Morgunblaðið - 08.06.1988, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1988
Morgunblaðið/Rúnar Þór
At á pollinum á Akureyri,
Tilhugalíf heiðargæsar og aliandar
Heiðargæs og aliönd hafa nú
annað árið i röð alið af sér egg
í hólmanum við Sundlaug Akur-
eyrar. Eggin reyndust hinsveg-
ar ófijó eins og í fyrra og hef-
ur mannshöndin fjarlægt egg
gæsarinnar og látið önnur í
hreiðrið í staðinn.
Þorsteinn Þorsteinsson sund-
laugarvörður hefur fylgst nokkuð
með þessu hamingjusama pari á
pollinum. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að þessar tvær teg-
undir ættu ekkert saman auk þess
sem karlfuglinn væri miklu stærri
en gæsin. Því hefði öðrum eggjum
verið komið fyrir í þeirra stað.
Eftir að í ljós kom í fyrra að fú-
legg voru í hreiðrinu var brugðið
á það ráð að gefa gæsamömmu
og andapabba kost á tökubami,
sem var grágæsarungi og hefur
hann fylgt fjölskyldunni sfðan.
Þorsteinn sagði að eitt gæsa-
regg hefði nú verið sett í hreiðrið
ásamt nokkrum andareggjum og
því mætti fastlega búast við
skrautlegri fjölskyldu á andapoll-
inum á Akureyri þegar ungamir
taka að bijóta sér leið út á hann.
KA heldur mini-
knattspyrnumót
A og B lið 5. flokks keppa
Helgina 1.-3. júlí mun knattspyrnudeild KA halda ESSO-mót í
miniknattspymu fyrir 5. flokk með þátttöku A og B liða. Verð-
laun verða veitt fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti i hvorum flokki.
Einnig verður haldið innanhússmót í „bandí“ með útsláttarfyrir-
komulagi og verða veitt verðlaun fyrir sigur í því móti.
Þátttökutilkynningar skulu ber-
ast fyrir 20. júní og skal greiða
staðfestingargjald, 5.000 krónur,
sem er óendurkræft. Áhersla er
lögð á að staðfesting berist rétti-
lega til að hægt sé að senda út
endanlega riðlaskiptingu og dag-
skrá. Þátttöku skal tilkynna til
Sveins Brynjólfssonar í vinnusíma
96-25606 og heimasíma 96-25885
eða Gunnars Kárasonar í vinn-
usíma 96- 21866 og heimasíma
96-22052.
Sjallinn:
Gestum leyft að vera í
gallabuxum og strígaskóm
Nú með hækkandi sól hefur á þeirri nýbreytni að leyfa
Sjallinn á Akureyri tekið upp gestum sfnum inngöngu f
~— gallabuxum og strigaskóm.
Gler- og speglaþjón-
ustan sf. nýlega opnuð
Ný verslun, Gler- og spegla-
. þjónustan sf., hefur verið opnuð
á Akureyri. Verslunin er til húsa
í Skála við Kaldbaksgötu og er
opin frá 7.30 til kl. 18.00 á virk-
um dögum og auk þess er opið
á laugardögum.
Eigendur nýja fyrirtækisins eru
feðgamir Finnur Magnússon
glerslípunarmeistari og Björgvin
Viðar Finnsson og Ingvi Þórðarson.
Verslunin býður upp á glerslípun,
spegla, gler, bílrúður auk ísetninga,
glær, græn og reyklituð öryggis-
gler, smelluramma eftir máli,
speglaflísar, speglasúlur og slétt og
hamrað plexígler í ýmsum þykktum
svo eitthvað sé nefnt.
Finnur sagði að svo virtist sem
næg verkefni á þessu sviði væru
fyrir hendi á Akureyri. Þeir félag-
amir hafa hingað til unnið hjá
íspani hf. og sögðust alls ekki vera
í samkeppni við fyrirtækið þar sem
starfssvið væri allt annað. Ispan
væri fyrst og fremst verksmiðja,
en Gler- og speglaþjónustan byði
upp á einstaklingsbundnari þjón-
ustu.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Eigendur Gler- og speglaþjónustunnar, frá vinstri: Ingvi Þórðarson,
Björgvin Viðar Finnsson og Finnur Magnússon.
Eins og íslendingar vita, er
nánast ómögulegt að komast
fram hjá dyraverði f slfkum
klæðnaði og skiptir þá engu
hvort um er að ræða nýjar og
hreinar gallabuxur eða slitnar
og snjáðar.
Inga Hafsteinsdóttir fram-
kvæmdastjóri Sjallans sagði þetta
annað sumarið i röð sem gallabux-
ur væru leyfðar í Sjallanum og
væri með þessu verið að höfða til
hins erlenda ferðamanns, sem
kynni að vilja bregða undir sig
betri fætinum og kíkja á dansstað-
ina. Inga sagði að þessum frjáls-
legu reglum yrði vissulega breytt
aftur með haustinu og yrði þá al-
gjört gallabuxnabann tekið upp á
ný.
Nýjungar best komnar
ínnan tryggra fyrirtælga
- segir Sigurdur P. SigTnundsson fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
Aðalfundur Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. var haldinn fyrir
skömmu. Fyrir utan venjuleg aðalfundastörf, var aðeins eitt mál á
dagskrá er varðaði fjármögnun fyrirtækisins og var samþykkt að hún
skyldi vera með sama hætti og áður, til eins árs. Sveitarfélög borga
ákveðið hlutfall, 0,5% af sínum ráðstöfunartekjum, þ.e. aðstöðugjöld-
um, útsvari og fasteignagjöldum. 0,25% er ætlað sem rekstrarfé og
0,25% er hlutafé. Aðrir hluthafar auka hlutafé sitt í réttu hlutfalli
við hlutafjáraukningu sveitarfélaganna.
