Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
29
Indlandi:
•• ________
Ofgamenn í Punjab
myrða æðstaprest
Amritsar, Bombay. Reutcr.
Aðskilnaðarsinnar af trúflokki sikha í Punjab á Indlandi skutu
i gær einn af fimm æðstuprestum sikhatrúarinnar og annan mann
einnig, háttsettan starfsmann musterisráðsins í ríkinu. Þá tók ind-
verski herinn að sér að gæta laga og réttar í ríkinu Gujarat og
er ástæðan sögð sú, að lögreglan i ríkinu hafi verið i uppreisnarhug.
Ráðist var á mennina í borginni
Ludhiana og lést Sohan Singh, sem
nýlega var skipaður æðstiprestur
í Gullna hofinu í Amritsar, strax
en Bhan Singh, starfsmaður must-
erisráðsins, skömmu síðar á
sjúkrahúsi. Þriðji maðurinn, einnig
starfsmaður musterisráðsins, ligg-
ur illa haldinn á spítala.
Öfgamenn höfðu sakað Sohan
Singh um samstarf við stjómina í
Nýju Delhi vegna þess, að hann
átti þátt í að helgihald var aftur
tekið upp í Gullna musterinu eftir
tíu daga umSátur hermanna í maí
sl. Hafa þeir útnefnt æðstupresta
úr eigin röðum. í Punjab hafa
nærri 1.600 manns látið lífið það
sem af er árinu í árásum öfga-
manna og átökum þeirra við her-
menn.
Indverskir hermenn hafa tekið
að sér löggæslu í Gujarat-ríki í
Vestur-Indlandi en stjórnin þar
sakar lögregluna um að hafa grip-
ið til alls kyns óhæfu í launabarátt-
unni. Formaður lögreglufélagsins
og 20 lögreglumenn aðrir hafa
verið handteknir fyrir „alvarlega
glæpi" og 55 félagar þeirra reknir
úr starfi.
Reuter
Danmörk:
Naut drepur
roskin hjón
Bogense, Danmörku. Reuter.
SÁ atburður varð í Bogense
í Danmörku nú um helgina,
að mannýgt naut varð roskn-
um hjónum að bana. Voru
þau að ganga sér til skemmt-
unar en höfðu hætt sér inn
fyrir girðinguna þar sem
boli var geymdur.
Hjónin, sem létust, Anna og
Edvin Jörgensen, gengu mikið
um nágrennið sér til heilsubótar
en nautseigandinn segist hafa
margvarað þau við að fara inn
fyrir girðinguna þar sem nautið
var og 20 aðrir gripir. Þau
sinntu þeirri viðvörun ekki alltaf
og í þetta sinn með þeim afleið-
ingum, að nautið tróð þau und-
ir sér og stangaði til bana.
Norodom Ranariddh (t.h.), sonur Sihanouks, og fulltrúi skæruliðahreyfingar Sihanouks við friðarviðræð-
urnar í Indónesíu, sést hér ræða við fulltrúa Rauðu khmeranna, Khieu Samphan, skömmu eftir komu
þeirra til Djakarta, höfuðborgar Indónesiu, á sunnudag. Fyrstu viðræður striðandi aðila í landinu í tíu
ár hófust á sunnudag.
Viðræður hafnar um frið-
arsamninga í Kambodíu
Bojror, Indónesíu. Washincrton. Reuter. ^ J
Bogor, Indóncsíu. Washington. Reuter.
VÍETNAMSKIR sendimenn og fulltrúar frá ríkum Suðaustur-
Asíubandalagsins, ASEAN, hófu í gær að taka þátt í óformlegum
friðarviðræðum sem fjórir stríðandi aðilar í Kampbodíu byijuðu á
sunnudag í Indónesíu. í Kambodíu berjast annars vegar hermenn
leppstjórnar Víetnama sem hefur aðsetur i höfuðborginni Pnom
Penh og er undir stjórn Hun Sen, hins vegar þijár skæruliðahreyf-
ingar er beijast gegn sljórninni og hafa verið að nafninu til sam-
einaðar.
ana, sterkustu skæruliðahreyfing-
una, um að reyna að ganga á milli
bols og höfuðs á hinum tveim hreyf-
ingunum.
