Morgunblaðið - 02.09.1988, Side 28

Morgunblaðið - 02.09.1988, Side 28
<» 28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBEfi 1.988 Steinsteypa: Sama verð, misjafn afsláttur Morgunblaðið/Rúnar Þór Akureyrarkirkja var þétt setin við skólasetninguna enda metaðsókn að Verkmenntaskólanum í ár og nemendur nú 1.051 talsins. Vegna fréttar á Akureyrarsíðu laugardaginn 27. ágúst þar sem haft er eftir Aðalgeiri Finnssyni að steypuverð hafi verið mun hærra á Akureyri en í Reykjavík vill Hólmsteinn Hólmsteinsson, framkvæmdastjóri Malar og sands hf. á Akureyri, að það komi fram að steypuverð samkvæmt verðlist- um er það sama hjá Möl og sandi hf. og BM-Vallá í Reykjavík og hefur verið í mörg ár. „Stærri verktakar á Akureyri geta hinsvegar fengið allt að 20% stað- greiðslu- og viðskiptaafslátt. Vitað er að aðilar í Reykjavík geta fengið eitthvað- hærri afslátt, allt að 30%, en þess ber að geta að í Reykjavík er markaðurinn mun stærri, um 20 sinnum stærri. Þar er því hægt að beita mun meiri hagræðingu og þar er unnið nær óslitið við steypuvinnu allan ársins hring. Á Akureyri er lítið sem ekkert steypt í fjóra til fimm mánuði að vetrinum. Færanlegar hrærivélar, sem talað er um í greininni,.geta átt rétt á sér í vissum tilvikum, en með því að skipta við steypustöðvar, sem hafa reynslu í gerð steinsteypu, og hafa eftirlit með sinni framleiðslu er minni hætta á því að steypan standist ekki þær kröfur sem upp eru settar. Ný- legt dæmi um þess háttar steypu- galla er brú í Hörgárdal sem steypt er úr umræddri færanlegri hrærivél, þar sem steypan er nær ónýt og brúin jafnvel þar með,“ segir í at- hugasemd framkvæmdastjóra Malar og sands hf. Istess hf.: Vantar geymslu BRÝN þörf er á uppbyggingu lag- erhúsnæðis fyrir fóðurverksmiðju fyrirtækisins ístess hf. sem er staðsett í Krossanesi. Þar er hluti birgðanna geymdur auk þess sem verksmiðjan er með leiguhúsnæði Verkmenntaskólinn á Ak- iireyri settur í fimmta sinn Fimmta starfsár Verkmennta- skólans á Akureyri hófst í gær þegar Baldvin Bjarnason skóla- meistari setti skólann við hátíð- lega athöfn í Akureyrarkirkju. Kennsla hefst á mánudag. Fjöldi nemenda hefur aldrei verið meiri en nú og hefur þurft að gripa þess ráðs að vísa nemendum frá námi vegna þrengsla. í dag- skóla er fjöldi nemenda 921, sem skiptist þannig að 84 eru á heil- brigðissviði, 47 á hússljórnar- sviði, 94 á uppeldissviði, 53 á íþróttabraut, 43 í fornámi, 346 á tæknisviði og 254 á viðskipta- sviði. í öldungadeild er fjöldi nemenda 130 sem er svipað og verið hefur. Innritaðir nemendur eru því samtals 1.051. Á síðasta vori var kannað hvort áhugi væri fyrir því meðal sjúkra- liða með eldra próf að bæta við þekkingu sína með því að sækja skóla með þriðja bekk sjúkraliða. Áhuginn reyndist mikill því 58 sóttu fcum og nú í haust hefja átján starf- andi sjúkraliðar með eldra próf nám við skólann. Kennslan fer einungis fram á fimmtudögum þannig að röskun fyrir þær heilbrigðisstofnan- ir, sem sjúkraliðamir vinna hjá, er í lágmarki. Mynduð verður bekkjar- 'asMíií HOTEL KEA O Hin frábæra hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi laugardagskvöld. Kristján Guðmundsson leikur fyrir matargesti. Hótel KEA deild þar sem sitja saman sjúkra- liðanemar og þeir fyrmefndu. Allt er þetta gert með góðu samkomu- lagi við Akureyrardeild Sjúkraliða- félags íslands og hefur Margrét Pétursdóttir kennslustjóri heilbrigð- issviðs skipulagt námið. Þá koma nemendur á hársnyrtibraut aftur í skólann eftir ársdvöl hjá meistara og verður kennt þriðju annar náms- efni sem jafnframt er lokaönnin hjá nemendunum. Kórstarf verður tekið upp við skólann í ár og hefur Jó- hann Baldvinsson tónlistarkennari og organisti í Glerárkirkju verið ráðinn til starfans. Enn fremur verður boðið upp á leiklist sem val- grein og mun Pétur Eggerz leikari sjá um kennslu. Baldvin sagði að breytingar á starfsliði skólans væru meiri nú en áður. Bemharð Haraldssyni skóla- meistara var veitt orlof til eins árs vegna náms við Kaupmannahafnar- háskóla í vetur. Ólafur Búi Gunn- laugsson lét af starfi áfangastjóra og tók við starfi skrifstofustjóra Háskólans á Akureyri. Þær Ingunn Bjömsdóttir og Ólöf Þórhallsdóttir kennarar á hússtjómarsviði hafa sagt störfum sínum lausum auk þess sem Óttar Einarsson hefur fengið ársleyfi. Fjöldi kennara í dagskóla er 76, þar af eru 19 í hálfu starfí eða minna. Baldvin sagði að um þessar mundir væri verið að steypa upp 5. áfanga VMA sem er bygging sem tengir saman önnur hús sem áður voru risin á Eyrarlandsholti. „Allt er á huldu með hvenær hægt verð: ur að fara að nota þessa byggingu vegna óvissu í peningamálum. Það er hinsvegar mikið tilhlökkunarefni að fá þetta hús til afnota því það ætti að geta orðið eins og annað heimili nemenda þar sem þeir geta unnið sín verkefni í friðsæld bóka- safnsins og fengið sér hressingu á teríunni og rabbað við skólasystkini þegar litið er upp úr bókunum." Skólameistari sagði að nýju fram- haldsskólalögin breyttu litlu fyrir Verkmenntaskólann á haustönn- inni, en um næstu áramót tæki ríkið alfarið við rekstri skólans sem hing- að til hefði skipst jafnt á milli ríkis og bæjar. Reynslan yrði að skera úr um hvemig til tækist, en sam- kvæmt lögunum eiga allir fram- haldsskólar landsins að kenna eftir sömu námská svo að auðveldara verði að flytja sig milli skóla. í lok setningarræðu sinnar sagði Baldvin: „Á þeim tímum sem við lifum nú á, er greinilegt að þögnin á ekki upp á pallborðið hjá ungu fólki. Ekki þarf annað en að líta inn á staði, sem ætlaðir eru yngri kyn- slóðinni — þar er oftar en ekki hávaði sem er meiri en hollt þykir. Eg held að þið farið nokkurs á mis með því að reyna ekki að njóta þagnarinnar þar sem hana er að fínna. Veljið ykkur jafnvel vini, sem gott er að þegja með. í þögninni er líka best að hlusta eftir röddinni í eigin bijósti sem hvetur ykkur til góðra verka.