Morgunblaðið - 28.06.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988
21
heitir alræmdur síðasti hluti 18.
brautar, sem bíður þegar komið
er framhjá þeirri 17. þar sem Týssi
og Sista úr Vestmannaeyjum sáu
Seve Ballesteros „húkka“ yfir sjö
hæða hótel og tryggja sér sigurinn
í Opna breska mótinu fyrir fáum
árum.
Á sama tíma að ári
Að aflokinni þeirri „helgistund“,
sem hringur á gamla vellinum var
fyrir flesta, var létt yfir mönnum
á heimleiðinni enda velheppnað frí
á enda og um margt að spjalla.
Feðgarnir Arni og Vilhjálmur
Arnason skutu því að mér að þessa
tíu daga hefði hver og einn í hópn-
um gengið um það bil 100 kíló-
metra og til samans hefði hópurinn
lagt undir fót leiðina frá Keflavík
til Glasgow og aftur til baka. Það
er ekki síst gangan og útiveran
sem golfbakterían nærist á og því
var ekki að undra að margir segð-
ust vera búnir að taka frá tíu daga,
í maí á næsta ári, fyrir aðra golf-
rispu á þessum slóðum. Árni Stef-
ánsson hótelstjóri á Höfn stakk
upp á við góðar undirtektir að
fyrrverandi þátttaker.dur í þessum
ferðum hittust og tækju nokkra
hringi á vellinum eystra seinni
part sumars.
Texti og myndir:
Pétur Gunnarsson
Gunnar Stefánsson bíður átekta
meðan Henning Bjarnason slær
inn á 16. flöt á West Links. The
Marine Hotel í baksýn.
18 holu púttvellinum fyrir þá sem
þannig voru stemmdir en annars
var í boði gufubað, sólbað í ljósa-
bekk, tennis, sund, biljard, vegg-
tennis, ölkolla á kráni eða þá kost-
urinn sem flestir tóku: hvíld og
undirbúningur undir „pílagríms-
förina" daginn eftir.
Pílagfrímsför
til St. Andrews
Klukkustundirnar tvær, sem
hópurinn sat í rútunni á leið til
St. Andrews, voru fljótar að líða
og þarf það ekki að koma neinum
sem ekið hefur um Skotland á
óvart. Þegar komið var til þessa
fornfræga golf- og háskólabæjar
varð mörgum eflaust hugsað heim,
því þó að umhverfið væri fram-
andi var þama dæmigert sunn-
lenskt sumarveður, 4-5 vindstig,
12 stiga hiti og skýjað. En menn
voru ekki komnir til frægasta golf-
vallar jarðar til að tala um veðrið
og byijuðu á skoðunarferð um
húsakynni The Royal and Ancient
Golf Club, háæmverðugs félags-
skapar sem stofnaður var 1774
og er enn í dag eins konar Alþingi
og Hæstiréttur í málefnum golfí-
þróttarinnar. Þar eru kveðnir upp
endanlegir úrskurðir um hvaða
kylfur teljist löglegar og settar
reglur um hvernig bregðast eigi
við í hinum ýmsu tilvikum, sem
upp kunna að koma upp í leiknum.
í klúbbhúsinu getur meðal annars
að líta einstakt safn gamalla golf-
kylfa sem gefur frábært yfirlit
yfír hve miklum breytingum golf-
settin hafa tekið í tímans rás, auk
glæsilegra verðlaunagripa sem
fremstu kylfingar heimsins hafa
keppt um á hinum ýmsu tímum.
Hinn forni konunglegi golfklúbbur
á fjóra golfvelli og hafði Henning
pantað, með tæplega árs fyrirvara,
The Old Course, Gamla völlinn,
helgasta dóm kylfínga, gerðan á
15. öld. Það má hafa til marks
um hefðina og andrúmsloftið sem
ríkir í St. Andrews að The New
Course, Nýi völlurinn, var lagður
árið 1896.
Engar golfkerrur
Golfkerrur eru ekki leyfðar á
Gamla vellinum og því réðu flestir
kylfudrengi, „kaddía", til að bera
settin sín. Að því búnu var kominn
tími til að ganga andaktugur á
fyrsta teig.
Landslagið glepur ekki kylfinga
á Gamla vellinum enda eins gott,
völlurinn þótti erfíður, hæðir, ás-
ar, lækir og lágvaxið kjarr tekur
hvað við af öðru að ógleymdum
„bönkerunum", sandgryfjunum,
sem skipta tugum á leiðinni.
Kylfudrengirnir unnu flestir vel
fyrir kaupinu sínu. Þeim tókst yfir-
leitt að benda skjólstæðingum
sínum á öruggustu leiðimar fram
hjá hættunum auk þess sem marg-
ir höfðu orð á að þeir hefðu feng-
ið þarna ódýra og góða golf-
kennslu en margir „kaddíanna"
voru með forgjöf nálægt núllinu.
Enginn lenti í Vítisgryfju, Hell’s
Bunker, sem er ógurleg ásýndum
og hefur áreiðanlega reynt á þol-
rifín í mörgum í gegnum aldirnar.
Flestir fóru með. sóma um Synda-
dalinn, The Valley of Sin, en svo
Flokkur Lánstími Ávöxtun Gjalddagi
l .fl. D 2 ár 8,5% l.feb ’90
l.fl. D 3 ár 8,5% l.feb ’91
l.fl. A 6/10 ár 7,2% l.feb ’94-’98
Tryggðu sparifé þínu
örugga óvextun núna!
30. júní lýkur sölu
spariskírteina ríkissjóðs
með 8,5% raunvöxtum
tíl tveggja úra
Nú eru síðustu forvöð að ávaxta sparifé
þitt með spariskírteinum ríkissjóðs,
sem bera 8,5% raunvexti til tveggja ára
(gjalddagi 1. febrúar 1990). Sölu á
þeim lýkur .nú um mánaðamótin.
Sala á spariskírteinum með 8,5% raun-
vöxtum til þriggja ára og spariskírtein-
um með 7,2% raunvöxtum til allt að 10
ára heldur áfram.
Spariskírteini ríkissjóðs eru að fullu
verðtryggð og með þeim getur þú
ávaxtað sparifé þitt á háurn vöxtum á
öruggan og einfaldan hátt.
Spariskírteini ríkissjóðs er: verðtryggð
og bera auk þess háa vexti
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
Nú hafa forvextir á ríkisvíxlum
hækkað í 32,5% sem jafngildir
40,3% eftirá greiddum vöxtum
miðaÖ við 90 daga lánstíma.
Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til
að ávaxta skammtímafjármuni.
Verðtryggð spariskírteini til sölu núna:
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla-
banka íslands og hjá löggiltum verð-
bréfasölum, sem m.a. eru viðskipta-
bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús
um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar.
Ríkisvíxlar fást í Seðlabanka íslands.
Einnig er hægt að panta þá þar, svo og
spariskírteinin, í síma 91-699863,
greiða með C-gíróseðli og fá víxlana og
spariskírteinin síðan send í ábyrgðar-
pósti.