Morgunblaðið - 26.07.1988, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Rannsóknir á
norðurslóðum
Þróunin á álmörkuðum fram til ársins 2001:
Markaðshorfur
Atlantal hagsta
Rekstrarkostnaður nýs álvers í Straumsvík undir meðaltali
[ úttekt James F. King kemur fram að rekstrarkostnaður Atlantal e
önnur álver í heiminum á síðasta ári.
Rekstrarkostnaður álvera árið 1987.
Dollarar á tonnið
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 1 1 12
Framleiðslugetan í milljónum tonna á ári.
Á þessari mynd sést hver rekstrarkostnaður Atlantal er miðað við
önnur álver í heiminum.
Vilhjálmur Stefánsson var
einn helzti frumkvöðull
rannsókna á norðurslóðum.
Vísindastörf hans lögðu
grunn að þeim rannsóknum,
sem nú fara fram á þessum
svæðum. Hann kom upp einu
stærsta bókasafni um heim-
skautasvæðin, sem til er og
kom því fyrir til geymslu í
Dartmouth-háskóla í Banda-
ríkjunum. Það er því vel við
hæfi, að ráðstefna nokkurra
vísindamanna og sérfræðinga
frá Bandaríkjunum, Kanada,
Sovétríkjunum, Noregi, Dan-
mörku og íslandi um þessi
svæði skuli haldin hér á landi
en hún er upphaf margra ára
samráðs.
í viðtölum Morgunblaðsins
sl. laugardag við nokkra þátt-
takendur á þessari ráðstefnu
kom fram, að sóknin inn á
þessi svæði verður stöðugt
meiri og þörfin fyrir samstarf
og rannsóknir því brýn. Oran
Young, prófessor, við Dart-
mouth-háskóla, er einn
fremsti sérfræðingur Banda-
ríkjamanna um norðurslóðir
nú um stundir. Hann sagði
m.a. í viðtali við Morgun-
blaðið: „Áhrifín af vaxandi
hemaðarumsvifum og auk-
inni sókn í auðlindir verða
ekki séð fyrir. Vistkerfi norð-
urheimskautsins er ákaflega
viðkvæmt og þau spjöll, sem
þar eru unnin, mást aldrei
burt. Því er mikilvægt, að
menn fari sér hægt og kanni
hlutina til hlítar.“
Kanadískur prófessor,
Frank Griffith, sagði m.a.:
„Tæknimenningin hefur rofið
einangrun frumbyggja á
norðurslóðum og gjörbylt lífi
þeirra á skömmum tíma.
Þessar öru breytingar valda
félagslegum vanda og margir
vísindamenn spyija sig, hvort
ekki hafí verið teflt á tæpasta
vað. Ibúar þessara svæða
telja, að örlög þeirra séu í
hendi ráðamanna, sem hafa
lítinn sem engan skilning á
aðstæðum."
Bandarískur sérfræðingur,
Melvin Conant, vakti athygli
á því í samtali við Morgun-
blaðið, hvað við Islendingar
eigum mikilla hagsmuna að
gæta. Hann sagði m.a.: „Við
höfum verið ákaflega heppin
og engin stórslys hafa orðið
á norðurslóðum. í raun er
ótrúlegt, að ekkert hafi kom-
ið upp á. Eitt slys á borð við
það, sem varð á borpalli í
Norðursjónum á dögunum
eða alvarlegur olíuleki mundi
valda hræðilegum skaða á
vistkerfinu, ef það gerðist á
norðurhjara . . . Afkoma ykk-
ar byggist á fiskveiðum og
eitt slys gæti lagt efna-
hagslífið í rúst. Það þyrfti
ekki að gerast í grennd við
ísland, því allt vistkerfið er
samþætt og ástand hrygning-
arsvæða, hafstraumar og
margbrotin fæðukerfi hafa
áhrif á vöxt fiskstofnanna við
landið. Það er því full þörf á
því, að íslendingar hugi að
þessum málum og beiti áhrif-
um sínum á alþjóðavettvangi,
þar sem ákvarðanir eru tekn-
ar um þessi mál.“
Hér á íslandi hafa ekki
farið fram miklar umræður
um norðurslóðir. Eyjólfur
Konráð Jónsson, alþingis-
maður, er sá íslenzkra stjóm-
málamanna, sem helzt hefur
beint athygli almennings, Al-
þingis og ríkisstjórna að þess-
um svæðum með tillöguflutn-
ingi og umræðum á Alþingi.
Ráðstefna sú, sem hér var
haldin var ekki á vegum opin-
berra aðila. Hún ætti hins
vegar að verða til þess að
auka áhuga okkar á að fylgj-
ast með því, sem þarna er
að gerast.. Eins og Melvin
Conant bendir á eigum við
mikilla hagsmuna að gæta.
