Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 4

Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 Misráðið að fresta verkaskipt- ingn ríkis og sveitarfélaga — sagði félagsmálaráðherra á fjórðungsþingi Norðlendinga Húnavöllum. Frá Jóhönnu Ingvarsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. JÓHANNA Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra telur að frest- un á breytingum á verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga um eitt ár hafi verið misráðin og hún m.a. leitt til 250 milljóna kr. skerðingar á jöfnunarsjóði sveit- arfélaga. Þetta kom m.a. fram i máli ráðherrans á 30. þingi Fjórðungssambands Norðlend- inga sem sett var á Húnavöllum í gær. Jóhanna sagði að unnið væri að breytingum á frumvarpinu til sam- ræmis við ábendingar sem fram hafa komið, einkum frá sveitar- stjórnarmönnum, og væri málið í höndum fulltrúa nokkurra ráðu- neyta og Sambands ísl. sveitarfé- laga. Ráðherrann sagði að sam- staða sveitarfélaga skipti sköpum um hvort breytt verkaskipting yrði að veruleika. Þær breytingar sem um ræðir fela í sér að ríkið haldi áfram að greiða beina styrki til íþrótta- og æskulýðsfélaga, en í tillögunum væri gert ráð fyrir að þetta verk- efni færðist alfarið til sveitarfélag- anna. Þetta felur m.a í sér að íþróttasjóður yrði starfræktur áfram og hefði með höndum styrki til íþróttamannvirkja á vegum fé- lagasamtaka. „Einnig er verið að yfírfara tillögumar í heilbrigðismál- um. Þar var reiknað með að verka- skiptingin yrði í stórum dráttum þannig að ríkið annaðist stofnkostn- að og rekstur sjúkrahúsa en sveitar- félögin stofnkostnað og rekstur heilsugæslustöðva. Þar hefur rétti- iega verið bent á að erfítt getur verið að draga mörk á milli þessara stofnana þar sem heilsugæslustöðv- arnar eru oft reknar í beinum tengslum við sjúkrahús. Þannig að margir virðast telja að þessi rekstur ætti allur að vera á vegum ríkisins og yrði því þannig best komið í veg fyrir árekstra," sagði ráðherra. „Stærstu breytingar sem gert er ráð fyrir eru á sviði menntamála og heilbrigðismála. Auk breytinga á sjálfri verkaskiptingunni er gert ráð fyrir að sveitarfélögin hætti að greiða hluta af kostnaði sjúkrafé- laga, hluta af kostnaði við tann- lækningar og framlög til atvinnu- leysistryggingarsjóðs og ríkissjóður taki við þessum skuldbindingum. Fyrirhugaðar breytingar á verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga eru mikilvægur þáttur í því að færa völd og áhrif til sveitarfélaganna frá ríkisvaldinu. Þær ættu að geta dregið úr betliferðum sveitarstjóm- armanna í ráðuneyti og til alþingis- manna þar sem uppskeran er oft býsna fyr miðað við fyrirhöfn og tilkostnað. Ef þið lítið á fjárlög yfír- standandi árs þá sjáið þið þar m.a lista jrfír 73 aðila, sem hafa fengið úthlutað 5.000 kr. hver til undir- búningsframkvæmda við skóla- mannvirki. Mál er að þessum vinnu- brögðum linni,“ sagði ráðherra m.a á fjórðungsþingi í gær. VEÐURHORFUR í DAG, 3. SEPTEMBER 1988 YFIRLIT í GÆR: Um 100 km suðsuðaustur af Hornafirði er hæg- fara 973 mb lægð. Veöur fer lítið eitt hlýnandi. SPÁ: Norðaustanátt um allt land — kaldi eða stinningskaldi. Rign- ing eða súld austan- og noröanlands en víða smáskúrir í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á SUNNUDAG: Norðaustanátt, allsnörp um norðanvert landið, en mun hægari annars staðar. Skúrir verða norðan- og vestanlands, en úrkomulftið eða úrkomulaust í öðrum landshlutum. HORFUR Á MÁNUDAG: Norðangola vestanlands en annars staðar hægviðri, smá skúrir, einkum norðanlands. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað f§|, Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * # * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus V Skúrir V Él = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma Akureyri Reykjavfk hltl 8 10 veöur alskýjaS alskýjað Bergen 14 rigning Helsinkl 16 alskýjað Kaupmannah. 