Morgunblaðið - 02.09.1988, Side 2
2
■ MORbUSfbLiAéÍÉ), sFðfeW6Atjtjft' fe; :StePTUMBER 1^88
Morgunblaflií/Einar Falur
í gær hófst fomámskeið i stærðfræði fyrir hagfræðistúdenta í Háskóla íslands.
Hagfræðiskor tekur til
starfa í Háskóla Islands
NÚ í HAUST hefst kennsla í
hagfræðiskor viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla Is-
lands. 73 stúdentar skráðu sig
í nám þar og eru það mun
fleiri en búist hafði verið við.
Hagfræðiskorin er stofnuð
upp úr þjóðhagskjama viðskipta-
fræðideildar Háskólans. Til-
gangurinn með þvi að greina
hagfræðina og viðskiptafræðina
að með þessum hætti, er að auka
sérhæfíngu og munu hagfræði-
stúdentar . nú sleppa ýmsum
rekstrargreinum, sem ekki nýt-
ast þeim í námi þeirra.
Miðað er við að stúdentar í
hinni nýju skor geti lokið BS-
prófí á þremur árum, en óvíst
er, hvort unnt verður að stunda
framhaldsnám í þjóðhagfræði
hér á landi. Nám í viðskipta-
fræði mun eftir sem áður taka
fjögur ár og ljúka með kandí-
datsprófí. Að sögn Þóris Einars-
sonar deildarforseta viðskipta-
og hagfræðideildar munu ekki
vera fyrirhugaðar neinar veru-
legar breytingar á viðskipta-
fræðikennslunni, þrátt fyrir til-
komu hinnar nýju skorar.
Viðskipta- og hagfræðideildin
er nú fjölmennasta deild Háskól-
ans, að sögn Þóris. Almenn
kennsla hefst 20. september, en
þegar er hafíð fomámskeið í
stærðfræði, sem ætlað er hag-
fræðistúdentunum.
Deila fjármálaráðherra við Póst og síma:
Ríkisstjórnin ber
ábyrgð á stöðunni
- segir samgönguráðherra
MATTHÍAS Á. Mathiesen sam-
gönguráðherra segir að fjármála-
ráðherra geti engar breytingar
gert á fyrirkomulagi launa-
greiðslna til starfsmanna Pósts og
síma án samkomulags við ráðu-
neyti sitt. Því sé ekkert hæft f
þeirri fullyrðingu Jóns Baldvins
Hannibalssonar fjármálaráðherra
að frá og með 1. október muni
Póstur og sími bera alla ábyrgð á
launagreiðslunum. Ríkisstjórain
sé jafnframt ábyrg fyrir halla-
rekstri stofnunarinnar. „Ég get
vel fallist á þá skoðun ráðherrans
að auka þurfi sjálfstæði Pósts og
síma, en það þýðir að forráða-
menn hennar verða að geta ákveð-
ið gjaldskrá fyrir þjónustuna sjálf-
ir,“ sagði Matthias.
Ríkisféhirðir afhenti Pósti og síma
launaávísanir 2.400 starfsmánna á
miðvikudag. í bögglinum var orð-
sending um að laun 9 yfirmanna
stofnunarinnar væru ekki þeirra á
meðal, að sögn Guðmundar Björns-
sonar aðstoðarpóst- og símamála-
stjóra. í gær bárust ávísanimar níu
síðan til viðtakanda með annarri orð-
sendingu, þar sem sagði að þær
hefðu „orðið eftir“ í ráðuneytinu, að
sögn Guðmundar.
Laun starfsmanna hafa til þessa
verið greidd inn á bankareikninga
þeirra og þurftu sjö starfsmenn Pósts
og síma að sitja aðfaranótt fímmtu-
dags við að ganga frá útborgun laun-
anna. Guðmundur sagði að af þess-
um vinnubrögðum fjármálaráðuneyt-
isins hefði hlotist mikið óhagræði og
kostnaður.
Samgönguráðherra segir að ríkis-
stjómin beri ábyrgð á hallarekstri
Pósts og síma. Ekki hafi verið komið
til móts við beiðni stofnunarinnar um
gjaldskrárhækkun. Því sé beinlínis
stefnt að hallarekstri, sem ríkissjóður
verði að fjármagna. „Nú vill flár-
málaráðherra einfaldlega losa sig við
þessa stofnun og segir yfirmönnum
að bjarga sér sjálfir. Það getur hann
ekki gert upp á eigin spýtur. Þessar
aðgerðir bitna á starfsmönnunum og
ríkissjóður ber skýlausa ábyrgð á
launagreiðslum til þeirra."
