Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988 Volvo fellur algjörlega saman við rekstur okkar - segja eigendur Brimborgar hf. „ÞETTA fellur algjörlega saman við rekstur okkar vegna þess að við erum með litla bíla og þegar fólk vill stærri bíla höfum við tap- að því frá okkur. Nú getum við boðið Daihatsu-eigendum stærri bUa og Volvo-eigendum getum við boðið litla bíla, til dæmis sem annan bU í fjölskyldu, og við getum líka boðið þeim jeppa,“ sögðu þeir félagsir Sigtryggur Helgason og Jóhann Jóhannsson í gær. Þeir eru aðaleigendur Brimborgar hf., sem hefur keypt Volvo umboð- ið Velti hf. eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu. Sigtryggur sagði að beinar samn- ingaviðræður um kaupin hefðu staðið yfír í heila viku þar til geng- ið var frá samningum á föstudag. Viðræðumar fóru fram með milli- göngu fulltrúa Volvo ab frá Svíþjóð. „Við göngum inn í samninga Veltis við Volvo ab í Svíþjóð. Þeir em búnir að kynna sér okkar starfsemi hjá Daihatsu og leist vel á,“ sagði Sigtryggur. Könnunarviðræður fulltrúa Volvo fóm fram við 6 aðra aðila áður en gengið var til samn- inga við Brimborg hf. Jóhann Jóhannsson sagði að þeir stefndu að því að flytja alla starf- semina að Bfldshöfða 6; þar sem Volvo verkstæðið er nú. I gær vom starfsmenn Brimborgar í óða önn að undirbúa flutning verkstæðis og varahlutaþjónustu. „Hér í þessu húsi verður öll viðgerðar- og við- haldsþjónusta," sagði Jóhann. „í austurendanum verður vömbíla- verkstæði og hér í vesturendanum verða fólksbílaverkstæði og vara- hlutaverslunin. Fyrst um sinn verða skrifstofur og bílasala í Ármúla 23, en við ætlum að byggja hér vestan við og hafa alla starfsemina á einum stað. Þá munum við selja Ármúl- ann.“ Jóhann sagðist giska á að verðmæti fasteignanna við Ármúla væri á bilinu 60 til 70 milljónir króna. „Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að hér verði eitt full- komnasta og best búna verkstæði landsins. Við munum leggja alla áherslu á að veita góða þjónustu, á því byggjast þessi viðskipti." Þeir Jóhann og Sigtryggur kváð- ust vera bjartsýnir á gengi hins nýja reksturs. „Við gemm okkur grein fyrir því að það verður róleg sala á næstunni, en það verður eins og alltaf í íslensku efnahagslífí ekki lengi að jafna sig. Volvo hefur mjög stöðugan kaupendahóp. Við emm búnir að margreikna dæmið fram og aftur með bæði óhagstæðustu og bestu möguleikum og við höfum sannfærst um að það gengur upp,“ sagði Sigtryggur. Þeir kváðu of snemmt enn að segja með fullri vissu hvernig þeir muni reka starfsemi Volvo. Þó er ákveðið að þeir verða með fólksbíla, vömbíla og vinnuvélar frá Volvo og alla þjónustu þar að lútandi. Enn er óráðið hvort Brimborg mun verða með Volvo Penta bátavélamar. „Við emm fyrst og fremst með bíla, bátar hafa ekki verið okkar svið, en þetta skýrist á næstunni," sagði Jóhann. Þeir félagar sögðust munu kynna Volvo bfla með svipuðu sniði og gert hefur verið. „Við munum í verðbréfadeild Aðalbanka og í útibúum Landsbankans um land allt fást örugg og ábatasöm skuldabréf. Bankabréf Landsbankans gefa 9,75% ársávöxtun umfram verðtryggingu og skuldabréf Iðnþróunarsjóðs 8,3% - 9,1% ársávöxtun umfram