Morgunblaðið - 20.07.1988, Page 26

Morgunblaðið - 20.07.1988, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JUU 1988 Persaflóastríðið Rúmlega milljón manns fallin eftir átta ára stríð Bahrain. Reuter. RÚMLEGA ein milljón manna hefur látið lífið síðan Persaflóastríðið hófst, í þau átta ár, sem írakar og íranir hafa borist á banaspjót með bareflum og byssum, eiturgasi og eldflaugum, syngjandi barna- skörum og orrustuflugvélum. Ágreiningur um Shatt al-Arab- vatnaleiðina var kveikjan að ófriðn- um og kenna hvorir öðrum um upp- tökin. Segja írakar, að íranir hafi Israelar fagna friðartíðind- unum hóflega Tel Aviv. Reuter. VÍÐAST hvar um lönd og álfur hafa menn fagnað hugsanlegum lyktum Persaflóastríðsins en á því er þó ein undantekning. ísra- elum finnst þeir hafa litla ástæðu til að kætast. Segja þarlendir hernaðarsérfræðingar, að lands- mönnum muni stafa meiri hætta af nágrannaríkjunum, einkum írak, þegar þau verða ekki leng- ur upptekin af því að berja hvert á öðru. ísraelskir hemaðarsérfræðingar segja hættu á, að írakar beiti bar- dagavönum hemum og fullkomnum vopnabúnaði gegn ísrael og þeir spá því einnig, að Iranir muni fá útrás fyrir trúarofstækið með því að snúa því gegn „hinum síoníska Satan". „Það er slæmt, að stríðinu skuli vera að ljúka. Það kemur sér betur fyrir okkur að hafa 48 íraskar her- deildir uppteknar á vígvelli Persa- flóastríðsins," sagði vopnasalinn Yaacov Nimrodi í viðtali við dag- blaðið Ha’aretz en hann kom meðal annars við sögu þegar ísraelar seldu Irönum vopn að hluta með sam- þykki Bandaríkjastjómar. Opin- berlega hafa þó frammámenn í ísra- el aldrei viðurkennt vopnasöluna. skotið fyrsta skotinu 4. september árið 1980 en íranir aftur á móti, að stríðið hafi byijað aðfararnótt 23. sama mánaðar þegar íraski herinn hafi farið yfir landamærin á 480 km svæði og gert loftárásir á Teheran. Nokkrum dögum áður höfðu Irakar ógilt samning, sem þeir gerðu við keisarann árið 1975 um að landamærin lægju um vatna- leiðina miðja. írakar eru arabar og þeir og hin- ir persnesku íranir, sem eru indó- evrópsk þjóð að uppruna, hafa löng- um elt grátt silfur saman. Að vísu játa þeir allir spámanninum frá Mekka en trúin greinist á ýmsa vegu. Stjórnin í Bagdað óttaðist, að byltingarhiti írönsku shítanna gæti kveikt í shítum í írak, sem em um helmingur 16 milljóna íbúa, og vonaðist til, að innrásin yrði til að hrekja klerkastjórnina í Teheran frá. Það rættist þó ekki og írönum tókst að snúa dæminu við. Þeir ráku íraka burt af landi sínu og gerðu sig um hríð líklega til að taka borgina Basra í írak. Stríðið snerist upp í þrátefli þar til í vor er leið þegar Irakar tóku aftur Faw-skagann, sem þeir misstu í hendur Irönum fyrir tveim- ur árum. Síðan hafa írakar unnið hvern sigurinn á fætur öðrum. Áreiðanlegar tölur um mannfall í stríðinu liggja ekki fyrir og munu líklega aldrei verða fullljósar. Flest- ir eru þó sammála um, að rúmlega ein milljón manna að minnsta kosti hafí látið lífíð, þar af margir óbreyttir borgarar. Irakar fengu sín vopn frá Sov- étríkjunum og vestrænum ríkjum einnig og greiddu fyrir þau með fé frá arabísku olíuríkjunum. Þeir voru betur búnir stórskotaliðsvopnum og skriðdrekum og höfðu algera yfír- burði yfir írani í lofti. íranir, sem einangruðust æ meir vegna ofstæk- is klerkastjómarinnar, urðu að reiða sig á gömul, bandarísk vopn frá keisaratímanum og áttu í erfíðleik- um með að útvega nauðsynlega varahluti. íranir, sem eru 50 milljónir tals- ins, töldu lengi, að mannfjöldinn vægi upp vopnaskortinn en á síðasta vetri urðu þeir samt að hætta við fyrirhugaða sókn gegn írökum. Sjálfboðaliðana vantaði — píslarvottauppsprettan var þorrin. Fyrr í stríðinu höfðu íranir teflt fram gífurlegum manngrúa í sókn- um sínum, oft bömum, sem lofað hafði verið paradísarvist ef þau féllu, en mannhafið eitt mátti sín lítils gegn sprengjuregninu. Reuter Mynd þessi er frá írönsku fréttastofunni IRNA og er hún sögð vera af kúrdískum fórnarlömbum árásar íraka á flóttamannabúðir í Baneh, kúrdísku héraði innan íran. Friðarhorfum fagnað en var- að við ótímabærri bjartsýni