Morgunblaðið - 02.09.1988, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.09.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1988 25 Morgunblaðið/Júlíus Karl Guðmundsson og Sólveig Þórarinsdóttir. Þau voru í gær valin til þess að vera fulltrúar islenskra ungmenna í Heimshlaupinu ’88 í New York. Heimshlaupið ’88: Kom okkur algjörlega á óvart - segja fulltrúar íslands, sem voru valdir í gær pgott ía Það er vel þess virð: að reyna allar þær breytingar, sem gætu orðið til þess að við ykjum verðgildi krónunnar og virðingu fyrir verð- mætum í hugum okkar og hættum þessum gegndarlausa bruðli, sem alls staðar blasir við, Það gildir ekki síður nú, en þegar þjóðin hafði vart í sig eða á, að fara vel með. Verðgildi krónunnar verður aldrei meira en það, sem okkur finnst það vera. Með fijálsri verðlagningu átti samkeppnin að blómstra, en raunin varð sú, að nú vannst frelsi til að halda uppi verði á vörum. í stað þess að koma á hagkvæmari rekstri til að verða samkeppnisfærari, er ' verðlagi haldið uppi og þar með smæð markaðarins nýtt, ekki í hagnaðarskyni, sem hefði verið skiljanlegt, heldur til að halda uppi bruðlinu. Og hveijir eru það svo sem borga brúsann? Það erum við, almenning- ur í landinu. Við sitjum uppi með okkar eigin óráðsíu, en einnig þeirra sem leggja á okkur skattana og selja okkur vöru og þjónustu. Laun ekki afgangsstærð Við viijum byggja hér gott þjóð- félag, ekki aðeins fyrir flesta, held- ur alla. Launamismunur er eðlilegur og virkar sem hvatning til menntun- ar og ábyrgðar. En við verðum að gæta þess, að lægstu laun dugi ávallt til framfærslu meðalfjöl- skyldu. Það er erfitt að hlusta á þau rök að hin og þessi atvinnu- grein beri ekki hærri laun. Sam- viska atvinnurekenda hlýtur að rúma býsna margt, ef þeir geta haldið slíku fram. Laun eru ekki afgangsstærð, heldur fjárfesting í vinnuframlagi fólks, sem leggur sig því betur fram, sem umbunin er meiri. Það á að vera metnaður at- vinnurekenda að framleiða góða vöru eða þjónustu á sem hag- kvæmastan hátt og það næst ekki nema með góðu hráefni og góðu samstarfsfólki og fyrir hvort tveggja þarf að borga. Þetta á ekkert síður við hjá opin- berum fyrirtækjum, en einkafyrir- tækjum. Við megum ekki gleyma því, að í okkar litla landi, má segja að fyr- irfínnist í hverri fjölskyldu fulltrúi hverrar atvinnugreinar. Ég tel það mjög varasamt, ef hér fær að skjóta rótum stétt, sem enga möguleika á á að lifa mannsæmandi lífi og er þá jafnvel þröngvað til að bjarga sér á annan hátt. Aðrar þjóðir berj- ast við að bæta sitt velferðarkerfi til að losna við undirrót allskyns spillingar. Við getum ekki stuðlað að slíku með vanhugsuðum aðgerð- um. Rót efnahagsvandans í upphafi máls míns bar ég fram þá spumingu, hvar rót efnahags- vandans lægi. Með spamaði, bæði hjáfyrirtækj- um og einstaklingum, aukningu á eigin fé fyrirtækja og betri stjómun þeirra, ætti nokkur árangur að nást í að byggja hér upp heilbrigðara efnahagslíf. Það er talað um vanda fiskvinnsl- unnar, en mig langar til að varpa fram þeirri spumingu, er ekki fisk- verðið of hátt? Þó er það eitt sem vinnur gegn heilbrigðara efnahagslífí í dag og það eru skattamir. Tekjuskattur dregur úr fyrir- tækjum að vilja sýna hagnað, sem ætti að vera þeirra aðalmetnaðar- mál. Hár söluskattur, á sama tíma og tekjuskatti er haldið uppi, er til þess eins, að renna stoðum undir svarta hagkerfið svokallaða, svo að það fái blómstrað sem aldrei fyrr. Skattlagning sem verður skattpfn- ing hvetur til þess að leitað er und- ankomuleiða. Það er á stefnuskrá okkar sjálf- stæðismanna að leggja niður tekju- skatt í áföngum og er vonandi, að sem fyrst skapist þær aðstæður að hægt verði að koma því atriði í framkvæmd, sem og svo mörgum öðmm góðum málum, sem bíða betri tíma. Neysluskattur, hvort sem hann heitir söluskattur eða virðisauka- skattur, sem lagður er á allar vömr og þjónustu, ætti að skila sér betur en tekjuskattur sem einungis er lagður á uppgefnar tekjur. Sá vandi sem við höfum nú við að glíma er ekkert nýr af nálinni. Þetta er uppsafnaður vandi margra ára og margra stjóma. En ekki leggjum við árar í bát. Ástandið núna er m.a. hægt að skrifa á erf- itt stjómarsamstarf. Því er mikil- vægara nú en oft áður að standa við bakið á og hvetja okkar menn til að standa fyrir sínu, stjóma með vilja og festu á ábyrgan hátt. Við gemm okkur öll grein fyrir því, að við verðum að beijast ef