Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Peningar og peningamagn
eftirJóhann Rúnar
Björgvinsson
Markmið þessarar greinar er að
varpa ljósi á þýðingu peninga í
hagkerfinu. Tilefnið er meðal ann-
ars nýlegar kröfur um frelsi til er-
lendrar lántöku og að tengja
íslensku krónuna myntvoginni
ECU.
I. Peningar
a. Hvers vegna peningar?
Erfitt er að hugsa sér samfélag
þar sem ekki eiga sér stað viðskipti
í einhveiju formi, þegar höfð er í
huga sú mikla margbreytni sem til-
veran býður upp á. Ætla má að því
flóknara og margbrotnara sem
samfélagið er því nauðsynlegri séu
viðskipti manna á milli. Þá má ætla
að viðskiptaskilyrði þróist á þá vegu
að þau verði sem hagkvæmust.
Vöruviðskipti eru einfaldasta
form viðskipta, en það eru viðskipti
þar sem einstaklingar skiptast á
vörum. Slík viðskipti eru mjög
tímafrek þar sem einstaklingurinn
þarf ekki aðeins að selja vöru sína
einhverjum öðrum sem vill kaupa
hana, heldur verður kaupandinn að
bjóða í staðinn vöru sem einstakl-
ingurinn samþykkir. Líkurnar fyrir
því að fínna kaupanda sem býður
heppilega vöru og að hún hafí sama
verðgildi eru hverfandi. Vöruvið-
skipti eru því afar kostnaðarsöm,
þar sem þau hafa í för með sér
mikinn kostnað við upplýsingaöfl-
un, flutningskostnað og fórnar-
kostnað (tíminn er takmarkaður).
Líkur eru því á að viðskiptaskilyrði
þróist í þá veru að þessi kostnaður
verði í lágmarki.
Fýrsta skrefið í þá átt er að ein-
staklingur samþykkir sumar vörur
frekar en aðrar í viðskiptum, ekki
vegna þess að hann hafi þörf fyrir
þær til neyslu eða til eignar, heldur
vegna þess að það er auðveldara
að selja þær fýrir aðrar vörur,
þ.e.a.s. fleiri einstaklingar sam-
þykkja þær. Ef slík þróun á sér
stað hefur orðið til gjaldmiðill í við-
skiptum, þ.e. fyrir vöru fæst gjald-
miðill og fyrir gjaldmiðil fæst vara.
Slík þróun lækkar til muna flutn-
ings- og fórnarkostnað og gerir við-
skipti mun hagkvæmari, og er því
mikilvægt skref í þróun viðskipta.
Dæmi um slíkar vörur eru ýmsir
málmar, s.s. gull og silfur, og jafn-
vel framleiðsluvörur, s.s. vaðmál og
fískur. Slíkir gjaldmiðlar (1), sem
hafa innra virði eða neysluvirði,
hafa þó marga ókosti, s.s. nauðsyn
á gæðarannsókn og tímafrekri
mælingu við verðákvörðun, mikla
þyngd sem er ókostur við stærri
viðskipti, mikinn framleiðslukostn-
að, og að lokum takmarkað fram-
boð miðað við eðlilega framþróun
viðskipta.
Gjaldmiðlar þróast því enn frek-
ar, sem enn eykur á hagkvæmni í
viðskiptum. Tvenns konar gjald-
miðlar koma fram á sjónarsviðið,
annars vegar gjaldmiðlar sem lof-
orð um greiðslu á verðmætum og
hins vegar eins konar yfirlýsingar.
Dæmi um gjaldmiðla sem loforð
um greiðslu á verðmætum eru ávís-
anir og ýmiss konar skuldaviður-
kenningar. Slíkir gjaldmiðlar (2)
öðlast samþykki vegna þess trausts
sem samþykkjandinn ber til útgef-
andans og/eða greiðandans. Slíkt
traust styrkist við jákvæðar upplýs-
ingar og rénar við neikvæðar. Ymis
tæki hjálpa til við að efla slíkt
traust; tæki eins og bankastofnan-
ir, forvaxtamarkaðir, tölvutækni,
greiðslukort og ýmis lagaákvæði,
svo eitthvað sé nefnt. Við eðlilegar
aðstæður er gjaldmiðill (2) mjög
eftirsóknarverður sem gjaldmiðill í
viðskiptum, þar sem hann getur
túlkað háar fjárhæðir á fyrirferð-
arlítinn og öruggan hátt, og þar sem
hann er mjög deilanlegur, varanleg-
ur og stöðugur að verðgildi, en
bæði er hægt að skrá hann í hvaða
verðgildi sem er, í hvaða mæliein-
ingu sem vera skal. Þá er einfalt
að breyta framboði hans, og að lok-
um eru sumar tegundir hans aðeins
frestun á endanlegri greiðslu, sem
getur verið eftirsóknarvert og hent-
ugt í vissum viðskiptum. Aukin
tækni og þekking í nútíma hag-
kerfi hefur einnig stóraukið notkun
hans. Hins vegar er hann lítt eftir-
sóknarverður við óeðlilegar aðstæð-
ur, s.s. þegar lítið traust ríkir milii
einstaklinga.
