Morgunblaðið - 20.05.1988, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
„Hvar eru allir þess-
ir talkennarar?“
eftir Grétu E.
Pálsdóttur
Fyrirsögn þessarar greinar er
setning sem hent var á lofti úr sam-
tali á foreldrasamkomu fatlaðra
bama á síðastliðnum vetri. Þótti
okkur talkennurum von að spurt
væri, því við höfum haft vaxandi
áhyggjur af þeirri þróun sem er að
vera innan stéttarinnar, að sífellt
fleiri flýja talkennsluna og leita sér
annarra starfa. Stjóm Félags tal-
kennara og talmeinafræðinga (hér
eftir nefnt FTT) tók sig til í skamm-
deginu og gerði lauslega könnun á
þvi meðal félagsmanna hvert væri
viðhorf þeirra til starfs síns. Öllum
félagsmönnum var sent eyðublað og
þeir beðnir að svara nokkmm spum-
ingum, mismunandi eftir því hvort
þeir voru starfandi í faginu eða ekki.
Ég held að það sé ekki úr vegi að
birta ykkur, ágætu lesendur Mbl.
sem áhuga kunnið að hafa, niður-
stöður þessarar könnunar nú á vor-
mánuðum. Ekki síst þar sem þær
koma heim og saman við það ástand
sem virðist ríkja í málefnum kennara
og skólamálum yfírleitt um þessar
mundir. En víkjum nú að könnun-
inni.
Skráðir félagar í FTT eru 46.
(Það er fjöldi þeirra sem lokið hafa
námi í talkennslu.) Fjöldi svara sem
bárust: 22. Af þeim sem voru starf-
andi við talkennslu: 15. í öðrum
störfum: 9. Tveir svara bæði játandi
og neitandi, annar er í námi, en hinn
kennir bekk í Heyrnleysingjaskólan-
um. Starfsaldur var frá V2 ári til
18 ára. Meðalstarfsaldur: 7,8 ár.
Hæstu uppgefín grunnlaun:
62.167.00 kr. (Eftir 18 ára starf!)
Ánægðir með starfíð: 14. Óánægðir
með starfíð: 2. Ánægðir með starfs-
aðstöðuna: 7. Óánægðir með starfs-
aðstöðuna: 5. Einn segir ,já og nei“
annar „sums staðar" (Athyglisvert,
það er hluti af „starfsaðstöðu" tal-
kennara að starfa á fleiri en einum
stað.) Ánægðir með launin: 2. Óán-
ægðir með launin: 13.
Þá var svarendum gefínn kostur
á að koma að athugasemdum sínum
varðandi þessar spumingar. Til nán-
ari útlistunar verða nokkrar þeirra
látnar fylgja með hér.
* „Ég hef ágæta starfsaðstöðu og
vildi gjama nýta hana meira. Hins
vegar fæ ég aðeins stöðu sem al-
mennur kennari við minn skóla
og hef því lítinn tíma til að sinna
talkennslu. Þarfnast það ein-
hverra skýringa að ég skuli vilja
hærri laun?"
* „Kennaralaun eru almennt of lág,
sémám eftir kennarapróf of lágt
metið."
* „Varðandi launin er regla í gildi
sem bitnar mest á talkennurum,
þ.e. að sé yfírvinna unnin í öðru
fræðsluumdæmi en þeir eru fast-
ráðnir hjá, fæst hún ekki greidd
sem yfírvinna. Ekki er að mínu
mati komið nægjanlega til móts
við það hve mikill tími fer í sam-
starf við fjölda aðila, lestur til að
halda sér „á jour“, greiningu og
mat ofl. ofl ...“
* „Aðstaðan sem ég hef er lítið og
loftlaust herbergi. Það býður ekki
upp á að unnið sé með fleiri en
tvö böm i einu, eða foreldravið-
töl. Þetta finnst mér mjög slæmt.
Launin eru lág fyrir eins krefjandi
starf og talkennslan er.“
* „Of margir vinnustaðir (2 skólar,
3 dagvistarheimili, 1 sjúkrahús).
Þetta orsakar mikinn þeyting milli
staða og stress. Ákveðin félagsleg
og fagleg einangrun. Launin eru
allt of lág miðað við mikla ábyrgð
og undirbúningsvinnu."
* „Starfíð getur verið skemmtilegt,
en bæði krefjandi og lýjandi, sérs-
taklega þar sem vantar faglega
samvinnu. Starfsaðstaðan er lé-
leg, þar sem tveir kennarar eru
saman í stofu, hvor með sinn hóp.
Fagleg endumýjun er mikilvæg í
þessu starfí."
* „Ég gæti ekki framfleytt flöl-
skyldu minni af þessum launum,
og er þó í fullu starfí."
* „Ánægð með aðstöðuna á vinnu-
stað (húsnæði og búnað) en
óánægð vegna mikillar félagslegr-
ar einangrunar. Nei-ið við spum-
ingunni um launin hlýtur að skýra
sig sjálft."
