Morgunblaðið - 08.06.1988, Blaðsíða 2
£ o r-r tT/fVTT 9 *TTTn * ítt rsrr/fTTM TTTrr A',T ÍMTJOFOM
MORGUNBLADIÐ, MIÐVTKUDAGUR 8. JÚNÍ 1988
Dmamítíog
hvellhett-
umstolíð
FIMMTÍU kflóum af dínamiti var
stolið úr vinnuskúr, sem stendur
norðan við Áburðarverksmiðjuna
í Gufunesi. Þá var einnig stolið
80-90 hvellhettum. Hvellhetturn-
ar geta sprungið af litlu tilefni,
til dæmis ef þær koma nærri tal-
stöð, rafhlöðum eða háspennulin-
um.
Þjófnaðurinn uppgötvaðist í gær-
morgun, en hann hefur átt sér stað
á tímabilinu frá 2. júní. Þjófamir
hafa spennt upp hespu á skúrhurð-
inni og tekið tvo kassa af dínamíti,
sem í voru 320 túbur af sprengiefn-
inu, eða fímmtíu kfló. Túbumar eru
sívalar, 26 mm í þvermál og 20 cm
á lengd. Þá var einnig stolið 80-90
hvellhettum, sem tengja á við raf-
magn. Hvellhettur þessar eru svo
næmar, að rafhlaða getur komið
þeim af stað. Þá geta þær einnig
spmngið ef þær komast í námunda
við háspennulínu.
Rannsóknarlögregla ríkisins vinn-
ur nú að lausn málsins. Ef einhveij-
ir hafa orðið varir við óvenjulegar
mannaferðir við skúrinn frá 2. júní
sl. eru þeir beðnir að láta lögregluna
vita. Þá er þeim tilmælum einnig
beint til þjófanna að þeir sjái að sér
og gefí sig fram, svo koma megi í
veg fyrir að óhapp verði við með-
höndlun sprengiefnisins.
Egilsstaðir:
Polgar syst-
ursigursælar
Egilsstððuin.
POLGAR systur lögðu ídla
keppinauta sina að velli í ann-
arri umferð skákmótsins á Eg-
ilsstöðum í gær. Þær unnu einn-
ig allar skákir sínar í fyrstu
umferð sem fram fór á mánu-
dag.
Judit Polgar tefldi við Hannes
Hlífar Stefánsson, Zsofía Polgar
vann Ragnar Fjalar Sævarsson og
Zsuzsa Polgar vann Mark Orr.
Sævar Bjamason tapaði fyrir Ja-
mes Plashell, Karl Þorsteins vann
Björgvin Jónsson og Þröstur Þór-
hallsson og Helgi Olafsson gerðu
jafntefli.
Sjá frétt frá setningu mótsins
og 1. umferð á bls. 35.
Björn
Jón Ásgeirsson hylltur eftir flutning verks hans „Tíminn og vatnið“.
Morgunblaðið/Þorkell
Tvö íslensk verk frumflutt
TVÖ islensk verk voru friun-
flutt í íslensku óperunni i gær-
kvöldi, sem iiðir á Listahátið.
Fyrra verkið var „Tíminn og
vatnið“ eftir Jón Ásgeirsson tón-
skáld, við ijóð Steins Steinarrs.
Hamrahliðarkórinn flutti verkið
undir stjóm Þorgerðar Ingólfs-
dóttur. Þá var fluttur ballettmn
„Af mönnum“ eftir Hlíf Svav-
arsdóttur, við tónlist Þorkels
Sigurbjömssonar. Dansarar úr
íslenska dansflokknum, auk
tveggja gestadansara, fluttu
ballettinn.
Höfundar og flytjendur ballettsins „Af mönnum" þakka áhorfend-
um góðar viðtökur.
Starfsmenn
HPræða
stofnun
nýs blaðs
ÓVISSA ríkir um framtið Helg-
arpóstsins eftir að stjóm útgáfu-
félagsins Goðgár sendi í gær öll-
um starfsmönnum blaðsins, um
20 talsins, bréf þar sem segir að
með þátttöku i ólögmætu setu-
verkfalli sé litið svo á að þeir
hafi sagt upp starfi án fyrirvara.
Allar skuldbindingar félagsins
gagnvart starfsmönnum falli þar
með úr gildi.
