Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 Sj ómannafélagið Jötunn í Vestmannaeyjum: Hömlum á út- flutningi ísfisks í gámum mótmælt STJÓRNARFUNDUR í sjómanna- félaginu Jötni í Vestmannaeyjum, haldinn síðastliðinn miðvikudag, mótmælir harðlega þeim hömlum sem settar hafa verið á útflutning isfisks í gámum. Stjóm Jötuns lítur svo á að viss stjómun á útflutningi ísflsks í gám- um geti verið nauðsynleg. Hún getur hins vegar ekki sætt sig við þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið undanfamar vikur þar sem skipum er meinað að flytja út aflann, jafn- vel þó ekki sé hægt að losna við hann hér heima á gildandi fískverði. Stjómin skorar á sjávarútvegsráð- herra að afnema nú þegar hömlur á útflutningi ísfisks í gámum og taka upp viðræður við hagsmunaaðila í sjávarútvegi um hugsanlega lausn á málinu. Stjórnin mótmælir einnig harð- lega þeirri kaupmáttarskerðingu sem fram kemur í tillögum til ríkis- stjómarinnar um efnahagsmál, svo og áformum um lækkun skiptapró- sentu til sjómanna eða lækkun fisk- verðs sem er nú þegar of lágt miðað við verðlagsþróun í landinu. Stjómin skorar á miðstjóm Al- þýðusambands íslands að hafna nú þegar þeirri leið sem ríkisstjómin virðist hafa valið sér til að rétta við atvinnurekstur í landinu og hallann á ríkissjóði, það er að segja ofnot- aðri kjaraskerðingarleið, segir í fréttatilkynningu frá sjómannafé- laginu Jötni. Sigríður Gyða sýnir verk sín á Kjarvalsstöðum til 11. september. Sigríður Gyða sýnir á Kjarvalsstöðum SIGRÍÐUR Gyða opnaði mál- verkasýningu á Kjarvalsstöðum laugardaginn 27. ágúst sl. Á sýningunni eru 30 verk. Þetta er fyrsta einkasýning Sigríðar í Reylq'avík en hún hefur tvívegis tekið þátt í haustsýningu FÍM á Kjarvalsstöðum og margoft sýnt f veitingahúsinu Þrastalundi við Sog. Hún stundaði nám í mynd- listarskólum hérlendis í sjö ár. Sýning Sigríðar Gyðu stendur til 11. september nk. og er opin kl. 14—22 daglega. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/K.G.A. Hinrik Greipsson, formaður Sambands íslenskra bankamanna, ávarpar útifundinn á Lækjartorgi í gær. Utifundur á Lækjartorgi: Ráðagerðir um niður- færslu launa fordæmdar ÚTIFUNDUR, sem ýmis stétt- arfélög opinberra starfs- manna og bankamenn áttu frumkvæði að, var haldinn á Lækjartorgi á fimmtudag. Á fundinum var samþykkt álykt- un, þar sem mótmælt er þeirri ákvörðun stjórnvalda, að banna að greiða út 2,5% samn- ingsbundna launahækkun 1. september. Jafnframt eru for- dæmdar ráðagerðir stjórn- valda um niðurfærslu launa. Lögreglan sló ekki tölu á fjöld- ann, sem safnaðist saraan, en sagði að um nokkum hóp hefði verið að ræða. Ályktun fundarins er svohljóð- andi: „Útifundur launafólks á Lækj- artorgi mótmælir harðlega öllum hugmyndum um skerðingu á kjörum launafólks. Mælirinn er fullur. Afnám samnings- og verkfallsréttar launamanna og tvær gengisfellingar á fyrri hluta ársins hafa leitt til umtalsverðrar kjaraskerðingar hjá launafólki sem aðrir þjóðfélagsþegnar hafa komist hjá. Vinnuframlag og kaup launa- fólks á enga sök á þeim efna- hagsvanda sem við er að glíma. Efnahagsvandi sá sem forstjóra- nefndin var að leita lausnar á er til kominn vegna hárra vaxta og lélegrar stjómunar fyrirtækja og stofnana. Launamenn mótmæla sér- staklega ákvörðun um að greiða ekki 2,5% samningsbundna launahækkun í dag, 1. septem- ber og fordæma allar ráðagerðir stjómvalda um enn meiri niður- færslu launa. Fundurinn skorar á stéttarfélögin í landinu að veija lífskjör. Stöndum saman." Flskverð ð uppboðsmörkuöum 2. september. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hœsta Lægsta Meðal- Magn Helldar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 64,00 41,00 59,01 7,826 461.848 Undirmál 27,00 27,00 27,00 0,408 11.018 Ýsa 110,00 35,00 92,83 0,995 92.416 Ufsi 18,00 18,00 18,00 0,084 1.512 Keila 15,00 15,00 15,00 0,845 12.675 Langa 30,00 30,00 30,00 0,285 8.565 Lúða 200,00 200,00 200,00 0,049 9.800 Koli 44,00 44,00 44,00 0,399 17.578 Samtals 56,40 10,893 615.412 Selt var aðallega úr Stakkavík ÁR. Nk. mánudag verfiur m.a. selt óákveðið magn úr Stakkavík ÁR og karfi og ýsa úr Keili RE. