Morgunblaðið - 20.05.1988, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
69
Vestmannaeyjar;
Lendingakeppni j
Flugklúbbsins
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
TF-GJA að koma inn til lendingar i keppninni.
Lendingakeppni var haldin í
Eyjum sunnudaginn 15. mai.
Hlutavelta
Unglinga-
athvarfsins
Unglingaathvarfið, Tryggva-
götu 12, verður með hlutaveltu
í dag, föstudaginn 20. maí. Hluta-
veltan verður haldin á annarri
hæð i Kringlunni.
Hlutavelta þessi er haldin til
styrktar ferðasjóði Unglingaat-
hvarfsins og ágóðinn af henni fer
til að standa straum af Hollands-
ferð nú í byrjun júní.
Svona utanlandsferðir hafa verið
árviss viðburður. Hafa þær sannað
gildi sitt sem liður í starfi með ungl-
inga. Er utanförin endapunktur
dvalar unglinganna í Unglingaat-
hvarfinu yfir vetrarmánuðina.
Velunnarar og almenningur eru
hvattir til að líta við á efri hæð
Kringlunnar þar sem hlutaveltan
verður haldin. Á henni eru rhargir
eigulegir munir, m.á. ónotaðir hlut-
ir sem fyrirtæki og verslanir hafa
gefið.
(Fréttatilkynning)
Hofsós:
Arsþing
UMSS hald-
ið á Hofsósi
Arsþing UMSS var haldið í 68.
sinn á Höfðaborg Hofsósi 19.
mars s.l. Gestur þingsins var
Hermann Sigtryggson íþrótta-
fulltrúi á Akureyri og stjómar-
maður ISÍ.
A þinginu fóru fram umræður
um íþrótta- og félagsheimilasjóð
og var skorað á ríkisstjóm og
Alþingi að reisa aftur til fyrra
hlutverks þá sjóði svo þeir megi
í auknum mæli aðstoða við upp-
byggingu íþrótta- og félagsað-
stöðu og stuðla að jafnvægi í
byggðum landsins.
Þá hvatti þingið forráðamenn
ríkisútvarpsins að vinna að því að
Rás 2 nái til allra landsmanna og
bæta jafnframt dreifíkerfi
Ríkisútvarpsins. Þá skoraði þingið
á útvarpsráð bæta snarlega úr og
gera málefnum landshlutanna
jafnar undir höfði í frétta og dag-
skrárflutningi. Til að mynda með
tilkomu landshlutaútvarps eða
fastráðningu fréttamanns á svæð-
inu eins og gert hefur verið á
Austurlandi og Vestfjörðum.
Þá voru á þinginu lögð fram
mótmæli gegn bjórfmmvarpinu
sem samþykkt var sem lög frá
Alþingi 9.maí s.l.
A þinginu fór fram afhending
viðurkenninga til íþróttamanna og
var íþróttamaður ársins kjörin
Berglind Bjamadóttir. Afreks-
bikar Fram hlaut Asa Dóra Konr-
áðsdóttir sundkona. Fram bikar-
inn hlaut hins vegar Friðrik
Steinsson spretthlaupari.
Góðandaginn!
Keppt var um Karls Krist-
mannsbikarinn sem gefinn var
af heildverslun Karls Krist-
manns.
Keppnin fór fram í blíðskapar-
veðri og lögðu margar flugvélar
leið sína til Eyja. Keppendur vom
níu á sjóvélum. Sigurvegari varð
Höður Guðlaugsson á TF-NEW
með 120 refsistig. Annar varð
Guðmundur Alfreðsson á TF-FIF
með 168 refsistig og þriðji Viðar
Óskarsson á TF-POU með 290
refsistig.
Keppnin dró að fjölda áhorf-
enda. Þetta er í annað skipti sem
keppt er í Eyjum um KK-bikar-
inn. Flugklúbbur Vestmannaeyja
hafði veg og vanda af keppninni.
- Sigurgeir
Ný veitinga-
aðstaða í
notkun
FJÓRÐA starfsár Tfvolisins í
Hveragerði er nú hafið, og hefur
verið bætt við aðstöðuna þar.
Ný veitingaaðstaða hefur verið
sett upp í miðjum garðinum, og kom-
ið hefur verið fyrir gróðri, meðal
annars eplatrjám og kirsuberjatijám.
Boðið er upp á grillaðstöðu á staðn-
um ef veður er óhagstætt, og þannig
hægt að grilla innandyra.
Fjölmörg leiktæki em á boðstóln-
um og má þar nefna bílabrautir,
hringekju, draugahús, skotbakka,
kolkrabba, báta og hestaleigu. Þá
verða sýningar um allar helgar, og
uppákomur af einhveiju tagi annað
slagið.
Tívolíið er opið alla daga vikunnar
frá 12-21 og er aðgangur ókeypis.
Hópafsláttur er veittur í tæki og
veitingar.
MITSUBISHI
LANCER
4WD
SKUTBÍLL MEÐ SÍTENGT ALDRIF, SEM HÆGT ER AÐ LÆSA
□ Aflstýri
□ Rafdrifnar rúöuvindur
□ Rafstýröir útispeglar
□ Samlæsing á huröum
□ Rúllubílbelti í öllum
sætum
xmá,:
□ Barnalæsingar
□ Hæöarstilling á
ökumannsstól
□ Snertulaus kveikja
□ Dagljósabúnaöur
(samkvæmt nýju umferöarlögunum)
'0* ' '
* » ... „ v '
Ennþá aöeins kr. 698.000
(Samkv. núverandi gengi kr. 737.000)
TH afgreiðslu strax
BILL FRA HEKLU BORGAR SIG