Morgunblaðið - 08.06.1988, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 08.06.1988, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1988 61 VALLARMÁL Víkingar taka grasvöll á félagssvæði við Stjömu- gróf í notkun Fyrsti „heimaleikur" þeirra í 1. deild er Leiftur kemur í heimsókn í kvöld VÍKINGAR leika í kvöld sinn fyrsta 1. deildarleik á nýjum velli fólagsins á svæðinu við Stjörnugróf. Þeirfá þá Leiftur frá Ólafsfirði í heimsókn — en svo skemmtilega vill til að þessi félög komu bæði upp úr 2. deild í fyrra. Völlurinn er mjög þéttur og sléttur. Hönnunin virðist hafa skilað sér vel,“ sagði Jóhann Óli Guðmundsson, formaður Víkings, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það er þó auðvitað lítil reynsla kominn á hann, við vitum til dæm- is ekki hvemig völlurinn bregst við álagi í rigningu en okkur líst vel á völlinn." Allir lagst á eftt Unnið hefur verið við nýja Víkings- svæðið í nokkur ár, en undanfarið hefur verið unnið sleitulaust til að mögulegt yrði að leika á vellinum í sumar. „Menn hafa lagst á eitt að gera það kleift að spila hér. Það er búið að vinna alla grófvinnu, en fínpússað verður í dag og á morg- un,“ sagði Jóhann síðari hluta dags í gær. Ahorfendapöllum hefur verið komið upp til bráðabirgða við völlinn og reikna Víkingar með að þar komist fyrir 1.500 til 1.800 manns. Grasflöturinn á þessu nýja Víkings- svæði er 130 x 130 metrar, en leik- völlurinn sjálfur verður 105 x 75 metrar. Félagshelmlll í bygglngu Víkingar eru að reisa félagsheimili og vallarhús á svæðinu og verður það rúmlega 2.000 fermetrar að flatarmáli. Að sögn Jóhannesar verður húsið „prýtt öilum þeim fínheitum sem mega prýða slíkt félagsheimili. Þetta verður fín íþróttamiðstöð ef að líkum lætur og félagsmiðstöð fyrir hverfið. Nú er starfrækt ein félagsmiðstöð í hverfinu, sem býr við þröngan kost, en okkur langar að reka hér slíka MorgunblaðiÖ/Július A nýja velllnum við stjömugróf. FVá vinstri: Gunnar Öm Kristjánsson, formaður knattspymudeildar, Júrí Sedov, þjálfari 1. deildarliðs Víkings og Jóhann Óli Guðmundsson, formaður Víkings. miðstöð í samvinnu við borgaryfír- völd. En það er allt á óskastiginu ennþá,“ sagði hann. í húsinu verða böð og búningsað- staða í framtíðinni, auk margs ann- ars, en fyrst um sinn verður bún- inga- og baðaðstaða fyrir keppend- ur í Bjarkarási og Lækjarási, húsum Styrktarfélags Vangefínna, við hlið Vfkingssvæðisins. „Þeir hafa gert okkur kleift að spila með því að lána okkur aðstöðu sína og vil ég þakka þeim sérstaklega fyrir það. Þá vil ég nefna að aðrir nágrannar okkar hafa einnig tekið okkur opn- um örmum; sýnt okkur mikla þolin- mæði meðan framkvæmdir hafa verið í gangi, sagði Jóhann. Framtfðarsýn í áðumefndu húsi, sem Víkingar em nú að reisa, verður að sögn Jóhanns fyrsta flokks veitingaað- staða, líkamsræktaraðstaða, gufub- öð og tilheyrandi og einnig verður reynt að bjóða upp á jass-ballett, í samvinnu við einhvem jass-ballett skólann. Jóhann sagði að vitað væri að svæð- ið í Fossvoginum væri of lítið fyrir alla starfsemi félagsins. „Hér er ekkert pláss til að koma fyrir malar- velli þannig að það er ljóst að við verðum áfram með hluta af starf- seminni á svæði okkar í Hæðar- garði.“ Þá má geta þess að gras- svæðið, sem nú er verið að taka í notkun, er hugsað sem æfinga- svæði f framtíðinni, en framtíðar- kepþnisvöllur verður austan við þennan. Þar er einnig fyrirhuguð áhorfendastúka. Þá sagðist Jóhann reikna með að innan fárra missera gætu Víkingar hafíst handa við byggingu fþróttahúss á svæðinu.