17 rignlng Narssarssuaq S skýjað Nuuk 2 þoka Osló 15 rigning Stokkhólmur 17 þokumóða Þórshöfn 11 súld Algarve 26 heiðskírt Amsterdam 12 skúr Barcelona 27 hálfskýjað Chicago 16 alskýjað Feneyjar 19 þrumuv. Frankfurt 14 skúr Glasgow 12 skúr Hamborg 18 alskýjað Las Palmas 25 skýjað London 12 skúr Los Angeles 17 heiðskírt Lúxemborg 15 skýjað lóttskýjað Madríd 24 Malaga 30 láttskýjað Mallorca 28 lóttskýjað Montreal New York 17 léttskýjað París 16 rignlng Róm 28 skýjað San Diego 19 þokumóða Wlnnlpeg 13 léttskýjað Morgunblaðid/Einar Falur Á sýningunni „Veröldin ’88“ i Laugardalshöll má m.á. sjá þennan 18 metra langa Cadillac Eldorado. Veröldin ’88: Búist við 35 til 40 þúsund gestum BÚIST er við milli 35 og 40 þús- und gestum á sýninguna „Ver- öldin ’88“ í Laugardalshöllinni. Hún var opnuð fimmtudaginn 1. september og er aðsókn i sam- ræmi við vonir aðstandenda hennar. Sýningin er álika stór og síðustu ár, að sögn Þorsteins Fr. Sigurðssonar, framkvæmda- stjóra hennar, en um það bil hundrað aðilar auglýsa þar vör- ur sinar og þjónustu. í samtali við Morgunblaðið sagði Þorsteinn, að sýningin hefði farið vel af stað; aðsókn væri í samræmi við áætlanir og gestimir virtust ánægðir. Dvalarheimili Jakobs Magnússonar og Ragnhildar Gísla- dóttur hefur vakið mikla athygli, en þar hafa þau valið húsbúnað í 230 fermetra íbúð. Hinn 18 metra langi Cadillac Eldorado, sem komið hefur verið fyrir á sýningarsvæð- inu, hefur líka vakið áhuga margra. Gamanleikhúsið skemmtir gestum tvisvar til fjórum sinnum á dag og njóta sýningar þess á söngleiknum „Kötturinn sem fer sínar eigin leið- ir“ mikilla vinsælda. Þorsteinn býst við mikilli aðsókn nú um helgina, enda mun reynslan vera sú, að allt að 65% gesta komi um helgar. „Veröldin ’88“ er opin frá 13 til 23 um helgar, en frá 16 til 23 á virkum dögum. Sýningunni lýkur þann 11. september. Stéttarsambandsfundur: Felld var tillaga um aðstoð við minni sláturhús Akureyri. Frá Halli Þorsteinssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. Á AÐALFUNDI Stéttarsam- bands bænda var felld tillaga um að skora á landbúnaðarráðherra að breyta nýútgefinni reglugerð um úreldingu sláturhúsa þannig, að það fjármagn, sem samkvæmt henni kæmi til ráðstöfunar, verði lánað til að koma minni slátur- húsum í viðunandi ástand. Samdráttur í nýskrán- ingu bifreiða TALSVERÐUR samdráttur hef- ur orðið í nýskráningu bifreiða það sem af er þessu ári miðað við sama tíma i fyrra. Á fyrstu átta mánuðum 1988 hefur Bif- reiðaeftirlit ríkisins nýskráð 11.850 bifreiðir samanborið við 16.162 árið 1987. í ágúst á þessu ári nýskráði Bif- reiðaeftirlitið 1.154 bifreiðir, en í júlímánuði voru nýskráðar bifreiðir 1.176. Af þessum 1.154 bifreiðum voru 1.007 fluttar inn nýjar en 147 notaðar. í ágúst 1987 voru 1.593 bifreiðar nýskráðar. Harðar umræður urðu um tillög- una, og bentu fylgismenn hennar á að þegar sláturhús eru lögð niður, þá leggjast jafnframt niður störf í viðkomandi byggðarlagi. Þá benti Halldór Þórðarson flutningsmaður tillögunnar á að ríkjandi stefna í öðrum löndum væri að hafa slátur- hús lítil, því það hafí sýnt sig að þau skili verðmætari framleiðslu. Þeir sem á móti tillögunni voru sögðu, að í samþykkt hennar fælist „ávísun á aukin útgjöld". Tillagan var felld með 367 atkvæðum gegn 7. Strákar með lögguhúfur TVEIR ungir piltar urðu á vegi lögreglu á Álfabakka um klukk- an hálfþijú í gær. Vakti það at- hygli lögreglumannanna að þeir skrýddust lögregluhúfum með fullum einkennum. Haft var tal af piltunum og hald lagt á húfumar en ekki er vitað hvemig þeir komust yfir þær. Stálvík hf. boð í smíði Skipasmíðastöðin Stálvík hf. í Garðabæ tekur þátt í lokuðu út- boði á smiði 14 togara fyrir er- lenda aðila og ljóst verður um næstu áramót hvort stöðin fær verkefnið, að sögn Jóns Gauta Jónssonar framkvæmdastjóra Stálvíkur. gerir til— 14 togara „Kaupendur togaranna eru frá landi utan Evrópu og hugsanlegt er að íslenskir skipstjórar og vél- stjórar fari með togurunum til að kenna kaupendunum á þá,“ sagði Jón Gauti í samtali við Morgun- blaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.