SjáJfstæðisflokkurinn á áfram að verða stærsti flokkurinn. Það ger- um við best með því að vera trú stefnu flokksins. „Nei, ég bjóst alls ekki við þessu,“ sagði Sólveig Þórarinsdóttir í samtali við Morgunblaðið í gær, aðspurð um hvort hún hefði gert sér góðar vonir um að verða valin til að fara til New York til að taka þar þátt í Heimshlaupinu '88. Hún er annar fulltrúi íslenskra ungmenna sem taka þátt í Heimshlaupinu í New York. Hinn fulltrúinn, Karl Guðmunds- son, tók i sama streng og sagðist ekki hafa búist við að vcrða val- inn. I gær var kunngert hvaða ungmenni fara fyrir íslands hönd. Það var hópur 80 ungl- inga, 14 ára að aldri, sem valið var úr. í fyrstu umferð voru 20 þeirra valdir og úr þeim hópi kaus dómnefnd þau Sólveigu og Karl. Sólveig sagðist hafa frétt af því fyrir helgina að hún hefði verið valin í þennan hóp. „En ég bjóst alls ekki við að vera valin til að fara," sagði hún. „Mér líst bara vel á þetta, held að ferðin verði skemmtileg," sagði Sólveig og kvaðst engu kvíða. Sólveig er Akur- eyringur og elst í fímm systkina hópi. Karl Guðmundsson er Hafnfirð- ingur og elstur þriggja systkina. „Nei, nei, ég hafði enga hugmynd um þetta fyrr en núna. Þetta kem- ur mér alveg á óvart," sagði Karl. Hann hefur áður komið til Banda- ríkjanna og sagði að sér litist mjög vel á þetta ferðalag. Þau Karl og Sólveig iðka bæði íþróttir og samkvæmt úrskurði dómnefndar eru þau valin verðugir fulltrúar íslendinga þar sem þau koma vel fyrir, eru vel að sér og vel máli farin, auk þess sem þau ástunda heilbrigt lífemi. Heimshlaupið '88 fer fram um allan heim samtímis og verður sjón- varpað beint frá því um víða ver- öld. Alls er reiknað með að sjón- varpssendingar nái til um 500 millj- óna manna. Hér á landi verður einn- ig hlaupið og verður tvisvar sinnum-'T sjónvarpað frá því í beinni útsend- ingu. Skipt verður á milli einstakra landa í útsendingunni. í New York hefst hlaupið við byggingu Sameinuðu þjóðanna og verða ungmennin íslensku við þá athöfn. Farastjóri íslensku ung- mennanna verður Hólmfríður Karlsdóttir og munu þau leggja af stað þann 10. september og fara til London. Þar sameinast þau hópi evrópskra ungmenna og munu halda hópinn með þeim. Heim koma þau síðan aftur þann 14. september. Heimshlaupið ’88 er skipulagt af samtökunum Sport Aid í sam- vinnu við Bamahjálp Sameinuðu þjóðanna. Hér á landi er hlaupið < skipulagt í samvinnu við Rauða kross íslands. lefnaviðskiptum Spá um eftirspurn eftir hrááli á Vesturlöndum fram til ársins 1992 Milljónir tonna 16 SPECTOR 1987 88 Igplgg&fo-- 89 90 91 92 Heimild; EAA EAA = European Aluminium Association Spector/Bird/RSI = Markaðsspáfyrirtæki leiijörð úr Gove-námunni í Ástr- Álbirgðir í heiminum eru nú alíu og fær hráál í skiptum. minni en nokkru sinni á undan- ;t fömum tíu árum. Alheimsverð er því hátt. Theodór M. Tschopp, framkvæmdastjóri álsviðs, sagði að álframleiðsluhorfur fyrir næstu ár lægju fyrir í grófum dráttum en óvíst væri hvemig nýting, eða eftirspum, myndi þróast. Hann spáði að hún mundi dragast saman á næstu tveimur árum en aukast aftur innan fárra ára. Álbirgðir muni því aukast og spennan á markaðnum slakna þangað til eft- irspum eykst að nýju. Tschopp telur að álverð muni ekki hrapa þótt eftirspumin minnki af því að alheimsbirgðir verða eftir sem áð- ur fremur litlar. Einn þáttur í endurreisnar- stefnu Alusuisse, eftir að fyrirtæk- ið sigldi í strand, var að draga úr hráefnisvinnslu en auka mikilvægi úrvinnslu á álsviði. Hlutur hráefti- anna er nú 30% á móti iðnaðarvör- um, 40%, og pakkningum, 30%. Forráðamenn voru spurðir hvort þessi ákvörðun hefði verið rétt í ljósi þess hversu hráefnaviðskiptin ganga vel. Þeir töldu að svo hefði verið, minntu á að álverð er mjög sveiflukennt og sögðu að fyrirtæk- ið hefði losað sig við álverksmiðjur sém voru óhóflega dýrar í rekstri. Tschopp benti á í þessu sambandi að Alusuisse væri þátttakandi í hagkvæmnisathugun flögurra ál- Eftirspurn og framleiðsla hrááls á Vesturlöndum í þúsundum tonna Eftirspurn Framleiðsla Nýting framleiðslu Framleiðslunýting mun væntanlega dragast saman eftir tvö ár og birgðir þar af leiðandi aukast. Spennan á markaðnum mun minnka án þess þó að verðhrun verði samkvæmt spádómi Theodors M. Tschopps. fynrtækja á íslandi og sagðist arinnar í samtali við Morgunblað- vera bjartsýnn á útkomu könnun- ið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.