Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988 Sk' Bréf frá Ástralíu: Hreinasta tungumál í heimi Til Velvakanda. Ég vildi óska þess að geta skrif- að þetta bréf á fallegri íslensku. En slíkt er ekki hægt fyrir mann, sem fór frá Fróni sem ungur dreng- ur fyrir nær tuttugu árum. Einstöku sinnum, mér til mikillar ánægju, kemst ég yfir íslensk dagblöð og les þau spjaldanna ác milli. Stundum eru í blöðunum greinar og bréf frá lesendum um vörn hins fagra og kjammikla tungumáls okkar. Flest- ir höfundar kvarta yfir því, að mál- inu fari hrakandi eða þá að þeir hvetja þjóðina ti! þess að halda tungunni hreinni. Þetta er gott og sýnir að til eru menn og konur, sem vilja veija ísland frá útjöfnun tungumálsins, eins og er að gerast á mörgum öðrum sviðum. En nú finnst mér að ég geti lagt svolítið til málanna sem Islending- ur, sem hefur á yfirborðinu horfið algjörlega inn í annað þjóðfélag og annað tungumál. (Þeir gera sér ckki grein fyrir því Ástralarnir í kringum mig að ég hef platað þá og er enn eins íslenskur og harð- fiskur!) Það sem ég hef að segja er það, að íslenskan er hreinasta og óspillt- asta tungumál í heimi. Mjög fáar þjóðir reyna að búa til nýyrði af gömlum rótum (þota, sjónvarp) og endurreisa gömul orð (gámur). Ef þær eru að reyna, eins og t.d. Frakkar, þá tekst það illa. Sumar þjóðir, t.d. Svíar, hafa kafnað í orðaflóði tækninnar og sérfræðing- ar sérstaklega babbla sín á milli á einhveiju hrognamáli. En íslend- ingar eru þjóð, sem drekkur í sig tölvur og aðrar tækninýjungar með góðri lyst, en býr jafnóðum til orð sem við eiga. Þrátt fyrir þann danska þrældóm og niðurlægingu, sem þjóðin bjó við í margar aldir, tókst okkur að halda okkar máli og siðum. Ferðadellu og myndbandstækjum nútíma ís- lendinga mun ekki takast að eyði- leggja allt. En baráttan verður að halda áfram, sérstaklega af rithöf- undum og dagblöðum. Jafnvel allar þær hrúgur af hégómatímaritum, sem íslendingar puða við að gefa út og gleypa í sig, geta lagt fram sinn skerf með því að nota gott mál fyrir ungt fólk. Með okkar einstæða og ríka tungumál hefur hingað til gengið vel og ég er hreykinn af löndum mínum. Með hreinu tungumáli held- ur þjóðin bókmenntum sínum og arfi aldanna - og þannig sjálfstæði sínu. Kærar kveðjur, Einar Víkingur. Ríkisútvarpið: „Fróðleikur“ um Kúbu Til Velvakanda. Nú er Ríkisútvarpið byijað að senda út marga fræðsluþætti frá ýmsum löndum, almenningi líklega til fróðleiks. Byijað var á Kúbu og rakin var frægðarsaga Castros. Vitnaði þar námsmaður, sem les á Kúbu, og gaf þetta trúverðugan blæ. Þeir voru ekki valdir af verri endanum, sem voru látnir vitna um ágæti stjómar Stalíns í gamla daga, og hvemig stóðust þær fullyrðing- ar? Castro hafði bætt allt mannlíf og hefur hann haft tímann frá 1959, sem er langur tími fyrir almenning að bíða eftir sjálfsögðum lífsskilyrð- um. Sagan sýnir að á sama tíma er allt í kalda koli í efnahagslífi, heil- brigðismálum o.s.frv. í öllum kommúnistaríkjum Austur-evrópu. Og nú er lofað bót og betmn og allt á að'ganga í lýðræðisátt, sem gengur þvert á