Morgunblaðið - 02.09.1988, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1988
Engutíkt
Aukin fagleg þjónusta við
syrgjendur er nauðsynleg
- segir dr. Colin Murray Parkes geðlæknir
DAUÐINN þykir ekki þægilegt umræðuefni. Við missi
ástvinar er algengt að aðstandendur reyni að halda aftur
af sorginni og sinni daglegum störfum eins og ekkert hafi
í skorist. Síðustu ár hefur þó gætt breytinga í þessum
efnum. Málefni syrgjenda eru nú rædd á opinberum vett-
vangi og þjónusta við þá er sífellt að aukast. Hér á landi
voru Samtök um sorg og sorgarviðbrögð stofnuð á síðasta
ári. Þau hafa staðið fyrir fræðslu- og umræðufundum
fyrir syrgjendur í vetur. Félagar I samtökunum eru nú
um 300. A síðasta fundi samtakanna flutti dr. Colin Murray
Parkes geðlæknir erindi um sorgina og viðbrögð við henni.
Dr. Parkes er formaður bresku samtakanna Cruse sem
annast margs konar þjónustu við syrgjendur á Bretlands-
eyjum.
Dr. Parkes var inntur eftir því
í hveiju starfsemi Cruse væri helst
fólgin. „Hjá Cruse starfa 3.000
sjálfboðaliðar sem allir hafa hlotið
þjálfun við ráðgjöf syrgjenda,“
segir dr. Parkes. „Samtökin reka
útibú á 150 stöðum víðs vegar
um Bretlandseyjar. Þjónusta
þeirra hefur sífellt verið að auk-
ast en áhersla er meðal annars
lögð á námskeiðahald fyrir fólk
sem starfs síns vegna þarf oft að
kljást við sorgina og afleiðingar
hennar." Dr. Parkes segir faglega
þjónustu við syrgjendur mjög
nauðsynlega. „Ég hef haldið nám-
skeið fyrir presta, lækna og hjúk-
runarfólk, en það eru helst þessir
aðilar sem syrgjendur leita til við
missi ástvinar. Fólk í heilbrigðis-
stéttum þarf ekki síst að þekkja
líkamleg áhrif sorgarinnar og
hvemig bregðast skuli við þeim.
Aukin fagleg þekking þeirra sem
fást við málefni syrgjenda er að
mínu áliti nauðsynleg.“
Syrgjendur eru ekki einungis
þeir sem -misst hafa maka, börn
eða ástvini. Einnig er reynt að
mæta þörfum þeirra sem eiga
dauðvona ástvini. Dr. Parkes telur
að búa megi fólk undir missi og
hjálpa því að horfast í augu við
sorgina.
Reiði og sektarkennd
Oft reynist erfitt að sætta sig
við missi ástvinar, ekki síst ef
missinn ber brátt að. „Það er
ekki óalgengt að viðbrögð fólks
einkennist af reiði og sektar-
kennd," segir dr. Parkes. „Margir
þjást af sektarkennd og fínnst
þeir hafa brugðist þeim látna.
Reiðin gerir oft vart við sig hjá
syrgjendum en fólk reynir frekar
að dylja reiðina því að það þykir
ekki viðeigandi að vera reiður út
í látinn mann. Stærstu mistök
flestra syrgjenda eru að reyna að
dylja tilfínningar sínar og láta sem
ekkert sé. Reiðin er til dæmis
hvorki góð né slæm í sjálfri sér
en hana má virkja til góðs.“
„Það er algengur misskilningur
að hægt sé að afgreiða sorgina í
eitt skipti fyrir öll,“ segir dr. Par-
kes. „Hún tekur í raun og veru
aldrei enda og getur minnt á sig
þegar minnst varir. Mun líklegra
er að geðræn vandamál komi í
Morgunblaðið/Bjami
Dr. Colin Murray Parkes flytur erindi á fundi Samtaka um sorg
og sorgarviðbrögð.
ljós ef reynt er að byrgja sorgina
inni í sér. Syrgjendur eru á stund-
um hræddir við styrk tilfinninga
sinna og það getur verið sérstak-
lega erfitt fyrir karlmenn að
sleppa sér.“
„Að sjálfsögðu fylgja daprar
hugsanir og djúp sorg oftast í
kjölfar missis," segir dr. Parkes.
