Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstraeti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Eftirlit ríkisendurskoðunar Hinn 1. janúar 1987 gengu í gildi ný lög um ríkisend- urskoðun er gerðu hana að sjálfstæðri stofnun undir forsjá Alþingis. Fram til þess tíma hafði þessi stofnun lotið stjóm fjármálaráðherra. Með breyt- ingunni er að því stefnt að lög- gjafarvaldið geti með eigin stofnun enurskoðað og haft eft- irlit með fésýslu ríkisins, eins og segir í greinargerð fyrir frumvarpinu um ríkisendur- skoðun. Þar segir einnig: „Segja má að fjárstjómarvald Alþingis sé fólgið í tvennu: fyr- irfram gerðri áætlun um tekjur og gjöld ríkisins um ákveðið tímabil og eftirliti — endurskoð- un — með því að þeirri áætlun sé fylgt." Á ríkisendurskoðun að aðstoða alþingismenn við að sinna þessum skyldum sínum en eins og kunnugt er hefur gengið brösulega svo ekki sé meira sagt, að láta enda ná saman í fjármálum ríkisins. í samræmi við skyldu sínu sendi ríkisendurskoðun í mars síðastliðnum frá sér skýrslu um framkvæmd fjárlaga 1987. Leit hún þar yfír árið í heild í fyrsta sinn. Nú í vikunni gaf stofnun- in síðan út fyrstu skýrslu sína um framkvæmd fjárlaga líðandi árs, það er um það hvemig stað- ið hefur verið að framkvæmd- inni fyrri árshelming 1988. Útkoman er ekki glæsileg. í niðurstöðum skýrslunnar segir meðal annars: „Ríkisendur- skoðun telur að að öllu óbreyttu stefni í 1,5 til 2,0 milljarða króna rekstrarhalla hjá A-hluta ríkissjóðs á árinu 1988. Hér er um umtalsverða breytingu til hins verra að ræða, en í lögum nr. 10/1988 um ráðstafanir í ríkisíjármálum var gert ráð fyr- ir 53,0 milljóna króna rekstrar- afgangi hjá A-hluta ríkissjóðs." Hingað til hefur málum verið þannig háttað að fjármálaráðu- neytið hefur haft það nokkuð í hendi sér, hvenær og hvaða upplýsingar em birtar um af- komu ríkissjóðs og stöðu hans á fjárlagaárinu. Ráðuneytið hefur ekki sætt neinu ytra að- haldi í þessu efni nema á pólitískum vettvangi. Það hefur hins vegar getað sett öðrum ráðuneytum og ríkisstofnunum kosti. Fjármálaráðuneytið er því í áður óþekktri stöðu, þegar ríkisendurskoðun sendir nú frá sér skýrsluna um framkvæmd fjárlaga. Skýrslan er á hinn bóginn ekki birt fyrirvaralaust, því að ráðuneyti höfðu hana undir höndum og gátu komið athugasemdum á framfæri við ríkisendurskoðun áður en plaggið var gert opinbert og sent til þingmanna. í umræðum um efnahags- vandann hafa menn löngum verið sammála um að hann verði ekki leystur án þess að náð sé tökum á ríkisfjármálun- um. Um það hefur löngum ver- ið deilt hvemig að framkvæmd fjárlaga er staðið en innan framkvæmdavaldsins hafa fjár- málaráðherra og ráðuneyti hans haft tögl og hagldir í því efni. Nú kemur ríkisendurskoð- un til sögunnar sem sjálfstæður aðili sem á allt sitt undir því að ekki sé unnt að fínna snögga bletti á úttekt og niðurstöðum. Ef rétt er á málum haldið ættu afskipti stofnunarinnar að verða til þess að auðvelda mönnum að ná þeim tökum á ríkissjóði sem mælt er fyrir um í fjárlögum. í skýrslu sinni nú telur ríkis- endurskoðun í fyrsta lagi brýnt að efla til muna eftirlit hjá launaskrifstofu fjármálaráðu- neytisins með fíölda