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 59,00 40,00 48,23 3,158 152.324 Undirmál 24,00 24,00 24,00 0,052 1,248 Ýsa 71,00 20,00 61,41 1,980 121.587 Karfi 20,00 20,00 20,00 0,268 5.360 Ufsi 12,00 12,00 12,00 0,020 240 Hlýri 26,00 26,00 26,00 0,445 11.570 Skarkoli Samtals 34,00 26,00 32,54 49,00 0,127 6,050 4.132 296.461 Næstkomandi mánudag verða m.a. seld 120 tonn af karfa og 20 tonn af ufsa úr Ögra RE. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 53,50 39,50 50,87 7,920 402.909 Ýsa 80,50 33,00 71,39 8,978 640.925 Ufsi 27,00 13,00 26,64 1,852 49.344 Karfi 26,00 15,00 25,06 2,728 68.370 Steinbítur 41,50 41,50 41,50 0,321 13.308 Langa 35,00 35,00 35,00 0,200 7.000 Sólkoli 51,50 51,50 51,50 0,017 876 Skarkoli 41,50 35,00 39,26 1,208 47.425 Lúða 146,00 121,00 140,37 0,046 6.457 Keila 12,00 12,00 12,00 0,015 180 Skata 71,00 71,00 71,00 0,087 6.177 Skötuselur 313,00 274,00 288,94 0,047 13.580 Samtals 53,65 23,420 1.256.551 Selt var aðallega úr Höfrungi II GK. Næstkomandi mánudag verða m.a. seld 10 tonn af þorski, 6 tonn af ýsu og 3 tonn af ufsa úr Sigurði Þorleifssyni GK. GENGISSKRÁNING Nr. 166. 2. 8eptember 1988 Kr. Kr. Toll- Eln. Kl. 09.16 Kaup Sala gcngl Dollari 46,79090 46,91000 46,65000 Sterlp. 78,09000 78,29000 78,62900 Kan. dollari 37,82500 37,92200 37,69500 Dönsk kr. 6,48730 6,50400 6,50400 Norsk kr. 6,73770 6,75500 6,77120 Sœnsk kr. 7,21230 7,23080 7,23700 Fi. mark tO,51930 10,54630 10,52100 Fr. franki 7,34020 7,35900 7,36240 Belg. franki 1.18990 1,19300 1,19170 Sv. franki 29,58580 29,66170 29,60960 Holl. gyllini 22,09940 22,15610 22.13460 V-þ. mark 24,96130 25,02530 25,00000 ít. líra 0,03349 0,03357 0,03366 Austurr. sch. 3,54750 3.55660 3.55430 Port. escudo 0,30330 0,30410 0.30520 Sp. peseti 0,37570 0,37660 0,37810 Jap. yen 0.34166 0.34253 0.34767 frskt pund 66,73900 66,91000 66,90300 SDR (Sérst.) 60.17520 60,32950 60.40430 ECU, evr.m. 51,70530 51,83790 51,85850 Tollgengi fyrir september er sölugengi 29. ágúst. Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70. Athugasemd frá Dansráði íslands VEGNA fréttar í Morgunblað- inu 1. september undir fyrir- sögninni „Dansskólar ætla að sækja um undanþágu" vill Dansráð íslands koma eftirfar- andi athugasemd á framfæri. „Fréttamaður hafði ekki sam- band við neinn úr stjóm Dansráðs íslands vegna þess fundar sem haldinn var í ráðinu miðvikudaginn 31. ágúst, enda hefði hann þá fengið önnur svör eftir að fundur- inn var haldinn. Á fundi ráðsins var aftur á móti samþykkt einróma að beina þeim tilmælum til allra danskenn- ara innan samtakanna að virða landslög og á meðan verðstöðvun er f landinu verði gjaldskrá dans- skólanna eins og hún var sl. vor þegar flestir dansskólar luku vetr- arstarfinu. Dansráð íslands mun því ekki Slys á Kleppsvegi Umferðarslys varð við Klepps- veg 18 í hádeginu í gær. Ekið var á gangandi vegfaranda og lenti bíllinn sem það gerði síðan í árekstri við annan. Gangandi vegfarandinn og öku- maður annasrs bflsins voru fluttir á slysadeilc, talsvert slasaðir. leggja inn beiðni til Verðlagsstofn- unar um undanþágu frá verðstöðv- un eins og fram kom í frétt blaðs- ins og við hörmum vinnubrögð fréttamanns að hafa ekki leitað nánari upplýsinga, en þessi frétt var aðeins til að villa um og skaða danskennsluna í landinu. Þar að auki var engin ástæða til umfjöll- unar um þetta mál á þessu stigi því enginn dansskóli var búinn að auglýsa starfssemi sína fyrir kom- andi vetur.“ (Athugasemd ritstj.) í frétt blaðsins var haft eftir skólastjóra Nýja dansskólans að Dansráð íslands myndi „væntan- lega leggja fram beiðni um undan- þágu frá verðstöðvuninni." Blaða- maður taldi eKki ástæðu til að rengja þetta, enda var ekki fullyrt að beiðni yrði lögð inn. Ekki var sagt eða gefíð í skyn í fréttinni að danskennarar hygðust ekki virða landslög. Tilgangur fréttar- innar var ekki að „villa um og skaða danskennsluna í landinu," heldur að forvitnast um viðbrögð þeirra sem verðstöðvunin kemur harðast niður á. Fyrirsögn fréttarinnar er óná- kvæm, þar hefði átt að standa „íhuga" í stað „ætla“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.