Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Hamrahlíðarkórinn til Ungveijalands;
Það er vítamín fyrir sálina að
syngja með öllum heiminum
- segir Þorgerð-
ur Ingólfsdótt-
ir kórstjóri
50 MANNA hópur úr
Hamrahlíðarkórnum, undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur,
er nú á förum til Ungverjalands
þar sem tíunda Europa Cantat
tónlistarhátíðin verður haldin í
borginni Pécs, dagana 28.
júlí- 7. ágúst. Evrópusamband
ungra kóra gengst fyrir hátí-
ðum af þessu tagi á þriggja ára
fresti, sú síðasta var haldin i
Strasbourg 1985 á alþjóðlegu
tónlistar- og æskulýðsári. Svo
mikil er endumýjunin í Hamra-
hlíðarkórnum að einungis 10
þeirra sem fara til Ungveija-
lands sungu með kóraum í
Strasbourg. Kórinn mætir nú
til leiks í fimmta skipti en hann
er einn islenskra kóra aðili að
sambandinu.
Auk aðildarkóranna er boðið til
hátíðarinnar nokkrum af fremstu
kórum annarra heimsálfa. 3-4000
söngvarar úr 80-100 kórum munu
eyða saman tíu dögum við æfingar
og tónleikahald undir stjóm
ýmissa af fremstu kórstjórum
vorra daga en einnig mun hver
kór halda sjálfstæða tónleika þar
sem megináhersla verður lögð á
Hamrahlíðakórinn á Þingvöllum. Myndirnar voru teknar á dögunum er suður-kóreska sjónvarpið kvik-
myndaði söng kórsins fyrir kynningarmynd vegna Ólympíuleikanna sem haldnir verða þarlendis seinna
í sumar.
að kynna tónlist frá heimalandinu.
Auk daglegra æfínga undanfarnar
vikur og mánuði hafa félagar
Hamrahlíðarkórsins eytt ófáum
frístundum við að selja rækjur,
blóm og lyíjabók til að afla farar-
eyris en ferðin kostar hvern og
einn 56 þúsund krónur.
íslenski kórinn
„Krakkamir hafa lagt á sig
gífurlega vinnu,“ sagði Þorgerður
Ingólfsdóttir kórstjóri í spjalli við
Morgunblaðið. „Þetta gerist ekki
af sjálfu sér en enginn leggur
þessa fyrirhöfn á sig nema hann
finni gleði í því að gera þetta og
finni sig uppskera í einhveiju.
Þetta er vítamín fyrir sálina að
upplifa það að syngja með öllum
heiminum. Eins og forseti íslands
hefur sagt svo réttilega: „Rödd
íslands verður að heyrast". Það
er mjög þýðingarmikið að til okkar
heyrist ekki eingöngu í umræðum
um hvalveiðar og efnahagsvand-
ræði, rödd menningarinnar verður
að heyrast í einhveiju samhengi;
það hefur ótrúlega mikið að segja,
ég get vitnað um það sjálf. Þetta
er í 15 skipti sem ég fer utan með
kór til að kynna ísland og það er
aldrei talað um Hamrahlíðarkór-
inn, heldur íslenska kórinn. Við
erum það fá og sjaldséð á erlend-
um vettvangi, það er annað um
hópa frá stærri þjóðum. Þetta er
óskapjega mikil ábyrgð, að halda
rödd íslands hreinni og fallegri en
í því felst líka ákveðin köllun að
standa sig og gera sína hluti vel.
Ég hef fundið fyrir því hjá krökk-
unum að þau átta sig á því að þau
þurfa að standa sig vel til að vera
Islandi til sóma.“
íslensk þjóðlög í ísrael
„Það, að íslensk tónlist sé flutt
og verk íslenskra tónskálda komist
Mátt þú sjá af
369 krónum
á dag?*
Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er
sparneytin, 5 manna og sérlega léttog lipurí um-
ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það
tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum
sem til þekkja.
* LANCIA SKUTLA kostar kr. 356 þús.kr. stgr.
Útborgun kr. 89.000 eftirstöðvar greiðast á 30
mánuðum, kr. 11251 pr. mánuð að viðbættum
verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu
Ef svo er þá getur þú eignast
splunkunýja LANCIA SKUTLU!
er ekki innifalinn.
(Gengisskr, 23.6.88)
BILABORG HF
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99
Opið laugardaga frá kl. 1 - 5
Kjörvari og
Þekjukjörvari
verja viðinn
vel og lengi
Græðum
Græoum
ÁTAK í LANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120,105 REYKJAVÍK
SÍMI: (91) 29711
Hlaupareikningur 2512001
Búnaðarbankinn Hellu
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!