Gjaldmiðill (3), sem er eins konar
yfirlýsing, öðlast samþykki vegna
lagaákvæða um að hann eigi að
samþykkja sem endanlega greiðslu
í viðskiptum eða sem greiðslu á
m.a. sköttum. Einnig hefur það
traust sem einstaklingar bera til
ríkisvaldsins, og sömuleiðis vissa
um samþykki annarra einstaklinga,
mikla þýðingu fyrir samþykki þessa
gjaldmiðils. Hann hefur ýmsa kosti
fram yfir aðra gjaldmiðla. Meðal
annars þann að lög segja að ein-
staklingar skuli samþykkja hann
sem greiðslu í viðskiptum og nota
1 GALTALÆKTARSKÓGI
VERSLUNARMANNAHELCIN 29. JULI - l.ACUST
GUNNA 15ÁRA
Eitthvað
FYRIR
ALLAi
DANSSYNING
UNjGLINGA- ,
HLIQMSVEITIR I
STORATJALDINU
DÖNSK
UNGLINGAHLJOMSVEIT
SÉR UNGLINGA-
TJALDSTÆÐI
HÆFILEIKAKEPPNI
SIGGI 39ARA
ALLI 9 ARA
ARA
FRITT FYRIR 12
OG YNGRI
BARNADANSLEIKIR
HJÓLREIÐAKEPPNI
BARNASKEMMTUN
TÍVOLÍ
FRÁBÆR LEIKTÆKI
ÚR dAGSkRÁNNI
HLJÓMSVEIT
BIRGIS GUNNLAUGSSONAR
ÓMAR RAGNARSSON
PÁLMI GUNNARSSON
FJÖRKARLAR
KVASS
QUE
JÓN PÁLL
JÓHANNES KRISTJÁNSSON
ÖKULEIKNI
BRÚÐUBÍLLINN
ÞORVALDUR
HALLDÓRSSON
FINE COUNTRY KIDS
LEIKIR OG KEPPNI
ÍSLANDSMEISTARAR
■ í DANSI
O.M.FL.
_______
GOÐ JJALQ- OG
HJOLHYSASTÆÐI
3 DANSJLEIKIR
A PALLI
KVÖLDVÖKUR
GÖNGULJilÐIR í
NAGRENNI
KEPPNI í ÖKULEIKNI
AÐ ÓGLEYMDU...
AN
An;N.»s Q8
VEITINGAHUS
VATNSSALERNI
FLUGELDASÝNING
VARÐELDUR
HELGISTUND
RÚTUFERÐIR BSÍ
SVÆÐISÚTVARP
talnaeiningu hans, sem þýðir að
umreikna þarf aðrar mælieiningar
yfir í hana. Annar kostur er að inn-
byrðis samsvörun hans er algjör,
sem þýðir að ekki þarf að eyða tíma
í gæðarannsókn. Hann er því ávallt
jafn gjaldgengur burt séð frá hand-
hafa hans. Af öðrum eiginleikum
hans má nefna að hann túlkar mikl-
ar fjárhæðir á fyrirferðarlítinn hátt,
er deilanlegur og varanlegur. Hann
lýkur viðskiptum samkvæmt lögum,
sem t.d. gjaldmiðill (2) gerir ekki
nauðsynlega. Þá hefur hann stöð-
ugt verðgildi í nútíð, sem t.d. vissar
tegundir gjaldmiðils (2) hafa ekki;
þ.e.a.s. að þær geta haft mismun-
andi verðgildi vegna mismunandi
upplýsinga einstaklinga.
Líklegt er að notkun gjaldmiðils
(3) aukist í hagkerfí þar sem traust
milli manna fer minnkandi, en réni
við aukið traust. Þá er líklegt að
aðstæður eins og óðaverðbólga og
veikt ríkisvald dragi verulega úr
notkun hans, en ýti aftur undir
notkun gjaldmiðils (1). í flestum
hagkerfum verða til stofnanir, s.s.
seðlabankar, sem sjá um útgáfu
gjaldmiðils (3) og eftirlit með lögum
og reglum varðandi gjaldmiðla al-
mennt.
b. Hvað eru peningar?