„Hins vegar er nausynlegt að
reyna ekki að forðast sorgina
heldur að vinna úr henni á já-
kvæðan hátt. Takist það er auð-
veldara að horfa til baka og njóta
minninganna um látinn ástvin í
sælu og ró,“ sagði dr. Parkes að
lokum.
- ÞSv.
SPECIIIUM HF
SlMI 29166
Kringlan;
Nýr opnunartími og fleiri bílastæði
AFGREIÐSLUTÍMA verslana í Kringlunni hefur verið breytt, en
vegna samninga Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Kaupmanna-
samtakanna hafa nokkrar verslanir þar ekki getað haft opið á laugar-
dögum í sumar. Verða nær allar verslanir og þjónustufyrirtæki í
húsinu nú opin á laugardögum til kl. 16, en aðra virka daga til kl. 19.
SIEMENS
VHS myndbandstæki
FM560
Lárétt stjórnborð, HQ-
tækni, 14daga upptöku-
minni f. 4 þætti, 32 stöðva
minni, sjálfvirkurstöðva-
leitari, hraðupptaka,
myndleit í báöar áttir á
níföldum hraða, endur-
tekning myndskeiðs,
þráðlaus fjarstýring, raka-
vörn ásamt öðru.
Verð 31.900.-
Sjónvarpsmyndavél
FA108
Myndavél og sýningarvél
í einu tæki, fyrirferðarlítil
og aðeins 1,27 kg. 8 mm
myndband, CCD-mynd-
skynjari, sexföld súmlinsa,
sjálfvirk skerpustilling,
mesti lokarahraði 1/1500
sek. (gottf. íþróttaupptök-
ur)o. m. fl.
Verð 82.990.-
SMrTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
EinU undantekningamar frá
þessum opnunartfma eru pósthúsið,
áfengisverslunin og bankaútibúið.
Kaffíhúsið í Kringlunni er opið leng-
ur á fóstudögum og laugardögum
og matsölustaðir eru opnir alla daga
vikunnar til kl. 21, og veitirigahúsið
Hard Rock til kl. 23:30. í flestum
fyrirtækjanna er opnað kl. 10 á
morgnanna.
í þessum mánuði verða tekin í
notkun 400 ný bílastæði. Þá verður
rúm fyrir alls 1600 bíla í Kringl-
unni og næsta nágrenni hennar.
Viðskiptavinir þurfa ekki að greiða
bílastæðagjald eða í stöðumæla.
Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim, sem
glöddu mig á 80 ára afmceli mínu 9. ágúst
meÖ heimsöknum, gjöfum og skeytum.
Lifiö heil.
SvanhvítL. Guömundsdóttir.
VERSLUNAR-
INNRETTING
BEANSTALK verslunarinnrétting til sölu.
Einnig 3 m kæliborð, kjötsög og farsvél.
Selst á góðu verði.
Upplýsingar í síma 82680 eða í Matkaup hf.,
Vatnagörðum 6.
NÓATÚN,
Nóatúni 17
Rebbie Jackson.
Rebbie Jack-
son skemmtir
í Evrópu
Veitingahúsið Evrópa heldur
upp á tveggja ára starfsafmæli
í kvöld. í tilefni afmælisins mun
bandaríska söngkonan Rebbie
Jackson skemmta gestum í Evr-
ópu.
Rebbie Jackson hefur sent frá
sér þtjár hljómplötur. Hún er systir
söngvarans heimskunna Michaels
Jacksons.
Melsölublad á hveijum degi!