Morgunblaðið - 26.07.1988, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 1988
Kk
Bylgjan fækkar starfsmönnum:
Endurskipulagning á rekstr-
inum og aukin hagræðing
- segir Páll Þorsteinsson útvarpsstjóri
ÚTVARPSSTÖÐIN Bylgjan
mun í næsta mánuði fækka tölu-
vert starfsfólki sínu bæði í dag-
skrárgerð og fréttum. Nú eru
15 dagskrárgerðarmenn starf-
andi á Bylgjunni en verða 10. Á
Steve Marriott á sviðinu í Hollywood.
Morgunblaðið/Árni Sœberg
Steve Marriot í Hollywood:
Kom hressi-
lega á óvart
Tónlist
Sveinn Guðjónsson
SEGJA má að Steve Marriott,
fyrrum liðsmaður „Small Fac-
es“ og „Humble Pie“ hafi kom-
ið hressilega á óvart í Holly-
wood um helgina. Þó er viðbúið
að sumir samkomugesta hafi
orðið fyrir vonbrigðum því
kappinn harðneitaði að taka
„Sha La La La Lee“ þrátt fyrir
mikinn þrýsting viðstaddra.
Þess í stað hellti hann yfir liðið
mergjaðri blús-tónlist og sýndi
þar að hann er i toppformi sem
söngvari í þeirri tegund tónlist-
ar.
Hljómsveit Marriotts, „The
DT’s“ hóf leikinn og á fyrstu tón-
unum var ljóst að það stefndi í
skemmtilega blústónleika með
hressilegu rokkívafi. Hljómsveitin
var með þéttan og góðan hljóm
og þeir félagar stóðu allir vel fyr-
ir sínu seni hljóðfæraleikarar.
Þegar þeir höfðu „hitað upp“ með
nokkrum lögum birtist Mariott á
sviðinu, lágvaxinn, í smekkbuxum
og hárið tekið að þynnast. Við
komu hans á sviðið þyngdist tón-
listin svolítið og óneitanlega voru
viðtökurnar dálítið blendnar. Þeir
sem á annað borð vissu hvar þeir
voru staddir þetta kvöld létu sér
vel líka og margir höfðu á orði
að Marriott væri mun betri en
þeir höfðu átt von á. Ég get vel
tekið undir það og í hreinskilni
sagt eru ár og dagar síðan ég hef
heyrt og séð betri blússöngvara á
sviði hér á landi.
Þær misjöfnu væntingar sem
menn gerðu til Marriotts þetta
kvöld eru þó skiljanlegar í ljósi
þess að hann var á sínum tíma
stórstjama í breskri popptónlist
og bæði Small Faces og Humble
Pie þóttu með merkari rokksveit-
um hér í eina tíð. Af útvarpsaug-
lýsingum fyrir helgina, þar sem
meðal annars var leikið stef úr
„Sha La La La Lee“, mátti líka
ráða að Marriott myndi taka eitt-
hvað af gömlu topplögunum frá
þessum árum. Þeir sem komu í
Hollywood í þeirri trú urðu því
að vonum fyrir vonbrigðum og
fóru að ókyrrast þegar líða tók á
tónleikana. Mér er kunnugt um
að forráðamenn hússins hafí lagt
nokkuð hart að Marriott að láta
undan þessum þrýstingi „gömlu
aðdáendanna" en hann verið ófá-
anlegur til þess á þeim forsendum
að hann stæði og félli með þeirri
tónlist sem hann leikur í dag.
Hann tók þó lagið „All or Not-
hing“ með miklum titþrifum og
við mikinn fögnuð viðstaddra.
I/agið er enda „klassísk" perla í
rokktónlistinni og líklega það
besta, sem Marriott og Ronnie
Lane, sömdu á Small Faces tíma-
bilinu.
Óhætt er þó að fullyrða að
hörðustu aðdáendur Steve Marri-
otts og aðrir blúsaðdáendur, sem
staddir voru í húsinu fyrir tilvilj-
un, áttu þarna hina ánægjule-
gustu kvöldstund. Það er því full
ástæða til að þakka forráðamönn-
um Hollywood fyrir það merka
framtak að fá þennan ágæta tón-
listarmann hingað til lands. Það
er ekki á hverjum degi sem menn
fá svona „trakteringar" á öldur-
húsum borgarinnar.
fréttastofunni fækkar frétta-
mönnum úr 6 í 3. Páll Þorsteins-
son útvarpsstjóri segir að hér
sé um endurskipulagninu á
rekstrinum að ræða og að með
þessu sé stefnt að aukinni ha-
græðingu í starfsemi stöðvar-
innar og bættri dagskrá.
„Með þessum breytingum stefn-
um við að því að allir starfsmenn
við dagskrárgerð og fréttir séu í
fullu starfi hjá stöðinni,“ segir
Páll. „Með fækkun fréttamanna
munum við hverfa frá því frétta-
formi sem verið hefur og taka upp
ýmsar nýjungar í fréttaflutningi."
í máli Páls kemur fram að þetta
hafi í för með sér að fréttatímum
fækki úr því að vera á klukkutíma
fresti í að þeir verði á tveggja tíma
fresti en á móti komi aukið frétta-
tengt efni í dagskrárgerðinni
sjálfri. „Það má segja að við séum
að gera sama hlutinn og Stjarnan
gerði fyrir nokkru er sú stöð fækk-
aði starfsmönnum sínum,“ sagði
Páll.
Minnisbók í veganesti til Óslóar
Bókaforlagið Bókrún hf. gefur öllumm konum, sem fara á Norr-
ænu kvennaráðstefnuna í Ósló, minnisbók í veganesti. Á mynd-
inni er Björg Einarsdóttir (t.v.) formaður Bókrúnar hf. að af-
henda Kristínu Mantylíi skrifstofustjóra ASÍ Minnisbók Bókrúnar
1988. Á annað hundrað konur frá Alþýðusambandi íslands fara
á ráðstefnuna. Alls fara héðan um 700 konur og getur hver og
ein þeirra fengið þessa minnisbók, svo lengi sem birgðir endast.
Vilja má bókanna hjá forlaginu. Norræna kvennaráðstefnan,
„Nordisk Forum“ stendur yfir dagana 31.7. - 7.8. næstkomandi.
(Úr fréttatilkynningy)
Menn með sjálfstœðan crivinnurekstun
HÆKKUN
Á LÁGMARKI
REIKNAÐS
ENDURGJALDS
íSTAÐGREÐSLU
Viðmiðunartekjur reiknaðs endurgjalds hækkuðu
1. júlí sl. í samræmi við þróun launa og tekna,
sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1987.
Þannig hœkkar lágmark viðmiðunartekna íöllum
flokkum (A-G) um 6.7% mánuðina júlí-desember frá
þvísem það var fyrir júnímánuð. Ekki þarfað hœkka
viðmiðunarfekjur þeirra sem áðurhafa reiknað sér
endurgjald viðmiðunarfekna 6,7% hœrri en iágmark.
Dæmi um lágmarks mánaðarlaun í flokki B1:
Mánaðarlaunjanúar-júní lágmark 137.750
Mánaðarlaun júlí-desemberlágmark 146.979
RSI<
RÍKISSKATTSTJÓRI
Vb
ingawOnustan/SIa