Starfsmenn blaðsins, sem eiga
alls um tveggja milljóna króna
ógreidd laun inni hjá fyrirtækinu,
héldu fund í gærkvöldi og ræddu
þar meðal annars möguleika á stofn-
un _nýs blaðs.
Á mánudag sendi starfsmannafé-
lag Helgarpóstsins framkvæmda-
sljóra blaðsins skeyti, þar sem gef-
inn var frestur til klukkan 15 í gær
til að standa ( skilum með launa-
greiðslur. Friðrik Þór Guðmundsson
formaður starfsmannafélags Helg-
arpóstsins sagði að innheimta
ógreiddra launa yrði nú falin lög-
fræðingum og kvaðst eiga von á að
í dag yrði fundað í hlutaðeigandi
stéttarfélögum og að á fundi stjóm-
ar Blaðamannafélagsins kæmi til
umræðu tillaga um áskorun til fé-
lagsmanna að þeir ráði sig ekki til
starfa hjá Helgarpóstinum fyrr en
starfsmenn hafí fengið úrlausn.
Birgir Hermannsson, varafor-
maður stjómar Goðgár, sagði að
verið væri að meta stöðu fyrirtækis-
ins og að á allra næstu dögum yrði
ljóst hvort grundvöllur þætti til
áframhaldandi útgáfu eða hvort fyr-
irtækið yrði tekið til gjaldþrota-
skipta.
Sjómenn allir gegnir úr verðlagsráði:
Verðlagsráðið lamað og
yfirnefndin óstarfhæf
- segir Þorsteinn Pálsson forsætisráÖherra
STJÓRN Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands ákvað á
fundi sínum i gær að fara að
fordæmi Sjómannasambands ís-
lands og taka ekki þátt í verð-
lagningu sjávarfangs
innan
Fjármálaráðherra um flugstöðvardeiluna::
Samið um vinnubrögð
- ekki um greiðslur
Vona aö málið sé nú leyst, segir utanríkisráðherra
Fjármálaráðherra og utanríkisráðherra hafa orðið ásáttir um að
skipa nefnd til að fjalla um ágreining þeirra um 120 mifljón króna
greiðslur vegna Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Steingrímur Her-
mannsson, utanríkisráðherra, sagði á blaðamannafundi i gær að mis-
skflnings hefði gætt á milli ráðuneytanna tveggja, sem nú hefði verið
skýrður og sagðist hann vona að málið væri leyst. Jón Baldvin Hannib-
alsson, fjármálaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið i gær að
ráðherrarnir hefðu samið um vinnubrögð en ekki greiðslur. Hann
sagði að nefndin myndi fara rækilega ofan í saumana á ógreiddum
kröfum þessa árs og engar greiðslur yrðu samþykktar fyrr en starfs-
hópurinn hefði skflað áliti.
Greiðslumar sem deilt er um eru
annarsvegar ógreiddar kröfur að
upphæð um 90 milljónir króna, sem
gjaldfalla munu á árinu, og hinsveg-
ar óheimilaðar framkvæmdir að upp-
hæð 34 milljónir, sem utanríkisráðu-
neytið telur óhjákvæmilegar.
Steingrímur Hermannsson sagði
að framkvæmdir hefðu verið skomar
niður strax og ljóst hefði verið að
kostnaður við flugstöðina færi fram
úr flárlagaheimild. Meðal annars
hefði 70 milljón króna samningi við
Hitaveitu Suðumesja um lagningu
nýrrar hitaveitulagnar verið frestað,
en það væri afar slæmt, þar sem
hitaveitan hefði sent bréf um að hún
gæti ekki ábyrgst hita til flugstöðv-
arinnar í vetur.
Á listanum yfír svokallaðar óhjá-
kvæmilegar framkvæmdir em tíu
atriði sem hin nýskipaða nefnd á að
taka afstöðu til. í’jármálaráðherra
sagði að fjárlög gerðu ekki ráð fyrir
neinum nýjum framkvæmdum við
flugstöðina í ár og einu atriðin sem
yrðu samþykkt væru þau sem lytu
að umbótum í öryggismálum, svo
sem brunaboðar og neyðarlýsing.
Sum atriði á lista utanríkisráðuneyt-
isins, svo sem lýsing vegna gróðurs
og hverfíhurðir, sem kostuðu tvö
einbýlishúsaverð, gætu varla flokk-
ast þar undir.
