Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988 43 l immw f íturvaxnir keppendur með viðurkenningarskildi sína. Á verðlauna- pallinum eru Magnús V. Magnússon, Torfi Ólafsson og Flosi Jónsson. Torfi Ólafsson sterkasti maður landsbyggðarinnar KEPPT var um titilinn „Sterk- asti maður landsbyggðarinnar" á Akureyri um helgina. Mótið fór fram í miðbænum á föstudag og á Akureyrarvelli laugardag. Keppt var í átta aflþrautum. Magnús V. Magnússon frá Seyð- isfirði og Torfi Ólafsson deildu með sér fyrsta og öðru sæti en Flosi Jónsson frá Akureyri lenti i þriðja sæti. Eftir að varpað hafði verið hlutkesti um titiiinn féll hann Torfa í skaut. Fyrsta þrautin var hlaup með hlass af Blöndufemum, 75 lítra f hvorri hendi 30 metra vegalengd. Þyngsti keppandinn, Torfi Ólafs- son, reyndist léttastur á sér og hljóp á 12,48 sekúndum. Þá var keppt í að draga 80 kílóa burð af gosflösk- um upp í 3,5 metra hæð. Magnús V. Magnússon frá Seyðisfírði var fljótastur í svifum, dró hlassið upp á 5,57 sekúndum. Fyrri keppnis- deginum lauk með því að þátttak- endur voru spenntir fyrir tvo fólks- bfla og drógu þá 50 metra vega- lengd. Hér kom þyngdin Torfa Ólafesyni í góðar þarfir, kom hann bílunum f mark á 17,87 sekúndum. Keppendur mættust aftur á Ak- ureyrarvelli á laugardag. Þá átti fyrir þeim að liggja að velta 425kg „svinghjóli“ fimm sinnum. Sving- Hundalíf í stolnum bíl LÖGREGLAN hefur ekki haft hendur í hári þjófsins sem stal bíl með tveimur hundum innan- borðs í Aðalstræti aðfaranótt laugardags. Bíllinn fannst í Helgamagrastræti á laugardags- kvöld. „Hundamir vom heilir á húfi en ákaflega svangir og vora búnir að skíta allt út. Þeir höfðu augsýnilega ekki farið út úr bílnum, en honum virtist ekki hafa verið ekið langt,“ sagði Hulda Sigurðardóttir eigandi annars hundanna. Hulda og eiginmaður hennar, Ágúst Ásgrímsson, skildu lyklana eftir í bílnum og brugðu sér í hús um tvöleytið aðfaranótt laugardags. Þegar þau komu út fimm mínútum sfðar var bíllinn horfin. Lögreglu- þjónn fann hann tæpum sólarhring síðar, aðeins hundrað metrum frá lögreglustöðinni. Farþegamir tveir, fjögurra vetra tík af collie-kyni og eins vetra hreinræktaður fjárhund- ur, voru frelsinu fegnir. Þeim virð- ist ekki hafa orðið meint af og héldu hundarnir ótrauðir í veiðiferð með Ágústi í gær. Brotlenti einkaflugvél í Fnjóskadal: „Rakst á smábarð og kollsteypti vélinni“ hjólið er ættað úr Sauðamesvita, fyrsta hljóðvita á íslandi, og er 55 ára gamalt. Var það mál manna að þessi hrina hafi verið erfiðust í keppninni. Aðeins þremur tókst að ljúka fimm veltum. Magnús V. Magnússon náði besta tímanum, 23,11 sekúndum. Fimmta grein var flughamars- kast. Hamarinn er 21 kg að þyngd og áttu keppendur að henda honum afturfyrir sig og yfir rá. Torfi Ólafs- son sigraði er hann þeytti hamrin- um yfir fimm metra. Sjötta keppnis- greinin fólst í því að bera fjóra misþunga bobbinga tíu metra vega- lengd og tylla þeim upp á tunnur. Byrjað var á 64 kg þungum bobb- ingum, síðan 96 kg, þá 127 kg og ioks 142 kg þungum bobbing, sem