Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 Sigurjón Kristjánsson eins og hann kom ljósmyndara France Foot- ball fyrir sjónir. ÍPfÖMR FOLK ■ LITMYNDIR af Valsmönn- um prýða síður 2 og 3 í nýjasta hefti hins virta tímarits France FootbaJl, en Valsmenn verða sem kunnugt er andstæðingar frönsku meistaranna Mónakó í fyrstu um- ferð Evrópukeppni meistaraliða. Liðin mætast á Laugardalsvelli á þriðjudaginn. Á myndunum sjást Siguijón Kristjánsson (í bygging- arvinnu), Ingvar Guðmundsson og Jón Grétar Jónsson í leik og síðan er stór mynd af Atla Eðvaldssyni í baráttu við Víkingana Björn Bjartmarz og Andra Marteins- son. ■ ARSENE Wenger, þjálfari Mónakó-liðsins, kemur til landsins í dag til að fýlgjast með leik Vals og Víkings í 1. deildinni. Lið hans kemur hins vegar ekki til landsins arr en á morgun. LIAM Brady, írski knatt- spymumaðurinn sem missti af EM í knattspymu, verður aftur með irska landsliðinu í leik þess gegn N-írum 14. september. Það verður fyrsti leikur liðanna í undankeppni HM. ■ BELGÍSKI landsliðsmark- vörðurinn í knattspyrnu, Jean- Marie Pfaff, sem lék síðustu ár með Bayern MUnchen en kunni ekki við sig sem varaskeifa í her- búðum liðsins, hefur loks ákveðið að taka tilboði belgíska félagsins Lierse um að leika með því. Nokk- ur lið voru á höttunum eftir honum, þar á meðal Wimbledon á Eng- landi. Fyrsti leikur Pfaffs með lið- inu verður 10. september gegn FC Brugge. „Ég er viss um að 5.000 fleiri áhorfendur en venjulega koma á leikinn — bara af því að ég verð með!“ sagði hann í gær. Pfaff á 64 landsleiki að baki. ■ FH-DAGURINN verður haldinn hátíðlegur á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði á morgun, sunnudag, og hefst kl. 14:00. Hann átti að /fara fram um síðustu helgi en var no trocf qm ■ REYKJA VÍKURMÓTIÐ í tennis verður haldið dagana 8.-1 L september á Víkingsvöllunum í Fossvogi. Þátttöku þarf að tilkynna til Tennisklúbbs Víkings fyrir kl. 18:00 þriðjudaginn 6. september. Sífeltt erfiðara að skara fram úr í knattspymu Franz Beckenbauer. NÝLEGA var ég staddur í Tókýó. Þar vildu Japanirnirfá að heyra allt sem ég gœti sagt þeim um knattspyrnu. Hvert smáatriði. „En þið vitið nú þegar svo mikið,“ sagði ég við asísku knattspyrnu- þjálfarana, þeim til hróss. Þeir höfðu farið til Evrópu tii að fylgjast með Evrópu- keppninni, og þá krufið hvern einasta leiktil mergjar. Auk þess eru útsendíngarfrá knattspyrnuleikjum okkar fastir liðir í dagskrám japan- skra sjónvarpsstöðva. Ifyrirlestrum mínum ræddi ég við Japanina um hvað fram- undan væri á næstu mánuðum og árum. Við verðum að horfast í augu við það að sífellt erfiðara verður að skara fram úr í knatt- spyrnu. Af því leiðir að við verðum að miða þjálfun okkar við það að munurinn á styrk knattspymuliða fer stöðugt minnkandi, og leik- hraðinn vaxandi. Þessi jöfnuður í styrk liðanna kom berlega í ljós í Evrópukeppn- inni — sem var gífurleg hvatning fyrir alþjóða knattspymu og einn- ig stöðugt umræðuefni knatt- spymuunnenda í Suður-Ameríku, Bandaríkjunum, arabaríkjunum, Afríku og um alla Asíu. Heimsmeistarakeppnin Keppnin í undanrásum fyrir heimsmeistarakeppnina á Ítalíu árið 1990 verður ekki síður spenn- andi en Evrópukeppnin. Það var svo sem auðvitað að við Vestur-Þjóðverjar lentum þar í erfiðasta riðlinum. í þeim riðli em Hollendingar, sigurvegarar Evrópukeppninnar, auk okkar, en við komumst í undanúrslit þeirrar keppni. En einungis sigurlið hvers riðils er öruggt um að öðlast rétt til þátttöku í úrslitakeppninni. Fáránlegt. Svo er það Wales, þriðja liðið í riðlinum, með sína frábæru sóknartvennu, Ian Rush og Mark Hughes, auk Nevilles Southall, sem er markmaður á heimsmælikvarða — lið sem er í hópi þeirra beztu. Þjálfari Wales-liðsins er Terry Yorath, sem áður var eitilharður vamarleikmaður. Þegar ég lék með Bayem-liðinu í úrslitaleik Evrópubikarkeppninnar árið 1975 gegn Leeds — sem við unnum 2-0 — knébraut Yorath varnarleik- mann okkar, Bjöm Andersson, eftir aðeins tveggja mínútna