Morgunblaðið - 26.07.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Eltingarleikur end-
ar í logum utan vegar
OFSAAKSTUR ungs Reykvíkings endaði með ósköpum aðfaranótt
sunnudagsins. Lögreglunni barst tilkynning klukkan hálf tvö um
nóttina að ekið hefði verið utan í kyrrstæðan bíl við Seljagranda
og skömmu síðar ók bílsljórinn utan í annan bíl á Hringbraut. Öku-
ferðin endaði í Mosfellsbæ með því að ökumaðurinn missti stjórn á
bifreiðinni og ók upp á gangstéttarkant og þaðan á umferðarmerki
sem skarst í sundur. Við það kom gat á bensíntank bifreiðarinnar
og eldur braust út. Lögreglumönnum sem eftirförina veittu, tókst
að slökkva eldinn með handslökkvitækjum.
Eftir ákeyrsluna við Seljagranda
ók ökumaðurinn austur Hringbraut
á vinstri akrein. Á móts við Njarðar-
götu ók hann utan í bíl á hægri
akrein og síðan í burtu á móti rauðu
ljósi. Ökumaður síðamefndu bif-
reiðarinnar tilkynnti um atburðinn
til lögreglunnar sem svipaðist um
eftir þeim sem árekstrinum olli.
Hann fór að húsi í austurbænum
og braust inn í íbúð og tók þaðan
lykla að Suzuki-bíl. Stuttu seinna
fékk lögreglan tilkynningu um
bílstuldinn og þá hófst eftirför. Til-
kynnt var að til hans hefði sést á
Suðurlandsbraut á ofsahraða á ljós-
lausum bfl. Þrír lögreglubílar veittu
honum eftirför með hljóðmerkjum
og ljósmerkjum. Á móts við
Kringlumýrarbraut ók bílstjórinn á
móti rauðu og missti lögreglan sjón-
ar af honum um stund en varð
hans síðar vart í Ártúnsbrekk- unni
og hófst þá eftirför enn á ný. Gerði
lögreglan ítrekaðar tilraunir til að
stöðva bílinn en allt kom fyrir ekki.
Lögreglubfl í Mosfellsbæ var gert
viðvart og gerði hann ráðstafanir
til að hindra för Suzuki- bílsins. Á
Vesturlandsvegi, á milli Korpúlfs-
staða og Blikastaða, reyndi lögregl-
an að aka fram úr Suzuki-bílnum
en ökumaður hans ók þá utan í
lögreglubílinn, staðráðinn í að halda
háskaakstrinum áfram. Við Kaup-
félagið í Mosfellsveit missti öku-
maðurinn stjóm á bílnum og ók upp
á gangstéttarkant og þaðan á um-
ferðarskilti sem klipptist í sundur.
Við það kom gat á bensín- tank
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
bílsins og eldur braust út. Lögreglu-
menn hlupu strax að bílnum og
tókst þeim að draga meðvitundar-
lausan bílstjórann út úr flakinu
áður en eldurinn læsti sig í sætið.
Lögreglumenn slökktu síðan eldinn
með handslökkvitækjum.
Bílstjórinn var fluttur á slysa-
deild en reyndist ekki mikið slasað-
ur og fór þar betur en á horfðist.
Hann fékk þó að dúsa í fangaklefa
um nóttina og var tekinn til yfir-
heyrslu morguninn eftir. Gmnur
leikur á að ökumaðurinn hafi verið
ölvaður. Allar líkur em á að málið
verði meðhöndlað sem sakamál og
fari fyrir ríkissaksóknaraembættið.
VEÐURHORFUR í DAG, 26. JÚLÍ 1988
YFIRLIT í GÆR: Milli (slands og Skotlands er víðáttumikil lægð
sem þokast norðaustur en 1024 mb hæð yfir Grænlandi. Hiti verð-
ur 5—10 stig norðanlands en 10—15 stig syðra.
SPÁ: Norð-austan ótt um allt land, víðast kaldi eða stinningskaldi.