reyndist sumum ofraun. Flosi Jóns- son bar sigur úr býtum. Að margra mati var frumlegasta þraut keppninnar „fanganýlendu- þraut". Islenskur línubelgur var hlekkjaður við ökkla keppenda, sem urðu að draga hann 15 metra vega- lengd með 70 lítra belg í fanginu. Torfi Ólafsson varð enn hlutskarp- astur og geystist í mark í risastór- um skrefum. Fyrir síðustu þrautina voru Torfí og Magnús jafnir með 45 stig, Flosi í þriðja sæti með 31 stig, aðeins stigi á undan Magnúsi Haukssyni. Nú átti að hlaupa með tvo 35 kg þunga fóðursekki 15 metra vega- lengd. Öm Traustason sigraði óvænt í þessari grein. Flosa tókst að tryggja sér þriðja sætið með sigri yfir Magnúsi þegar þeim var att saman, en Torfi og Magnús vildu ekki reyna með sér um fyrsta sæt- ið. Kváðust þeir örþreyttir og tóku ekki í mál að ljúka keppninni á afgerandi hátt. Varpað var hlut- kesti um titilinn og féll hann Torfa í skaut, en hann vánn raunar fleiri greinar en Magnús. LÍTIL einshreyfils flugvél brot- lenti við bæinn Sólvang í Fnjóskadal á sunnudag. Flugmað- urinn var einn í vélinni og slapp hann nærri ómeiddur. Vélin, sem er af gerðinni Belanca Scout og ber einkennisstafina TF-JFK, er illa farin. „Ég varð vélarvana í um þijúþúsund feta hæð yfir Ljósavatnsskarði og reyndi árang- urslaust að koma mótomum i gang,“ sagði Helgi Rafnsson flug- maður vélarinnar.„Það var ekki um annað að ræða en að finna góðan blett til lendingar. Dlu heilli rakst ég á lítið barð og við það kollsteyptist vélin. Ég var reyrður niður i þriggja punkta belti og slapp því ákaflega vel.“ Að sögn loftferðaeftirlitsins bendir allt til þess að vélin hafi orðið bensínlaus. Helgi kvaðst hafa flogið frá Reykjavík fyrr um daginn til Búða á Snæfellsnesi. Hann var á leið til Akureyrar þegar óhappið varð. „Þetta var sunnudagstúrinn minn og ég ætlaði aftur suður með kvöldinu. Eg sá að það var dimmt yfir Eyjafírð- inum og ákvað því að fara niður Bárðardalinn, ætlaði að fljúga yfir Vaðlaheiðina inn til Akureyrar." Helgi marðist á annarri löppinni og olnboga en kennir sér einskis meins að öðru leyti. Heimamenn á Sólvangi voru á engjum við heyskap og urðu því vitni að óhappinu. Helgi komst út úr vél- inni af eigin rammleik. Menn frá Loftferðaeftirlitinu komu akandi frá Reykjavík á sunnudagskvöld og var vélin síðan flutt inn á Akureyri. Morgunblaðið/Rúnar Þór Helgi Rafnsson flugmaður TF-JFK við vélina á Akureyrarflugvelli í gærdag. Helgi slapp með skrekkinn er hann kollsteypti vélinni í nauðlendingu i Fnjóskadal á sunnudag. Flugvélin á slysstað á sunnudagskvöld. Morgunblaðið/Vigdís Kjartansdóttir Fjögur leikrit í vetur ÞRÍR leikarar verða fastráðnir við Leikfélag Akureyrar í vetur, en síðastliðinn vetur vora þeir sjö. Fjögur leikrit verða fram- sýnd i vetur, þeirra viðamest verk bandariska höfundarins Edwards Albee „Hver er hrædd- ur við Virginiu Woolf?