Hinar ógreiddu kröfur eru einkum
tryggingarfé sem ríkið heldur eftir
og greiðir eftir verklok, telji það
verkið vera unnið eins og samið var
um. Nefndin á að kanna hvort hægt
sé að semja um frestun á einhveijum
þessara greiðslna, en Jón Baldvin
sagði að farið yrði rækilega ofan í
saumana á hveiju atriði áður en
greiðsla yrði samþykkt. Fjármála-
ráðherra hefur þegar skipað tvo
menn í nefndina og á hún að hraða
störfum sínum eins og kostur er.
Verðlagsráðs sjávarútvegsins um
sinn. Ákvörðun sjómannasam-
bandanna beggja er af fram-
kvæmdastjóra Verðlagsráðs ekki
talin hefta störf þess en yfir-
nefndin hins vegar óstarfhæf,
taki enginn fulltrúi sjómanna
sæti í henni. Þorsteinn Pálsson
forsætisráðherra segir ljóst að
yfimefndin geti ekki starfað og
Verðlagsráðið sjálft sé í raun
lamað ef fulltrúar sjómanna
mæti ekki til leiks. Fundi f Verð-
lagsráðinu um verð á rækju og
hörpudiski í gær var frestað um
óákveðinn tíma.
Fulltrúar FFSÍ gengu í gær á
fund Þorsteins og Steingríms Her-
mannsonar starfandi sjávarútvegs-
ráðherra og kynntu sjónarmið sitt.
Þar varpaði forsætisráðherra fram
þeirri hugmynd að kannað yrði
hvort grundvöllur væri fyrir frjálsu
fískverði og nýjum leikreglum sem
allir gætu sætt sig við, bæði kaup-
endur og seljendur.
Sveinn Finnsson, framkvæmda-
stjóri Verðlagsráðs sjávarútvegsins,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að þó sjómenn tækju ekki
þátt í störfum ráðsins, teldi hann
það fyllilega starfhæft. Öðru máli
gilti um yfímefnd Verðlagsráðsins
en lögum samkvæmt ættu, auk
oddamanns, tveir fulltrúar kaup-
enda og tveir frá seljendum, þar
af einn frá samtökum sjómanna,
að skipa það. Yrði þar enginn full-
trúi frá sjómönnum væri ekki ljóst
hvort ákvörðun yfímefndar hefði
það lagagildi, sem hún hefði að öllu
eðlilegu.
Hann sagði ennfremur, að hann
teldi að verðákvörðun í yfimefnd
með atkvæðum meirihluta gegn
atkvæðum minnihlutans gæti ekki
talist samningur um verð, heldur
gerðardómur. Hins vegar væri hægt
að tala um samning, næðist sam-
staða innan Verðlagsráðsins sjálfs,
en svo hefði ekki verið við síðustu
ákvörðun fískverðs. Jafnframt yrði
að geta þess, að lögum samkvæmt
bæri yfimefhdinni að taka mið af
þremur meginþáttum við verðlagn-
ingu; markaðsverði, kostnaði við
veiðar og kostnaði við vinnslu.
Fleiri þættir kæmu auðvitað inn í
dæmið, en þessir þrír væm veiga-
mestir.
Þar sem skipti aflaverðmæta
milli sjómanna og útgerðar hafa
lengi verið í nokkuð föstum skorð-
um, hefur ákvörðun um fiskverð
haft meiri áhrif á kjör sjómanna,
en kjarasamningar þeirra við út-
gerðina og því oft tekið meira mið
af þeim, en afurðaverði eða kostn-
aði við veiðar og vinnslu.
Skiptar skoðanir hafa verið um
þessa aðferð við verðlagningu.
Bæði hafa menn dregið í efa hlut-
verk oddamanns, fulltrúa stjóm-
valda, ( yfímefndinni og setu sjó-
manna í henni.
Sumir telja réttast að útgerð og
fiskvinnsla semji sín á milli, án af-
skipta annarra, um verð á físki upp
úr sjó og semji sfðan við starfsmenn
sína, sjómenn og fískverkafólk um
laun eins og áður var. Fulltrúar
sjómanna hafa verið andvígir því
að hverfa aftur til þess tíma og
óttast að hagsmunir þeirra kunni
að verða fyrir borð bomir, þar sem
útgerð og fiskvinnsla er að mestu
í eigu sömu aðila.