra
leitaði umsagnar skipulagsstjórn-
Skák:
Grunnskóla-
keppni stúlkna
SVEIT Hvassaleitisskóla sigraði
með 13,5 vinningum í grunnskóla-
keppni stúlkna, sem haldin var
sunnudaginn 15. maf sl., á vegum
Skáksambands íslands og Taflfé-
lags Reykjavíkur. í öðru sæti varð
sveit Engidalsskóla í Hafnarfirði
og sveit Seljaskóla í þvi þriðja.
Teflt var á flórum borðum, fimm
umferðir. í sigursveit Hvassaleitis-
skóla tefldu Hrund Þórhallsdóttir,
Anna S. Þórhallsdóttir, Berglind
Aradóttir og Vaka Rögnvaldsdóttir.
Stefnt er að því að halda keppni sem
þessa árlega, en áhugi stúlkna á
skáklistinni fer nú ört vaxandi.
Næsta stúlknamót verður haldið
í haust og er það íslandsmót. Núver-
andi íslandsmeistari er Hrund Þór-
hallsdóttir.
Skákæfíngar fyrir drengi og
stúlkur eru á hveijum laugardegi
kl. 14 að Grensásvegi 44 — 46, en
hié verður gert á æfíngum í júlí og
ágúst.
(Úr fréttatilkynningu)
ar vegna kæru íbúa við Tjaraar-
götu, sem kærðu veitingu bygg-
ingarleyfisins. Tveir varamenn
sátu fundinn þeir Helgi Hallgrí-
msson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son en hann vék af fundi þegar
fjallað var um byggigarleyfið.
í umsögn meirihluta skipulags-
stjómar til félagsmálaráðherra kem-
ur fram að: „Skipulagsstjóm telur
að ekkert atriði í bréfi kærenda sé
það þungvægt, að það réttlæti aftur-
köllun byggingarleyfísins fyrir ráð-
húsi sem samþykkt var á fundi bygg-
ingamefndar Reykajvíkur 28. apríl
s.l. og ályktar að samþykktin skuli
óhögguð standa.
Jafnframt vill skipulagsstjóm
vekja athygli á því að bílastæði fyr-
ir almenning, sem áður vom hugsuð
í kjallara ráðhúss hafa borgaiyfír-
vöid hætt við. Skipuiagsstjóm telur
rétt að Reykjavíkurborg geri grein
fyrir því hvar annarstaðar þessum
bílastæðum verði fyrir komið."
Guðrún Jónsdóttir arkitekt,
greiddi atkvæði á móti meirihlutan-
um og lagði fram bókun þess efnis
að framkvæmdir við ráðhúsið séu
ekki í samræmi við staðfest deili-
skipulag og þvl beri að fella bygging-
arleyfíð úr gildi.
Á fundinum lagði Guðrún jafn-
framt ffarn tillögu um að Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson yrði látinn víkja af
fundi þegar fjallað yrði um veitingu
byggingarleyfísins. Tillagan var
felld með þremur atkvæðum gegn
einu. Vilhjámur Þ. Vilhjámsson ák-
vað þrátt fyrir þessa niðurstöðu að
víkja af fundi en lagði jafnframt
fram eftirfarandi bókun: „Ég tel að
Guðrún Jónsdóttir sé vanhæf til að
taka þátt í atkvæðagreiðslu um þetta
mál. Hún er yfirlýstur andstæðingur
ráðhússbyggingar og hefur auk þess
undirritað mótmælaskjöl varðandi
byggingu ráðhússins og auk þess
haft sig mjög í frammi í því.“
Ekki útlit fyrir að
jafnvægi komist á
fyrr en eftir 2—3 ár
FORYSTUMENN loðdýrabænda
eru ekki bjartsýnir um sölu refa-
skinna á allra næstu árum. Lang-
hærð skinn virðast vera á undan-
haldi i tískuheiminum og telur
Saga-fyrirtækið, sem er sölu- og
kynningarfyrirtæki norrænna
loðdýrabænda, að meira en 20%
framleiðslunnar í ár verði óseld
í byrjun næsta sölutímabils og
kemur það til viðbótar þeirri
framleiðslu sem nú er unnið að
og kemur á markað í vetur.
Framleiðslan þarf þvi að dragast
mikið saman til að jafnvægi kom-
ist á á milli framboðs og eftir-
spurnar og þar með eðlilegt verð.
Jón Ragnar Björasson fram-
kvæmdastjóri Sambands
íslenskra loðdýraræktenda telur
i samantekt um stöðu loðdýra-
ræktar að búast megi við að jafn-
vægi náist vart fyrr en að 2—3
árum liðnum.
Mun betri afkoma hefur verið í
minkarækt, eins og fram hefur
komið, og yfírleitt minni tískusveifl-
ur i eftirspum á stutthærðum
skinnum. Blikur eru þó á lofti.
Ragnar telur að ekki liggi beinlinis
fyrir að um offramleiðslu á minka-
skinnum sé að ræða en hins vegar
sé reiknað með 3—5 milljón skinna
aukningu á þessu ári. Danir auki
til dæmis framleiðsluna um 2 millj.
skinn, auk framleiðsluaukningar
hjá í Bandaríkjunum, Kína og fleiri
löndum. Að óbreyttu sé þvi hætt
við að aukið framboð haldi verðinu
niðri.
Tillögur Sambands íslenskra loð-
dýraræktenda um afkomutrygg-
ingu refabænda næstu 2—3 árin
og stuðning við búháttabreytingu
innan loðdýraræktarinnar, það er
að menn geti tekið upp minkarækt
í stað refaræktar, byggist m.a. á
þessum horfum á heimsmarkaði
sem Jón Ragnar tók saman.
Tvö í einu!
Rétta rafsuðu-
tækið
fyrir bændur
og minni
verkstæði
Magma 150 er ekki einungis afar
öflugt jafnstraums-rafsuðutæki
fyrir pinnasuðu heldur einnig
kröftugt mig/mag suðutæki með
rafknúinni þráðstýringu (EFC).
Hafðu samband við sölumenn
okkar sem veita þér faglega
ráðgjöf.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2,SlMI 624260
pinnasuða