Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, -ÞRIÐJUÐAGUR 26: JÚLÍ 1988-' Afmæliskveðia: Jenný Jónsdóttir, Eyjólfsstöðum Jenný Jónsdóttir á Eyjólfsstöð- um í Vatnsdal er níutíu ára í dag, 26. júlí. Það verða margir vinir Jennýar sem hugsa til hennar á afmælis- daginn með hlýhug og þakklæti fyrir kynni af konu sem gaf þeim vilja til þess að mæta mörgu í lífinu með ró og stillingu og finna styrk í trúnni á hið góða. Jenný Jónsdóttir er fædd á Komsá í Vatnsdal. Foreldrar henn- ar voru hjónin Ingibjörg Krist- mundsdóttir og Jón Baldvinsson. Þau voru fátæk eins og fiestir ís- lendingar í þá daga. Ingibjörg var bókhneigð, skáldmælt og kunni mikið af kvæðum og vísum. Jón var lagtækur og smiður góður. Bæði voru þau hjónin dugleg og horfðu til framtíðar eins og alda- mótaskáldin í von um betri tíð fyr- i'r land og lýð. Jenný varð strax að vinna eins Vetrartískan frá Roland Klein - Kit - Burberrys - Mary Quant - YSL o.fl. Búsáhöld - leikföng - sælgæti -jólavöruro.fl. BMi LSHRAUNI 2 - SIMI 528S6 PÖNTUNARLISTINN Yfir 1000 síður kr. 190,- (án bgj). og kraftar hennar leyfðu. Það var hlutskipti barna í þá daga. Brauð- stritið var skóli lífsins. Árið 1922 giftist Jenný Bjarna Jónassyni, fæddum í Sauðanesi á Ásum. Foreldrar hans voru fátæk og á faraldsfæti. Tíu ára gamall var Bjarni ráðinn á bæ í Vatnsdal og varð hann upp frá því að sjá um sig sjálfur. Fermingardaginn sinn mátti hann strax að lokinni athöfninni fara og sitja æmar. Bjami var gæddum sterkum vilja og þreki. Hann vildi strax verða sjálfstæður með konu sinni, fá jarðnæði og búa. Þau hjón hófu fyrsta búskaparárið á Snærings- stöðum í Vatnsdal, síðan á Breiða- bólsstað, þá í skólahúsinu í Þingi. Þaðan lá leiðin að Marðarnúpi í Vatnsdal og svo að Hvammi í sömu sveit. Þetta sýnir hve þá var erfitt að fá fast jarðnæði og alls ekki til kaups. Það lætur að líkum að við slíkar aðstæður er erfitt að koma undir sig fótunum. En von þeirra hjóna um betra hlutskipti brást ekki. Árið 1938 fengu þau Eyjólfs- staði í Vatnsdal til ábúðar. Þau hjónin Margrét og Þorsteinn, sem áttu jörðina og höfðu búið þar lengi °g byggt stórt og fallegt íbúðar- hús, fluttu til Reykjavíkur til barna sinna þar. Það þótti sjónarsviptir að brottför þeirra enda heimilið rómað fyrir myndarskap. Jenný og Bjami sátu jörðina af mikilli reisn og héldu uppi merki fyrri ábúenda. Jenný talaði oft um það að stærsta gæfa þeirra hjóna hefði verið að eignast Eyjólfsstaði og láta þar framtíðardrauminn rætast í upp- byggingu á eignaijörð. Kristín, kona mín, er dóttir þeirra Margrétar og Þorsteins. Hún og Ingibjörg, dóttir Jennýar og Bjama, gengu saman í barna- skóla og með þeim tókst vinátta sem haldist hefur æ síðan. Kona mín dvaldist oft sumar- langt á Eyjólfsstöðum með dætur okkar ungar. Þá kynntist ég vel Eyjólfsstaðahjónunum og heimili þeirra, björtu og hlýju þar sem allt var í röð og reglu, heimili sem veitti hvíld og frið frá erli dagsins. Ég hef oft hugsað um að þetta gamla og virðulega hús hefði sál sem væri í verki með góðri hús- móður, en það var Jenný sannar- lega. Ég man skemmtilegar stundir á Eyjólfsstöðum og þá ekki síst töðu- gjöldunum, þegar allir gengu sparibúnir að veisluborði og dansað var og