Morgunblaðið - 02.09.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
199. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afganistan:
Kabúl-flugvöllur
stóreyðilagður
í eldf laugaárás
Islamabad, Reuter.
AFGANSKIR skæruliðar gerðu í
gær eldflaugaárás á Kabúl-flug'-
Svíþjóð:
Leijon braut
gegn stjórn-
arskránni
Stokkhólmj. Reuter.
Stjómarskrárnefnd sænska
þingsins lýsti því yfir í gær, einum
rómi, að Anna-Greta Leijon fyrr-
um dómsmálaráðherra hefði brot-
ið ákvæði stjórnarskrárinnar er
hún samþykkti leynilega rann-
sókn á morðinu á Olof Palme for-
sætisráðherra. í þingnefndmni
eiga sæti fulltrúar allra flokka.
Formaður þingnefndarinnar og
flokksbróðir Leijons, Olle Svensson,
sagðist álíta að ráðherrann hefði
ekki framið afbrotið af ásettu ráði.
Aðrir nefndarmenn voru þessu
mjög ósammála. „Sé því haldið fram
að Anna-Greta Leijon hafí ekki vitað
hvað hún var að gera er það móðg-
un við konu sem var ráðherra í
meira en áratug," sagði Bertil Fiske-
sjö fulltrúi Miðflokksins.
Leijon sagði af sér embætti í júní
eftir að upp komst um rannsóknina
sem fjármögnuð var af einkaaðilum.
Ingvar Carlsson forsætisráðherra
hefur heitið Leijon því að hún hljóti
aftur sæti í ríkisstjóm sigri jafnaðar-
menn í þingkosningunum 18. sept-
ember.
völl og urðu gífurlegar skemmd-
ir af hennar völdum. Ein eld-
flauganna hæfði skotfæra-
birgðageymslu og að sögn vest-
ræns stjórnarerindreka i Kabúl
stendur vart steinn yfir steini á
flugvellinum.
Samkvæmt frásögn stjómarer-
indrekans varð sprengingin klukk-
an 15.45 að staðartíma og varð
hennar vart um alla borgina. „Okk-
ur var sagt að einhverjar flugvélar
hefðu eyðilagst, en hversu margar
veit ég ekki,“ sagði hann. „Völlur-
inn er í rúst eftir sprenginguna."
Kabúl-útvarpið greindi frá því
að fjórir hefðu látist og níu særst,
þegar eldflaugar lentu inni í borg-
inni, en ekki var greint frá neinu
mannfalli á flugvellinum.
TASS, hin opinbera fréttastofa
Sovétríkjanna, staðfesti að spreng-
ing hefði orðið á flugvellinum: „í
dag gerðu stjómarandstæðingar
mikla eldflaugaárás á alþjóðaflug-
völlinn í Kabúl,“ sagði í frétt TASS.
„Afleiðingar þessarar villimannlegu
árásar voru þær að vörugeymslur
og flutningavélar eyðilögðust."
Undanfarna daga hafa skærulið-
ar gert harða hríð að Kabúl-flug-
velli og valdið talsverðum skemmd-
um á honum. Vestrænir stjórnarer-
indrekar segja að með þessari
síðustu árás hafi afganskir skæru-
liðar enn sannað getu sína til hem-
aðar í nágrenni borgarinnar þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir sovéska
innrásarhersins og hers leppstjórn-
arinnar til þess að uppræta þá.
Reuter
Svíi skipaður
samningamaður SÞ
\
Svínn Jan Eliasson var í gær skipaður sérlegur samningamaður
í friðarviðræðum írana og íraka, sem fram fara undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna. Eliasson er vel kynntur bæði í Teheran og
Bagdað, en hann var hægri hönd Olofs Palme, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Svíþjóðar, sem var sérstakur erindreki Sameinuðu
þjóðanna í Persaflóastríðinu á árunum 1980-86. Eliasson er 47
ára gamall og hefur starfað um árabil í sænsku utanríkisþjón-
ustunni. í sjálfum friðarviðræðunum situr við sama og streitast
málsaðilar við að ræðast við augliti til auglitis.
Reuter
Pershing-flaugarnará brott
Bílalest lagði upp frá bandariskri herstöð
skammt frá Heilbronn i Vestur-Þýskalandi i
gær, en með henni voru fyrstu Pershing-2-
kjarnorkueldflaugarnar, sem upprættar eru
samkvæmt Washington-sáttmálanum um upp-
rætingu skamm- og meðaldrægra kjarnaflauga,
sem undirritaður var í desember siðastliðnum.
Alls voru níu flaugar fjarlægðar að þessu sinni,
en þær verða teknar í sundur í herstöð í Haus-
en, nærri Frankfurt. Sjálfar flaugarnar verða
fluttar flugleiðis til Bandaríkjanna, þar sem þær
verða eyðilagðar, en ekki var látið uppi hvar
kjárnaoddarnir verða, gerðir óvirkir.