stöðugilda og yfírvinnu. I öðru lagi að hert sé innheimta sölugjalds. Og í þriðja lagi að settar séu skýrar reglur um fjárhags- ábyrgð aðila sem annast þjón- ustu fyrir ríkissjóð er hann greiðir að öllu eða meginhluta til. I þessu sambandi er meðal annars bent á afkomu sjúkra- stofnana á árinu 1987. Ríkisendurskoðun á ekki og getur ekki blandað sér í það pólitíska moldviðri sem skýrslur af þessu tagi valda. Fyrir stofíi- unina skiptir mestu að niður- stöður hennar standist faglega gagnrýni. Ekki yrði tekið lengi mark á henni, ef það orð kæm- ist á að hún færi of geyst í dómum sínum. Þeir stjóm- málamenn sem telja sig verða fyrir barðinu á niðurstöðum stofnunarinnar reyna auðvitað að verjast eftir bestu getu, þar sem pólitísk framtíð eða stefna kann að vera í húfí. Úr slíku á að leysa á stjómmálavettvangi en raunhæfum tillögum til úr- bóta á að hrinda í framkvæmd innan hins opinbera kerfís og ætti ekki endilega að þurfa stjómmálamenn til þess. Nýja brúin, sem VÍgð verður I dag. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Brú yfir ðlfusárósa: Forsætisrádherra opnar veginn og brúna í dag ÞORSTEINN Pálsson forsætis- ráðherra opnar veg og brú um Olfusárósa í dag. Athöfnin hefst klukkan 15 með því að Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri afhend- ir Matthíasi Á. Mathiesen sam- gönguráðherra mannvirkin. Samgönguráðherra flytur ávarp en forsætisráðherra opnar brúna almennri umferð. Áætlaður kostnaður við verkið fulllokið er 280 milljónir króna, á verðlagi júlí 1988. Það er lægri fjár- hæð en áætlanir gerðu ráð fyrir. Vegurinn milli Eyrarbakka og Þor- lákshafnarvegar er 11,5 km langur en brúin yfír ósinn er 360 metra löng. Vegurinn er 7,5 metra breiður en akbrautin er 6 metra breið, lögð klæðningu. Breidd akrautar á brúnni er 6,5 metrar en brúin er 7,3 metra breið. í veginn hafa farið 230 þúsund rúmmetrar af sandi og hraungrýti og hann verður varinn með 20 þúsund rúmmetrum af gijóti. í brúna hafa farið 3000 rúm- metrar af steypu, 170 tonn af steypustyrktaij ámi og 55 tonn af spennistáli. Með tilkomu þessara mannvirkja myndast hringtenging um svoneftit Árborgarsvæði. Samgöngur innan svæðisins batna mjög mikið, eink- um milli þétytbýlisstaðanna við ströndina, Þorlákshafnar, Eyrar- bakka og Stokkseyrar. Þannig styttist leiðin milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar úr 44 km í 16 km. Fá vegamannvirki eiga sér jafn- langan aðdraganda og brúin yfír Ölfusárósa og miklar umræður hafa farið fram um nauðsyn hennar und- anfama áratugi. Framkvæmdir við brúna hófust 1978 þegar sýslu- nefnd Ámessýslu veitti einni milljón króna til vegaframkvæmda og var þá undirbyggður 800 metra vegar- kafli ofan Eyrarbakka. Fram- kvæmdir hófust hins vegar af krafti 1986 er gerður var vegur frá Eyrar- bakka að Ölfusárós. Þá vinnu ann- aðist Ræktunarsamband Flóa og Skeiða en flokkur frá Vegagerðinni Iagði klæðningu. Snemma árs 1987 hófst brúarsmíði, langstærsti þáttur verksins. Hana önnuðust S.H. verk- takar en Sveinbjöm Runólfsson sf sá um jarðvinnu og lagningu vegar vestan brúarinnar að Þorlákshafn- arvegi. Klæðning sf lagði veginn bundnu slitlagi. Fossvélar önnuðust mölun