—Ég get tekið það fram hér að
þegar ég hætti kennslu í ágúst 1987,
semsagt fyrir tæpu ári, hafði ég í
grunnlaun á mánuði kr. 52.546.00,
eftir 12 ára starf og tveggja ára
sémám eftir kennarapróf. Auðvitað
hafa þessi laun hækkað eitthvað á
þessu tímabili sem liðið er síðan,
hversu mikið veit ég ekki. Aðalatrið-
ið er sú stefna sem viðgengst hér á
landi að halda grunnlaunum svo lág-
um að fólk þurfí að vinna yfírvinnu
til að hafa í sig og á er auðvitað
alröng. Sérstaklega tel ég hana
óheppilega hvað varðar kennara og
skaðlega skólakerfínu, þar eð kenn-
arar eiga skv. samningum að skila
töluverðum hluta vinnu sinnar utan
kennslutíma. Þar á ég við þann tíma
sem ætlaður er til undirbúnings og
úrvinnslu verkefna. Aukin kennsla
kallar á aukinn undirbúning og
minnkar um leið þann tíma sem
kennarinn hefur til að búa sig undir
skyldukennsluna. Ég fæ hreinlega
ekki séð hvemig sólarhringurinn
endist kennurum til að vinna t.d.
10 aukavinnustundir á viku, sem er
þó líklega algengt að þeir geri. Hjá
einhveijum hlýtur það að bitna á
gæðum starfsins.
Þá var spurt hvort fólk gæti hugs-
að sér að stunda annað starf ef það
byðist. Svörin við þeirri spumingu
voru á þá leið, að 7 vildu gjama
skipta um starf, 2 gáfu ekki afger-
andi svar, og 5 vildu halda sínu
striki við talkennsluna.
Þá er komið að svörum þeirra sem
ekki eru starfandi við talkennslu í
vetur. Þau eru ekki síður fræðandi
um ástandið í þessum málefnum inn-
an skólakerfísins. Það voru sem fyrr
segir níu manns sem svöruðu og
vom i öðmm störfum. Aðspurðir
hvers vegna þeir hefðu valið önnur
störf svömðu þeir á ýmsa lund, sum-
ir vom í annars konar kennslu, vænt-
anlega til að komast út úr hinni fé-
lagslegu einangmn sem svo margir
kvarta undan, aðrir í störfum tengd-
um kennslu, (stjómun ofl.) enn aðrir
vom í allt öðrum störfum. Svörin
við spumingunni um hvort þeir hugsi
sér að taka til við talkennslu á ný
vom einnig margvísleg, sumir höfðu
það í huga, aðrir ekki. Eitt svarið
er kannski eftirtektarverðast, einn
vildi „gjaman byija aftur, að upp-
fylltum vissum skilyrðum, því að
talkennsla er skemmtilegasta starf
sem ég get hugsað mér“. Einhvers
staðar er eitthvað athugavert þegar
fólk hrekst úr skemmtilegasta starfi
sem það getur hugsað sér, þegar
skorturinn á fólki til einmitt þess
starfs er jafn geigvænlegur og raun
ber vitni.
Þá var þessi hópur spurður að
því, hvaða breytingar þyrftu að
verða á til þess að hann fengist til
starfa við talkennslu aftur. Nokkur
svaranna við þeirri spumingu fylgja
hér á eftir.
* 1. Betri laun. 2. Minna álag.
3. Góð starfsaðstaða—vinnuskil-
yrði.“
* „Betra kaup. Aukin réttindi og
viðurkenning. Betri aðstaða. Auk-
ið faglegt samstarf og örvun.“
* „Breytt starfsviðhorf, möguleikar
á rannsóknarvinnu, markviss
prófun þjálfunar- og kennslu-
áætlana. Betri starfsaðstaða, hvað
varðar kennslugögn ofl. ofl.“
* „Hærri laun (allmiklu hærri!) Auk-
inn skilningur viðkomandi stjóm-
valda á þörf fyrir þessa þjónustu
og gildi hennar. Áukin tækifæri
til endurmenntunar. Lækkun
kennsluskyldu og ætlaður verði
tími til kennslugagnagerðar og
samstarfs við ýmsa hlutaðeigandi
„Einhvers staðar er
eitthvað athugavert
þegar fólk hrekst úr
skemmtilegasta starfi
sem það getur hugsað
sér, þegar skorturinn á
f ólki til einmitt þess
starfs er jafn geigvæn-
legur og raun ber vitni“
aðila. Bætt starfsaðstaða að
ýmslu leyti.“
* „Meiri áhugi hjá sjálfri mér.
Spennandi starfsaðstaða. Bætt
launakjör."
Svo mörg vom þau orð. Að lokum
var öllum svarendum gefínn kostur
á að bæta við athugasemdum frá
eigin bijósti, og hér skal nokkram
þeirra komið á framfæri.