“ á tveimur stöðum í bænum undir vörubirgðir. Guðmundur Stefánsson fram- kvæmdastjóri ístess hf. sagðist ekki búast við að ráðist yrði i framkvæmd- ir fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. Ársframleiðsla fyrirtækisins er átta til níu þúsund tonn af fískafóðri. íst- ess hf. er í 26% eigu Krossanesverk- smiðjunnar, sem Akureyrarbær á, 26% eigu Kaupfélags Eyfírðinga og 48% eigu Skretting í Noregi. Meiri- hluti framleiðslu fóðurverksmiðjunn- ar, 70-80%, fer á markað í Noregi og Færeyjum og hitt fer á innan- landsmarkað. „Það sem verst er við innanlandsmarkaðinn, er að flestallir viðskiptaaðilar okkar í fiskeldinu búa við mjög slæm rekstrarskilyrði og bitnar það vissulega á okkar fyrir- tæki. Þeir eru með rekstrarlán, sem hrökkva ekki nærri því nóg fyrir því sem fyrirtækjunum ber að standa undir. Því verðum við einfaldlega að lána þeim út í reikning. í Færeyjum og Noregi er fískeldið komið lengra á veg. Fyrirtækin þar hafa starfað mun lengur og eru betur í stakk búin til að taka skakkaföllum. Einn- ig virðist sá almenni rekstrarvandi, sem hér ríkir, ekki sjáanlegur hjá Færeyingum og Norðmönnum. Tómas Hermannsson, Bogi Pálsson og Arnar Þorsteinsson. Morgunblaðið/Rúnar Þór Akureyringar á alþjóð- legu skákmóti í London Fjórir ungir skákmenn úr Skák- félagi Akureyrar tóku þátt í fjöl- mennu, alþjóðlegu skákmóti i Lon- don dagana 19. ágúst til 29. ágúst. Tefldar voru tíu umferðir eftir Monrad-kerfi. Alls tóku 180 skák- menn þátt i mótinu, allt frá áhuga- mönnum upp í stórmeistara. Akur- SKOLAVORUR Verslun á tveimur hæöum Kaupvangsstræti 4 sími 26100 Akureyri SK0LA- REIKNIVELAR Verslun á tveimur hæöum Kaupvangsstræti 4 sími 26100 Akureyri BOKVAX. RITVÉLAR Kaupvangsstræti 4 sími 26100 Akureyri eyringamir, sem þátt tóku i keppninni, eru Jón Garðar Viðars- son, Tómas Hermannsson, Amar Þorsteinsson og Bogi Pálsson. Sigurvegari á mótinu var 16 ára undrabam frá Englandi, Adams að nafni. Hann hlaut níu vinninga. Þeg- ar fjórum fyrstu skákunum var lokið stóð hann aðeins uppi með tvo vinn- inga, en síðan tók að birta til hjá honum og hann vann allar aðrar skákir. Amar og Jón Garðar fengu sex vinninga hvor og var Jón Garðar aðeins einum vinningi frá því að hljóta alþjóðlegan áfanga. Bogi hlaut fimm og hálfan vinning og Tómas fímm vinninga. Þeir Tómas, Amar og Bogi vom allir í Menntaskólanum á Akureyri í fyrra og sameiginlega tefldu þeir fyrir hönd MA ásamt Magnúsi Pálma frá Bolungarvík 5 íslandsmeistara- keppni framhaldsskóla I skák. Sveit MÁ varð íslandsmeistari. Fyrir dyr- um stendur Norðurlandamót í skák sem haldið verður á Akureyri í lok september. „Mótið í London var eins- konar undirbúningur fyrir sveita- keppnina í því móti, en auk þess að mynda sveit saman, keppum við sem einstaklingar. Magnús Pálmi fór þó ekki með okkur út, en hann keppti á alþjóðlega skákmótinu á VestQörð- um um daginn sem Helgi Ólafsson sigraði í,“ sagði Tómas í samtali við Morgunblaðið. Fjórmenningamir vom ánægðir með skipulagningu mótsins. Teflt var á Ramada-Inn-hótelinu í London og sagði Tómas mótið hafa verið mjög góðá æfíngu og þeir félagamir reynslunni ríkari. „Við höfum allir farið í keppnisferðir til Banda- ríkjanna með unglingalandsliðinu og í sumar fór ég með unglingalandslið- inu til Kaupmannahafnar þar sem Norðurlandaþjóðimar tefldu saman," sagði Tómas.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.