Morgunblaðið - 02.09.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1988
guðurver-
BreiðhO't
VETRARDAGSKRA '88 - ’89
Haustnámskeið hefst 5. september.
Vetrarnámskeið i hefst 3. október.
Vetrarnámskeið II hefst 14. nóvember.
Vetrarnámskeið III hefst 9. janúar.
Vetrarnámskeið IV hefst 20. febrúar.
ÞOLAUKANDI OG VAXTAMOTANDI ÆFINGAR
Byrjendur I og II og framhald I
FRAMHALDSFLOKKAR I OG II
Lokaðirflokkar
KERFI ^ RÓLEGIR TÍMAR j Fyrir eldri konur og þær, sem þurfa að fara varlega
MEGRUNARFLOKKAR
Fjórum sinnum í viku
r _hhhhhhhhhi
KERFI | 1 a FYRIR UNGAR OG HRESSAR Teygja-þrek-jazz. Eldfjörugirtímar með léttri jazz-sveiflu
KERFI „LOW IMPACK" - STRANGIR TÍMAR
Hægar en erfiðar æfingar, ekkert hopp en mikil hreyfing
SKOLAFOLK
Hörku pul og svitatímar
ATH! Efþú ert með á haustnámskeiðinu
færðu 5% afslátt af vetrarnámskeiði I
NYTT-NYTT
Innritun l A/ý/ kúrinn slær ígegn!!
stenduryfirj [28+7
undir stjórn Báru og Önnu
ATH'.
Kynniðykkurafsl*itt-
JXZSXí,-
inn
Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988
Morgunblaðið/Einar Falur
Georg Guðni Hauksson, Hulda Hákon, ívar Valgarðsson, Jón Óskar
og Tumi Magnússon.
Listasafn íslands:
Fimmsýnaí
FIMM ungir listamenn sína verk
sín í Listasafni íslands frá 3.
september- 2. október nk. Þeir
eru Georg Guðni Hauksson,
Hulda Hákon, ívar Valgarðsson,
Jón Óskar og Tumi Magnússon.
í fréttatilkynningu frá Listasafni
Islands segir að allir séu listamenn-
imir í hópi hinna áhugaverðustu
sem fram hafa komið hérlendis á
september
síðustu árum. Þeir hafa allir stund-
að nám við MHÍ og framhaldsnám
erlendis, ýmist í Evrópu eða Banda-
ríkjunum.
Alls verða á sýningunni 25 verk,
skúlptúrar og málverk, flest unnin
á þessu ári. Sýningin opnar klukkan
14 á laugardag og verður síðan
opin alla daga, nema mánudaga,
klukkan 11-17.
Stöð tvö sækir um
lóð á Réttarhálsi
STÖÐ 2 sótti í vikunni um rúmlega 13 þúsund fermetra lóð á Réttar-
hálsi 3 og vísaði borgarráð umsókninni til borgarverkfræðings. Að
sögn Jóns Óttars Ragnarssonar, sjónvarpsstjóra, er þetta liður í
langtíma skipulagi stöðvarinnar sem nú leigir á tveimur stöðum í
Krókhálsi. Fréttastofa Stöðvar 2 flytur fyrir desemberbyijun í þriðja
leiguhúsnæðið að Lynghálsi 3.
„Þetta er spuming um hvenær
reksturinn verður það óhagstæður
að við verðum að flytja," segir Jón
Óttar Ragnarsson. „Auðvitað væri
langbest að öll starfsemin færi fram
í húsnæði sem hannað væri fyrir
hana. Við erum þó ekkert að flýta
okkur í byggingarframkvæmdir,
ætlum ekki að ýta undir þenslu í
þjóðfélaginu. Með lóðarumsókninni
er verið að hugsa fímm til tíu ár
fram í tímann þótt verið geti að
Stöð 2 þurfí á nýju húsnæði að
halda fyrr. Líklegt er að við munum
flytja í áfongum ef til kemur.“
Dráttarvélar hf. fengu bygging-
arleyfi á lóðinni að Réttarhálsi 3
fyrir nokkrum árum og gmnnur var
tekinn að húsi. Byggingarleyfið var
afturkallað snemma á þessu ári og
Glóbusi hf. úthlutað lóðinni í mars
en fyrirtækið afsalaði sér henni
nýlega. Kaupverð lóðarinnar verður
líklega sautján til átján milljónir
króna, þar af fímmtán milljónir í
gatnagjöld og þijár í framkvæmda-
kostnað sem borgin leysir til sín
að sögn Ágústs Jónssonar, skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings.
Framfærsluvísitalan hækk-
ar þrátt fyrir verðstöðvun
FYRSTI útreikningurinn á fram-
færsluvísitölunni eftir að verð-
stöðvunin tók gildi verður birtur
hinn 12. september næstkom-
andi. Líklegt er að vísitalan
hækki eitthvað, þar sem hún mun
mæia hækkanir á vörum og þjón-
ustu fyrri hluta ágústmánaðar,
áður en verðstöðvunin tók gildi,
að sögn Georgs Ólafssonar, verð-
lagsstjóra.
Borgin kaup-
ir 5 þúsund
sorptunnur
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
kaup á fimm þúsund sorptunnum
úr plasti fyrir tæpar fjórtán
milljónir króna. Við upphæðina
bætast flutningsgjöld og tollar.
Tunnurnar eru dýrari en svörtu
plasttunnumar enda hitaþolnar, en
Brunamálastofnun hafði gert at-
hugasemd um eldhættu við sorp-
tunnur. Áfram verður notast við
gömlu tunnumar en þær nýju sett-
ar þar sem sérstakrar varúðar er
þörf vegna eldhættu. Málið er nú í
höndum Innkaupastofnunar.
Nýr grunnur framfærsluvísitölu
tók gildi hinn 1. maí á þessu ári
og urðu ýmsar breytingar á vægi
útgjaldaliða. Matvörur em 20,6% í
hinum nýja grunni — sem byggir á
neyslukönnun árið 1985 — en voru
24,6% í eldri grunninum. Drykkjar-
vörur og tóbak eru 4,4%, en vom
5,2%, og fatnaður er 7,9%, en var
áður 9,3%.
Þeir liðir sem vega meira en áður
í nýja grunninúm em annarsvegar
húsnæði, rafmagn og húshitun, sem
vega 16,2% í stað 13,7% áður, og
hinsvegar samgöngur, sem vega
18,9% í stað 15,2%. Aðrir liðir
breyttust lítið, en þeir em húsgögn
og heimilisbúnaður, sem vega 7,4%
í vísitölugrunninum, heilsuvemd,
2,3%, tómstundaiðkun og menntun,
11,0%, og önnur útgjöld 11,3%.
Framfærsluvísitalan er síðan 2/s
af gmnni lánskjaravísitölunnar, en
bygginKarvísitala '/s. Verðlags-
stofnun á að hafa eftirlit með verð-
lagi á nær öllum þeim liðum sem
em í gmnni framfærsluvísitölunn-
ar, en úr þvf fær ekki skorist fyrr
en eftir rúma 10 daga hvort verð-
stöðvunin hafi dregið úr hækkun
hennar. Hún hefur hækkað um
9,3% síðan nýi gmnnurinn var tek-
inn í gildi í maí, sem jafngildir
tæplega 40% hækkun á ári.
Sjá ennfremur miðopnu.