Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
33
Skemmdarverk ríkisútvarpsins
á fj ölmiðlakönnun Háskólans
eftir Ólaf Hauksson
Ríkisútvarpið birti nýlega hlust-
unarkönnun Skáíss á útvarpi, sem
er svo gölluð að hún gefur ná-
kvæmlega er.gar áreiðanlegar
upplýsingar um útvarpshlustun.
Samt hefur ríkisútvarpið kosið að
auglýsa þessa könnun sem nýjan
stórasannleik um skiptingu hlust-
unar milli útvarpsstöðva.
Ríkisútvarpið hefur meira að
segja gengið svo langt að bera
þessa ófullkomnu könnun saman
við þá könnun sem Félagsvísinda-
stofiiun Háskólans gerir reglulega
fyrir útvarps og sjónvarpsstöðv-
amar, og er talin mjög áreiðanleg.
Þessar aðfarir ríkisútvarpsins
eru hreint og klárt skemmdarverk.
Þetta minnkar trú manna á slíkar
kannanir almennt, og veldur
óvissu hjá auglýsendum og öðmm
sem nota fjölmiðlana.
Ekki bætir úr skák að ríkisút-
varpið kynnir þessa göiluðu könn-
un aðeins nokkrum dögum áður
en regluleg könnun Félagsvísinda-
stofnunar á að fara fram.
En hveijir em þá gallar þeirrar
könnunar eða mælingar sem
ríkisútvarpið lét Skáís framkvæma
fyrir sig, í samanburði við könnun
Félagsvísindastofnunar?
Svarendur í könnun Skáíss em
á milli 190 og 290 talsins hverju
sinni, valið eftir handahófi úr
símaskránni.
Svarendur í könnun Félagsví-
sindastofnunar em um 800 talsins.
Ekkert er vitað hvaða fólk svar-
aði spumingum í könnun Skáíss.
Hver er aldur þess? Hvar á landinu
býr það?
í könnun Félagsvísindastofnun-
ar er fundið eitt þúsund manna
úrtak úr þjóðskrá, sem gefur rétta
mynd af þjóðinni eftir aldri, kyni
og búsetu. Niðurstöður em settar
fram eftir skiptingu í aldurshópa,
kyn og heimkynni.
Fjölmiðlakönnun Félagsvísinda-
stofiiunar hefur verið að þróast
undanfarin ár, og em útvarps- og
sjónvarpsstöðvar, og Samband
íslenskra auglýsingastofa, aðilar
að henni. Meðal þessara aðila hef-
ur verið ánægja með vinnubrögð
Félagsvísindastofnunar, og er
könnun hennar talin gefa góða
mynd af hlustun og horfun þjóðar-
innar.
Könnun ríkisútvarpsins og
Skáíss er hins vegar ekkert annað
en ónákvæmt fálm. Hún segir
aðeins hvað einhver hópur sem
svaraði í símann var að hlusta á
í það og það skiptið.
Undirritaður hefur beðið
ríkisútvarpið um nánari upplýsing-
ar úr könnuninni, en stofnunin
hefiir ekki sinnt þeirri ósk.
Á meðan §ölmiðlakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar byggir á
svömm frá 800 manns, þá em
svör um hlustun í könnun Skáíss
byggð á allt niður í 190 manns.
Mesti munur á hlustun á Stjömuna
og Bylgjuna byggist til dæmis á
svömm 15 hlustenda.
Hér er kastað til höndunum, og
ósvífíð af ríkisútvarpinu að nota
þetta plagg í áróðursskyni. Frétta-
menn ríkisútvarpsins hafa lapið
upp tölur úr könnun eigin stofnun-
ar án þess að geta vankantanna,
og þeir hafa ekki hirt um að birta
athugasemdir undirritaðs.
Markús Öm Aotonsson útvarps-
stjóri tjáði Morgunblaðinu í viðtali
að ríkisútvarpið hefði ákveðið að
gera þessa könnun á undan Qöl-
miðlakönnun Félagsvísindastofn-
unar til að fá mælingu áður en
aðrar útvarpsstöðvar hæfu „aug-
lýsingaskrum“ vegna þeirrar
könnunar. En til að baktryggja sig
hefur ríkisútvarpið auglýst rásir
hljóðvarpsins í sjónvarpinu vikum
saman á undan þessari könnun.
