Morgunblaðið - 26.07.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
31
ísraelar kveðja leyniþjón-
ustumenn heim frá Bretlandi
London. Daily Telegraph.
FIMM ísraelskír leyniþjónustu-
menn hafa verið kvaddir heim
frá Bretlandi að krofu brezku
sljórnarinnar og er talið að þeir
Ungveijaland:
Kauphöll
ánæstaári
Búdapest. Reuter.
UNGVERJAR munu opna
fyrstu kauphöll Austur-Evrópu
í janúar á næsta ári, að sögn
ungversku fréttastofunnar MTI
í gær. í Iandinu er fyrir eini
skuldabréfamarkaður komm-
únistaríkjanna og í mars síðast-
liðnum var byrjað að gefa þar
út ríkisskuldabréf.
MTI hafði eftir embættismanni
að kauphöllin í Búdapest yrði rek-
in sem hlutafélag og yrðu við-
skipti bundin við félaga í kauphöll-
inni. 26 bankar og úármálafyrir-
tæki, sem tengjast skuldabréfavið-
skiptum, munu leggja til menn í
stjóm kauphallarinnar en auk þess
verður sett á stofn nefnd til að
fylgjast með ijármálasiðgæði.
hafi farið frá London með þot-
um ísraelska ríkisflugfélagsins
E1 A1 undir lok siðustu viku.
Leyniþjónustumennirnir höfðu
starfað í Bretlandi þrátt fyrir að-
varanir brezkra yfirvalda en fengu
fyrirmæli um miðja síðustu viku
að hafa sig á brott. Þeir vom ekki
með réttindi stjórnarerindreka,
heldur dvöldust í Englandi undir
því yfírskyni að þeir væru kaup-
sýslumenn.
ísraelsk stjómvöld höfðu ekki
tekið aðvaranir um að hætta starf-
semi leyniþjónustumanna Mossad
í Bretlandi alvarlega. ísraelska
stjómin afréð hins vegar í síðustu
viku að kalla leyiþjónustumennina
heim til þess að stofna sambúð
ríkjanna ekki í hættu.
Palestínumaður að nafni Ismael
Sowan, sem bjó í Hull, játaði í
síðasta mánuði að hafa njósnað
fyrir ísrael og varð það til þess
að alvarleg snurða hljóp á þráðinn
ERLENT
Lestarslys íSviss
Reuter
Fimmtán manns slösuðust lítillega í gær er farþegalest rakst á
vöruflutningalest í bænum Aigle í vesturhluta Sviss. 150 manns
voru í farþegalestinni, sem var á leið frá Mílanó til Genfar.
í sambúð Breta og ísraela. Sowan
var dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir
ólöglegan vopnaburð. Jafnframt
var ísraelskum sendiráðsmanni
vikið úr landi og öðrum, sem var
íjarverandi, ekki leyft að snúa til
baka.
A sama tíma var Zaki al-Hawa,
sendifulltrúa Frelsisfylkingar Pa-
lestínumanna (PLO) í Bretlandi,
vísað úr landi þar sem í ljós kom
að hann var félagi í svokallaðri 17.
sveit PLO.
Reuter
Armeni sýnir ljósmyndir af hinum 22 ára gamla Khachik Zakharjan
sem var drepinn i átökum milli hermanna og armenskra mótmæ-
lenda 5. júlí siðastliðinn við Jerevan-flugvöll í Sovét-Armeníu. Ljós-
myndirnar voru sýndar erlendum fréttamönnum á fjöldafundi við
armenska kirkjugarðinn í Moskvu á sunnudag.
Verkföllin í Armeníu:
Forystumenn andófs-
ins senn yfirheyrðir
Moskvu. Reuter.