skýjað og súld eða rigning á Norður- og Austurlandi, þurrt og sums-
staðar léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Hiti 4—14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðan og norð-
austanátt og fremur svalt í veðri. Víðast léttskýjað á Suður- og
Vesturlandi og skýjað og dálítil rigning á Norður- og Austurlandi.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
mmsttfjb Alskýjað
x, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* / *
r * r * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
CXD Mistur
--Skafrenningur
[T Þrumuveður
ogj tar
C á w m
% " w
T W'
VEÐUR MÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 8 rignlng
Reykjavík 11 skýjað
Bergen 17 skúr
Helslnkl 22 skýjað
Kaupmannah. 21 léttskýjað
Narssarssuaq 7 skýjað
Nuuk 9 þoka
Ósló 20 skýjað
Stokkhólmur 18 rigning
Þórshöfn 10 rigning
Algarve 31 heiðskfrt
Amsterdam 19 skýjað
Barcelona 27 hciðskírt
Chicago 19 skúr
Feneyjar 31 heiðskírt
Frankfurt 23 léttskýjað
Glasgow 13 rigning
Hamborg 21 skýjað
Las Palmas 23 léttskýjað
London 17 rigning
Los Angeles 18 léttskýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madrld 29 heíðskírt
Malaga 29 heiðskírt
Mallorca 33 heiðskírt
Montreal 21 skýjað
New York 22 mistur
Paris 23 léttskýjað
Róm 30 heiðskírt
San Diego 21 skýjað
Winnipeg 16 skýjað
Alþýðubandalagið:
Hlynnt álveri með
vissum skilyrðum
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, segir að
afstaða flokksins til byggingar nýs álvers sé að uppfylla beri viss
skilyrði. Raforkuverð verði að vera viðunandi, arðsemin tryggð svo
og forræði íslendinga í rekstrinum. Hann segir einnig að nýtt álver
verði að stuðla að alhliða eflingu efnahagskerfisins og byggðaþróun-
ar og liggja verði ljóst fyrir að umhverfisáhrifin af því séu ekki
neikvæð.
Olafur gagniýnir harðlega máls-
meðferð Friðriks Sophussonar í ál-
málinu og segir að vinnubrögð ráð-
herrans séu ámælisverð. Þau hafi
stofnað hagsmunum íslendinga í
hættu þar sem ráðherrann hafi
gert samning við erlend fyrirtæki
um athugun á nýju álveri án þess
að hafa til þess heimild frá Alþingi
eða ríkisstjóm. Auk þessa hafi ekki
verið nokkur umræða innan stjóm-
ar Landsvirkjunar um raforkuverð-
ið.
„Það er furðulegt að ráðherrann
skuli án umboðs frá Alþingi, ríkis-
stjóm eða orkusölufyrirtækinu
ganga svo langt í þessu máli sem
raun ber vitni," segir Ólafur. „í
raun er hér um einkaathugun Frið-
riks Sophussonar að ræða.“
Ólafur gagnrýnir einnig Jóhann-
es Nordal í þessu máli og segir
sérstaka ástæðu til að kanna hvaða
hlutverki hann er farinn að gegna
í því. „Sem Seðlabankastjóri á hann
að sjá um að skuldir þjóðarinnar
fari ekki úr hófi fram. Engu að síður
er hann nú aðalhvatamaður þess
að steypa íslendingum í meiri skuld-
ir en þekkst hefur á undanförnum
áratugum."
Ólafur segir að augljóst sé að
Jóhannes Nordal gæti hagsmuna
ráðherra í þessu máli en ekki Lands-
virkjunar þar sem hann er stjómar-
formaður. Þrátt fyrir ítrekaðar
beiðnir hafí ekki fengist umræða
innan stjórnar Landsvirkjunar um
hvað raforkuverðið eigi að vera til
þeirra sem áhuga hafa á að reisa
álver hérlendis.
Gervihnöttur í fallhættu:
Norðlendingar og
Vestfirðingar öruggir
NÝJUSTU spár benda til að
kjamakljúfur úr sovéskum gervi-
hnetti falli til jarðar 18. október,
að sögn Þorsteins Sæmundssonar,
stjörnufræðings. Hann tók það þó
fram að þær spár væru ekki áreið-
anlegar. Kjarnakljúfurinn getur
fallið niður hvar sem er á milli
65. breiddargráðu norðurs og suð-
urs og þvi ætti fólk norðan heiða
að vera sæmilega öraggt. Hins
vegar eiga allir Islendingar sunn-
an Snæfellsness og Reyðarfjarðar
kjaraakljúfinn yfir höfði sér.
Hjá Almaniíavömum fengust þær
upplýsingar að enn væri kjamakljúf-
urinn ekki algerlega stjómlaus, þó
svo að mistekist hefði að senda hann
af braut sinni út í ómælisvíddir
geimsins. Stýriflaugar hans munu
brenna upp í ágústmánuði og upp
úr miðjum mánuðinum verður farið
að reikna út stöðu hans daglega.
Kjamakljúfar úr sovéskum gervi-
hnöttum hafa tvisvar fallið til jarðar
á liðnum áratug; í annað skiptið í
Indlandshaf og í hitt skiptið í óbyggð-
um Kanada, þar sem geislavlrkur
úrgangur dreifðist yfír stórt svæði.
Hafnarfjörður:
Fjórhjólaslys
við Kleifarvatn
UNGUR maður slasaðist nokkuð
á hálsi er hann ók fjórhjóli sínu
fram af barði við Kleifarvatn
síðdegis á sunnudag.
Maðurinn hafði, ásamt nokkrum
félögum sínum, verið að aka fjór-
hjólum um nágrenni Kleifarvatns.
Félagar mannsins gerðu sjúkraliði
og lögreglu viðvart um slysið og
var maðurinn fluttur á slysadeild
Borgarspítalans. Meiðsli hans munu
ekki vera talin alvarlegs eðlis.