“. Inga Bjarnason leikstýrir en i aðal- hlutverkum verða hjónin Helga Bachman og Helgi Skúlason. Dagskrá vetrarins hefst í októ- ber með sýningu á leikriti Araa Ibsens, „Skjaldbakan kemst þangað líka“. Um jólin verður barnaleikritið „Emil i Kattholti" á fjölunum og næsta vor verður frumsýnt verkið „Blúndur og blásýra" sem er þekkt sakamála- og gamanleikrit. Viðar Eggertsson leikstýrir verki Árna Ibsens en í hlutverkum verða Theódór Júlíusson og Þráinn Karls- son. Ekki hefur verið gengið frá Keppt á seglbrettum á Pollinum um helgina ráðningu leikara í Emil í Kattholti en Sunna Borg mun leikstýra verk- inu. Þá er ekki ljóst hveijir muni standa að „Blúndum og blásýru", sem væntanlegt er á fjalimar í lok mars á næsta ári. Ríki og bær hafa samþykkt að veita auknu fé til rekstrar Leik- félags Akureyrar, en í staðinn hefur félagið axlað þá byrði að skila halla- lausum rekstri. Uppgjör fyrir liðið leikár liggur ekki fyrir en Ijóst er að mikið tap var af viðamesta verk- inu, Fiðlaranum á þakinu, að sögn Amórs Benónýssonar leikhússtjóra. „Það má orða það svo að leikfélag- ið sé í einskonar millibilsástandi. Við erum að reyna að finna eðlilegt rekstrarform og sýnum því mikla varkámi. Fjárhagsstaðan er mjög þröng. Við tökum enga áhættu í rekstrinum, teljum réttara að taka listræna áhættu — skapa góða leik- list,“ sagði Amór. Amór sagði að verkin á dag- skránni í vetur krefðust ekki jafn margra leikara og oft áður. Færri leikarar hefðu því verið fastráðnir en undanfarin ár. Þrir leikafwr* starfa við félagið í fullu starfi, Marínó Þorsteinsson, Þráinn Karls- son og Theódór Júlíusson. Á móti kemur að lausráðnir leikarar verða fengnir til að bera uppi veigamikil hlutverk. „Það er mikið púsluspil að reka leikhús úti á landsbyggðinni, við þurfum jafnan að velja verkin langt fram í tímann til að geta hreppt leikara áður en leikhúsin fyrir sunn- an taka sínar ákvarðanir. Við verð- um með fámennari verk í vetur en oft áður, en þau em öll spennandi og öndvegisfólk sem mun standa að þeim. Frá sjónarmiði leiklistar- innar verður þetta spennandi ve'i— ur,“ sagði Arnór. „Að mínu mati er hlutverk Leikfélags Akureyrar geysimikilvægt í leikhúslifi lands- ins. Það er því full ástæða til að sýna ábyrgð í rekstrinum til þess að ná stjóm á peningamálunum og byggja upp fyrir þamæsta vetur.“ Seglbrettakeppni, svo nefnt Fiðlaramót, fór fram á Pollinum um helgina. Þátttakendur voru fjórtán. Þetta er eitt af sterkustu mótum í greininni i sumar en gefur þó ekki punkta samkvæmt reglum Sigiingasambands Is- lands. Jóhann Orn Ævarsson úr Kópavogi bar sigur úr býtum í meistaraflokki en Anna María Malmquist frá Akureyri í fyrsta flokki. Keppnin fór fram á föstudag og laugardag en lokahóf f Fiðlaranum á þakinu á sunnudag. Seglbretta- kappamir þurftu að sigla ákveðna leið á Pollinum, milli bauja. Þegar upp var staðið hafði Jóhann Om sigur í meistaraflokki, í öðru sæti var Valtýr Guðmundsson frá Laug- arvatni og í þriðja sæti Aron Reyn- isson úr Kópavogi. í fyrsta flokki varð Anna María sigurvegari, Finn- ur Birgisson lenti í öðra sæti en Signe Viðarsdóttir í þriðja sæti. Þau era öll frá Akureyri. STEFANIA 96-26366 AKUREYRI 96-26366
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.