Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988 2&0 ^ Morgunblaðið/Árni Sæberg TÍafvirkjanemar og meistarar þeirra þinguðu í húsakynnum Rafiðnaskólans í Skipholti. Dönsku nemarn- ir fóru heim síðastliðinn mánudag. Vinnudagurinn langur á Islandi MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ VEIÐIKASSAR OG STANGAHÓLKAR Fást í nœstu sportvöruverslun. MICKAEL Uth er átján ára raf- virkjanemi frá Ringsted á Sjá- landi. Hann sagði að þetta hefði verið skemmtilegur tími hér á Islandi og sagðist hann ekki sakna neins að heiman nema þá helst bjórsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Mickael kemur til ís- lands og sagði hann að hér væri margt með öðrum hætti en í Danmörku. Reyndar tók íslenska sumarið ekki vel á móti honum því fyrstu vikuna rigndi stans- laust. Hann vann hjá rafvirkja- meistara í Keflavík og þar bjó hann einnig. „Hér tíðkast næstum sömu vinnubrögð í rafvirkjun og heima en vinnu- tíminn er gífurlega langur hérlendis. Hér er unnið lengur en ég á að venjast. Heima hætti ég klukkan hálffjögur að vinna en hér er aldrei hætt fyrr en klukkan 6. Við byrjum daginn líka fyrr á sumr- in. Þrátt fyrir lengri vinnudag eru afköst álíka mikil hér og í Dan- mörku því hér eru löng kaffihlé og matartímar. Þetta kemur því svipað út og hjá okkur í Danmörku," sagði Mickael. - Finnst þér samvinna Norður- landa á þessu sviði mikilvæg? „Já, það finnst mér því þessar þjóðir gejta lært ýmislegt hver af annarri. Eg vann í skipum í Keflavík en það hef ég aldrei gert áður. Það er svipað og að vinna í húsum nema hvað aðstaðan er öll verri í skipun- um.“ Mickael Uth frá Ringsted á Sjá- landi likaði vel á Islandi. „Mér datt ekki í hug að ég ætti eftir að koma hingað til íslands. í fyrstu var dálítið erfitt að búa hjá íslenskri fjölskyldu en svo reyndist það ágætlega. Móðirin talar ein- göngu íslensku en faðirinn talar dönsku. Sjálfum hefur mér ekki tekist að læra íslensku svo nokkru nemi,“ sagði Mickael Uth að lokum. Hann hélt ásamt félögum sínum til Danmerkur á mánudag og átti að mæta í vinnu á miðvikudag. Þar gengur lífið sinn gang en Mickael kemur heim með nýja reynslu í far- teskinu og minningar frá framandi landi. Hafnarfjörður: Fríkirkjusöfnuðurinn eignast safnaðarheimili Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafn- arfirði hefur nýlega fest kaup á húsi við Austurgötu þar í bæ. Húsnæðið verður notað sem safn- aðarheimili og skrifstofa safnað- arprests. I Fríkirkjusöfnuðinum í Hafnar- fírði eru nú nærri tvö þúsund manns en kirkja safnaðarins var vígð 1913. Nýja safnaðarheimilinu, sem er 160 fermetra steinhús á tveimur hæð- um, er ætlað að hýsa bama- og æskulýðsstarf, fermingarundirbún- ing og félagsstarf fyrir aldraða auk þess sem kirkjukór og kvenfélag fá betri aðstöðu fyrir sitt starf. Skrif- stofa safnaðarprests og viðtalsað- staða verður einnig í safnaðar- heimilinu. Húsnæðið verður afhent söfn- uðnum 14. desember næstkomandi á 75 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Samskiptí í verki á milli Dana og Islendinga HER á landi hafa undanfarnar sex vikur dvalist þrír danskir lærlingar í rafvirkjun í boði Raf- iðnasambands íslands. Upphaf þessa máls var að danska raf- iðnasambandið fór þess á leit við •ýdenska starfsbræður sína að