Hér er komið aftan að samkeppn-
isaðilum, því ekki tilkynnti ríkisút-
varpið ætlun sína fyrirfram. Þess
í stað stóð það eitt að sínu auglýs-
ingaskmmi.
Ef ríkisútvarpið hefði staðið
heiðarlega að þessum málum, þá
hefði það til að byrja með ekki
auglýst rásir sínar í gríð og erg
fyrir eigin könnun, og í öðm lagi
hefði það látið gera almennilega,
marktæka könnun. En þess í stað
kusu stjómendur þessarar ríkis-
stofiiunar undirferli og lágkúm
með þvf að kaupa ódýra og algjör-
lega marklausa könnun.
Höfundur er útvarpsstjóri Stjörn-
unnar.
Ólafur Hauksson
„Könnun ríkisútvarps-
ins og Skáíss er hins
vegur ekkert annað en
ónákvæmt fálm. Hún
segir aðeins hvað ein-
hver hópur sem svaraði
í símann var að hlusta
á í það og það skiptið.“
Yfirlýsing Borgaraflokksins um efnahagsmál;
Lánskjaravísitala verði afnumin
Sjálfvirk tenging verðlags við vísitölur verði ekki heimil
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing, sem sam-
þykkt var á fundi Borgaraflokks-
ins þann 1. september síðastlið-
inn. Þar eru aðgerðir og bráða-
birgðalög ríkisstjórnarinnar
átalin og bent á aðrar leiðir til
lausnar vandanum. Yfirlýsingin
fer hér á eftír í heild:
Eftirfarandi yfirlýsing var sam-
þykkt á fundi Borgaraflokksins 1.
september 1988.
í baráttu sinni fyrir betra þjóð-
félagi leggur Borgaraflokkurinn
áherzlu á heiðarlegan málflutning
og bendir á raunhæfar leiðir.
Þjóðfélagið hefur í tíð þessarar
ríkisstjómar orðið flóknara og
ómanneskjulegra en nokkm sinni
fyrr, þvert ofan í fyrirheit um hið
gagnstæða. Ríkisstjómin hefur frá
upphafi verið sjálfri sér sundurþykk
og margklofin, ekki aðeins á milli
flokka heldur einnig innan flokk-
anna, sem að henni standa. Fálm-
kenndar eftiahagsaðgerðir á þriggja
til ljögurra mánaða fresti hafa allar
mnnið út f sandinn, og staða ein-
staklinga, fyrirtækja og þjóðarbús-
ins f heild versnar í hvert skipti,
þrátt fyrir góðæri að öðm leyti til
lands og sjávar.
Ákvörðun ríkisstjómarinnar um
verðstöðvun og nýsett bráðabirgða-
lög um frestun hækkunar á launum
og búvöruverði í einn mánuð, án
þess að fyrir liggi samkomulag um
nauðsynlegar frekari aðgerðir í
efnahagsmálum, er opinber viður-
kenning ríkisstjómarinnar á því, að
hún ræður ekki við verkefni sitt.
Stefhir í 2 milljarða halla ríkissjóðs
1988, þar sem 1,2 milljarða hækkun
er vegna vanáætlaðra vaxtaút-
gjalda. Henging í eigin snöm virð-
ist ætla að verða hlutskipti ríkis-
stjómarinnar.
Borgaraflokkurinn er sammála
því að leita verður allra leiða til
þess að lækka verðlag í landinu og
hemja verðbólguna. Það verður hins
vegar ekki gert með því að færa
niður laun allra launþega með vald-
boði. Öllum má vera ljóst, að niður-
færsla launa mun aðeins snerta
takmarkaðan hóp launþega. Allar
líkur benda til þess, að þessi hópur
verði mun minni en Þjóðhagsstofn-
un gerir ráð fyrir. Hinir tekjuhærri
sleppa. Samfara niðurfærslu verð-
lags mun sá hópur auka kaupmátt
sinn vemlega. Þannig mun misrétt-
ið milli launahópa f landinu aukast.