efnis. Manvirkin em hönnuð af starfsmönnum Vegagerðar ríkis- ins, sem höfðu einnig eftirlit með vegaframkvæmdum en Mat sf og Verkfræðistofa Suðurlands höfðu eftirlit með brúargerðinni. Brúin er í 8 höfum, landhöf 36 metrar en millihöf 48 metrar. Yfírbnyggingin er eftirspennt og var hún byggð í 8 áföngu sem spenntir vom saman. Stöplamir standa á hrauni. Sjóminjasafnið á Eyrarbakka gengst fyrir sýningu í samkomu- húsinu Stað sem nefnd er „Baráttan um brúna. Brot úr sögu brúarmáls- ins.“ Sýningin verður opin í dag að lokinni vígslunni til klukkan 20, á morgun, sunnudag frá 14-21 og síðan næstu viku frá 17-21. Sjónvarpsþátturinn „Logi og eldur“, sem tengist Olympíu- leikunum í Seoul í Suður-Kóreu, var frumsýndur þar í landi síðastliðið mánudagskvöld og er talið að um 15 miljjón manns hafi fylgst með útsendingunni. Hluti þáttarins var tekinn upp hér á landi í lok júnímánaðar í sumar og að sögn framleiðanda þáttarins vakti þáttur íslands í myndinni mikla athygli enda væri hann almennt talinn best heppnaði hluti myndarinnar. Unnið er að enskri útgáfu á þættinum og verður hann vænt- anlega sýndur víða um heim i tengslum við Olympíuleikanna, sem hefjast í Seoul hinn 17. september næstkomandi. Þátturinn fjallar um eldinn í sögu mannkynsins og er efnið síðan tengt Olympíueldinum. Upp- hafsatriði þáttarins er tekið í Al- mannagjá á Þingvöllum, en síðan birtast svipmyndir af ýmsum stöð- um á landinu, sem sýna vel sér- stöðu íslands frá náttúrunnar hendi þar sem jarðeldar og jarð- hiti hafa átt þátt í að móta um- Miklar um- ræður um Reiðhöllina Akurej/ri. Frá Halli Þorsteinssyni, blaða- manni Mórgunblaðsins. TILLAGA um að auka hlutafé Stéttarsambandsins í Reiðhöll- inni hf. um 500.000 krónur var samþykkt á aðalfundi Stéttar- sambandsins. Allharðar umræð- ur urðu um tillöguna og kom fram í þeim að heildarskuldir Reiðhallarinnar eru nú um 67 milljónir króna, og þar af eru 9 milljónir á yfirdrætti. í máli þeirra fulltrúa sem á móti tillögunni voru kom fram sú skoðun að Reiðhöllin hefði engan fjárhags- legan rekstrargrundvöll, og allt síðastliðið ár hafí reksturinn verið í molum. Reiðhöllin hf. er í eigu Félags hrossabænda, Stéttarsambands bænda, Búnaðarfélags íslands, Landssambands hestamannafélaga, Reykjavíkurborgar og íjölda ein- staklinga. Hlutafé er nú 13 milljón- ir króna, en heildarskuldir eru um 67 milljónir. Brunabótamat er 125 milljónir króna. Á fundinum kom fram að félag hrossabænda, sem á 2,5 milljónir króna hlutafé í Reiðhöllinni, ætlar á næstunni að auka hlutafjáreign sína um helming. hverfíð. Má þar nefna Bláa lónið, sundlaugamar í Reykjavík, Kerið í Grímsnesi, Hveragerði og Geysi, en þar var framkallað gos á með- an á myndatökunni stóð. Eins og greint var frá í frétt Morgunblaðsins fyrr í sumar var það fyrir milligöngu Ingólfs Guð- brandssonar að hluti þessa sjón- varpsþáttar var tekinn upp hér á landi. Ingólfur sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði enn ekki séð þáttinn, en hann hefði fengið upphringingu strax á þriðjudagsmorgun, þar sem fram- leiðandi þáttarins hefði óskað sér til haminju með þátt íslands í myndinni. „Hann fiillyrti að þátt- urinn, og þá einkum