Sigurður Á. Sigurðsson forstjóri Iceland Seafood Ltd.:
Útflutningiirinn á ísuðum
fiski er 56% umfram kvóta
Enn frekari verðlækkun á frystum flökum fyrirsjáanleg vegna offramboðs
„ÞAÐ hefur valdið okkur mikl-
um vonbrigðum hversu iila hef-
ur tekizt að halda utan um þær
Veröldin ’88:
Fjölmenni við
opnunina
VERÖLDIN '88, 18. vörusýning
Kaupstefnunnar hf., var opnuð í
Laugardalshöllinni f gær að við-
stöddu fjölmenni. Um það bil eitt-
hundrað aðilar sýna þar vörur
sínar, sem flestar tengjast heimil-
inu og fjölskyldunni.
Á sýningunni hefur meðal annars
verið sett upp svokallað drauma-
heimili Ragnhildar Gísladóttur og
Jakobs Magnússonar. Sýningargest-
um gefst einnig kostur á að skoða
18 metra langan Cadillac Eldorado,
sem er búinn ýmsum þægindum.
Sýningin er opin daglega til 11.
september. Hún er opin frá kl. 16
til 23 á virkum dögum, en frá kl.
13 til 23 um helgar.
takmarkanir, sem setja átti á
útflutning á ísuðum fiski til
Bretlands. Mun meira hefur
farið utan en upphaflega var
ákveðið og við óbreyttar að-
stæður er enn frekari verðlækk-
un á frystum flökum óhjá-
kvæmileg,“ sagði Sigurður Á.
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Iceland Seafood í Hull, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Sigurður segir, að síðan útflutn-
ingstakmarkanir áttu að taka
gildi, hafí samtals verið flutt utan
um 10.000 tonn af ísuðum físki,
þar af um 7.500 tonn af þorski
og ýsu. Samkvæmt skerðingunni
hefði þetta magn átt að vera 4.800
tonn. Utflutningur fram yfír kvóta
sé því 56% á þessu tveggja mán-
aða skeiði.
„Þegar spurðist um fyrirhugað-
an samdrátt á útflutningi, jókst
eftirspum og okkur tókst að ná
samningum um sölu á umtalsverðu
magni af landfiystum flökum, sem
þá voru í birgðum. Hins vegar dró
strax úr eftirspum, þegar ljóst var
um miðjan júlí að útflutningur frá
íslandi yrði verulega umfram
kvóta og að undanfömu hefur
sala á þessum flökum verið afar
dræm. Sala á sjófrystum flökum
hefur.hins vegar gengið vel og
verð haldizt nokkum veginn
óbreytt," sagði Sigurður.
„Það er alveg ljóst,“ sagði Sig-
urður ennfremur, „haldi áfram
sem hingað til með framboð á
ferskum físki, að sala á landfryst-
um flökum verður mjög dræm,
þegar kemur fram á haustið, sem
undanfarin ár hefur verið aðalsöl-
utíminn fyrir þessa framleiðslu.
Meðalverðlækkun á landfrystum
þorskflökum frá sama tíma í fyrra
er 13%. Telja verður óumflýjanlegt
að lækka verðið enn frekar við
óbreyttar aðstæður. Nú þegar hef-
ur verið tilkynnt um mikið magn
af ísuðum físki frá íslandi í næstu
viku og þamæstu og er búizt við
að verð fari lækkandi í takt við
aukið magn. Það er ljóst að með
áframhaldandi stjómleysi á þess-
um málum erum við Islendingar
að flytja fískiðnað okkar úr landi
til Bretlands á ný og eyðileggja
fyrir okkur margra ára kostnaðar-
samt markaðsstarf, sem unnið
hefur verið af íslenzkum fyrirtælrj-
um.“
Fundur Þor-
steins og As-
mundar:
Frekíiri við-
ræður voru
undirbúnar
ÁSMUNDUR Stefánsson
formaður ASÍ segir að til-
gangur fundar hans og Þor-
steins Pálssonar forsætisráð-
herra á miðvikudag hafi ekki
verið að ná fram neinum efn-
islegum niðurstöðum. Á fund-
inum hafi þeir fjaUað frekar
um áframhald viðræðna rfkis-
stjóraarinnar og fulltrúa ASÍ
og verður fyrsti formlegi við-
ræðufundur þessara aðila
haldinn öðra hvoru megin við
helgina.