leik. Fyrir úrslitaleiki síðustu Evrópu- keppni sigraði Wales lið Ítalíu 1-0. Það segir sína sögu. Að mínu áliti er Wales sterkara en öll liðin í 1. riðli — lið Danmerkur, Búlg- aríu, Rúmeníu og Grikklands. Eg vona bara að þessi fjögur lið skipti vel með sér stigunum svo að lið Franz Beckenbauer, lengst til vinstri, í úrálitaleik heimsmeistarakeppninnar 1974. Það er Johan Cruyff sem sækir að markverði þýska liðsins, Sepp Maier. Cruyff og Beckenbauer eru í hópi bestu knattspymumanna sögunnar — en Beckenbauer segir í grein sinni að sífellt sé erfíðara að skara fram úr í knattspymunni. Franz Becken- bauer skrifar fyrir Morgun- bladid númer tvö í okkar riðli eigi meiri líkur á að komast í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar. Finnar verða fyrstu mótheijar okkar í undanrásunum fyrir Heimsbikarinn. [Þess skal getið að greinin er skrifuð fyrir þá við- ureign, sem er nýlokið: Vestur Þjóðverjar sigruðu 4:0]. Lið þeirra er dæmigert fyrir þann aukna jöfnuð sem kominn er á styrkleika knattspumuliða. Þeir hafa lengi verið annað og meira en smástimi í knattspymunni. Það sýndu þeir í undanrásum fyrir Evrópukeppn- ina þegar þeir burstuðu lið Tékkó- slóvakíu 3-0 og stöðvuðu fram- göngu Wales með jafntefli, 1-1. Svo það er engin óþarfa svartsýni hjá mér þegar ég held því fram að þessi fyrsti leikur gegn Finnum verði okkur sá erfíðasti. Jaftivel erfiðari en leikur risanna þegar Vestur-Þjóðveijar mæta Hollend- ingum í Múnchen 19. október. AIK getur garzt Í riðli nr. 2 — með liðum Eng- lands, Póllands, Svíþjóðar og Alb- an(u — er einnig erfítt að spá hvað gerist, því eins og áður sagði getur aðeins efsta liðið reiknað með öruggu sæti í úrslitum, og nú er lið Svía komið í fremstu röð. Reyndar, þegar ég hugsa um það, má segja að varla séu lengur til nein smástimi í knattspym- unni. í norðri eru það ekki aðeins lið Svía og Finna sem hafa látið til sín taka, heldur einnig lið Norð- manna. í Evrópukeppninni unnu Norðmenn fyrrum Evrópumeist- ara Frakka frá 1984 2-0, og Frakkar glötuðu þannig tækifær- inu til að veija titilinn fyrr en reiknað hafði verið með. Og nú í júlí sýndu Norðmenn góðan leik gegn Brasilíu, en þeim leik lauk með jafntefli, 1-1. Skandinavía er því komin á blað í knattspyrn- unni. Lið íslands og Tyrklands eru einnig orðin sterk, Einu liðin sem hugsanlega mætti kalla smástimi em lið Lúxemborgar, Möltu og Kýpur — þótt öil þijú gætu hæg- lega bmgðið fæti fyrir risana. Nýhafíð keppnistímabil í vest- ur-þýzku knattspymunni getur reynzt fullt eins spennandi og undanrásirnar í Heimsmeistara- keppninni. Aldrei fyrr hafa jafn mörg lið komið til greina sem hugsanlegir sigurvegarar, og aldrei fyrr hefur óvissan verið jafn mikil. Þijú lið hafa skipað sér (• fomstusveitina með stjömuliði Bayem Múnchen og bikarhöfun- um Werder Bremen. Fyrst má þar telja UEFA-bikarhafana Bayer Leverkusen með nýja þjálfarann sinn, Rinus Michels, sem leiddi Hollendinga til sigurs í Evrópu- keppninni. Auk þess koma svo Stuttgart, með hollenzka þjálfar- ann Arie Haan, og FC Köln. Rólegra' verður í fyrstu umferð Evrópukeppni bikarhafa, og engra stórátaka að vænta í byij- un. Þó verður athyglisvert að sjá hvemig bikarhöfum okkar, Werd- er Bremen, gengur gegn austur- þýzku bikarhöfunum, Dynamo Berlin. Sá leikur verður fyrsta al-þýzka meistarakeppnin. Af öllu þessu er ljóst að næstu vikumar hafa mikið upp á að bjóða í Evrópu. Hvað sjálfan mig varðar þykir mér verst að æ fleiri góðir knattspymumenn kjósa að leika á Ítalíu. Þeir Lothar Mattha- eus og Andreas Brehme hafa nú fylgt í fótspor Rudi Völlers (AS Roma) og Thomas Bertholds (Heilas Verona) og gengið til liðs við Inter Mílanó. Eg verð að sætta mig við ákvarðanir leikmanna sem vilja vinna fyrir háum launum. En það torveldar nokkuð starf mitt hjá landsliðinu. [_) ; M., rfl* i.1 - Ccj.* I HAPPDRÆTTI 5 Ford Bronco - 40 Fiat Uno Dregið 12. september. Heildarverömœti vinninga 21,5 milljón.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.