hlutinn sem tekinn var á íslandi, hefði fengið frábærar viðtökur og vakið mikla athygli í Kóreu. Ég á því von á að þessi þáttur geti orðið góð og víðtæk landkynning fyrir ísland þegar enska útgáfan kemur á markað, en ef að líkum lætur verð- ur sú útgáfa sýnd víða um heim í tengslum við 01ympíuleikana,“ sagði Ingólfur. Hafnarfj örður: Suður-kóreska sjónvarpið: Islandsþátturinn vakti mikla athygli Ný heilsugæslu- Sólvang og annað starfsfólk. í síðari áfanga, sem væntanlega verður lokið við á næsta ári, er aðstaða fyrir starfsfólk stöðvarinnar og Sólvangs, þvottahús, eldhús, rönt- genaðstaða, bókasafn, geymslur og breytingar á 1. hæð Sólvangs. í byggingarnefnd eiga sæti Guðmundur Ámi Stefánsson bæj- arstjóri, formaður, Sveinn Guð- bjartsson, forstjóri Sólvangs, Bjöm Ámason bæjarverkfræðing- ur, Eyjólfur Sæmundsson, formað- ur stjómar heilsugæslustöðvarinn- ar, og Jóhann Ág. Sigurðsson, héraðslæknir Reykjanessumdæm- is. Frá upphafsatriði sjónvarpsþáttarins „Logi og eldur“, þar sem kói Hamrahlíðarskólans, undir sfjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, gengui með logandi kyndla upp Almannagjá syngjandi „ísland farsælda frón“. stöð við Heilbrigðisráðherra, Guð- mundur Bjarnason, tekur form- lega i notkun nýja heilsugæslu- stöð í Hafnarfirði f dag. Meðal gesta verður forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir. Stöðin hefur hlotið nafnið Heilsu- gæslustöðin Sólvangi og er fyrri hluti byggingar við elli- og hjúk- runarheimilið Sólvang í Hafnar- firði. Stöðinni er fyrst og fremst ætlað að sinna heilsu- gæslu fyrir Hafnfirðinga og íbúa Bessastaðahrepps. Fyrri hlutinn, sem er 650 fer- metrar, hýsir heilsugæslustöð, þar sem starfa sex heilsugæslulæknar MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 29 AF ERLENDUM eftir PÉTUR PÉTURSSON Umhverfisvemd er mál málanna Sænska kosmngabarattan: Flokki „græningja“ spáð þingsæti Mál málanna hér í Svíþjóð nú rétt fyrir kosningar virðist það, hvem- ig staðið er að rannsókninni á morðinu á Olof Palme fyrrum forsætis- ráðherra, en hún hefur engan árangur borið. Það er frægt orðið að bókaútgefandi var kominn í hlutverk rannsóknarlögreglumanns í vit- orði með háttsettum embættismönnum og dómsmálaráðherranum sjálf- um. Nú er verið að gera úttekt á þessu öllu og fínna út hveijum sé hvað að kenna og er hið mesta pólitíska moldviðri út af þessu. rátt fyrir það rúm sem þetta mál fær nú í opinberri um- ræðu telja kjósendur það ekki hið mikilvægasta. Skoðanakannanir sýna að kjósendur setja umhverf- isvemdarmál á oddinn. Tímaritið Veckans Affarer gerði könnun fyrir skömmu, sem var þannig framkvæmd að framkvæmda- stjórar flokkanna voru beðnir að orða tvö mikilvægustu kosninga- loforðin sem flokkar þeirra stæðu á bak við. Síðan var úrtak kjós- enda beðið að velja meðal þeirra. Annað loforð Umhverfísvemdar- flokksins fékk flest „atkvæði" eða 96%, en það var um að herða lög og reglur gegn mengun. Næst vinsælasta loforðið var um lækk- un virðisaukaskatts á nauðsynle- gustu matvælum, en bæði Mið- flokkurinn og Vinstri flokkur kommúnista (VPK) gáfu það. Númer þrjú, með stuðning 78% svarenda, var „að standa vörð og réttaröryggi" frá