Pólland:
Þúsundir hætta verk-
föllum að beiðni Walesa
Gdansk, Reuter.
ÞÚSUNDIR Pólveija hættu
verkfalli í gær eftir að Lech
Walesa leiðtogi hinnar ólöglegu
verkalýðshreyfingar hvatti
menn til þess að láta af þeim,
en verkföllin höfðu staðið í 17
daga. Eftir að verkamenn í
Gdansk (Danzig) höfðu fallist á
að snúa aftur til vinnu fylkti
mikill fjöldi verkfallsmanna liði
undir stóreflis krossi eftir götum
borgarinnar.
Tekið var á móti u.þ.b. 3.000
verkamönnum með blómum og
kossi þegar þeir þrömmuðu út úr
Lenín-skipasmíðastöðinni syngjandi
ættjarðarsöngva. Verkfalli var
einnig hætt í þremur skipasmíða-
stöðvum öðrum í borginni og í stál-
iðjuveri í suðurhluta landsins.
Verkamennimir urðu við hvatn-
ingu Walesa eftir að stjórnvöld til-
kynntu á miðvikudag að þau væru
til viðræðu um að Samstaða yrði
lögleyfð á ný, en hún var bönnuð
þegar herlög voru sett í landinu
árið 1982. Czeslaw Kiszcack hers-
höfðingi og innanríkisráðherra reif-
aði þennan möguleika á fundi sínum
með Walesa á miðvikudag.
Ekki var vitað til þess í gær-
kvöldi að enn væru verkföll nema
í einni kolanámu í suður-Póllandi.
Þá höfðu hafnarverkamenn í Stettin
ekki enn tekið afstöðu til óskar
Walesa.
Biskupar í Póllandi lýstu því yfír
í gær að þeir myndu ræða málefni
hvers einasta verkamanns, sem rek-
inn yrði vegna verkfallsins, við
ríkisstjórnina.
Afskipti Walesa ollu talsverðri
ólgu meðal verkfallsmanna og er
hermt að hann hafí þurft að taka
á öllu sínu til þess að fá verkfalls-
menn til liðs við sig. Þrátt fyrir að
meginkrafa verkfallsmanna hafí
verið að fá opinbera viðurkenningu
á Samstöðu, hefur Samstaða í raun
ekki tengst verkfallsaðgerðunum
nema að litlu leyti. Segja fréttaskýr-
endur að kynslóðaskipti hafi orðið
í verkalýðshreyfíngunni og að nú
stjómi yngri menn ferðinni en em
í forystu Samstöðu.
Ankara. Reuter.
TURGUT Ozal, forsætisráðherra I
Tyrklands, hét því í gær að stjóm I
hans myndi aðstoða eftir megni
Kúrda sem flúið hafa tugþúsund-
um saraan til landsins frá írak
að undanförnu. íraksstjórn gerir
nú harða hríð áð skæruliðum
Kúrda í norðurhémðum landsins,
en þeir hafa lengi barist fyrir
sjálfsljórn.
Að sögfn Ozals hafa um 60 þús-
und manns, aðallega konur og böm,
komið yfír landamærin síðastliðinn
mánuð. Sumir heimildarmenn telja
þó að talan 150 þúsund sé nærjagi.
Flóttamennirnir segja að írakar
beiti efnavopnum og napalm-
sprengjum í tilraunum sínum til að
ganga á milli bols og höfuðs á
skæruliðunum. Tyrkir hafa aukið
viðbúnað sinn í þeim héruðum er
liggja að írak.
Eftir að bardögum lauk í Persa-
flóastríðinu hafa Irakar aukið mjög
árásir sínar á skæruliðana, sem
í viðræðum sínum við verkfalls-
menn sagði Walesa að fundur hans
með Kiszcack innanríkisráðherra
hefði verið „ægilegur" og játaði að
hann hefði ekki fengið neina trygg-
ingu fyrir því að banninu gegn
Samstöðu yrði aflétt.
„En við getum ekki áorkað neinu
frekar núna,“ sagði hann. „Þessi
ákvörðun er ekki tekin af hugleysi
heldur ábyrgð."
I m.a. njóta stuðnings tyrkneskra
I Kúrda.
Reykingar á Kýpur:
50.000
króna sekt
Nikósíu, Reuter.
50.000 króna sekt bíður nú
Kýpurbúa, sem staðnir eru að
reykingum nær hvarvetna á
almenningsstöðum, jafnvel í
danshúsum.
Lögum þessum er ætlað að
fylgja eftir herferð stjómvalda
gegn reykingum á eynni, en þær
eru eiriar hinar mestu í heimin-
um. Á síðasta ári reykti hver
Kýpurbúi að meðaltali 202 pakka
af vindlingum.
Tyrkland:
Kúrdum heitíð aðstoð