Asmundur segir að á þessum
fyrsta formlega fundi muni for-
menn allra landssambanda ASÍ
mynda viðræðunefnd þeirra. í
máli Ásmundar kemur fram að
hann eigi von á að á þessum
fyrsta fundi muni koma fram
skýrari línur frá stjóminni um
hvað hún hyggst gera í fram-
iialdi af setningu bráðabirgða-
laganna.
Um einstök atriði sem eru til
umræðu nefnir Ásmundur sem
dæmi verðstöðvunina. Hann seg-
ir að menn verði að átta sig á
því að hún sé ekki mánaðarfyrir-
brigði og að henni verði að fylgja
eftir með áframhaldandi lækkun
verðlags er fram í sækir.
Fráleitt að kjör skerð-
ist í septembermánuði
- segir Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar
Ferðaskrifstofa ríkisins:
Tilboði starfsmaima upp
á 14 milljónir króna tekið
Rikið hefur tekið tilboði sextán
starfsmanna Ferðaskrifstofu
ríkisins i fyrirtækið. Samningur
um kaup starfsfólksins á tveimur
þriðju hlutum hlutafjár að upp-
hæð um fjórtán milljónir króna
verður undirritaður í dag. Þar
eru jafnframt ákvæði um yfir-
töku skulda sem nema nálægt
niu milljónum.
Hlutafélag um Ferðaskrifstofu
íslands verður stofnað næstkom-
andi miðvikudag og gert er ráð
fyrir að yfirtaka nýrra eigenda verði
1. október. Ragnhildur Hjaltadóttir
lögfræðingur í samgönguráðuneyt-
inu og Hreinn Loftsson aðstoðar-
maður samgönguráðherra skýrðu
fulltrúum sextán manna hópsins,
Kjartani Lárussyni, Tryggva Guð-
mundssyni og Hrafnhildi Pálsdótt-
ur, frá því í gær að gengið hefði
verið frá kaupunum.
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar og Verka-
mannasambands íslands, segir áð fráleitt sé að halda því fram að
kjör skerðist í septembermánuði vegna frestunar á 2,5% áfangahækk-
un launa um mánaðamótin með nýsettum bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar. Frestun á búvöruverðshækkun, sem að mati kunnugra
hefði orðið 8-12%, frestun á öðrum gjaldskrárhækkunum, vaxtalækk-
un og verðstöðvun, sem einnig er kveðið á um i bráðabirgðalögun-
bæti þessa 2,5% launahækkun upp og vel það.
hans varðandi það sem á eftir kæmi.
Guðmundur sagðist ekki skilja
afstöðu þeirra sem vildu fyrir hvern
mun ekki ræða við ríkisstjómina.
um
Guðmyndur segist hafa stutt það
að gengið yrði til viðræðna við ríkis-
stjórnina um það sem framundan
væri í efnahagsmálum og fundur
stjómar Dagsbrúnar, sem haldinn
hefði verið á mánudaginn var, hefði
lýst yfír trausti á þeirri afstöðu
hans og varaformanns félagsins á
miðstjómarfundi Alþýðusambands
íslands, þar sem þetta var til um-
fjöllunar. Þessi afstaða hans til við-
ræðna bindi hins vegar ekki hendur
Það hefði alltaf verið rætt við ríkis-
stjómir og þama yrði ekki bara
rætt um tillögur „forstjóranefndar-
innar" svonefndu. Forsætisráðherra
hefði tekið það skýrt fram að rædd-
ar yrðu allar tillögur um niður-
færslu verðbólgu.
„Ég er ekki farinn að sjá þetta
samkomulag um niðurfærsluna, en
ég get lýst því yfír að ég skelfist
tilhugsunina um 20% gengisfellingu
og samsvarandi hækkun láns-
kjaravfsitölu í lqölfarið. Það myndi
leiða til allsheijaruppboðs á nokkur
hundruð íbúðum í landinu. í þessari
afstöðu minni felst engin pólitísk
afstaða. Það er hins vegar pólitísk
afstaða að harðneita að ræða þessi
mál og hafna tækifæri til þess að
hafa áhrif á það sem gert verður,“
sagði Guðmundur.
Hann ?agði að launahækkun
hefði oft verið frestað áður. Þannig
hefðu vísitölubætur ekki komið á
laun 1957 þegar Alþýðubandalagið
var í stjóm gegn því að hækkun á
landbúnaðarvörum kæmi ekki fram.