höfð yrðu skipti á lærlingum og niðurstaðan varð sú að þrír islenskir lærlingar fóru til starfa í Danmörku og dvöldu þar i sex vikur. Dönsku lærlingarnir þrír sem völdust til íslandsferðarinn- ar urðu svo samferða þeim til Islands og unnu hjá islenskum rafverktökum í sex vikur. íslend- ingamir dvöldu á heimilum dönsku lærlinganna og unnu hjá og unnu hjá þeirra meisturum og sama var uppi á teningnum þegar Danirnir komu hingað. Ferðalög lærlinganna voru fjár- mögnuð með styrk frá Norður- landaráði og þeir unnu fullan vinnudag hjá viðkomandi meist- urum og héldu þeim launum sem þeir hefðu fengið greitt frá sínum atvinnuveitanda. Þessum samskiptum lauk svo með þvi að haldinn var fundur í húsakynn- um Rafiðnaskóla íslands sem lærlingarnir sex og meistarar þeirra ásamt fleirum, sátu. Morg- unblaðið tók tvo lærlinga tali og spurði þá frétta um þessa náms- dvöl. Einar Þorvaldsson er Eskfírðing- r sem búið hefur í tólf ár á ísafirði. Hann sagði að meistari sinn hefði Morgunblaðið/Ámi Sæbérg Einar Þorvaldsson, Eskfirðingur búsettur á Isafirði, dvaldi í sex vikur á dönsku heimili. spurt sig hvort hann hefði áhuga á því að vinna í sex vikur í Danmörku og hann sló þegar til. „Þetta er búið að vera bæði skemmtilegt og lærdómsríkt og sér- staklega gott upp á tungumálanám að gera. Það er tvennt ólíkt að læra tungumál í skóla hér heima eða fara til viðkomandi lands og læra það,“ sagði Einar. „Þó ein- kunnin úr skóla hljóði upp á 8 eða 9 þá kann maður sama og ekkert þegar út er komið." HREINIÆTI ER OKKAR FAG Hvít CORSICA hreinlætistæki frá Sphinx í setti á frábæru verði. J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN H.F. RÉTTARHÁLSI 2 SÍMI 8 38 33 Hvernig er að vinna hjá dönsk- um meistara? „Það gekk vel. Ég var hjá litlu fyrirtæki þar sem sjö manns vinna og það var allt gert fyrir mig. Þetta var í litlum bæ sem heitir Herning á Jótlandi. Helsti munurinn á Dan- mörku og Islandi er að vinnan er ekki jafn strembin í Danmörku. Danirnir vinna sína átta tíma og fara síðan heim að sofa. Það er enginn æsingur á Dönunum. Vinnu- brögðin eru afar svipuð en munur- inn felst kannski helst í því að við höfum ansi frjálst val hvað snertir efnisnotkun. Þeir nota aðeins efni sem framleitt er í Danmörku. Við vorum bæði í nýlögnum og gömlum húsum. Fyrstu dagana var ég send- ur upp á háaloft í húsi þar sem enginn hafði komið í tvö ár og maður synti í gegnum köngulóar- vefína. Eitt fannst mér þó undar- legt við vinnubrögð Dananna. Það var hvernig þeir tengdu jarðskaut í húsin. Þeir ráku niður tein fyrir utan húsið og tengdu jörð í hann. Héma eru húsin járnabundin og jarðskautin tengd í vatnslögnina. Ég hafði eingöngu unnið í bátum í eitt og hálft ár en síðan vann ég alfarið í húsum í Danmörku. Ég var því kannski ekki alveg með á nótun- um fyrstu vikuna og auk þess vissi ég ekki alltaf hvað þeir voru að segja. En skilningurinn kom fljótt.“ - „Hvemig er að búa hjá danskri fjölskyldu í sex vikur? „Það _ var skrítin tilfinning í fyrstu. Ég á íbúð og hef búið einn að undanfömu og þess vegna var það dálítið undarlegt fyrst. En þau tóku mér strax vel og ég var eins og einn úr fjölskyldunni. Danimir em afslappað og þægilegt fólk,“ sagði Einar Þorvaldsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.