Ihaldsflokknum (Moderatema), en það má annað- hvort túlka sem áhyggjur manna vegna rannsóknar morðmálsins áðumefnda, eða að fólk vilji að tekið verði fastar á afbrotamönn- um og friðar á almannafæri verði betur gætt. Hjartans mál Jafnað- armannaflokksins, að sex vikna sumarfrí verði almenn regla, fékk dræman stuðning, lenti númer tíu í röðinni. Fleiri vildu minni skatt- byrði, en það loforð gáfu bæði íhaldsflokkurinn og Fijálslyndi þjóðarflokkurinn. Annað loforð Umhverfísverndarflokksins lenti sem sé í fyrsta sæti en hitt loforð flokksins hafnaði í síðasta sætið. Og var um hærri skatta á raforku og hráefni til iðnaðar, aðeins 11% fannst það mikilvægt mál. Lítil trú á stjórn- málamönnum í sömu könnun var einnig spurt um traust til stjómmálamanna og bentu niðurstöður til þess að það fari þverrandi. 45% sögðu að traust þeirra til stjómmálamanna hefði minkað, aðeins 1% að þeir hefðu nú meira traust til þeirra en áður. Sambærilegar tölur, árs- 'gamlar, voru 29% og 5%. Þetta vantraust á stjórnmálamönnum gæti þýtt að Umhverfísvemdar- flokkurinn, sem hefur á að skipa nýjum og óþekktum andlitum, fengi aukinn byr frá kjósendum þess vegna. Starfsaðferðir flokks- ins leggja áherslu á áð breyta hefðbundnu hlutverki stjómmála- mannsins. Mengun blasir við Það er nú orðið ljóst að sjórinn við strendur landsins er mjög mengaður og eitrun hefur fundist í þangi og öðrum sjávargróðri. Fiskur er mengaður, selir hrynja niður og á stórum svæðum eru þeir algerlega horfnir. Algengt er að sjá selshræ við sandstrendur þar sem sumarglaðir Svíar eru vanir að sóla sig. Má því segja að vandamálið sé komið með sýni- legum hætti inn fyrir þröskuldinn. Þá sýnir sig einnig nú, þegar haustið nálgast, að skugginn frá kjamorkuslysinu í Tsjemobyl í Sovétríkjunum fyrir rúmum tveim árum er ekki horfinn. Enn má fínna mikið magn af geislavirkum efnum í viltum dýrum, elgum og dádýrum, sem nýlega hafa verið felld, svo og sveppum sem fólk er farið að tína. Ér það einmitt mikið gleðiefni margra sem unna náttúmnni og heilnæmu fæði að fara sjálfir að stjá á þessum tíma og tína þetta góðgæti. Þetta hefur að sjálfsögðu ekki farið fram hjá stjómmálaflokkun- um sem nú em í óða önn að tjá kjósendum ágæti sitt og benda á vankanta hinna flokkanna. Kepp- ast þeir við að setja fram sem róttækastar tillögur í umhverfis- vernd. Yfir 5% fylgi Skoðanakannanir benda til þess að Umhverfisverndarflokkurinn, Miljöpartiet, fái tilskilið hlutfall atkvæða, þ.e.a.s. 5%, til að koma í fyrsta sinn fulltrúum sínum á þing. í apríl í vor hafði flokkurinn um 8% fylgi aðspurðra og þó að það hafí eitthvað minkað í seinni könnunum benda þær til að fylgi flokksins sé yfir 5%. Talsmenn Umhverfisverndar- flokksins, sem hefur engan sér- stakan flokksformann, neita því alfarið að hægt sé að skipta hon- um til hægri eða vinstri. Græni liturinn er þeirra tákn, en hvorki rauður eða blár. Þeir segjast vera ný vídd í pólitíkinni og muni eink- um styðja þau mál sem efli nátt- úmvemd og eftirlit með heilsu- samleguu fæði og umhverfi. Kjarnorkuverin aftur á dagskrá Kveikjan að flokknum var á sínum tíma (í upphafi þessa ára- Umhverfisverndarflokkurinn hefur engan