Örn Magnússon píanóleikari.
Píanótón-
leikar á
Ólafsfirði
og Akureyri
Píanótónleikar verða í
Tjarnarborg Ólafsfirði mið-
vikudaginn 8. júní kl. 21.00
og á Sal Menntaskólans á
Akureyri laugardaginn 11.
júní ld. 17.00.
Einleikari verður Örn Magn-
ússon píanóleikari. Á efnisskrá
verða verk eftir Baeh, Beetho-
ven, Chopin og Hans Eisler.
(Fréttatilkynningj
Sigurður P. Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
EyjaQarðar hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið að menn hefðu ekki
talið rétt að framlengja þetta fyrir-
komulag nema til eins árs þar sem
aðstæður á svæðinu hefðu vissulega
breyst frá því Iðnþróunarfélagið var
stofnað fyrir fimm árum. „Við mun-
um kanna fyrir næstu áramót með
hvaða hætti best er að standa að
fjármögnun fyrirtækisins þar sem
það er nú komið nokkuð vel á legg.“
Félagið á sex ára afmæli í ár, en
það var stofnað árið 1982. Nafnvirði
hlutaflár félagsins í fyrirtækjum
norðanlands nemur rúmum 2,8 millj.
kr. Félagið á hlutafé í alls átta fyrir-
tælq'um, sem eru Fiskeldi Eyjaflarð-
ar á Hjalteyri, Sæplast á Dalvík,
Víkurplast á Svalbarðseyri, Gúmm-
ívinnslan, Sæver á Ólafsfírði, Leður-
iðjan Tera á Grenivík, Óslax á Ólafs-
firði og ístess á Akureyri. Nýverið
seldi Iðnþróunarfélagið hlut sinn í
Hafspili á Akureyri enda er það
ekki markmið félagsins að halda
eignarhlutum sínum í fyrirtækjunum
þegar þau eru komin vel á legg.
„Við erum fyrst og fremst til aðstoð-
ar og erum meira að segja að íhuga
sölu á hlutabréfum okkar í Sæ-
plasti, sem gengið hefur mjög vel
fram að þessu. Hlutabréfaeign Iðn-
þróunarfélagsins í Sæplasti nemur
650.000 krónum. Mjög góð fjárfest-
ing er fyrir hvem sem er að eiga
hlutabréf í Sæplasti, en við þurfum
einfaldlega að sinna skyldum okkar,
losa um fjármagn og nýta í önnur
verkefni."
Sigurður sagðist ekki telja þörf á
þvl að setja á stofn fleiri ný fyrir-
tæki í bráð. Vilji væri meiri fyrir því
að styrkja og efla þá starfsemi sem
fyrir er. „Ég tel að margar nýjungar
séu betur komnar innan fyrirtælq'a
sem eru til staðar og eru trygg í
sessi. Miklu nær væri að bæta deild-
um við trygg fyrirtæki, sem fyrir
eru, heldur en að vera að hlaupa
margir saman og setja á stofn fyrir-
tæki, sem ef til vill er á brauðfótum
og berst í bökkum um leið og fyrsta
áfallið dynur yfír.“
Sigurður sagði að ekkert sérstakt
væri á döfinni í þessa átt þó viðræð-
ur og þreifingar ýmiskonar væru í
gangi. Hann telur að auka þurfí
samstarf og samvirkni fyrirtækja á
svæðinu. „Við höfum jafnvel hug á
því að standa fyrir fundum á meðal
allra forstjóra og framkvæmdastjóra
á svæðinu svo þeir megi bera saman
bækur sínar, ræða málin og jafnvel
hafa samstarf sín á meðal. Til þess
að heildin hafi sem mestan og best-
an hag, þurfa stjómendur sjálfír að
þróa með sér ákveðna samvirkni.
Jafnvel eru dæmi þess að þjónustu-
fyrirtæki norðanlands hafí misst af
verkefnum vegna ýmissa orsaka.
Slíku má vissulega afstýra með
meiri samtengingu fyrirtækja á
svæðinu. Þá tel ég of marga aðila
vera að vasast í sömu hlutunum.
Ég held hreinlega að allt of mörg
fyrirtæki séu á svæðinu, sérstaklega
þjónustufyrirtæki. Ef einingamar
væru færri, yrðu þær miklu öflugri
og samstilltari og höfum við hjá Iðn-
Sigurður P. Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri.
þróunarfélaginu hug á því að fara
nánar ofan í saumana á þessu með
haustinu þegar fer að verða fundar-
fært aftur eftir sumarið," sagði Sig-
urður.
Stjóm Iðnþróunarfélags Eyja-
flarðar hf. skipa: Sigfús Jónsson
bæjarstjóri á Akureyri formaður,
Valur Amþórsson kaupfélagsstjóri
varaformaður, Kristján Þór Júlíus-
son bæjarstjóri á Dalvík ritari,
Sveinn Jónsson oddviti Árskógs-
hrepps og Jón Helgason hjá Ein-
ingu. Fyrsti varamaður er Valtýr
Sigurbjamarson, sem nýlega hefur
verið ráðinn útibússtjóri Byggða-
stofnunar á Akureyri og er fráfar-
andi bæjarstjóri á Ólafsfírði.