Morgunblaðið - 02.09.1988, Side 36

Morgunblaðið - 02.09.1988, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1988 fclk í fréttum Kirk Douglas: Douglas gefur út metsölubók Kirk Douglas, leikarinn þekkti sem af sumum hefur verið nefndur „elskulegi ruddinn" er 71 árs að aldri. Hann hefur nú gefið út ævisögu sína, „The Ragman’s son“ og hefur hún fengið mjög góða dóma. Hann segir þar meðal annars frá uppvexti sínum, en hann kom úr efnalítilli gyðingafjölskyldu. Kirk, sem hét þá Issur Danielo- vitch, átti erfiða æsku og hlutskipti hans sem gyðings fól í sér barsmíð- ar og aðra niðurlægingu. Samband hans við föður hans var erfitt í gegn um árin og var ýmislegt óupp- gert þeirra í milli. í bókinni tekur hann fyrir samskipti þeirra, sem voru næsta lítil, svo og samskipti sín við fjóra syni hans, og telur hann sjálfur það vera mikilvægustu kaflana í bók sinni. Meðal sona hans er leikarinn Michael Douglas, óskarsverðlaunahafi í tvígang. í bókinni gagnrýnir hann margar nafntogaðar persónur, meðal ann- ars Joan Crawford, Stanley Kubrick, Barbara Stanwyck og fleiri. Douglas er sjálfur ánægður með bók sína, en það sem einkenn- ir hana öðru fremur er mikill reiði- tónn. Reiði sem fylgt hefur honum frá þrautagöngu æskunnar og sem leikarinn horfðist í augu við meðan hann sat við skriftir. Alþjóðleg danskeppni var haldin i Blackpool í Englandi nú á dögun- um. Alls tóku 300 pör þátt í keppninni og frá íslandi var þátttaka í níu keppnisatriðum.Þar af kepptu nemendur frá Nýja Dansskólanum í átta atriðum. íslensku dansararnir þóttu standa sig jafnvel og þeir erlendu og fengu Ingvar Þór Geirsson og Heiðrún Níelsdóttir góða dóma í „Dance News“ sem gefið er út í Englandi. Á myndinni má sjá þau Ingvar og Heiðrúnu á dansgólfinu. Emmy-verðlaunin voru afhent í Pasadena í Bandarikjunum þann 28. ágúst síðastliðinn, og héldu verðlaunahafar þakkarræður samkvæmt venju. John Larroquette, til vinstri á myndinni, fékk verð- laun fynr bestan leik í aðalhlutverki í kvikmyndinni „Night Court“ og Larry Drake fyrir aðal- hlutverk í myndinni „L. A. Law“ Estelle Getty fékk verðlaun fyrir aðalhlutverk í myndinni „The Golden Girls“. Patricia Wettig hlaut verðlaunin fyrir aðalhlutverk i kvikmyndinni „Thirtysomething".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.