Þótt Vilhjálmur Stefáns-
son hafi alið aldur sinn í út-
löndum, leit hann á sig sem
íslending og við lítum á hann
sem íslending. Merkilegt ævi-
starf hans ætti að verða okk-
ur Islendingum hvatning til
þess að láta okkur einhveiju
skipta, það sem gerist á þess-
um svæðum. Fordæmi hans
ætti einnig að verða til þess
að efla rannsóknir hér heima
fyrir á heimskautasvæðun-
um. Við ræðum það stundum,
hvernig þessi litla þjóð geti
bezt látið til sín taka á al-
þjóðavettvangi og í samskipt-
um þjóða. Málefni norður-
slóða snerta beint og óbeint
okkar hagsmuni. Þess vegna
eru þau kjörin vettvangur
fyrir okkur til þess að láta
nokkuð að okkur kveða.
mun þörfin á hrááli aukast um
nokkur hundruð þúsund tonn
á ári næstu tíu árin vegna auk-
innar eftirspurnar og lokunar
álvera. Innan Evrópubanda-
lagsins er reiknað með að þörf-
in á innfluttu áli muni nema
um 2 milljónum tonna árið
1996 samanborið við 1 milljón
tonn 1986. Hefðbundnir fram-
leiðendur eins og Noregur
geta á engan hátt annað þess-
ari auknu þörf og því verður
Evrópubandalagið að leita út
fyrir álfuna eftir áli,“ segir
m.a. í niðurstöðum úttektar
sem breskur sérfræðingur
James F. King hefur gert um
þróunina á álmörkuðum í
heiminum fram til ársins 2001.
Úttekt þessi var gerð fyrir
ATLANTAL verkefnið en svo
nefnist hópur þeirra fjögurra
álfyrirtækja sem nú vinna að
hagkvæmniskönnun fyrir nýtt
álver í Straumsvík. Úttekt
þessi hefur að geyma ýmsar
athyglisverðar upplýsingar
sem gefa ítarlega til kynna
áhuga þann sem er á byggingu
eins álvers eða fleiri hérlendis
á næstu árum.
I niðurstöðum úttektarinnar
segir svo: „Við þessar kringum-
stæður verða tollar mikilvægara
atriði í kostnaðarmyndun álsins
en þeir voru í fortíðinni. Aukinn
innflutingur á áli frá tollfijálsum
svæðum verður því mjög áhuga-
verður fyrir kaupendur. A heildina
litið eru markaðsaðstæður fyrir
Atlantal verkefnið hagstæðar." í
þessu sambandi má nefna að 6%
tollmúr er um innflutning á áli til
Evrópubandalagsríkjana en þar
sem Atlantal fyrirtækin eru að
hluta innan bandalagsins myndu
þau sleppa við þann toll.
Úttekt sú er hér er flallað um
var gerð fyrir Atlantal-hópinn í
fyrra. í henni kemur fram að á
tímabilinu 1987 til 1996 er búist
við að töluverðum fjölda álvera í
Evrópu og Bandaríkjunum verði
lokað sökum mikils framleiðslu-
kostnaðar, mengunarvandmála og
fleira. Þessi þróun er þegar komin
á skrið í Bandaríkjunum þar sem
nokkrum fjölda álvera hefur verið
lokað og nefna má að eitt af Atl-
antal fyrirtækjunum, Austria
Metall, er með í verkefninu þar
sem það neyðist til að loka álveri
sínu f Ranshofen innan næstu
þriggja ára.
Aukin eftirspurn
næstu tíu árin
Samkvæmt úttekt James F.
King er áætlað að eftirspum eftir
áli á Vesturlöndunum muni stöð-
ugt aukast næstu tíu árin og að
þau álver sem áformað er að
byggja innan þeirra á þessu tíma-
bili muni hvergi nærri anna þeirri
eftirspum. Reiknað er með að
munurinn milli framboðs og eftir-
spumar nái hámarki á árinu 1992
og verði þá um 1 milljón tonn.
Undir lok aldarinnar er síðan
reiknað með að jafnvægi komist
á aftur þar sem innflutningur á
áli frá svæðum eins og Miðaust-
urlöndum og Suðaustur Asíu komi
inn í dæmið. Tímasetningar á
byggingu álvera á þessum tveimur
svæðum eru hinsvegar of óljósar
til að hægt sé að segja nákvæmar
fyrir um hvenær jafnvægi næst.
Nokkur af löndum Evrópu eins
og Noregur, Holland, Spánn,
Júgóslavía og ísland eru útflytj-
endur á hrááli. Þrátt fyrir þetta
er Evrópa nú á heildina litið inn-
flytjandi á áli og nemur sá innflut-
ingur tæpri hálfri milljón tonna á
ári. Til samanburðar má nefna að
árið 1981 flutti álfan út meira af
áli en hún flutti inn. Hér skal tek-
ið fram að ríki Austur Evrópu eru
ekki meðtalin. Sem fyrr segir er
reiknað með að eftirspurn umfram
framleiðslugetu muni nema mill-
jón tonnum árið 1992. Þessi tala
lækkar aðeins er frá líður og verð-
ur 900.000 tonn árið 1996. James
F. King reiknar með að sú tala
haldist svo stöðug í framtíðinni.
Ef núverandi aðilar að Evrópu-
bandalaginu eru teknir út úr
myndinni kemur í ljós að eftir-
spum þeirra umfram framleiðslu-