hugmyndafræði marxismans. í þættinum var sagt að marxismi Castros sé ágætur, allt þar í besta lagi. Ekkert var minnst á flótta fólks inn í sendiráð Perú í Havana fyrir nokkmm ámm og þá ráðstöf- un Castros, að láta alla glæpa- menn, sem þá sátu inni fylgja flótta- mönnunum til Bandaríkjanna. Bandaríkjamönnum þótti þetta ekki góð sending, sem von var. Ekkert orð var um meðferðina á pólitískum andstæðingum Castros. Afríkuríkin em ekki eins hrifín af morðsveitum frá Kúbu, né marx- ismanum í Angola, Mozambique og Eþíópíu og fólkið hefur barist á móti síðan nýlendumar fengu frelsi og kommúnistarnir komust til valda með aðstoð morðsveitanna. Það var sagt frá því snjallræði Castros, að Suður-ameríkuþjóðim- ar skyldu bara neita að borgar er- lendar ríkisskuldir sínar. Væri það ekki notalegt ef við þyrftum ekki að borga erlendar skuldir okkar? Ég efast um að Rússar vilji nota útgáfu Castros á marxismanum, enda hefur aðstoð þeirra við hann orðið þeim dýr. Castro Ég er viss um að ef námsmaður- inn þýddi þennan „fróðleik" á spænsku handa Castro, þá mætti hann verða eilífðarstúdent á Kúbu, sér að kostnaðarlausu. Hvað skyldi svo Castro hugsa ef hann vissi að Ríkisútvarpið bæri þetta á borð fyr- ir almenning, sem lifir í lýðræð- isríki og er í Nató með samþykki alls almennings í landinu að Kvannalistakonum og öðrum marx- istum undanskyldum? Húsmóðir Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundur óski naftileýndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Þessir hringdu . . . Límmiðar á núm- eraplöturnar Haukur Ingibergsson, fram- kvæmdastjóri Bifreiðaeftirlits ríkisins, hringdi: „í dálki þínum á föstudaginn var fyrirspurn um svokallaðar heimamerkingar eða skjaldar- merki bæja á nýju númeraplötun- um. Kjarni málsins er sá, að á nýju plötunum er svæði fyrir heimamerkingu. Þar geta menn sett á límmiða með skjaldarmerki bæjarfélags síns og þegar farið er með bílinn til útlanda má setja þar merki íslands. Gert er ráð fyrir því að Bifreiðaskoðun ís- lands hf. komi til með að selja þessi límmerki. Þessar merkingar hafa þannig ekkert með skrán- ingu bílsins að gera og umskrán-. ing er raunar horfin þar sem hún er ekki skylda lengur.“ Lipur þjónusta 9307-4459 hringdi: „Starfsfólk íþróttahúss og sundlaugar Njarðvíkur er afskap- lega lipurt og þægilegt og gerir allt til þess að gestir hafi það sem þægilegast. Hafi það þökk fyrir.“ Gullúr tapaðist Lítið gullúr tapaðist framan við myndbandaleigu í Mosfellsbæ. Fundarlaunum heitið. Upplýsing- ar í síma 667066. Gullkeðja tapaðist Gullkeðja tapaðist fyrir utan Reynimel 84 miðvikudaginn 20 júlí milli klukkan 11 og 12 fyrir hádegi. Stafurinn E hangir í keðj- unni. Góð fundarlaun. Upplýsing- ar í síma 685557 eftir klukkan 19. VIÐLEGUBÚNAÐUR í ÚRVALI: OG SÖLBAÐIÐ Vandaðir svefnpokar, dýnur, vindsængur og bakpokar iútileguna. Sólbekkir.stólar og borð I sumarbústaöinn.tjaldiö ogá svalirnar. Fellitjöld og göngutjöld, m.a.Tjaldborgartjöldinvinsælu, sér- hönnuð fyrir íslenskar aðstæður. Hagstætt verð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.