Gjaldmiðlar sem einstaklingar
samþykkja sem endanlega greiðslu
í viðskiptum eru kallaðir peningar
til aðgreiningar frá öðrum gjald-
miðlum, sem notaðir eru í viðskipt-
um. Slíkt samþykki hvílir á innra
virði gjaldmiðilsins, trausti til útgef-
andans eða valdi hans. Þannig er
gjaldmiðill (1) peningur vegna innra
virðis hans og gjaldmiðill (3) vegna
lagaákvæða þar að lútandi. Hið
sama gildir ekki um gjaldmiðil (2),
þar sem hann er loforð um greiðslu
á gjaldmiðli (1) eða gjaldmiðli (3).
Slík loforð eru aldrei algjörlega
traust eða að minnsta kosti þurfa
ekki allir einstaklingar að vera
meðvitaðir um að svo sé. Þó má
Jóhann Rúnar Björgvinsson
„Það að byrja á öfugum
enda og tengja krónuna
við myntvog væri al-
gjört glapræði og það
mjög alvarlegt. Slík
tenging myndi í fyrsta
lagi hvetja mjög til er-
lendrar lántöku og inn-
lendrar peningaútgáfu
og því ýta undir verð-
bólgu.“
líta svo á að loforð sumra stofnana,
s.s. banka og sömuleiðis fjársterkra
fyrirtækja, séu því sem næst algjör-
lega traust, og því notuð sem pen-
ingar ef flestir einstaklingar eru
meðvitaðir um traust þeirra. Þá
ábyrgjast yfirvöld í sumum tilfellum
að vissum loforðum verði fullnægt,
sem gerir þau að peningum. Dæmi
um slík loforð eru bankaávísanir
og greiðslukort.
II. Peningamagn
Skilgreina má peningamagn sem
summu þeirra gjaldmiðla sem ljúka
Aldrei minna í
Þórisvatni en í apríl
Harður vetur og mikið álag aðalor-
sökin, segir álagsstjóri
Vatnsyfirborð Þórisvatns, sem
er uppistöðulón Landsvirkjunar
við Þjórsá og Tungnaá, hefur
aldrei verið lægra en í lok april-
mánaðar en þá fór það niður í
563,35 m yfir sjávarmáli. Það er
11 sm lægra en það hefur verið
lægst en það var í mars 1981.
Til samanburðar má geta þess
að fullt vatn er 577,04 m. Að
sögn Birgis Guðmannssonar,
álagsstjóra Landsvirkjunar, er
ekkert óeðlilegt að vatnsyfirborð
fari svo lágt. „Veturinn var harð-
ur og mikið álag á virkjunum,
svo við áttum von á þessu. Svipað
gerðist 1981, ári áður en Hraun-
eyjarfossvirkjun var tekin notk-
un, núna bíðum við Blönduvirkj-
unar og þeirri bið ætti að ljúka
innan 2 ára.“
Að sögn Birgis er nýbúið að
dýpka frárennslisskurð við Vatns-
föll og því meira vatn til miðlunar.
Því sé í lagi að það lækki meira í
vatninu á komandi árum. Birgir
sagði að bjátaði eitthvað á, væri
skorin niður afgangsorka en hún
fer að mestu til stóriðju og kyndi-
stöðva.
Árni Benediktsson, stöðvarstjóri
Búrfellsvirkjunar sagði ástæðu
vatnsskortsins fyrst og fremst vera
mikið álag, en það hafi aukist méira
en gert hafí verið ráð fyrir í orku-
spá. „Það hefur verið gert of mikið
af því að tala um að við eigum svo
mikla umframorku. Fyrir nokkrum
árum var blásið út að við ættum
allt of mikið af umframorkugetu
og að slíkt kostaði þjóðarbúið svo
mikið. Þá var gerð orkuspá þar sem
gert var ráð fyrir mun minni orku-
þörf en í fyrri spám. Síðan hefur
orkunotkun aukist meira en sagði
í orkuspánni og nú er selt meiri
afgangsorka en gert var ráð fyrir.“
Ámi sagði að Þórisvatn hefði
sjaldan fyllst eins vel og fyrir síðast-
liðinn vetur en hann hafi verið frem-
ur kaldur og snjóléttur. Því séu líkur
á lélegu vatnsári í vetur þ.e. ef
sumar og haust verði þurr. „Brugð-
ið getur til beggja vona þar til
Blönduvirkjun verður tekin í notk-
un. Verði afgangsorka seld of lengi
fram eftir vetri, getum við lent í
vandræðum næsta vor.“
Graeoum
Graéðum
G'æðU"''tita
is\and9i!±I
^ HLAUPAREIKNINGUR
BUNAÐARBANKINN
ÁTAK í LANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120,105 REYKJAVtK