Rauðu Khmerarnir réðu lögum
og lofum í landinu í nokkur ár.
Stjórn þeirra varð fræg að endem-
um fyrir grimmd og ofstæki; talið
er að þeir hafi drepið meira en eina
milljón af sjö milljónum íbúa lands-
ins. Kínveijar hafa stutt Rauðu
Khmerana gegn Víetnömum og
leppstjórninni í Pnom Penh en Víet-
Norodom Sihanouk, foringi
næst-stærstu skæruliðahreyfingar-
innar og áður var sameiginlegur
forystumaður skæruliðahreyfing-
anna, sagði nýlega af sér síðar-
nefndu stöðunni og hætti á síðustu
stundu við að taka þátt í viðræðun-
um en sendi son sinn í staðinn.
Hann hefur sakað Rauðu Khmer-
namar gerðu innrás í Kambodíu í
árslok 1978 og veltu Rauðu Khmer-
unum úr sessi. Víetnamar hófu
fyrir skömmu að flytja herlið sitt
á brott frá landinu og segjast ætla
að ljúka því verki fyrir 1990. Að
undanförnu hafa kínverskir ráða-
menn gefið í skyn að þeir æski
þess ekki að Rauðu Khmeramir
verði aftur einráðir í Kambodíu.
Sihanouk er nú í opinberri heim-
sókn í Indónesíu og ræðir við þar-
lenda ráðmenn um möguleikaá friði
í Kambodíu. í viðtali við bandaríska
dagblaðið Washington Post, sem
birtist í gær, segir Sihanouk að
hann hafi sagt af sér forystu
skæruliðahreyfinganna til að veikja
og einangra Rauðu Khmerana.
Hann sagði einnig að þau ríki sem
styddu Rauðu Khmerana yrðu að
taka á sig fulla ábyrgð á þeim
fjöldamorðum sem hefjast myndu
í Kambodíu ef Rauðu Khmerarnir
tækju þar aftur öll völd eftir brott-
flutning víetnamska hernámsliðs-
ins.
Forsætisráðherra leppstjórnar-
innar í Pnom Penh, Hun Sen, lýsti
því yfir í gær að stjórn hans vildi
að Sihanouk yrði í fosæti nefndar
stríðsaðilanna ijögurra er skipu-
leggja skyldi kosningar í landinu.
Setja skyldi á laggirnar alþjóðlega
nefnd til að hafa umsjón með vænt-
anlegu friðarsamkomulagi þar sem
kveðið væri á um brottflutning alls
víetnamska herliðsins fyrir mars
1990. Hann ítrekaði fyrri kröfur
um að skæruliðaher Rauðu khme-
ranna yrði leystur upp.
Reutcr
Júmbóþota Air France stórskemmd á flugvellinum í Nýju Dehlí eft-
ir misheppnað flugtak.
Engan sakaði þótt flug-
takið misheppnaðist
Nýju Dehlí, Reuter.
ENGAN sakaði þegar júmbóþotu
franska flugfélagsins Air France
hlekktist á í flugtaki frá flugvell-
inum i Nýju Dehli á Indlandi á
sunnudag. Hætti flugstjórinn við
flugtak með þeim afleiðingum að
þotan rann útaf brautinni og stór-
skemmdist.
Um borð í þotunni voru 260 fare-
þegar og 15 manna áhöfn og kom-
ust þeir á svipstundu út um neyðar-
dyr flugvélarinnar. Hún var á leið
frá Peking til Parísar með viðkomu
í Nýju Dehlí.
Eldur kviknaði í einum fjögorra
hreyfla þotunnar í flugtaksbruninu
og ákvað flugstjórinn þá að hætta
við flugtak. Talsverðar skemmdir
urðu á skrokk og vængjum flugvél-
arinnar þegar hún rann útaf flug-
brautinni og rifnuðu hreyflarnir m.a.
af vængjunum.