sungið fram á nótt. Þá var Jenný oft hrókur alls fagnaðar og allir urðu að vera kátir og njóta gleðinnar. Mig grunar að Jenný geti gert vísu en því flíkar hún ekki. Hún kann eins og mamma hennar mik- ið af kvæðum og vísum og flutti þær af snilld þannig að merking þeirra komst vel til skila. Ég man enn þegar dóttir mín lítil kom þjótandi í bæinn háorg- andi, hljóp í fangið á Jennýju og GARÐASTÁL Aratuga ending - margir litir = HÉÐINN = STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000 sagði að strákurinn hefði barið sig og hún yrði að beija hann fyrir sig. Jenný þrýsti henni að sér, strauk tárin af kinnunum og spurði síðan hægt og rólega: „Sástu nokk- uð heimaganginn?" „Nei, en strák- urinn er vondur," sagði telpan. „Heimagangurinn þarf að fá mjólkina sína eins og við matinn okkar," sagði Jenný. „Má ég gefa honum úr pelanum?“ spurði telpan. „Já,“ svaraði Jenný. Tárin hurfu úr augum telpunnar og hún hljóp brosandi út með pelann. Þetta er aðeins lítið dæmi um sáttfýsi, frið og skilning Jennýjar sem líka var alltaf reiðubúin að rétta veikum hjálparhönd. Jenný og Bjarni eignuðust þijú börn: Ingibjörg sem gift er Ingvari Steingrímssyni frá Hvammi og búa þau á Eyjólfsstöðum; Jón kvæntan Kristínu Lárusdóttur frá Grímstungu og búa þau á Bakka og Jóhönnu sem er ógift og býr á Eyjólfsstöðum. Jenný missti mann sinn árið 1981. Hann lá lengi sjúkur heima. Hann vildi helst hvíla í faðmi fjöl- skyldunnar. Það var aðdáunarvert hvílíka umhyggju þær mæðgur sýndu honum. Mér er minnisstæð stund með þeim hjónum á Eyjólfs- stöðum. Bjarni lá þá sjúkur og máttfarinn í rúmi sínu. Jenný sat hjá honum á rúmstokknum og þau héldust í hendur. Allt í einu lyfti Bjami höfðinu aðeins frá koddan- um og sagði veikum rómi: „Þú hefur alltaf verið styrkasta stoðin mín.“ Höfuð hans hneig síðan á svæfilinn og mók færðist yfir hann. Jenný hélt höndum hans og þrýsti þær. Það var ást, þakklæti og virð- ing í svip þeirra. Nú er Jenný níræð og býr í faðmi dætra sinna og tengdasonar á Eyjólfsstöðum sem gera henni allt til þæginda. Hún er orðin gleymin en man þó helst gamla tímann. Á daginn situr hún lengstum í stóln- um sínum, og mælir stundum vísur af munni fram. Yfir henni hvílir rósemd og virðuleiki. Hún minnir á ljósið sem gefur birtu og hlýju. Ég vil þakka Jennýju fyrir okkur hjónin bæði og þá ekki síst fyrir dætur okkar sem ætíð minnast veru sinnar á Eyjólfsstöðum sem sólskinsbletts í æsku sinni. Ég og fjölskylda mín færum Jennýju hjartanlegar hamingjuó- skir á afmælisdaginn og óskum þess að ævikvöld hennar megi verða bjart og fagurt. Guðlaugur Guðmundsson Graegum Graeoum ÁTAKILANDGRÆÐSLU LAUGAVEG1120,105 FEYKJAVlK SlMI: (91)29711 Hlaupareiknlngur 251200 Búnaðarbankinn Hallu <n <5 E ■? -O £ « -2 k- Cf) O'— BiLVANGUR Sf= HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 Umboðsmenn: Akureyri, Véladeild KEA—Reyðarfirði, Lykil Njarðvíkum, Bílabragginn — Borgarnesi, Bílasala Vesturlands Vestmannaeyjum, Garðar Arason GÓÐ GREIÐSLUKJÖR er með glæsilegri bílum frá GM. Snilldarleg hönnun og fallegt útlit. Framhjóladrifinn með 3,0 Itr. V6 vél, ásamtöllum aukabúnaði. Fallegur bíll fyrir kr.1.463.000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.