Morgunblaðið - 08.06.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.06.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1988 27 Reykjavíkurborg kynnt sem fundarstaður framtíðarinnar Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, og Ferðamála- nefnd Reykjavíkur héldu fund á föstudag með fulltrúum úr við- skiptalífinu. Tilgangur fundarins var að kynna átak Ferðamála- nefndar til kynningar á Reykjavík sem ráðstefnuborg og að fá forsvarsmenn íslenskra fyr- irtækja til samstarfs við það starf. Fundurinn hófst á ávarpi Davfðs Oddssonar borgarstjóra, en að því loknu kynntu þeir Júlíus Hafstein, formaður Ferðamálanefndar, og Jón Hákon Magnússon kynningarátakið sem ber yfírskriftina „Reykjavík - fundarstaður framtíðar". Með átaki þessu er ætlunin að lokka hingað erlend fyrirtæki og stofnanir til funda- og ráðstefnu- halds. Einn liður þess er að leita til forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja, og hvetja þá til þess að nýta sér viðskiptasambönd sín og persónuleg kynni af starfsbræðrum sínum er- lendis við kynningu á Reykjavík sem ráðstefnuborg. Var fundargestum gefin kynningarmappa um borgina til þess að færa erlendum viðskipta- mðnnum sínum. Kom meðal annars fram á fundin- um að ráðstefnuhald er einn mesti vaxtabroddur í ferðamannaiðnaði Vestur-Evrópu og voru haldnir um 60 þúsund fundir og ráðstefnur þar árið 1986. Morgunblaðið/Bjami Davíð Oddsson borgarstjóri Reykjavíkur opnar umræður um mismun- andi rekstrarform fyrir starfsemi sveitarfélaga á Höfuðborgaráð- stefnu Norðurlanda f gær. _______________—— Höfuðborgaráðstefna Norðurlanda: Verðum við kerfisþrælar? Gæti farið svo ef við vörumst ekki kerf isútþenslu, sagði Davíð Oddsson Borgarstjóramir ræddu þau kerfí DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri ýtti Höfuðborgaráðstefnu Norður- landa úr vör f gærmorgun með ræðu, þar sem hann sagði vera hættu á þvf, að við yrðum hugsun- arlausir kerfisþrælar ef áfram héldi sem horfir f kerfisútþenslu. Umræðuefnið þennan fyrsta dag ráðstef nunnar var mismunandi rekstrarform fyrir starfsemi sveitarfélaga, einkum með tilliti til skiptingar á milli einkareksturs og opinbers reksturs. Ráðstefnan hófst með ræðum borgarstjóra Reykjavíkur, Helsingfors og Kaupmannahafnar, forseta borg- arstjómar Óslóar og borgarráðs- manns frá Stokkhólmi. 17 fulltrú- sem við lýði eru í borgum þeirra og löndum og sögðu kosti og galla á þeim. Egon Weidekamp, borgarstjóri Kaupmannahafnar, sagði að það væri hinna pólitísku fulltrúa fólksins að ákveða umfang kerfisins og þeir yrðu að vera á verði til þess að láta það ekki vaxa sér yfír höfuð: Hann minnti á kímnifullar kenningar Park- insons um útþenslu kerfís og taldi þær þrátt fyrir allt vera býsna ná- lægt raunveruleikanum. Fram kom í máli ræðumanna, að í borgum þeirra er hvergi einlitt kerfí, hvorki er um að ræða að öll starfsemi borganna sé f höndum borgarkerfis, né að öll verkefnin séu í höndum sjálfstæðra stofíiana eða einkafyrirtækja. Blandað hagkerfi ríkir í borgunum og virðist fylgi þess fara vaxandi að einkaaðilar, fyrir- tæki eða sjálfstæðar stofnanir, taki að sér hluta þeirrar starfsemi sem er f höndum borgarkerfís. Ráðstefnan heldur áfram í dag á Hótel Sögu og verður þá rætt um lífsgæði í höfuðborgunum með tilliti til stefnu í menningarmálum. Morgunblaðið/Bjami Forsvarsmenn Heilsuhlaups Krabbameinsfélagsins í startholun- um. Vilþjálmur Bjarnason, Almar Grímsson, formaður Krabba- meinsfélagsins og Ólafur Þorsteinsson. Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins: Hlaupið fyrir betri heilsu „BETRI heilsa", er kjörorð Heilsuhlaups Krabbameinsfél- agsins, sem haldið verður næst- komandi laugardag. Ætlunin er að hlaupa hefðbundið götuhlaup með mikilli og almennri þáttöku almennings og gefst þáttakend- um kostur á að vejja um tvær vegalengdir, 4 km eða 10 km. Lagt verður af stað kl. 12 á laug- ardaginn frá húsi Krabbameins- félagsins og mun Guðmundur Bjamason, heilbrigðisráðherra, ræsa hlaupið. Tímamæling verður aðeins á lengri hringnum. Engin eiginleg verðlaun verða til þeirra er fyrstir koma í mark, heldur verð- ur dregið úr nöfnum allra þáttak- enda og þeim veitt viðurkenning. Þá verður þáttakendum gefnir bol- ir með áletruðu merki hlaupsins. Þar sem hér er ekki um fjáröflun að ræða mun þáttökugjaldi stillt í hóf og verður það aðeins 300 krón- ur. Að sögn forsvarsmanna Heilsu- hlaupsins er það nýjung í starfí Kabbameinsfélagsins að standa fyrir uppákomu sem þessari, þar sem markmiðið er að miða að al- mennri heilsuvemd. Starf Krabba- meinsfélasins hefur fyrst og fremst falist í skipulagningu krabbameins- leitar, greiningu krabbameins og skráningu þess. Alþjóða heilbrigðismálastofnun- in hefur nú á stefnuskrá sinni að stuðla að heilbrigði fyrir alla árið 2000. Til að styðja þá stefnu, auk þess sem að betri og heilbrigðari lifshættir koma á margan hátt inn í starf Krabbameinsfélagsins, þótti félaginu vel við hæfi að standa fyrir slíku heilsuhlaupi fyrir al- menning. Fijálsíþróttasamband íslands og Hjálparsveit skáta munu aðstoða Krabbameinsfélagið við fram- kvæmd Heilsuhlaupsins. Auk þess nýtur félagið aðstoðar umferða- deildar lögreglunnar, þar sem að slíkt hlaup hlýtur að hafa töluverð áhrif á umferð í borginni. Gunnar J. Friðriksson í ræðu á aðalfundi VSÍ: Löggjöf um saimrnigamál ættí að heyra til undantekninga Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur vaxið um 40% á þremur árum Morgunblaðið/Emilía Á aðalfundi VSÍ i gær. Gunnar J. Friðriksson, formaður, Ólafur B. Ólafsson, varaformaður og Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri. ar koma frá hverri höfuðborg, borgarf ulltrúar og embættis- menn. í ræðu sinni Iagði Davíð Oddsson út af fullyrðingu Descartes, „cogito ergo sum,“ ég hugsa, þess vegna er ég. Davíð sagði m.a.: „Staðhæfíngin á ... erindi við okkur sem aðra með skírskotun til þess, að öll erum við býsna bundin viðteknum hugmynd- um og þeim mun bundnari sem búið er að koma meiru af hugmyndunum fyrir í alls konar kerfum, hvort held- ur á grundvelli laga og reglugerða, eða á annan hátt. Þess háttar fyrir- bærum fjölgar nú svo ört á vett- vangi norrænna sveitastjómar- manna, að það gæti endað með því, ef við gætum okkar ekki, að við yrð- um hugsunarlausir kerfísþrælar og hættum að vera til samkvæmt hug- myndum Descartes. í seinni tíð hefur þetta stundum verið orðað þannig í víðara samhengi, að manninum stafi mest hætta af sjálfvirkninni í eigin sköpunarverki. Sjálfvirknin geti hugsanlega gert manninn að fómar- lambi eigin eyðingarafla með því að slæva tilfinningar hans og sjáJfsvit- und, eða með öðrum orðum gera hann sljóan og sinnulausan." GUNNAR J. Fríðriksson var end- urkjörínn formaður Vinnuveit- endasambands tslands án mót- framboðs á aðalfundi sambands- ins í gær. Að kjörinu loknu sagði Gunnar að síðasta ár hefði veríð annasamt og órólegt og hann