< húss sem tæki 1.500 til 2.000 áhorf- endur. Lelkurinn í kvöld Leikurinn í kvöld hefst kl. 20.00. Upp úr kl. 19.30 mætir Lúðrasveit á staðinn og séra Ólafur Skúlason blessar völlinn áður én leikurinn hefst. FH-ingar vígðu glæsilega stúku á fþróttasvæði sfnu við Kapla- krika, þegar þeir léku gegn KS á dögunum. Þetta er næst- stærsta stúkubygging landsins og sú eina sem er f einkaeign. FH-ingar láta ekki þar við sitja þvf fyrirhugað er að á næsta ári verði hafist handa við bygg- ingu íþróttahúss á svæðinu. Arið 1967 var FH úthlutað svæði f Kaplakrika undir fþróttamannvirki. Sama ár teiknaði Gísli Halldórsson heildarskipulag íþróttasvæðis FH og hófust fram- kvæmdir ári seinna. Frá 1973 þeg- ar malarvöllur og frjálsíþróttaað- staða var tekin f notkun, hefur FH leikið alla heimaleiki sína í knatt- spymu á eigin knattspymuvöilum. Grasvöllur FH í Kaplakrika var vígður 1976. Æfingasvæði f vextl Fyrsti hluti grasæfíngasvæðis í Kaplakrika var tekinn f notkun 1983. Nú era þar tveir knattspymu- vellir en með tímanum mun koma einn völlur tii viðbótar. Þannig verða á svæðinu auk aðalgrassvæð- is og malarvallar, þrír grasvellir sem notaðir verða til æfínga. Malar- völlurinn hefur nýlega verið lag- færður og að sögn Bergþórs Jóns- sonar formanns FH stendur hann nú aftur undir því að vera kallaður besti malarvöllur landsins. Morgunblaöiö/Bjami Berg|>6r Jónsson formaður FH og Þórir Jónsson formsður knattspymudelldsr standa hér fyrir framan hina veglegu stúkubyggingu FH-inga sem vfgð var á dögunum. Framkvæmdir við skjólvegg Árið 1984 hófust framkvæmdir við skjólvegg umhverfís íþróttasvæðið. FH-ingar notuðu uppmokstur úr Reykjanesbraut og byggðu vegleg- an vegg sem alls er um 30 þúsund rúmmetrar. Veggurinn gerir það að verkum að mjög skjólsælt er á svæðinu og á aðalgrasvellinum sem liggur neðarlega er yfirleitt logn. Stúkan gerð fokheld Á sama tíma og framkvæmdir við skjólvegginn stóðu sem hæst var unnið að því að gera búningsað- stöðu í stúkubyggingu fokhelda.' 1987 var varanleg fundaraðstaða í stúkunni tekin í notkun og í ár var gengið frá búningsaðstöðu. Á næst- unni verður unnið að því að full- Stórhugur í FH-ingum Kaplakrikinn að verða eitt glæsilegsta íþróttasvæði landsins gera búningsaðstöðu og ganga frá fundarherbergjum og félagsaðstöðu sem er til staðar á annarri hæð stúkunnar. Þá verður komið upp góðri aðstöðu fyrir blaðamenn efst í áhorfendapöllunum. íþróttahús f Kaplakri ka Fyrirhugað er að nýtt íþróttahús risi í Kaplakrika handan við stúk- u’na. Húsið á að verða alhliða íþróttahús með áhorfendapöllum og öllu tilheyrandi. Þá er ætlunin að í húsinu verði tveir handboltavellir. Ekki er endanlega frágengið hven- ær framkvæmdir hefjast, en undir- búningur er í fullum gangi og stefnt er að því að byggingarframkvæmd- ir gangi hratt fyrir sig. FH stendur vel fjárhagslega „Við stöndum vel Qárhagslega," segir Bergþór Jónsson formaður FH. „Það era ekki miklar skuldir sem hvíla á félaginu þrátt fyrir. þessar framkvæmdir og við munum koma til með að standa fyllilega í skilum." Draumurinn að verða að veru- leika „Þessar framkvæmdir sem hófust á Kaplakrika fyrrir 20 árum hefðu varla orðið að veraleika ef ekki hefði komið til fómfúst starf fjöl- margra FH-inga sem hafa lagt mikið á sig til þess að sjá drauminn um veglegt íþróttasvaeði FH ræt- ast. Það hafa margir lagt hönd á plóginn, en að öðram ólöstuðum er Bergþór Jónsson sá maður sem ber hitann og þungann af uppbygging- unni“ sagði Þórir Jónsson formaður knattspymudeildar FH í samtali við Morgunblaðið. „Þeir era þó fleiri sem hafa unnið vel og má þar nefna Ragnar Jónsson vallarstjóra. Ann- ars er það heildin framar öðra sem hefur staðið saman og gert þennan' draum að veruleika."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.