Hjóiiaskilnaðir á Ítalíu:
Fékk skilnað eftir 27 ár
Eiginkonan sem var vildi ekki lögskilnað og tók lög-
fræðipróf í háskóla til að geta farið í kringum lögin.
Frá Hrynju Tomer fréttaritara Morgunblaðsins.
„ÉG er kaþólsk og samþykki því ekki skilnað sem lausn á hjóna-
bandi," segir Arneodo Severina 60 ára gömul kona sem í 27 ár
hefur komið í veg fyrir lögskilnað við fyrrverandi eiginmann
sinn. í síðustu viku var hjónabandinu hins vegar opinberlega slit-
ið og getur Felice Alleda nú loksins kvænst sambýliskonu sinni,
Önnu Maríu Bongioanni, en þau hafa búið saman í 25 ár og eiga
22 ára gamlan son. Fyrrverandi eiginkonan, sem er læknir og
sérfræðingur í barnalækningum, barnasálfræði og með háskóla-
gráðu i almennri sálfræði, settist á skólabekk eftir að hún skildi
að borði og sæng. Hún ákvað að leggja stund á lögfræði og læra
að „fara í kringum lögin“ til að komast hjá lögskilnaðinum. Hjóna-
leysin hafa hins vegar leitað til Evrópudómstólsins í Strasborg
og hyggjast höfða mál á hendur ítalska ríkinu sem þau telja að
hafi sýnt fram á „ótrúlega óreiðu og skriffinnsku" sem hafi „skað-
að þau andlega og fjárhagslega."
Sumum finnst ótrúlegt að þau til (lögskilnaður var löggiltur efir
Felice og Anna María skuli ekki
láta hér við sitja, gifta sig og lifa
áfram í sátt og samlyndi í stað
þess að halda áfram endalausum
réttarhöldum í þessu lengsta
skilnaðarmáli á Ítalíu. Arneodo
Severina, sem nú er sextug, gift-
ist Felice árið 1960, fyrir 28 árum.
Eftir aðeins eins árs hjónaband
slitu þau samvistum og Felice tók
saman við Önnu Maríu tveimur
árum síðar. „Þegar við giftum
okkur, voru lög um skilnað ekki
þjóðaratkvæðagreiðslu árið
1976). Þess vegna giftum við
okkur, sannfærð um að hjóna-
bandið entist til æviloka,“ segir
Arneodo Severina og bætir við:
„Þó lögum sé breytt, á hugsunar-
háttur fólks ekki að breytast í þá
veru að loforð séu svikin."
„Það er hneykslanlegt að í vest-
rænu þjóðfélagi skuli svona lagað
geta gerst á 20. öld,“ segir Anna
María, sem innan skamms mun
giftast Felice hjá borgardómara.
Hjónaleysin búa í Róm, en Ame-
odo Severina býr ásamt sjötugum
bróður sínum í Tórínó. „Hún sagði
við mig, þegar við skildum að
borði og sæng að hún myndi aldr-
ei gefa mér eftir skilnaðinn," seg-
ir Felice. „Og henni hefur tekist
vel upp í þetta skipti. En við höf-
um ákveðið að leita til mannrétt-
indadómstóls Evrópu því við vilj-
um benda á þetta mál, alla þessa
lagalegu flækju sem tekið hefur
27 ár. Svona lagað á ekki að geta
átt sér stað,“ segir hann mæðu-
lega. Felice er læknir eins og fyrr-
verandi eiginkona hans, en Anna
María er hjúkrunarfræðingur.
Sonur þeirra er í lögfræðinámi
auk þess sem hann þykir mjög
efnilegur tenórsöngvari.
Hljóðið í fyrrverandi eiginkon-
unni, lækninum, sálfræðingnum
og lögfræðingnum Ameodo Se-
verinu er dauft þessa dagana. „Ég
samþykki ekki þennan skilnað.
Italska ríkið hefur svikið mig, en
verstu svikin voru þegar Felice
yfirgaf mig fyrir 27 árum.“