Kuwait, París, Moskvu og víðar. Reuter. ÁKVÖRÐUN írana um að fallast á vopnahlésályktun Sameinuðu þjóðanna hefur verið fagnað um víða um heim og hafa mörg ríki boðist til að leggja hönd á plóginn við endurreisnarstarfið í Iran og írak líka. í arabaríkjunum varpa menn öndinni léttar en flest- ir vilja þó hafa vaðið fyrir neðan sig og segjast ekki trúa neinu fyrr en þeir taki á. Ríkin sex, sem aðild eiga að sam- starfsráði Persaflóaríkjanna og orðið hafa fyrir margvíslegu tjóni af völdum stríðsins, fögnuðu ákvörðun stjómarinnar i Teheran en í fjölmiðlum hefur verið varað við ótímabærri bjartsýni. Saudi- Arabar, sem átt hafa í nokkrum útistöðum við írönsku stjómina, kváðust fegnir ákvörðuninni en Hosni Mubarak Egyptalandsforseti kvaðst vona, að hún væri annað og meira en herbragð eins og Irak- ar hafa látið að liggja. Sýrlending- 4.sepL 1980: Iranir hefja loftárásir á irönsk landamæraþorp. 17. sepL 1980: írakar rjúfa sáttmála viö Iran um Shatt al-Arab vatnaleiöina. 22.sept. 1980: Irakar ráöast inn i fran. Nóv.1980: írakar ná Khoramshahr og Abadan. Jan.1981: íranir hefja gagnsókn stööva itööva 5kn fraka L Sept.1981: Iranir ná Abadan aftur. Nóv. 1981: franir ná aftur 70 þorpum í Khuzistan. Ílars 1982: ranir ná miklum landsvæöum við Ahwaz. Persaflóastríöiö: Annáll Eftir aö franir og frakar höföu sótt sitt á hvaö f upphafi strfösins fór víqstaöan aö standa f staö (ágúst 1982 þrátt fyrir gífurlegar mannfómir af beggja hálfu. Talið er aö I valnum liggi allt frá hálfri milljón manna til meira en heillar. Maí1982: íranir ná Khoram- shahr aftur. 4. júlf, 1982: [ranir gera innrás í Irak og sprengju- árásá Basra. nol Pl In któber 1983: Sókn ’rana aö olíuleiöslu íraka vió Kirkik. Feb.-Mars 1984: Iranir ná mýrarflákum umhverfis Mainoun-eyjar. Irakar víttir fyrir tkun sinnepsgass. Maf 1984: frakar hefja umferó I nmlanveröum lóanum vlanúar1985: Iranir ná Majnoun-eyjum Ílanúar 1986: rakar endur- heimta Majnoun-eyjar. Febrúar 1986: franir ná Faw-skaga. Mars 1988: franir og Kúrdar ná Halabja á ný. frakar beita efnavopnum 18.apr(l, 1988: frakar ná Faw-skaga. 3. júlf, 1988: franska far- þegaþotan skotin niöur Veturinn’86-'87: '86-87: Iranir ráöast á Basra. IS.júli, 1988: franir fallast á voonahlé. *T6tur frá 1987; helmnduin ber ekW sairan um mannfaL Heimfldlr Evópuhandbókln, Bandarfska utanrfklwáSuneyt)4 Arbók CIA1988. KRGN / Morgunblaöiö / AM ar, eina arabaþjóðin, sem stutt hef- ur írani, sögðu þá hafa tekið rétta ákvörðun og svo var um fleiri. í Asíu voru viðbrögðin með líkum hætti og í Suður-Kóreu og Japan vonast menn augljóslega eftir vax- andi viðskiptum við ófriðarþjóðirn- ar að friðarsamningum loknum. í Japan gætti þó nokkurs uggs um, að friðurinn gæti orðið til að styrkja samstöðu OPEC-ríkjanna og hækka olíuverðið. Sovétmenn, ítal- ir, Pólveijar, Frakkar og fleiri hafa fagnað friðarhorfunum en víða kom fram, að ekki væri sopið kálið þótt í ausuna væri komið. Örlög far- þegaþotunn- ar sérstak- lega nefnd Nikósíu. Reuter. ÞAÐ hefur vakið nokkra at- hygli, að Iranir nefna örlög írönsku farþegaþotunnar, sem Bandaríkjamenn skutu niður, sem aðalástæðuna fyrir ákvörð- uninni um að fallast á vopnahlé. Kom þetta fram hjá Ali Akbar Rafsanjani, yfirmanni íranska hersins, á mánudag. „Það voru hörmuleg örlög far- þega og áhafnar farþegaþotunnar, sem riðu baggamuninn. Sá atburður kom í kjölfar þeirrar yfirlýsingar Bandaríkjamanna, að þeir væru til- búnir til alls kyns óhæfuverka héldu íranir stríðinu áfram," sagði Rafs- ' anjani í viðtali við íranska sjón- varpið og bætti því við, að ákvörð- unin hefði verið tekin í samráði við Khomeini erkiklerk. í bréfinu, sem Ali Khamenei ír- ansforseti sendi Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, er einnig vikið að far- þegaþotunni og sagt, að örlög henn- ar sýni hveijar afleiðingar stríðið sé farið að hafa fyrir óbreytta borg- ara. Rafsanjani sagði einnig, að hinir raunverulegu óvinir írana í stríðinu hefðu verið Bandaríkjamenn og Sovétmenn. Irakar hefðu í raun bara verið skósveinar þeirra og leppar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.