flokksformann heldur tvo talsmenn, sem valdir eru til skamms tíma í senn, er annar karl en hinn kona. Eva Goes er annar þessara talsmanna. Hún segist ekki vilja verða venjulegur sljórnmálamaður, þótt hún nái kosningu á þing 13. september næstkomandi. VETTVANGI tugar) baráttan gegn kjarnorku- vemm og í kosningabæklingum frá flokknum stendur að hann vilji að þau hverfi innan þriggja' ára. Eftir kjamorkuslysið í Tsjemobyl, er geislavirkni barst í töluverðum mæli til Svíþjóðar, em þeir æ fleiri sem styðja þessa kröfu. Nýleg könnun sýndi að 37% íbúa Malmö vilja að Barsebekk- verinu verði lokað hið bráðasta, en það er kjamorkuver í næsta nárgrenni við borgina. í stefnuskrá Umhverfísvernd- arflokksins má auk þess fínna markmiðið að draga úr notkun kola og olíu í orkuframleiðslu. Finnst mörgum raunhyggjumönn- um nokkuð langt gengið með því, en „hinir grænu“ hafa einnig áform um það að spara orkuna og breyta framleiðsluháttum. Hugmyndafræði þeirra byggist á því að umhverfismálin séu ná- tengd öðmm mikilvægum mál- flokkum sem og samfélagsgerð- inni í heild. Þannig vill flokkurinn draga vemlega úr bílaumferð og gera landið og hvem landshluta sem mest sjálfu sér nógan í fram- leiðslu á nauðsynjum-þó svo kosti að hagvöxtur og framleiðsla minnki. Auka á notkun jámbrauta . og stytta vinnuvikuna í 30 stund- ir. Jafnrétti milli kynjanna er ofar- lega á baugi hjá flokknum og því er fylgt eftir í flokkstarfínu af meiri samkvæmni en gerist hjá öðmm flokkum. Viðbrögð „gömlu“ flokkanna „Gömlu" flokkarnir líta þennan nýgræðing hornauga og fulltrúar þeirra virðast sammála um að hann sé með öllu óhæfur í sam- starfí m.a. vegna þess að taka ákvarðana og stefnumótun innan flokksins sé mjög tilviljanakennd og óljós. Miðflokksmenn telja að ýmislegt í stefnuskrá nýja flokks- ins í umhverfísvemd séu mál sem þeir hafí sjálfir barist fyrir í árar- aðir og saka flokkinn um að eigna sér afrek sem þakka megi um- hverfísvemdarhreyfingunni en starfí á miklu breiðari gmndvelli en flokkurinn. Ingvar Carlsson forsætisráð- herra hefur töluvert fengist við umhverfis- og framtíðarmál en það vom hans málaflokkar í ráðu- neyti Olofs Palme. Hann hefur nokkmm sinnum vikið máli sínu að Umhverfisvemdarflokknum í kosningaræðum sínum og varað við því að erfítt gæti orðið að mynda starfhæfa ríkisstjóm ef þessi nýi flokkur kæmist inn á þing. Þá hefur hann lagt áherslu á mikilvægi nægrar atvinnu í landinu. Telur hann eitt af afrek- um stjórnar sinnar að tryggja hana og segja að Umhverfísvemd- arflokkurinn hafi ekki sýnt nokk- um skilning á því hve þar sé mik- ið í húfí. Alla efnahagspólitík hinna grænu telur Carlsson óraunhæfa og fullyrðir að þar sé ekki að finna neinar leiðir til að fjármagna allar þær aðgerðir sem til þurfí til að standa vörð um og vemda umhverfið. Gera má ráð fyrir að málflutn- ingur „hina ábyrgu" stjómmála- manna dragi eitthvað úr þeim byr sem nú virðist vera í seglum Umhverfísverndarflokksins. Nú- verandi stjóm getur státað af góðu jafnvægi í efnahagsmálum og Svíar meta öryggi og festu framar flestum öðrum gæðum lífsins. Höfundur er fréttaritari í Lundi íSvíþjóð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.