Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988 25 „Hrynji landsbyggðin, fer Reykjavík sömu leið“ eftir Hallgrím Sveinsson Reykjavík er ein af perlum þjóð- arinnar. Hún er líka einn af þeim ásum sem þjóðlífið snýst um. En höfuðborgin á að vera styrkur þjóð- arinnar en ekki veikleiki. Glæst torg og fagrar byggingar einkenna gjarnan slíkar borgir. Þannig vilja menn hafa það. En sé of miklu hrúgað á einn punkt lands- ins, of margar hallir reistar, of mörgu fólki smalað saman á einn stað á landinu miðað við aðra parta þess, er hætta á ferðum. Hættan er sú að það sporðreisist í óbeinni merkingu þess orðs. Hallgrímur Sveinsson „Miðað við það sem á hefur gengið í bygging- armálum Reykjavíkur undanfarin misseri eru þetta hreint ótrúleg tíðindi. Það er erfitt fyrir venjulegt fólk að skilja svona áætlanir.“ Halldór Blöndal alþingismaður skrifar í Morgunblaðið nýlega að Reykvíkingar skilji nauðsyn þess að landsbyggðin haldi velli, því hrynji hún fari Reykjavík sömu leið. Hér hittir alþingismaðurinn nagl- ann á höfuðið, því hvort sem mönn- um líkar betur eða verr, eru hags- munir þessara aðila nefnilega ofnir úr einum og sama þræðinum. Njáll heitinn á Bergþórshvoli hafði gjarnan þann háttinn á að láta segja sér þrisvar ótrúleg tíðindi. Ýmsum landsmönnum hefur líklega orðið sem Njáli, þegar það spurðist út, að einmitt í þann mund sem ýmis útflutningsfyrirtæki lands- manna ramba á barrhi gjaldþrots, ætlaði eitt af fyrirtækjum Reykjavíkurborgar að láta reisa sér snúningsapparat nokkurt á Öskjuhlíð, einhvers konar veitinga- stað sem snerist í hringi. Kostnað- arverð: Nokkur hundruð milljónir króna. I hringsjá þessari mun eiga Vestur-þýskir vörulyftarar ^ Globus? LÁGMÚLA5. S. 681555. að sjást of heima alla, eins og stend- ur í fomum texta. Miðað við það sem á hefur geng- ið í byggingarmálum Reykjavíkur undanfarin misseri eru þetta hreint ótrúleg tíðindi. Það er erfitt fyrir venjulegt fólk að skilja svona áætl- anir, því svo virðist sem veitinga- staðir og hótel séu nánast á hverju götuhomi í okkar ágætu höfuðborg. En miðað við þann hrunadans sem stiginn er nú sem óðast í okkar litla þjóðfélagi, er þetta kannski ofur skiljanlegt. Strangt tekið má segja að það komi ekki öðmm við hvernig Reykjavíkurborg ráðstafar sínum fjármunum. Fyrirhugað nývirki á Öskjuhlíð er þó þess eðlis að menn hljóta að hafa á því misjafnar skoð- annir. Er ekki annað að sjá en hér sé um gjörsamlega óþarfa fram- kvæmd að ræða og mjög skaðlega miðað við ástand óg horfur í þjóð- málum okkar í dag. Heppilegra væri fýrir bæði höfuðborgina og landsbyggðina að umræddir fjár- munir, kannski hátt í milljarður króna, fengju að vistast áfram í bankakerfinu. Það yrði beinlínis til þess að minna yrði tekið af erlend- um lánum, en margir telja að við séum komnir á ystu nöf í þeim efn- um. Og meðal annarra orða. Hvar skyldi Reykjavíkurborg fá alla þessa peninga? Höfundur er bóndi á Hrafnseyri og skólastjóri Grunnskólans á Þingeyri. / P Skemmtun ÁN ÁFENGIS qq X % o % Sparif é þitt rýrnar ekki ef þú f járfestir ríkissjóds ■ ‘Ki Það eru margar ástæður fyrir því að spariskírteini ríkissjóðs eru einn vænlegasti kostur sparifjáreig- enda í dag. Spariskírteini ríkissjóðs eru einföld og jafnframt ein öruggasta ávöxtunarleið, sem völ er á. Spariskírteinin eru verðtryggð, sem kemur í veg fyrir að sparifé þitt rýrni og bera auk þess allt að 8,5% vexti. Og ekki má gleyma að spariskírteinin eru tekju- og eignaskattsfrjáls eins og sparifé í bönkum. Spariskírteini ríkissjóðs eru því án efa rétti kosturinn fyrir þig. Verðtryggð spariskírteini til sölu núna: FLOKKUR LÁNSTÍMI ÁVÖXTUN GJALDDAG! l.fl. D 3 ár 8,5% 1. feb.’91 1. fl. A 6/10 ár 7,2% 1. feb.’94—’98 Ávöxtun ríkisvíxla er nú allt að 43,13% á ári. Nú eru forvextir á ríkisvíxlum 34,3% sem jafngildir 43,13% eftirá greiddum vöxtum miðað við 90 daga lánstíma. Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til að ávaxta skammtímafjármuni. Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka ísiands og hjá löggiltum verðbréfasölum, sem m.a. eru við- skiptabankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í Seðlabanka íslands. Einnig er hægt að panta þá þar, svo og spariskírteinin, í síma 91-699863, greiöa með C-gíróseðli og fá víxlana og spariskírteinin síð- an send í ábyrgðarpósti. RIKISSJOÐUR ISLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.