Undir þetta getur Borgaraflokkur-
inn ekki skrífað.
Hins vegar er ljóst, að nú þegar
verður að grípa til markvissra ráð-
stafana til þess að rétta við hluta
atvinnuveganna, sem ráðleysi og
stefnuleysi ríkisstjómarinnar hefur
komið á vonarvöl. Hætta er á, að
heilu byggðarlögin leggist í eyði
vegna yfirvofandi hmns atvinnufyr-
irtækja og heimilin .f landinu em
að verða gjaldþrota. Efnahagslegu
sjálfstæði þjóðarinnar er stefnt í
voða.
Borgaraflokkurinn varar við
Grensássókn:
Nýr prest-
urtekurtil
starfa
SÓKNARNEFND Grensáskirkju
hefur ráðið séra Gylfa Jonsson
í fullt starf safnaðarprests frá
og með 1. september. Er það
gert til að bæta þjónustuna við
söfnuðinn og mun Gylfi skipu-
leggja og hafa umsjón með þjón-
ustustarfi fyrir aldraða auk al-
mennra prestsstarfa. Gylfi pred-
ikar við guðsþjónustu í Grensás-
kirkju sunnudaginn 4. september
kl. 11.00.
Sóknamefnd Grenássafnaðar og
sóknarpresturinn, séra Halldór
Gröndal, hafa að undanfömu unnið
að undirbúningi aukins og öflugs
safnaðarstarfs að því er segir í
fréttatilkynningu frá Grensássókn.
Fjölgun hefur orðið í söfnuðinum á
undanförnum ámm og til að mæta
aukinni þörf_ fyrir þjónustu hefur
séra Gylfi Jonsson verið ráðinn í
fullt starf safnaðarprests.
Grensássókn er 25 ára um þessar
mundir og af því tilefni verður sett
upp nýtt orgel í krikjunni safnaðar-
ins. Stefnt er að vígslu þess við
hátíðarguðsþjónustu síðar í haust.
Fyrirlestur í Lögbergi
Séra Gylfi Jónsson
FÉLAG áhugamanna um heim-
speki heldur sinn fyrsta fund
veturinn 1988—89 nk. sunnudag,
4. september, kl. 14.30 i stofu
101 í Lögbergi. Fyrirlesari á
þessum fyrsta fundi verður
Agúst Hjörtur og nefnir hann
erindi sitt „Til vamar lýðræð-
inu“.
í fyrirlestrinum Qallar Ágúst
Hjörtur um tvær meginröksemda-
færslur til réttlætingar lýðræðinu,
svokölluð vamarrök annars vegar
og þroskarök hins vegar. Kunnustu
fulltrúar hvorrar um sig em þeir
John Locke og Jean-Jacques Rouss-
eau. Ágúst mun leitast við að sýna
fram á galla hvors sjónarmiðs og
benda á leiðir til úrlausnar.
Ágúst Hjörtur lauk BA-prófi í
heimspeki frá Háskóla íslands 1986
og MÁ-prófi í sömu grein frá há-
skólanum í Ottawa í Kanada sl.
vor. Hann stundar nú doktorsnám
við sama skóla.
Djass í Heita pottinum
Djasstónleikar verða í Heita
pottinum í Duus-húsi við Fischer-
sund sunnudagskvöldið 4. sept-
ember.
Að þessu sinni leika þar Kjartan
Valdimarsson á píanó, Tómas R.
Einarsson á kontrabassa og Birgir
Baldursson á trommur. Þeir félagar
hafa leikið dijúgt saman á þessu
ári og fóm ásamt Sigurði Flosasyni
í velheppnaða tónleikaferð til
Svíþjóðar í júlí sl.
Nú er píanóleikarinn Kjartan
Valdimarsson á fömm til náms i
Berklee College of Music í Boston
og verður þetta í síðasta sinn sem
hann spilar í Heita pottinum fyrir
utanför. Þeir félagar munu spila
eigin lög og annarra.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30.