hefði gefið kost sér til starfans i trausti þess að næsta ár gæfist tækifærí til þess að beita sér að jákvæðarí málum. Þá þakkaði hann framkvæmdastjórn farsælt starf á liðnu árí. ÞRIGGJA ára hagvaxtarskeiði er lokið og við blasir samdráttur þjóðartekna og vaxandi erfiðleik- ar í efnahags- og atvinnulifi landamanna samfara mikllli aukii- ingu erlendra skulda, segir meðal annars í ályktun aðalfundar Vinnuveitendasambands íslands, sem haldinn var i gær. Þar segir einnig að erfiðleikunum verði aðeins mætt með þvi að þjóðin i heild dragi úr eyðslu sinni og þó hluti kaupmáttaraukningar und- anfarinna þriggja ára hljóti að ganga til baka verði lífskjör hér á landi engu að sfður mjög góð í samanburði við það sem geríst i nálægum löndum, enda séu þau Aðrir í átján manna fram- kvæmdastjóm VSÍ voru kjömin Amar Sigurmundsson, Ámi Brynj- ólfsson, Einar Sveinsson, Guðjón Oddsson, Gunnar Birgisson, Jón Páll- Halldórsson, Jón Sigurðsson, Jónas Haraldsson, Jósep Þorgeirs- son, Konráð Guðmundsson, Krist- inn Bjömsson, Ólafur B. Ólafsson, Páll Bragason, Pétur Óli Pétursson, Sigurður Helgason, Víglundur Þor- steinsson, Þórður Magnússon og Öm Jóhannsson. nú með þvi besta sem geríst í heiminum. Gunnar J. Friðriksson, sem ein- róma var endurkjörinn formaður VSÍ, sagði í ræðu sinni á aðalfundin- um að þjóðartekjur hefðu aukist um 20% að raungildi á árabilinu 1985-87 og kaupmáttur ráðstöfunartekna um 42% á sama tímabili, þó sýnu mest á síðasta ári eða um 19%, sem væri einsdæmi meðai þjóða heims. Með tilliti til þessa hlyti það að teljast til tíðinda að enn væru þeir til sem fullyrtu að góðærið hefði sneitt hjá garði launafólks. Gunnar sagði að rekstrarafgang- ur í'atvinnulífínu á síðasta ári hefði aðeins einu sinni verið minni frá árinu 1973 og fjármagnskostnaður hefði ekki verið meiri um langt ára- bil. Afkoma atvinnulffsins hefði tæp- ast verið lakari sfðastliðin 15 ár og framundan væri samdráttur. Út- flutningstekjumar yrðu allt að 4% minni á þessu ári og viðskiptahalli allt að 10 milljarðar samkvæmt spá VSÍ í ársbyijun og ekkert gæfí enn tilefni til endurskoðunar. Þá fjallaði Gunnar um kjarasamn- inga á liðnum vetri og fullyrti að þeir hefðu ekki áður verið jafn erfið- ir. Sagði hann nauðsynlegtað breyta vinnulöggjöfinni og kallaði eftir samstarfi við verkalýðshreyfinguna um nýjar leikreglur og breytt vinnu- brögð. Löggjöf um samningamál ætti að heyra til algerra undantekn- inga og breyttar leikreglur milli at- vinnurekenda og verkalýðshreyfíng- ar ættu að styrkja það meginmark- mið. í ályktun aðalfundarins segir enn- fremur að breyttar aðstæður kalli á festu í stjóm efnahagsmála og stjómmálalega forystu um úrræði til lausnar. „Ef illa fer blasir við flöl- dagjaldþrot fyrirtækja og mikið at- vinnuieysi um land allt og meiri ójöfnuður í tekjuskiptingu en áður hefur þekkst. Því skiptir öllu, að samdrættinum verði mætt með skipulegum og skynsamlegum hætti.“ „Með markvissum aðgerðum og samstarfí ríkisvalds, atvinnulífs og launafólks er unnt að takmarka áhrif þessara erfiðleika og tryggja að byrðamar dreifist með réttlátum hætti. A því er þjóðamauðsyn, því ef halda á friðinn má enginn einn skerast úr leik og skara eld að sinni köku. Vinnuveitendasamband ís- lands vill leggja sitt af mörkum til þess, að nauðsynleg samstaða náist um aðgerðir, sem stefna að þessu marki." Gunnar J. Fríðriksson endurkjörinn formaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.