verðtrygg- ingu. Ýmis skuldabréf traustra fyrirtækja 10,5% - 11,5%. í gegnum Verð- bréfaþingið kaupum við og seljum eldri spariskírteini Ríkissjóðs, lágmarks kaup- og söluþóknun. Leitið upplýsinga og ráðgjafar hjá Verðbréfaviðskiptum, Fjármálasviði, Laugavegi 7, sími 606600 (innanhússsímar 388/391/392). L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Strax í gærmorgun hófust starfsmenn Brimborgar handa við að flytja úr Ármúlanum upp á Bíldshöfða. Hér er ein starfsstúlkan að bera út vörur. Framvegis verður viðgerðar- og varahlutaþjónusta fyrir Daihatsu og Volvo bíla og Toyota saumavélar á Bíldshöfða 6. Skrifstofur og bílasala verða fyrst um sinn við Ármúla 23. gera allt til þess að viðhalda því á íslandj og treysta ímynd þeirra í góða áliti sem Volvo bílar hafa hér hugum íslendinga." Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Knattspyrnumenn á Selfossi leggja gangstígana við Geysi. I baksýn gýs Strokkur. Gerð gangstíga hafin við Geysi Selfossi. LAGNING gangstiga á hverasvæð- inu við Geysi í Haukadal hófst um helgina. Þá tóku til hendinni liðs- menn knattspyrnuliðs Selfoss sem annast verkið. Gangstígarnir verða 2.500 fermetrar alls og verð- ur hluti þeirra lagður í ár. Fyrsti áfanginn í steinlögn gang- stíganna er frá aðalhliðinu og áleiðis upp hallann. Litur steinanna fellur vel að umhverfinu, þeir eru gulir, brúnir og rauðir. í framhaldi af þess- um framkvæmdum eru á döfínni í náinni framtíð frekari verkefni til að beina umferð gesta eftir ákveðnum og öruggum leiðum um svæðið. Áður en knattspymumennimir hófust handa við steinlögnina hafði Sigurður Karlsson verktaki á Selfossi og ötull liðsmaður knattspymumanna verið með tæki sfn í Haukadal við að skipta um jarðveg í stígunum. Alls vom grafín 80 bílhlöss upp úr aðalstígnum en 100 sett í staðinn af möl. Það var létt yfir knattspymustrák- unum við steinlögnina og gamanyrðin fuku. Haft var á orði að nú væri eins gott að mata vel framlínuna í stein- lögninni svo verkið gengi. Menn full- yrtu að svona töm, eftir leik sem menn voru ekki of ánægðir með kvöldið áður, væri hressileg tilbreyt- ing sem þjappaði mönnum saman fyrir komandi leiki. Annars eru knatt- spymuáhugamenn á Selfossi ekki óvanir gangstéttavinnu þvi undanfar- in ár hafa þeir steypt mestallar gang- stéttir fýrir bæjarfélagið. — Sig. Jóns. |toi QaQflbvd ISLENSKT HOTELIALFARALEIÐ Eigendur: Ingibjörg Sigurðardóttirog Kristján Karl Guðjónsson Hóteliö ergamalt óöalssetur, sem hefur veriö endurnýjaö og búiö öllum nútima þægindum. Rúmgóö herbergi meö baöi, síma og sjón varpi, notalegur veitingastaöur og bar. Aöeins 5 mín. gangur aö útisundlaug og golfvellir í 20 km fjarlægÖ. Hóteliö er staösett imiöjum Móseldalnum iLuxem- borg, á milli Findelflugvallar (20 km) og hinnar sðgufrægu verslunarborgar Trier (18 km) i Þýskalandi. Daemi um verð:_____________________________ Eins manns herbergi m/morgunv. kr. 2.300,- 2ja manna herbergi m/morgunv. kr. 3.200,- 2ja manna herb. m/morgunv. (3 nætur eða fl.) kr. 2.700,- w líoí jpmiolicrt 32 RUE DE TREVES 6793, GREVENMACHER, LUXEMBOURG Sími: (352) 75717 & 75718. Telex 60446.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.