(Fréttatilkynning)
Heimshlaup ’88:
Líka hægt
að ganga
HEIMSHLAUP ’88, sem gengist
verður fyrir 11. september í þágu
bágstaddra barna, verður með
öðru sniði en títt er um götu-
hlaup hérlendis. Þáttakendum
gefst kostur á að skrá sig tíl
göngu í stað hlaups.
Farinn verður þriggja km hringur
og geta menn gengið, skokkað eða
hlaupið, einn, tvo eða þijá hringi.
Ákveðið var að gefa kost á göngu
eftir að skoðanakönnun sem RKÍ
gerði meðal 200 manna sýndi að
helmningur þeirra sem ekki hafa
tekið þátt í lamennum hlaupum
áhuga á að ganga stutta vega-
lengd. Nefndu flestir 3-5 km.
Þegar hafa 20 staðir á lands-
byggðinni tilkynnt þátttöku í
Heimshlaupi ’88, sem hefst á sama
tíma í öllum þátttökulöndum,
klukkan 15 hinn 11. september.
Þáttakendur geta skráð sig að
Rauðarárstíg 18 í síma 623170 eða
26722.
þeim hugmyndum bjargræðisnefnd-
ar ríkisstjómarinnar um ráðstafanir
í efnahagsmálum, þar sem hags-
munir hinna mörgu víkja fyrir hags-
munum hinna fáu.
Borgaraflokkurinn leggur til, að
kjami þeirra efnahagsráðstafana,
sem gera þarf nú þegar, verði eftir-
farandi:
1. Matarskatturinn verði felldur
niður.
2. Lánskjaravísitala verði afnum-
in og vextir lagaðir að því, sem
gerist í helztu viðskiptalöndum okk-
ar.
3. Sjálfvirk tenging verðlags við
vísitölur verði ekki heimil.
4. Gripið verði til tafarlausra
aðgerða til að treysta rekstrar-
gmndvöll undirstöðuatvinnuveg-
anna í landinu, svo komið verði í
veg fyrir atvinnubrest. í þvi sam-
bandi verði peningastofnunum gert
kleift að beita víðtækum skuld-
breytingum vegna þess neyðar-
ástands, sem nú ríkir sökum
óstjómar i efnahagsmálum og stór-
aukinnar skattheimtu hins opin-
bera.
5. Stórátak verði gert til þess að
efla íslenzkan samkeppnisiðnað og
útflutning á íslenzku hugviti og
tækniþekkingu, m.a. með því að
tryggja þessum aðilum eðlilega
samkeppnisaðstöðu.
6. Fólki verði gefinn kostur á
víðtækum skuldbreytingarlánum til
þess að koma í veg fyrir fjöldagjald-
þrot ijölskyldna og einstaklinga.
7. Dregið verði úr ríkisútgjöldum
með samræmdum aðgerðum í sam-
starfí við forsvarsmenn og annað
starfsfólk ríkisstofnana.
8. Skattlagningu á fyrirtæki og
einstaklinga verði stillt í hóf, þann-
ig að þeir hafi sem mest af sjálfs-
aflafé til ráðstöfunar.
9. Samskipti hins opinbera við
einstaklinga og fyrirtæki verði ein-
földuð með það í huga að draga
úr óþarfa afskiptum ríkisvaldsins.
Traust undirstaða þjóðfélagsins
byggist á sjálfstaeði einstaklinga og
félaga þeirra.
10. Dregið verði úr miðstýring-
unni og völd og verkefni færð til
landshlutanna.
Borgaraflokkurinn er þess full-'
viss, að dugnaður, ráðdeild og
þrautseigja islenzku þjóðarinnar
muni enn sem fyrr reynast henni
bezta leiðarljósið út úr þeim
ógöngum, sem stefnuleysi ríkis-
stjómarinnar hefur leitt hana í.
Borgaraflokkurinn leggur því
áherzlu á, að þessir eiginleikar þjóð-
arinnar fái að njóta sín sem bezt í
friði fyrir ofstjórn og ofsköttun.