LEIÐTOGAR kommúnistaflokks Sovét-Armeníu hvöttu til þess á
sunnudag að hafnar yrðu aðgerðir gegn forystumönnum andófs og
verkfalla í landinu vegna deilunnar um Nagorno-Karabak. Þetta kom
fram í fréttum sovésku fréttastofunnar TASSá sunnudag. Sagt var
að í meira en hundrað verksmiðjum í landinu hefði verið unnið um
helgina til að bæta upp framleiðslutap síðustu tvær vikur.
Fréttastofan sagði leiðtogana og flokksfélögum, sem tekið hefðu
hafa boðað rannsókn á starfsemi þátt í andófinu, yrði refsað. Emb-
þeirra sem stjórnað hefðu andófinu, ættismönnum, sem bæru ábyrgð á
einkum svonefndri Karabak-nefnd, jámbrautaflutningum í Nagomo-
Grikkland:
Hafnar viðræður um
bandarískar herstöðvar
Aþenu. Reuter.
FULLTRÚAR ríkisstjórna
Grikklands og Bandarikjanna
hófu í gær nýjar viðræður um
framtíð bandarískra herstöðva í
Grikklandi. Grikkir ákváðu ný-
lega að endurnýja ekki sam-
komulag um herstöðvarnar og
rennur það út um næstu áramót.
Fulltrúar ríkjanna hafa átt sjö
viðræðufundi frá því í nóvember og
stendur því áttunda lotan yfir núna.
Talsmenn Grikkja sögðu að ákvörð-
un stjórnarinnar 13. júlí sl. um að
endumýja ekki herstöðvasamkomu-
lagið þýddi að samið yrði frá grunni.
Samkvæmt ákvörðun Grikkja
hafa Bandaríkjamenn frest fram í
júní 1990 til að loka herstöðvunum
og flytja um 3.700 hermenn heim.
Grikkir hafa sett það meðal annars
sem skilyrði fyrir nýju herstöðva-
samkomulagi að Bandaríkjamenn
taki afstöðu með þeim í deilunni
við Tyrki um Kýpur. Hafa stjórn-
völd í Washington ekki viljað ljá
máls á því þar sem tvö NATO-ríki
eiga í hlut.
Karabak, yrði gert að bæta það tjón
sem verkföllin hafa valdið. Mörg
hundmð jámbrautavagnar í hérað-
inu bfða þess að verða afhlaðnir og
matvæli í gámum liggja undir
skemmdum.
Leiðtogamir viðurkenndu að þeir
hefðu ekki fylgst nógu vel með
starfsemi Karabak-nefndarinnar
sem stofnuð var í febrúar til að
hvetja til sameiningar Nagorno-
Karabak og Armeníu. Héraðið Nag-
'orno-Karabak er undir stjórn Az-
erbajdzhan þótt íbúanir séu flestir
Armenar.
Flokksmálgagnið Pravda sagði á
sunnudag að enn væri ótryggt
ástand í Stepanakert, helstu borg
Nagomo-Karabaks, en allsheijar-
verkfall hefur lamað héraðið síðan
í mars. Blaðið sagði að almenningur
í héraðinu vildi nú að verkföllum
yrði þegar í stað hætt vegna þes
fjárhagslega tjóns sem þau bökuðu
fólki.
Formaður deildar kommúnista-
flokksins í héraðinu hvatti til þess
í sjónvarpsávarpi á föstudagskvöld
að verkföllum yrði hætt. Sovéska
sjónvarpið sagði að almennings-
farartæki hefðu enn ekki hafíð
akstur í Stepanakert en vart yrði
ljóst fyrr en eftir helgi hvort verk-
föllum væri að fullu lokið.
Lattu það
eftirþér
aðlíta ÍIUI - úrvalið ermeira en þiggrunar
PS. Ráöhenadeildin opnuó íágúst 88. Vertu í vióbragösstööu!
„ VMMlRMeti
iMÍ&zi tHeyjtvi & o*i*c0uz&4&afiK
Laugavegi 45 - Sími 11388
á frábœrum fatnaÖi frá vörumerkjum, sem gefa línuna
Wk
qoectoi.;
A
So/íicta
PAR