* „Ég held að til þess að hamla
gegn flótta úr talkennarastétt
þurfí ýmislegt að koma til, m.a.
þetta:
Veraleg hækkun launa. Stytt-
ing kennsluskyldu — allt í lagi
þótt þurfí að „borga" hana með
lengri bundnum viðveratíma. Fag-
leg styrking. Auka þarf möguleika
á endurmenntun og það þarf að
gera talkennuram kleift að sækja
námskeið erlendis (liprari styr-
kveitingar frá hinu opinbera). Hið
sama á við ef talkennari vill fara
utan og vinna um hríð við tal-
kennslu þar í endurmenntunar-
skyni.“
* „Ég held að það séu mjög margir
þættir sem spila inn í þreytu tal-
kennara í starfí. T.d.:
Óöragg staða talkennslu innan
grannskólans. (Ómörkuð stefna.)
Of mikil yfírgripsvinna (þ.e.a.s.
of mörg athugunartilfelli, of fáir
meðferðartímar).
Starfsaðstaða víða bágborin.
Fagleg samvinna of lítil.
Fagleg örvun lítil sem engin.
Faglega endurmenntun vantar."
* „Starfíð er í sjálfu sér mjög gef-
andi, en það vantar í þessari könn-
un að athuga fleiri þætti, s.s.
tengsl talkennara við annað
starfsfólk skólans. Neikvæðasti
þátturinn að mínu mati er hvað
talkennarinn er einn á báti í sínu
starfi. Lesverskennari hefur strax
meira samstarf við alm. kennara
m.a. vegna þess að bekkjarkenn-
ari hefur yfírleitt meiri áhuga á
því hvort bam verður læst en
hvort það kann að segja s aðeins
skýrar. Sem gamall bekkjarkenn-
ari sakna ég þessa og hef velt því
fyrir mér að fara kannski aftur í
almenna kennslu eingöngu."
* „Það þarf að endurbæta og breyta
þeirri litlu löggjöf sem fyrir hendi
er um talkennslu."
* „Þar sem engin talkennarastaða
er veitt við einstaka grannskóla,
vinn ég sem sérkennari og „stel“
undan tímum til að sinna talgöll-
uðum bömum við skólann. Ég tel
það alls óviðunandi að til þess að
geta stundað talkennslu sem aðal-
starf verði maður að ráða sig til
að sinna mörgum skólum og þar
með að vera á stöðugum flæk-
ingi. Enginn endist við slíkt til
lengdar. Ég held að það eigi að
vera unnt að ráða sig sem talkenn-
ara og sérkennara við sama skóla
og sem talkennari geri maður út-
tekt á talkennsluþörfinni innan
skólans og stöðuhlutfallið verði
þá í samræmi við það. Eins og
málin standa í dag er eingöngu
hægt að ráða sig sem sérkennara
og þá undir því heiti við einn ein-
stakan grannskóla."
Já, þetta er hluti af því sem tal-
kennarar hafa við starf sitt og að-
stæður að athuga. Svo er bara stóra
spumingin: Hvemig verður úr bætt
þannig að þeir sem hrakist hafa úr
starfi, fáist aftur í það? Það veitir
svo sannarlega ekki af öllu því
menntaða fólki sem til er til starfa.
í svöram hér að framan hefur aðal-
lega verið minnst á vandann innan
grannskólans, en hann er síst minni
innan dagvistarkerfísins, sérskól-
anna og sjúkrahúsanna. Það hefur
líklega enginn þeirra sem svöraðu
könnuninni verið starfandi innan
þeirra stofnana, því þeir era víst
teljandi á fíngram annarrar handar,
sem það gera. Það er bersýnilegt
að til að koma þessum málum í við-
unandi horf þarf að koma til sam-
starf margra aðila, ráðuneyta,
fræðslustjóra, e.t.v. foreldra og
síðast en ekki síst talkennara sjálfra,
til að skipuleggja málin svo að allir
geti við unað. FTT er ekki stéttarfé-
lag, heldur aðeins fagleg samtök
talkennara og getur því ekki annað
gert í málinu en að vekja athygli á
því. Hins vegar sjá félagsmenn
sennilega manna best hvar vandinn
liggur og væra án efa tilbúnir í sam-
starf til að koma á úrbótum sem
duga til að nýta starfskrafta þeirra
og kunnáttu á sem bestan hátt.
Vonandi rankar einhver við sér og
efnir til slíks samstarfs. Núverandi
ástand er áhyggjuefni öllum þeim
sem til þekkja.
Höfundur er talkennari, ekki I
starfi sem slíkur.
HELSINKI
lxíviku
FLUGLEIÐIR
-fyrirþíg- * *
Hefjið veiðiferðina
hjá Veiðimanninum
HAFNARSTRÆTI 5 SÍMAR 16760 og 14800
Opið í dag til kl. 19.00. Laugardaga frá kl. 10.00-16.00
—aamati